Morgunblaðið - 18.12.2010, Side 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 2010
Það kom margt upp í
hugann þegar Guð-
mundur Hagalín vinur
okkar hringdi og sagði
okkur tíðindin. Við störfuðum allir
saman í Mjólkárvirkjun um árabil og
vorum skólafélagar úr Vélskólanum.
Tíminn sem fjöldskyldur okkar
þriggja áttu saman í Mjólkárvirkjun
fyrir nærri þrjátíu árum var mjög
sérstakur og við vorum þekktir víða á
Vestfjörðum sem Guðmundarnir þrír
í Mjólká. Börnin okkar áttu þarna
saman yndislegan tíma sem vafalaust
hefur lagt sterkan grunn að því að
móta þau inn í framtíðina. Leiðir
þeirra áttu síðan eftir að liggja saman
í skóla og það voru held ég mjög sér-
stök tengsl á milli þeirra allra.
Guðmundur Þór tók við af mér sem
stöðvarstjóri í Mjólkárvirkjun og ég
minnist þess að hann hringdi í mig ári
eftir það og nefndi að hann skildi ým-
islegt betur um mína stöðu, eftir að
hafa tekið þetta verkefni að sér. Það
var ekki alltaf auðvelt að vera yfir-
maður tveggja skólafélaga sem báðir
voru jafnvel betri fagmenn en maður
var sjálfur á þeim tíma, enda átti Guð-
mundur Þór síðar eftir að starfa sem
yfirvélstjóri á Guðbjörginni, einu
stærsta fiskveiðiskipi landsins og
Guðmundur Hagalín að verða stöðv-
arstjóri virkjana á Suðurlandi.
Á þessum tímamótum viljum við
hjónin þakka Guðmundi Þór og þér,
elsku Ella, fyrir eitt ljúfasta og ynd-
islegasta tímabil sem við höfum upp-
lifað. Við áttum með ykkur eitt eftir-
minnilegasta tímabil ævinnar sem ein
stór fjöldskylda þar sem skiptust á
skin og skúrir, en eftir sat eitthvað
sem bara er hægt að skýra með
djúpri vináttu. Það skipti engu máli
þó árin liðu á milli þess að heyrast,
það var alltaf eins og í gær.
Við sendum djúpar samúðarkveðj-
ur til ykkar, elsku Ella, Sara, Rakel,
Helga Kristín og Þórir. Minningin um
heiðarlegan og góðan dreng situr eft-
ir hjá okkur öllum.
Guðmundur, Svanhildur
og fjölskylda.
Í dag verður lagður til hinstu hvílu
Guðmundur Þór Kristjánsson, kær
starfsfélagi okkar. Guðmundur Þór
hóf störf við Menntaskólann á Ísafirði
í janúar 2003, sem kennari í vélstjórn-
argreinum. Mummi Þór hafði góða
nærveru, var ljúfur í umgengni og já-
kvæður. Samstarfsmenn tóku fljótt
eftir því hversu hjálpsamur og við-
ræðugóður hann var. Hann hafði ríka
réttlætiskennd og var fljótur til að
taka málstað þess sem á var hallað,
jafnvel þótt það kæmi niður á honum
sjálfum. Mummi hafði áhuga á svo
mörgu, umhverfi sínu, samfélaginu,
fólkinu, var félagsmálamaður af lífi og
sál. Hann var mjög pólitískur og trúr
jafnaðarhugsjóninni en dró menn þó
ekki í dilka eftir flokksskírteinum.
Hann átti líka mjög auðvelt með að
sjá spaugilegu hliðarnar á málunum
og þá var stutt í hvellan hláturinn sem
glumdi um kennarastofuna. Mummi
var sögumaður mikill og nutu sam-
starfsfélagar hans þess, enda sagt frá
Guðmundur Þór
Kristjánsson
✝ Guðmundur ÞórKristjánsson
fæddist á Ísafirði 1.
október 1954. Hann
lést á sjúkrahúsinu á
Ísafirði 10. desember
2010.
Útför Guðmundar
Þórs var gerð frá Ísa-
fjarðarkirkju 17. des-
ember 2010.
með tilþrifum. Guð-
mundur Þór fylgdist
vel með öllum tækni-
nýjungum í kennslu og
miðlaði þekkingu sinni
og reynslu óspart til fé-
laga sinna. Hann bar
mikla umhyggju fyrir
nemendum sínum og
hafði mikinn áhuga á
velferð þeirra. Hjá
Mumma nutu nemend-
ur ávallt vafans.
Fjölskyldan var hon-
um dýrmæt, hann
fylgdist vel með því
sem fólkið hans tók sér fyrir hendur
og var mjög stoltur af því. Það vakti
athygli og aðdáun samstarfsfélag-
anna hversu samrýmd Guðmundur
og Elínborg voru, enda sagði hann
það sjálfur að það besta við hann væri
Ella.
