Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 22
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ótti stjórnvalda við óviðráðanlegar biðraðir á kjörstöðum varð til þess að kjörstöðum var breytt í kosningunum til stjórnlagaþings, frá því sem tíðk- ast í almennum kosningum. Að þessu er fundið í tveimur kærum til Hæsta- réttar og því haldið fram að kosning- arnar geti ekki talist leynilegar við þessar aðstæður og því beri að ógilda þær. Þrjár kærur bárust Hæstarétti vegna stjórnlagaþingskosninganna en kærufrestur rann út í gær. Tvær eru frá kjósendum, þeim Óðni Sig- þórssyni í Borgarfirði og Þorgrími S. Þorgrímssyni í Neskaupstað, og sú þriðja frá Skafta Harðarsyni, fram- bjóðanda til stjórnlagaþings. Ákvörðun um næstu skref í máls- meðferð Hæstaréttar verður tekin strax eftir helgi. Framkvæmd sögð ólögmæt Kærur kjósendanna ganga ekki síst út á það að kosningin hafi ekki verið leynileg og Óðinn kærir auk þess úthlutun sæta á þinginu. Þor- grímur segir að framkvæmd kosning- anna hafi verið „aldeilis ófullnægj- andi og ólögmæt“. Óðinn telur að ákvæði laga sem eiga að tryggja leynilega kosningu hafi verið brotin með þeim hætti „að segja má að at- höfn kjósanda á kjörstað hafi í sam- fellu farið í bága við lögin eftir að hann tók við atkvæðaseðli úr hendi kjörstjórnar að undanskildu því er hann áritaði seðilinn“. Kosningaleynd er tryggð í stjórn- arskrá, varðandi þær kosningar sem þar eru tilgreindar, og ýmis ákvæði eru í lögum um kosningar til Alþingis sem tryggja eiga þann rétt kjósenda að kjósa leynilega og í friði. Tekið er fram í lögunum um stjórnlagaþing að kosningin skuli vera leynileg. Fyrir- mæli eru um það hvernig atkvæða- seðillinn eigi að vera en vísað til laga um kosningar til Alþingis um kjör- deildir, kjörstaði og framkvæmd at- kvæðagreiðslunnar að öðru leyti, „eftir því sem við á“. Kærendur vekja athygli á ýmsum atriðum sem þeir telja að brjóti í bága við lögin. Óðinn og Þorgrímur nefna pappaskilrúmin sem látin voru duga í stað þess að vísa kjósendum í lokaða kjörklefa. „Útilokað er annað en að kjósendur geti hafa kíkt á kjörseðil næsta kjósanda, t.d. þegar þeir standa upp við hliðina á öðrum sem er að fylla út seðil, eða ganga fyrir aftan hann og horfa yfir öxl hans,“ segir í kæru Þorgríms. Kjósendum var bannað að brjóta saman kjörseðil að lokinni áritun, eins og skylt er í alþingiskosningum, og þeir sem það gerðu voru beðnir að fletta seðlinum í sundur og skila hon- um þannig í kjörkassa. Fólk var beðið að snúa árituninni niður en eigi að síð- ur telja kærendur að þetta atriði leiði til þess að leynd kosninganna hafi ekki verið tryggð. Fleiri atriði í þessa veru eru til- greind í kærum. Þannig nefnir Þor- grímur að atkvæðaseðlar hafi verið merktir með númeri á bakhlið auk strikamerkis. Einnig að kjörkassar hafi verið ófullnægjandi þar sem not- aðir hafi verið pappakassar í stað hefðbundinna kjörkassa. Óttuðust biðraðir Þrátt fyrir ítrekaðar óskir hafa ekki fengist upplýsingar hjá dóms- og mannréttindaráðuneytinu um það hvaða fyrirmæli voru gefin til umsjón- armanna kosninganna hjá sveitar- félögunum um breytingar á fyrir- komulagi kjörstaða og meðferð atkvæðaseðla. Fyrir liggur að sveitarfélögin töldu sig ekki geta framkvæmt kosningarn- ar sómasamlega með því fyrirkomu- lagi sem viðhaft hefur verið til þessa. Töldu að þar sem það gæti tekið hvern kjósanda allt að tíu mínútum að kjósa myndu óviðráðanlegar biðraðir myndast á kjörstöðum. Vitaskuld gengu menn út frá því að kjörsókn í stjórnlagaþingskosningunum yrði svipuð og í öðrum sambærilegum kosningum. Þess vegna var farið að huga að kjörborðum í stað kjörklefa, skipulagningu biðraða og öðru slíku. Að vísu leystu kjósendur sjálfir þennan vanda með því að sniðganga kosninguna að verulegu leyti. Það vissu þeir sem undirbjuggu kosn- inguna ekki. Vakin er athygli