Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010 létta gjaldeyrishöftum á næstu árum, er nærtækt að líta til aflandsgengis krónunnar til að fá hugmynd um hvaða jafnvægi krónan muni ná. Sam- kvæmt vefsíðunni keldan.is er af- landsgengi krónunnar skráð um það bil 50% lægra en hjá Seðlabanka Ís- lands. Skiptir máli hvenær greitt er út Sigurður Hannesson, stærðfræð- ingur, hefur sett upp reiknilíkan til að meta núvirtan kostnað við Icesave- kröfuna eftir að skilanefnd Lands- bankans byrjar að greiða út úr þrota- búinu. Miðað við að greiðslur hefjist í upphafi fjórða fjórðungs næsta árs mun kostnaður ríkisins við Icesave nema um 55 milljörðum króna, núvirt. Veikist krónan um 25% mun kostn- aðurinn nema 173 milljörðum króna. Úr töflunni er hægt að lesa samspil tímasetninga útgreiðslna og gengis- þróunar krónunnar. Eins og sjá má verður kostnaður ríkisins í besta falli 21 milljarður króna, sem miðast þó við að krónan styrkist um 25% og út- greiðslur hefjist næsta haust. Sambærilegt við myntkörfulán  TIF mun aldrei fá meira en sem nemur 674 milljörðum króna greitt úr þrotabúi Landsbankans óháð gengi krónunnar  Gengisvörn sem felst í verðhækkunum eigna í krónum takmörkunum háð Gengisáhætta vegna Icesave-samningsins Getur að hámarki fengið 674 milljarða króna úr þrotabúi Landsbankans, óháð því hvert gengi krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum er. Þegar nýtt Icesave-samkomulag við Breta og Hollendinga var kynnt í síðustu viku hafði gengi krónunnar styrkst nokkuð frá 22.apríl 2009, en kröfufjárhæð Tryggingasjóðs inni- stæðueigenda og fjárfesta miðast við gengi krónunnar þann dag. Gangi sú styrking til baka og gott betur munu endurheimtur á kröfu Tryggingsjóðs auðveldlega ná upp í 100%, en út af stendur greiðsla upp á 1,3 milljarða evra og 2,3 milljarða punda sem ríkið þarf að ábyrgjast samkvæmt nýjum Icesave-samningi. Stöðu íslenska ríkisins og Trygginga- sjóðs og má því líkja við aðila sem er með tekjur í íslenskum krónum, en þarf að standa skil á skuld í erlendri mynt. Margir Íslendingar brenndu sig á að taka slíka áhættu á árunum fyrir gjaldþrot bankanna með svokölluðum myntkörfulánum. Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta Samkvæmt nýjasta samkomulaginu við Breta og Hollendinga þarf íslenska ríkið að ábyrgjast að greiðsla sem samsvarar 1,3 milljarði evra berist hollenska innistæðutrygginga- kerfinu, óháð því hvernig gengi íslensku krónunnar kann að þróast á greiðslutímabilinu. Samkvæmt nýjasta samkomulaginu við Breta og Hollendinga þarf íslenska ríkið að ábyrgjast að greiðsla sem samsvarar 2,3 milljörðum punda berist breska innistæðu- tryggingakerfinu, óháð því hvernig gengi íslensku krónunnar kann að þróast á greiðslutímabilinu. Núvirtur kostnaður ríkissjóðs vegna ríkisábyrgðar á Icesave miðað við hvenær útgreiðslur hefjast úr þrotabúi Landsbankans Útreikningar dr. Sigurðar Hannessonar, stærðfræðings Tölur í milljörðum kr. 1.10.2011 1.1.2012 1.7.2012 1.1.2013 1.7.2013 1.1.2014 25% sterkara gengi 21,6 23,0 26,1 29,7 33,7 37,9 15% sterkara gengi 34,7 36,3 