Morgunblaðið - 02.02.2011, Síða 8

Morgunblaðið - 02.02.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Stundum eru fræg ummæli úr sög-unni notuð til að varpa ljósi á at- burði dagsins. Ólína Þorvarðardóttir var eins og svo margir aðrir „hlut- laus“ fréttamaður áður en hún hvarf til stjórnmálanna.    Þá bauð hún sigfram til borg- arstjórnar og sagt var að sérhver maður á fréttastofu Rík- isútvarpsins hefði stutt hana af öllum kröftum til að tryggja að hún næði sameig- inlegu marki hennar og þeirra að fara á annan starfsvettvang.    Þegar hún lokshætti í borgarstjórninni var vís maður hjá borginni spurður um þau tíðindi að Ólína væri að hætta. „Góð- ur endir á vondum ferli,“ var svarið.    Einn frægasti utanríkisráðherrasögunnar, Talleyrand, leiðrétti embættismann sem taldi tiltekinn starfsbróður haga sér glæpsamlega. „Þetta er verra en glæpur, þetta er heimska,“ sagði ráðherrann.    Nú er deilt um hvort Ögmundurhafi farið offari er hann sakaði Jóhönnu Sigurðardóttur um dóm- greindarskort fyrir að hræra í inn- yflum Steingríms J. Fyrrnefnd Ólína segir Ögmund verða að biðjast fyr- irgefningar á orðum sínum eða hætta ella sem ráðherra.    En hvert var tilefnið? Jóhannahélt ræðu þar sem hún upp- nefndi útgerðarmenn, og hellti sér yfir samstarfsflokkinn, fólk sem hún hafði áður kallað villiketti.    Ef þetta var ekki dómgreind-arskortur þá er Talleyrand með hinn kostinn í stöðunni. Deilt um dóm- greindarskort STAKSTEINAR Ögmundur Jónasson Ólína Þorvarðardóttir Veður víða um heim 1.2., kl. 18.00 Reykjavík -1 skýjað Bolungarvík -2 alskýjað Akureyri -1 skýjað Egilsstaðir -1 skýjað Kirkjubæjarkl. -1 skýjað Nuuk -8 skafrenningur Þórshöfn 5 alskýjað Ósló 1 skýjað Kaupmannahöfn 0 þoka Stokkhólmur 2 alskýjað Helsinki 0 skýjað Lúxemborg -3 þoka Brussel 0 skýjað Dublin 8 léttskýjað Glasgow 3 skýjað London 7 skýjað París -1 skýjað Amsterdam 1 súld Hamborg -2 þoka Berlín -3 skýjað Vín -3 alskýjað Moskva -6 snjókoma Algarve 12 heiðskírt Madríd 8 heiðskírt Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 12 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 6 léttskýjað Winnipeg -27 heiðskírt Montreal -12 alskýjað New York -2 þoka Chicago -5 snjókoma Orlando 22 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:06 17:18 ÍSAFJÖRÐUR 10:27 17:07 SIGLUFJÖRÐUR 10:10 16:49 DJÚPIVOGUR 9:40 16:43 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Alls voru skráðir 215 einstaklingar á biðlistum hjúkrunaheimila í lok ný- liðins árs. Eru það tuttugu fleiri en ári fyrr. Jafnvægi virðist vera komið á í nýju vistunarmati, að sögn Þor- bjargar Guðmundsdóttur, verkefnis- stjóra hjá landlæknisembættinu, og flestir fá búsetu innan þriggja mán- aða eins og stefnt er að. Vistunarmat er faglegt mat á þörfum einstaklinga fyrir varanlega búsetu á hjúkrunarheimili. Matinu var breytt fyrir tveimur árum og fært til vistunarmatsnefnda í sjö heilbrigðisumdæmum. Þær hafa það markmið að gera fólki kleift að búa á eigin heimili eins lengi og unnt er með viðeigandi heilbrigðis- og fé- lagsþjónustu. Raunhæfari biðlistar Þegar matið var flutt frá þjónustu- hópum sveitarfélaga til vistunar- matsnefndanna voru mörg hundruð manns á biðlista og var fólkið flokkað eftir því hvort það hefði þörf fyrir bú- setu á hjúkrunarheimili, brýna þörf eða mjög brýna þörf. Þorbjörg segir að sú hefð hafi myndast að fólk hafi sótt um pláss á hjúkrunarheimili þótt það sæi ekki fram á