á kæru Þorgríms S. Þorgrímssonar á vef lögfræðistof- unnar Réttvísi ehf. á Eskifirði sem fer með mál hans. Veltir höfundur færsl- unnar fyrir sér afleiðingum þess ef niðurstaðan verður sú að öll grund- vallaratriði um að kosningar skuli vera leynilegar séu að engu hafandi. Nefnir í því sambandi hvort þá hefði ekki verið einfaldara að leyfa kjósend- um að koma og skila hjálparkjörseðl- inum sem allir fengu sendan heim. Slakað á kröfum um leynd  Þrír kærðu stjórnlagaþingskosningarnar  Brot á kosningaleynd ofarlega á blaði í kærum  Stjórnvöld óttuðust óviðráðanlegar biðraðir  Málsmeðferð ákveðin hjá Hæstarétti strax eftir helgi 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010 Ákvæði kosningalaga um leynd kosninga » Í hverri kjördeild skal vera hæfilegur fjöldi kjörklefa. Kjörklefi skal þannig búinn að þar megi greiða atkvæði án þess að aðrir geti séð hvernig kjósandi kýs. Í hverjum kjör- klefa skal vera lítið borð sem skrifa má við. » Kjörseðlana skal brjóta saman þannig að óprentaða hliðin snúi út. » Þá er kjósandi hefur tekið við kjörseðlinum fer kjósandi með hann inn í kjörklefann, þar sem kjósandinn má einn vera, og að borði því er þar stendur. » Þegar kjósandi hefur geng- ið frá kjörseðlinum […] brýtur hann seðilinn í sama brot og hann var þegar hann tók við honum, gengur út úr klef- anum og að atkvæðakass- anum og leggur seðilinn í kassann í viðurvist fulltrúa kjörstjórnar. Kjósandi skal gæta þess að enginn geti séð hvernig hann greiddi atkvæði. » Það varðar sektum ef kjós- andi sýnir af ásettu ráði hvernig hann kýs eða hefur kosið og ef maður njósnar um hvernig kjósandi kýs eða hef- ur kosið. „Það getur vel verið að menn vilji hafa atkvæðaseðlana númeraða í framtíðinni til að fá „rússneska kosningu“, en ég treysti þeim ekki,“ segir Þorgrímur S. Þor- grímsson, rennismiður og vélvirki í Neskaupstað, einn þeirra sem kærðu framkvæmd stjórnlagaþingskosninga. Hann segir ekki hægt að ræða um leynilega kosningu þegar kjósendur eru skermaðir af með pappaspjöldum og atkvæðaseðlarnir númeraðir. Honum finnst stjórnlagaþingið vitlaus hugmynd. „Ég tel að stjórnvöld hafi um nóg annað að hugsa en þetta stjórnlagaþing. Við kjósum alþingismenn til að annast þetta verk,“ segir Þorgrímur sem segist taka undir með Sigurði Líndal prófessor sem telji að Íslendingar ættu að fara að vinna eftir núverandi stjórnarskrá áður en ráðist væri í breytingar. Vill ekki „rússneska kosningu“ KÆRIR KOSNINGAR TIL STJÓRNLAGAÞINGS Þorgrímur S. Þorgrímsson Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is Áttablaðarós Sængurfatnaður Sendum frít t úr vefvers lun fram að jólu m www.lindes ign.is ❄ ❄❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ Þjónusta á Þorláksmessu og aðfangadag Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli kl. 9:00 og 15:00 verða starfsmenn að störfum í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði, Kópavogskirkju- garði og Hólavallagarði og munu þeir leiðbeina eftir bestu getu. Hægt er að nálgast upplýsingar um staðsetningu leiða á vefnum www.gardur.is Þjónustusímar: Skrifstofan í Fossvogi, sími 585 2700 og skrifstofan í Gufunesi, sími 585 2770, eru opnar á Þorláksmessu og aðfangadag frá kl. 9:00 til 15:00 Ratkort er hægt að fá afhent á skrifstofunum eða prenta út á www. kirkjugardar.is Upplýsingar eru veittar í síma allan desembermánuð á skrifstofutíma. Fossvogskirkja verður opin á aðfangadag frá kl. 9:00 til 12:00 Á aðfangadag frá kl. 9:00 til 15:00 er allur akstur um kirkjugarðinn í Fossvogi óheimill, nema fyrir hreyfihamlaða. Tilkynning frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma Gleðilega jólahátíð ❄❄❄❄❄❄❄ ❄ ❄❄❄❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄❄ ❄❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma www.kirkjugardar.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.