Sumarið 2009 veiktist Mummi og
gekkst undir stóra aðgerð. Með já-
kvæðni og bjartsýni að vopni taldi
hann sig geta sigrast á veikindum sín-
um, sem og hann gerði, og var mætt-
ur aftur til starfa á vorönn 2010. Í
byrjun haustannar var þó ljóst að
meinið hafði tekið sig upp á ný. Flaug
Mummi þá suður til skoðunar og kom
til baka með slæmar fréttir. Meinið
var orðið mjög útbreitt og hraðvaxta
og ljóst að haustið færi í tvísýna bar-
áttu og erfiða lyfjameðferð.
Þrátt fyrir veikindin og meðferð-
ina, kom hann reglulega í heimsókn
til okkar í skólann. Nærvera hans
gladdi samstarfsfélagana og þeir
streymdu til hans með ýmis „tækni-
vandamál“ sem þurfti að leysa. Hann
deildi með okkur þeirri von sinni að
hann gæti haft sigur í þessari glímu.
Guðmundur heimsótti okkur viku
fyrir andlát sitt. Hann var þá helsjúk-
ur og tjáði sig opinskátt um veikindi
sín og líðan, sem hann tók af æðru-
leysi þess sem misst hefur það dýr-
mætasta sem hver maður á. Þau hjón-
in misstu Þóreyju, yngstu dóttur sína,
sem þá var nemandi hér við Mennta-
skólann, í hörmulegu bílslysi fyrir
réttum fjórum árum. Um leið og við
kveðjum Mumma og þökkum honum
fyrir ánægjulegt samstarf, viljum við
votta fjölskyldu hans okkar dýpstu
samúð. Guð blessi ykkur öll og styrki í
sorg ykkar. Góðs félaga er sárt sakn-
að.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
F.h. starfsfólks Menntaskólans á
Ísafirði,
Katrín Gunnarsdóttir,
Emil Ingi Emilsson,
Andrea Sigrún Harðardóttir.
Kveðja frá Björgunarfélagi
Ísafjarðar og Björgunarbáta-
sjóði Vestfjarða
Í dag langar okkur félaga í Björg-
unarfélagi Ísafjarðar að kveðja með
fáum orðum góðan félaga, Guðmund
Þór Kristjánsson, sem er fallinn frá
langt fyrir aldur fram.
Guðmundur Þór hefur verið virkur
í okkar félagsskap í allmörg ár. Hans
áhugi og starf var að mestu tengt sjó-
björgun og björgunarbátum. Vegna
þessa áhuga hans var hann fenginn til
að vera umsjónarmaður björgunar-
bátsins Gunnars Friðrikssonar og því
starfi sinnti hann í mörg ár. Eitt af
verkum Guðmundar Þórs sem nýttist
mörgum var innleiðing „Viðhalds-
stjórans“, tölvuforrits sem notað er til
að halda utan um viðhald björgunar-
báta Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar.
Úr starfinu eigum við margar góð-
ar minningar um Guðmund Þór, þær
eru flestar tengdar bátnum og ferð-
um í neyðarskýli félagsins á Horn-
ströndum þar sem Guðmundur naut
sín vel. Einnig kom Guðmundur Þór
töluvert að innréttingu Guðmundar-
búðar sem hýsir starfsemi Björgun-
arfélags Ísafjarðar.
Það er óhætt að segja að Guðmund-
ur Þór eins og margir aðrir félagar í
okkar samtökum hafi haft sterkar
skoðanir og það hafi oft verið fjörugar
umræður í okkar hópi.
Guðmundur Þór kom með margar
tillögur inn í okkar ágæta starf, hann
var meðal annars einn af frumkvöðl-
unum að skötuveislu Björgunar-
félagsins á Þorláksmessu þar sem
hann stjórnaði í mörg ár verkun sköt-
unnar. Skötuveislan er þakklætisvott-
ur Björgunarfélagsins til bæjarbúa
fyrir stuðninginn í gegnum árinn.
Með þessum orðum viljum við
þakka Guðmundi Þór fyrir samstarfið
um leið og við sendum okkar sam-
úðarkveðjur til Elínborgar, barna
þeirra og annarra aðstandenda.
F.h. Björgunarfélags Ísafjarðar og
Björgunarbátasjóðs Vestfjarða,
Jóhann Ólafson.
Fallinn er frá í blóma lífs, eftir erfið
veikindi, Guðmundur Þór Kristjáns-
son, vélstjóri og vélstjórnarkennari
við Menntaskólann á Ísafirði. Með
honum er genginn góður drengur og
vinur. Mætur maður.
Við hjónin áttum því láni að fagna
að kynnast Guðmundi Þór, eins og
hann var jafnan kallaður, fyrir sjö ár-
um, er hann hóf störf sem vélstjórn-
arkennari við Menntaskólann á Ísa-
firði. Hann var vélstjóri að mennt,
með meistararéttindi sem vélvirki og
hafði aflað sér kennsluréttinda í vél-
stjórnargreinum. Áður hafði hann
starfað sem vinnslustjóri hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins á Siglufirði,
stöðvarstjóri í Mjólkárvirkjun og vél-
stjóri á togurum, þar á meðal Bessa
frá Súðavík og Guðbjörgu á Ísafirði.
