Morgunblaðið - 18.12.2010, Qupperneq 32
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er frábært að vera ríkur,“ segir
í fyrirsögn greinar Bens Stever-
mans á vef tímaritsins Business
Week um kjör efnafólks í Bandaríkj-
unum þessa dagana.
Barack Obama Bandaríkja-
forseti samþykkti í gær að fram-
lengja skattalækkanir forvera síns,
George W. Bush, ákvörðun sem
margir stuðningsmanna hans á
vinstri vængnum telja svik við lof-
orðin sem Obama gaf í kosninga-
baráttunni haustið 2008.
Lægstu skattar síðan 1931
Steverman segir ákvörðunina
góðar fréttir fyrir tekjuháa Banda-
ríkjamenn og bendir á að tekju-
skattur á einstaklinga í hæsta tekju-
þrepi verði áfram 35%, eða sama
hlutfall og Bush samþykkti árið
2003.
Ef frá sé talið tímabilið frá 1988
til 1992 hafi þetta skattþrep ekki
verið svo lágt frá árinu 1931.
Til samanburðar var hlutfallið
39,6% í forsetatíð Bills Clintons, for-
vera Bush, og hefði það aftur hækk-
að upp í það þrep ef skattalækkanir
Bush hefðu ekki verið framlengdar.
Steverman segir að málamiðlun
demókrata við repúblikana í þinginu
feli einnig í sér að fjármagnstekjur
frá tíð Bush verði áfram 15%, hlut-
fall sem hafi ekki verið svo lágt frá
árinu 1933. Þá sé erfðaskattur með
lægsta móti, á sama tíma og t.d. fast-
eignir eru á hagstæðu verði í kjölfar
þess að fasteignabólan sprakk.
Reuters
Lúxus Lystisnekkja er seld á sem svarar um 95 milljónir króna ytra.
Smjör á hverju strái
Bandarískir auðmenn hafa sjaldan haft það betra
Lágir skattar og ýmis kauptækifæri í spilunum
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands,
gaf í gær Laurent Gbagbo, forseta
Fílabeinsstrandarinnar, frest til
vikuloka til að láta af embætti ella
ætti hann yfir höfði sér viðskipta-
þvinganir af hálfu Evrópusambands-
ins.
Gbagbo viðurkennir ekki úrslit
forsetakosninganna 28. nóvember
síðastliðinn en Sameinuðu þjóðirnar
og fulltrúar nokkurra Afríkuríkja og
Afríkuráðsins fullyrða að hann hafi
þá beðið ósigur fyrir Alassane Ouatt-
ara, leiðtoga stjórnarandstöðunnar.
Sneri niðurstöðunni við
Yfirkjörstjórn landsins komst að
sömu niðurstöðu en stjórnarskrár-
nefnd á vegum stjórnarinnar sneri
henni við, eftir að hafa ógilt hálfa
milljón atkvæða frá svæðum þar sem
Ouattara nýtur vinsælda.
Gbagbo vísar þessu á bug og full-
yrðir að fylgismenn Quattara hafi
viðhaft brögð í kosningunum.
Róstusamt er á götum úti og segir
breska útvarpið, BBC, að heyrst hafi
áhyggjuraddir um að ólgan kunni að
leiða til borgarastríðs. Skærur hafa
verið á milli fylkinganna og í fyrra-
dag reyndu stuðningsmenn Quatt-
ara að ná stjórn á lykilbyggingum í
stjórnkerfinu, með þeim afleiðingum
að allt að 30 féllu.
Þeir létu ekki deigan síga heldur
gerðu aftur áhlaup í gær en undir
kvöld var ekki ljóst hvort og þá
hversu margir hefðu týnt lífi í átök-
um við stuðningsmenn forsetans.
Sakar Frakka um áróður
Talsmaður Gbagbo forseta sakar
Frakka, hina gömlu nýlenduherra
Fílabeinsstrendinga, um að kynda
undir óeirðunum með beinum og
óbeinum hætti. Til aðmynda
hafi franskir her- menn
dulbúið sig sem al-
menna borgara í
mótmælunum til
að tryggja að upp
úr syði með
átökum og
mannfalli,
sem svo
mætti
kenna for-
setanum um.
Forseti fær lokafrest
Vaxandi þrýstingur á forseta Fílabeinsstrandarinnar um
að viðurkenna úrslit kosninga Víki fyrir mótframbjóðanda
Reuters
Höfuðborgin Ókyrrð hefur verið á götum Abidjan síðustu daga og hefur reykur frá bálköstum legið yfir borginni.
Forsetinn heitir fullu nafni Laur-
ent Koudou Gbagbo en hann
hefur setið samfellt á forseta-
stóli frá því hann tók við emb-
ætti eftir kosningar árið 2000.
Gbagbo var áður prófessor í
sagnfræði en hann er með dokt-
orspróf í þeirri grein frá Dide-
rot-háskóla í París (f. Université
Paris Diderot). Áður en
hann varð forseti
tók Gbagbo þátt í
starfi neðan-
jarðarhreyfingar
sem barðist gegn
Félix Houphouët-
Boigny, forseta
landsins á tíma-
bilinu 1960-2003.
Við völd
í áratug
VAR ÁÐUR PRÓFESSOR
Koudou Gbagbo