39,8 43,8 48,2 52,9 5% sterkara gengi 47,9 49,7 53,5 57,9 62,7 67,9 Óbreytt gengi 54,5 56,4 60,3 65,0 70,1 75,5 5% sterkara gengi 61,1 63,0 67,2 72,1 77,4 83,1 10% sterkara gengi 67,7 69,7 74,1 79,1 84,7 90,6 15% veikara gengi 101,4 103,4 107,9 113,2 119,0 125,2 25% veikara gengi 173,0 175,2 180,1 185,8 192,0 198,7 30% veikara gengi 210,4 212,7 217,8 223,7 230,2 237,1 40% veikara gengi 287,5 290,0 295,4 301,7 308,6 316,1 50% veikara gengi 371,2 373,9 379,6 386,4 393,8 401,7 FRÉTTASKÝRING Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Staðan sem íslenska ríkið lendir í, verði ríkisábyrgð á Icesave-kröfum Breta og Hollendinga fest í lög, er sambærileg við stöðu lántakenda er- lendra lána á Íslandi síðustu misserin fyrir gjaldþrot bankanna. Eignir Landsbankans eru að vísu í erlendri mynt, en þeim er ætlað að ganga upp í Icesave-kröfuna. Hins vegar hefur krafa Tryggingasjóðs innistæðueig- enda og fjárfesta (TIF) verið fest í krónum, miðað við gengi krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum 22. apríl 2009, í 674 milljörðum króna. Hámarksheimtur sem TIF fær úr þrotabúi Landsbankans eru festar í 674 milljörðum króna, óháð því hvern- ig krónan verður skráð á tímabilinu sem áætlað er að greitt verði inn á kröfur Breta og Hollendinga. Verð- mætaaukning eigna Landsbankans, sem eru að mestu leyti í erlendum gjaldmiðli, virkar því ekki sem full- komin gengisvörn. Takist Seðlabanka Íslands að halda innlendri gengisskráningu krónunnar stöðugri innanlands á greiðslutíman- um, mun kostnaður vegna Icesave- krafna Breta og Hollendinga hins vegar mælast á annan hátt, enda strembið að henda nákvæmlega reiður á þeim kostnaði sem fylgir gjaldeyrishöftum í krónum og aurum talið. Verði gerðar tilraunir til að af- Bjarni Ólafsson og Örn Arnarson Lögfræðingar, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, segja að neyðarlög- in standi ekki í veginum fyrir því að farin yrði sú leið við lausn Icesave- málsins að þrotabú Landsbankans fengi lán frá kröfuhöfum, sem notað yrði til að greiða lánin frá Bretum og Hollendingum. Hugmyndirnar eru frá almennum kröfuhöfum gamla Landsbankans komnar og kynntu þeir þær íslenskum stjórn- völdum í vor. Tillaga þeirra felur meðal annars í sér að íslenska ríkið myndi losna undan allri ábyrgð vegna Icesave-skuldbindinga. Í Morgunblaðinu í gær sagði fjöl- miðlafulltrúi fjármálaráðuneytisins að þessar hugmyndir gengju út á að ná til baka forgangsrétti innstæðu- eigenda, sem þeim var veittur um- fram almenna kröfuhafa. Lögfræðingarnir segja að hags- munir erlendu innstæðueigend- anna séu nú hjá innstæðutrygg- ingasjóðum Hollendinga og Breta og lagalega skipti engu máli hvort sjóðirnir fái greitt frá íslenska tryggingasjóðnum eða frá þrotabúi Landsbankans. Sjóðunum sé heim- ilt að gera samninga á þessa lund, en hugmyndir almennu kröfuhaf- anna gerðu ráð fyrir því að sam- þykki erlendu tryggingasjóðanna þyrfti til að þær fengju fram að ganga. Ekki bann við lántöku Breskir og hollenskir innstæðu- eigendur hafa nú þegar fengið tryggðar innstæður sínar af viðkom- andi