Guðmundur Þór var kennari eins
og þeir gerast bestir og frábær sam-
starfsmaður. Honum var umhugað
um nemendur sína, velferð þeirra og
árangur. Annt var honum um
Menntaskólann á Ísafirði og sam-
starfsfólk sitt þar, jafnt samkennara
sem stjórnendur. Lagði hann jafnan
sitt af mörkum gagnvart skólanum og
því starfi sem þar var unnið. Nem-
endum sínum var hann góð fyrir-
mynd. Við þykjumst vita með vissu að
hans verði sárt saknað af þeim, ekki
síður en samstarfsfólki sínu sem hann
reyndist jafnan vel.
Guðmundur Þór var mikill áhuga-
maður um félagsmál og stjórnmál.
Hann var sannkallaður jafnaðarmað-
ur, eldheitur hugsjónamaður um jafn-
rétti og réttlæti í þjóðfélaginu. Slysa-
varnir og björgunarstörf voru honum
afar hugleikin og lýstu því vel hvaða
mann hann hafði að geyma. Hann var
formaður Vélstjórafélags Ísafjarðar
um skeið og yfirmaður á björgunar-
skipi Björgunarfélags Ísafjarðar. Þá
starfaði hann með Samfylkingunni
frá stofnun hennar, var kosninga-
stjóri flokksins á Ísafirði í alþingis-
kosningunum 2003 og sat í stjórn
Samfylkingarfélagsins í Ísafjarð-
arbæ.
Mummi Þór var lífsglaður maður
og jákvæður og lagði ætíð gott til í
álitamálum. Lét hann þó hvergi sinn
hlut og hélt sannfæringu sinni vel á
lofti. Hann var sögumaður góður og
söngmaður og naut þess að syngja
með félögum sínum í Karlakórnum
Erni.
Snemma árs 2006 var þungur
harmur kveðinn að fjölskyldu Guð-
mundar Þórs sem og nemendum og
starfsfólki Menntaskólans á Ísafirði
þegar Þórey dóttir hans lést í hörmu-
legu bílslysi. Í þeirri miklu sorg sýndi
hann ótrúlegan styrk og manndóm
sem seint gleymist. Á sama hátt tókst
hann sjálfur á við sín eigin veikindi
þar til yfir lauk, af æðruleysi og styrk
sem einungis fáum er gefinn.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við eftirminnilegan sam-
ferðamann og traustan vin. Hann
skilur eftir sig spor í lífi okkar, góðar
minningar og lærdóm. Elínborgu, eft-
irlifandi eiginkonu hans og börnum
þeirra, Söru, Rakel, Helgu Kristínu
og Þóri og fjölskyldum þeirra vottum
við okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Guðmundar
Þórs Kristjánssonar.
Ólína Þorvarðardóttir,
Sigurður Pétursson.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför bróður okkar,
HELGA SVEINSSONAR,
Laugarholti.
Ingibjörg Sveinsdóttir,
Erla Sveinsdóttir,
Guðmundur Sveinsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát og útför okkar ástkæra,
OLGEIRS GOTTLIEBSSONAR
fyrrv. hitaveitustjóra,
Túngötu 1,
Ólafsfirði.
Unnur Lovísa Friðriksdóttir,
Friðrik G. Olgeirsson, Guðrún Þorsteinsdóttir,
Sigríður Olgeirsdóttir, Björn Gunnarsson,
Snorri Þ. Olgeirsson, Rósa Einarsdóttir
og barnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við
fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐRÍÐAR ARADÓTTUR.
Steinunn Kolbrún Egilsdóttir, Haukur Hergeirsson,
Hrafnhildur B. Egilsdóttir Briem, Garðar Briem,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
RAGNARS GUÐMUNDSSONAR,
Hraunbæ 111,
110 Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Með óskum um gleðileg jól,
Friðgerður Þórðardóttir,
Logi Ragnarsson, Jóhanna Steingrímsdóttir,
Valur Ragnarsson, Sigríður Björnsdóttir,
Halla Hrund, Ingunn Ýr, Vaka,
Haukur Steinn og Freyja.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát ástkærs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS G. BERGMANN.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar fyrir hlýju
og góða umönnun í veikindum hans.
Óskum ykkur öllum gleðilegra jóla.
Andreas Bergmann, Guðrún G. Bergmann,
Ingibjörg Bergmann, Þorbergur Halldórsson,
Halldór Bergmann, Anna Lára Kolbeins,
Guðrún Bergmann, Gísli G. Sveinbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
UNNAR BENEDIKTSDÓTTUR.
Starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Eir eru færðar
sérstakar þakkir fyrir einstaklega hjartahlýja og
nærfærna aðstoð og umhyggju undanfarin ár.
Birgir Guðjónsson, Sigþrúður Guðmundsdóttir,
Sonja S. Guðjónsdóttir, Birgir Guðlaugsson,
Arnar Birgisson, Kirstine Nellemann Jensen,
Steinar Birgisson, Snæfríður D. Björgvinsdóttir,
Grétar Birgisson.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800