Morgunblaðið - 02.02.2011, Side 6

Morgunblaðið - 02.02.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Kosningar til stúdentaráðs og há- skólaþings Háskóla Íslands fara fram í dag og á morgun. Fjögur framboð bárust að þessu sinni til stúdentaráðs og eru það A-listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd- enta, V-listi Röskvu, samtaka fé- lagshyggjufólks við Háskóla Ís- lands, S-listi Skrökvu, félags flokksbundinna framapotara, og H- listi Stúdentafélags hægrimanna, sem býður nú fram í fyrsta sinn. Vaka og Röskva taka einnig þátt í kjöri til háskólaþings. Í ár ganga kjósendur ekki til kjör- klefa heldur kjósa rafrænt á viðmóti nemenda, Uglunni. Að sögn Jens Fjalars Skaptasonar, formanns stúdentaráðs, var þetta fyr- irkomulag tekið upp í fyrsta sinn í fyrra og reyndist vel. Aðspurður segist hann vonast til að rafrænar kosningar eigi eftir að koma til með að auka kosningaþátttökuna en kjör- sókn í fyrra var um 40%. Viðmótið verður opið á milli klukkan 9 og 18 báða kosningadagana en utankjör- fundardagur var í gær. Á kjörskrá eru allir nemendur háskólans á þessu skólaári og eru það um 14.600 manns. Líflegur Hanaslagur Hinn árlegi Hanaslagur, kapp- ræður milli stúdentafylkinganna í aðdraganda kosninga, fór fram á Háskólatorgi í gær þar sem fylking- arnar fjórar héldu stuttar kynningar og tóku við spurningum úr sal. Það er Politica, félag stjórnmála- fræðinema við Háskóla Íslands, sem stendur fyrir atburðinum. Guðrún Rós Árnadóttir, formaður Politicu, segir umræðurnar í ár snúast mest um það hvernig stúdentaráð eigi að starfa. „Það kom ný fylking í fyrra sem álítur sig hafa breytt stúd- entaráði með því að vera ekki lengur með meirihluta og minnihluta, held- ur samstarf allra flokka. Svo segja Vaka og Röskva að þetta hafi ekki breytt miklu. Núna er komið inn fjórða félagið, stúdentafélag hægri- manna, sem telur að rödd hægri- manna í Háskólanum hafi ekki verið nógu sterk undanfarið.“ Aðspurð segir hún heitar og líflegar umræður fara í gang á Hanaslagnum og sér- staklega í ár þar sem fjórar fylk- ingar etja nú kappi í kosningunum. Kosið til stúdentaráðs og háskólaþings  Nemendur Háskóla Íslands kjósa rafrænt  Fjórar fylk- ingar etja kappi í ár  Heitar og líflegar umræður í gangi Morgunblaðið/Golli Slagurinn Nemendur HÍ mættu á kappræðurnar Hanaslaginn í gær þar sem fylkingarnar fjórar kynntu stefnumál sín og sátu fyrir svörum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.