ríkjum og eru því ekki kröfuhaf- ar í þrotabúið, heldur hafa trygg- ingasjóðirnir tveir tekið við þeim kröfum. Hugmyndirnar ganga út á að tryggingasjóðirnir falli frá kröfum á Landsbankann vegna fjárhæða sem eru umfram 21.000 evrur á hverja innstæðu. Breska og hollenska ríkið hafa ábyrgst þessa fjárhæð til sinna þegna og því myndu sjóðirnir að öll- um líkindum fá minna í sinn hlut en ella. Staða innstæðueigendanna sjálfra ætti hins vegar að vera óbreytt. Þá hefur sú athugasemd verið viðruð að fjármálafyrirtæki í greiðslustöðvun, eins og gamli Landsbankinn, geti ekki tekið á sig nýjar skuldbindingar. Lögfræðing- arnir segja hins vegar að það sé hægt, að ákveðnum skilyrðum upp- fylltum. Það sé því ekki til staðar ófrávíkjanlegt bann við slíku. Reyndar hafa lögmenn erlendu kröfuhafanna sem blaðið hefur rætt við verið á þeirri skoðun að hugs- anlega ætti að breyta lögunum þann- ig að þau verði skýrari hvað þetta úr- ræði varðar. Hinsvegar telja þeir að núverandi löggjöf komi ekki í veg fyrir að hægt sé hrinda þeirri lausn í framkvæmd sem almennu kröfuhaf- arnir kynntu. Hugmyndir stríða ekki gegn neyðarlögum  Lögfræðingar segja erlendu sjóðina allt eins geta fengið greitt frá þrotabúinu Morgunblaðið/Kristinn Samkomulag Nýtt samkomulag milli Íslands, Bretlands og Hollands var kynnt í síðustu viku og er það í stórum dráttum samhljóða því fyrra, en gert er ráð fyrir lægri vöxtum á lánum Hollendinga og Breta til Íslands. ● Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur lokið sölu skuldabréfa í útboði að fjár- hæð 5 milljarðar króna. Bréfin voru seld til innlendra fagfjárfesta. Fyrir- tækið vinnur áfram að fjármögnun langtímaverkefna innan lands og utan. Verðtryggðir vextir á bréfunum eru 4,65%, sem eru talsvert hærri vextir en OR býr við í annarri fjármögnun verk- efna fyrirtækisins. „Þetta er til marks um að sá upp- skurður á rekstrinum, sem gripið var til í sumar, er að skila sér í aukinni tiltrú innlendra fjárfesta á fyrirtækinu,“ segir Helgi Þór Ingason, forstjóri OR, í fréttatilkynningu frá félaginu. Aðgerð- irnar sem Helgi vísar til eru gjald- skrárbreytingar, niðurskurður rekstrar- útgjalda og eignasala, sem ákveðnar voru af stjórn OR og sú ákvörðun eig- endafundar að falla frá arðgreiðslum. OR greiðir hærri vexti ● Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s lækkaði í gær lánshæfis- einkunn Írlands úr Aa2 í Baa1 vegna aukinnar óvissu um efnahag landsins og fjármál hins opinbera. Jafnframt eru horfur neikvæðar, samkvæmt til- kynningu frá Moody’s. Írska þingið samþykkti í vikunni frumvarp til laga um að fá 85 millj- arða evra að láni hjá Evrópusam- bandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðn- um. Írland í B-flokk Stuttar fréttir…                                           !"# $% " &'( )* '$* ++,-,. +/0-,1 ++2-,/ .0-3,4 +5-2,1 +4-02/ +.0-21 +-143+ +44-34 +,1-5 ++,-/ +/0-54 ++2-5. .0-4+4 +5-,+ +4-05/ +.0-44 +-1/0+ +4/-. +,2-11 .0/-.+32 ++3-0/ +/+-2+ ++,-.3 .0-444 +5-,54 +4-+2/ +.+-++ +-1/2+ +4/-41 +,2-43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.