þörf á að nýta það á næstunni. Fólkið hafi verið að koma sér í röðina. Markmið breyt- inganna hafi verið að leggja þetta af. Nú er ætlast til að aldraðir sæki um vistunarmat þegar þeir geta ekki lengur búið heima þrátt fyrir stuðning heilbrigðis- og félagsþjón- ustu og þarf viðkomandi þá að vera tilbúinn að þiggja hjúkrunarrými þegar það býðst. Vistunarmatið gildir í ár en Þor- björg segir stefnt að því að finna bú- setu fyrir fólk áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því matið fer fram. Tel- ur hún að víða sé því marki náð. 75% fá samþykki Á síðasta ári sóttu 1295 einstak- lingar um vistunarmat. 968 þeirra fengu samþykki en 252 synjun. Því til viðbótar voru 75 mál enn í vinnslu. Flestir eru á biðlista eftir búsetu í hjúkrunarheimilum í Reykjavík, 79 talsins. Er það nánast sami fjöldi og ári fyrr. Í Suðurlandsumdæmi var 41 á biðlista, 9 fleiri en í byrjun árs- ins, og 37 á Suðurnesjum sem er svipaður fjöldi og í lok árs 2009. Á móti voru aðeins 4 á biðlista í Vest- fjarðaumdæmi. Þorbjörg telur að ekki sé sláandi munur á biðlistum á milli landshluta. Vekur hún athygli á því að heilbrigð- isumdæmin séu misjöfn að stærð. Þá geti eðlilegar sveiflur sem stafi af af- greiðslu vistunarmats skekkt samanburð á milli ára. Þá segja upplýsingar um breyt- ingar í aldurssamsetningu ekki allt- af alla söguna. Þorbjörg nefnir að erfitt sé að veita fólki sem býr af- skekkt fullnægjandi þjónustu. Það geti því þurft að fara fyrr inn á hjúkrunarheimili en fólk sem býr nær þjónustukjörnum. Kröfur aukast um aðbúnað Nokkur hjúkrunarheimili eru í undirbúningi og byggingu, meðal annars heimili sem sveitarfélög víða um land byggja samkvæmt samn- ingum við ríkið. Þau leiða ekki í öllum tilvikum til fjölgunar hjúkrunarrýma því kröfur aukast sífellt um bætta aðstöðu á þeim heimilum sem fyrir eru. Tækifærið er því notað, þegar bætt er við, til að fækka íbúð- um sem tveir deila. Sem dæmi um þetta má nefna hjúkrunarheimilið Mörk í Reykjavík. Þar eru 110 heimilismenn sem flest- ir fluttu frá heimilunum í Víðinesi og á Vífilsstöðum. Yfir 200 á biðlista eftir búsetu á hjúkrunarheimili  Markmið að tryggja fólki búsetu áður en þrír mánuðir eru liðnir frá vistunarmati Morgunblaðið/Kristinn Reykjanesbær er í viðræðum við Nesvelli um breytingar á öryggisíbúðum á tveimur hæðum í hjúkrunaríbúðir. Bæjarstjórn og Ríkiskaup hafa náð saman um þá lausn. 37 einstaklingar voru um áramót á biðlista eftir hjúkr- unarrými á Suðurnesjum. Reykjanesbær hefur samið við ríkið um að koma upp 30 rýma hjúkrunarheimili. Fimm rými verða notuð til að létta á Garðvangi í Garði og því bæt- ast við 25 ný rými. Fækkar þá herbergjum í Garðvangi sem tveir eru um. Gert var ráð fyrir byggingu 90 rýma hjúkrunarheimilis á Nesvöllum. Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs, segir að ódýrara og hagkvæmara sé að nýta húspláss sem fyrir hendi er á Nesvöllum, þegar ekki sé um fleiri rými að ræða. Innréttaðar voru þjónustuíbúðir í þessu húsi en verr hefur gengið að selja eða leigja íbúðirnar en reiknað var með. Gangi samningar eftir er gert ráð fyrir að hjúkrunar- heimilið verði tekið í notk- un á árinu. Þrjátíu rými á Nesvöllum HJÚKRUNARHEIMILI Í REYKJANESBÆ Böðvar Jónsson 2542 rými eru samtals á hjúkrunarheimilum á öllu landinu 215 einstaklingar voru á biðlistum eftir hjúkrunarrými í lok ársins 2010 ‹ HJÚKRUNARHEIMILI › »

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.