Morgunblaðið - 18.12.2010, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Hópur spilaáhugamanna tók sig
nýverið til og stofnaði Leikjavík,
leikjamiðstöð þar sem fólk getur
komið og spilað saman ýmis borð-
spil. Á facebook-síðu Leikjavíkur
segir að miðstöðin sé eins og
bókasafn nema með borðspilum í
stað bóka. Þrátt fyrir að mið-
stöðin sé ný eru þeir sem að
henni standa engir nýgræðingar í
spilamennsku. „Við erum sex sem
vinnum að þessu, þrír Íslendingar
og þrír útlendingar. Við byrjuðum
að spila í heimahúsi og þar voru
stundum allt að tólf manns að
spila í einu, sem var mjög gam-
an,“ segir Filipa Andrade, einn af
stofnendum Leikjavíkur.
Styrkur frá borginni
Vegna vinsælda spilasamkom-
anna þótti ráð að finna húsnæði
sem gæti hýst allan mannskapinn.
Að sögn Filipu var sú hugmynd
einnig uppi að fjölga spilamönn-
unum í hópnum. „Við höfðum
samband við fjölmenning-
armiðstöðina Múltíkúltí, sem býð-
ur meðal annars upp á íslensku-
kennslu, því við vissum að
húsnæði þeirra væri ekki nýtt all-
an daginn. Við gerðum sam-
komulag um að fá að nýta það á
kvöldin eftir kennsluna og um
helgar.“
Til að koma Leikjavík af stað
sótti hópurinn um verkefnastyrk
frá Reykjavíkurborg sem nefnist
„Vertu með í að skapa betri borg“
og er markmiðið með honum að
hvetja ungt fólk til atvinnusköp-
unar. „Í október fengum við svo
grænt ljós til þriggja mánaða,“
segir Filipa og bætir við að þau
hafi nú þegar ráðið til starfa einn
íslenskan starfsmann.
Ekki rekið í hagnaðarskyni
Spilamiðstöðin var opnuð í
nóvember og hefur starfsemin
gengið vonum framar. Þar hittast
Íslendingar, útlendingar sem bú-
settir eru hér á landi og ferða-
menn sem hafa heyrt af Leikjavík
og sameinast yfir spilum. Spurð
hvort gestir leikjamiðstöðvarinnar
geti keypt sér hressingu meðan
á spilamennsku stendur segir
Filipa: „Verkefnið er ekki
rekið í hagnaðarskyni svo
við erum ekki með neitt til
sölu en þeir sem koma
geta fengið sér ávaxtasafa
eða heitt kakó að drekka,
og svo erum við oftast
með samlokur eða
smákökur í boði. Við
tökum svo við frjáls-
um framlögum.“
Morgunblaðið/Golli
Spilamennska Fátt er skemmtilegra en að sitja við krefjandi borðspil í góðra vina hópi.
Leikjavík í Reykjavík
Fjölbreyttur hópur sameinast yfir spilum Bókasafn
með borðspilum í stað bóka Frítt en tekið við framlögum
Leikjavík er til húsa í fjölmenn-
ingarmiðstöðinni Múltíkúltí á
Barónsstíg 3 í Reykjavík. Þar er
opið þriðjudaga til fimmtudaga
frá klukkan 19 til 23 og um helg-
ar á milli klukkan 13 og 23.
Í Leikjavík ættu flestir að geta
fundið spil við sitt hæfi, jafnt
ungir sem aldnir, en spilamið-
stöðin býr yfir meira en 70 spil-
um af öllum stærðum og gerð-
um. Að sögn Filipu hýsir rýmið
léttilega 50 manns en 20 til 30
spila þar á hverju kvöldi. Þá
mættu 75 spilaáhugamenn til
leiks opnunarkvöldið sjálft.
Boðið verður upp á
ýmsa spilaatburði á
næstunni og má til að
mynda nefna spilakvöld
þar sem þau spil sem
komu út fyrir jólin
verða tekin fram.
Nánari upplýs-
ingar má finna á
facebook-síðu
Leikjavíkur.
Spil fyrir alla
LEIKJAVÍK BÝR YFIR
MEIRA EN 70 SPILUM
Í frístundaheimilinu Skólaseli við Ártúnsskóla hefur
jólaundirbúningur verið í fullum gangi á aðvent-
unni. Undanfarnar vikur hafa börnin unnið að gerð
þessa fallega jólatrés sem gert er úr þunnum
svampi. Hvert barn klippir út eitt lítið jólatré og
skreytir, síðan er þeim raðað saman og myndað eitt
stórt jólatré. Á tréð eru síðan hengdar kúlur og á
þeim stendur eitthvað spennandi sem gerist þann
daginn. Þessi vinna hefur vakið mikla lukku í Skóla-
seli.
Börnin gerðu jólatré úr svampi
Biðin eftir jólunum er brátt á enda
Filipa Andrade
Heilsa & hreyfing
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað umHeilsu og hreyfingu
mánudaginn 3. janúar.
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, þriðjudaginn 21. desember.
Í þessu blaði verða kynntir fullt af þeimmöguleikum sem
í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan
lífstíl í byrjun ársins 2011.
Meðal efnis verður:
• Hreyfing og líkamsrækt
• Vinsælar æfingar
• Bætt mataræði
• Heilsusamlegar uppskriftir
• Andleg vellíðan
• Bætt heilsa
• Ráð næringarráðgjafa
• Hugmyndir að hreyfingu
• Jurtir og heilsa
• Hollir safar
• Ný og spennandi námskeið
• Bækur um heilsurækt
• Skaðsemi reykinga
• Ásamt fullt af spennandi
efni.
SÉRBLAÐ
Kápur
Áður: 19.990 Nú: 14.990
St. 36-48
Hlý jólagjöf
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Kápur
Áður: 29.990 Nú: 23.990
St. 42-54
20% afsláttur
af öllum vörum
Opið til kl. 22
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is