Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-16 Útsalan heldur áfram Einnig nýjar vörur komnar • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Útsala 50-70% afsláttur Á föstudag nk. verður Dagur stærðfræðinnar haldinn líkt og gert er fyrsta föstudag í febrúar ár hvert. Margir leik-, grunn- og fram- haldsskólar hafa haldið þennan dag hátíðlegan undanfarin ár. Stjórn Flatar, samtaka stærðfræðikenn- ara ákveður þema dagsins hverju sinni og nú var ákveðið að það yrði „Stærðfræði og spil“ til að vekja þar með athygli nemenda á skemmtigildi stærðfræðinar. Á heimasíðu flatar http://flotur.is- mennt.is má finna tillögur að leikj- um, spilum og þrautum sem kenn- arar geta nýtt sér við kennslu. Einnig hafa Spilavinir á Langholts- vegi mikið úrval stærðfræðispila. Kennarar eru hvattir til að halda daginn hátíðlegan og spila við nem- endur. Árlegur dagur stærðfræðinnar Mikið hefur verið fjallað um stað- göngumæðrun í fjölmiðlum og víð- ar undanfarnar vikur. Af því tilefni verður haldinn fundur í dag, mið- vikudag kl. 12:00, um stað- göngumæðrun. Fundurinn fer fram á Jafnréttistorgi í Háskólanum á Akureyri. Sigurður Kristinsson, siðfræðingur og forseti hug- og fé- lagsvísindasviðs HA og Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur á Jafn- réttisstofu, munu ræða þar nokkur álitaefni sem tengjast stað- göngumæðrun. Staðgöngumæðrun STUTT Rangt með farið og ófeðrað Blaðinu hefur borist eftirfarandi til- skrif frá Heimi Bergmann: Í minningargrein um Sólveigu Karvelsdóttur sem Sólmundur Tryggvi Einarsson ritar í Mbl. 28. janúar sl. er ljóð sem sagt er eftir óþekktan höfund, og er að auki rangt með farið. Ljóðið er eftir Árna Grétar Finns- son og birtist fyrst í bókinni: „Skipt- ir það máli“ sem var gefin út 1989 og svo aftur í ljóðasafninu „Lífsþor“ (bls 197) sem börn hans tóku saman og gáfu út núna fyrir nýliðin jól. Þú ert það, sem þú öðrum miðlað getur, og allar þínar gjafir lýsa þér og ekkert sýnir innri mann þinn betur en andblær hugans, sem þitt viðmót ber. Því líkt og sólin ljós og yl þér gefur og lífið daprast, ef hún ekki skín, svo viðmót þitt á aðra áhrif hefur og undir því er komin gæfa þín. Þessari leiðréttingu vildum við koma að, svo allt verði í sóma næst, þegar til þessara hugljúfu ljóðlína verður gripið. LEIÐRÉTT Næsta þriðjudag munu mennta- málaráðuneytið, innanríkisráðu- neytið og SAFT standa fyrir ráð- stefnu um internetið á alþjóða netöryggisdeginum. Ráðstefnan fer fram á Hilton hóteli Nordica og stendur kl. 8:30-16:30. Rafræn skráning er www.saft.is/skraning/. Ókeypis er á ráðstefnuna. Meðal fjölmargra fyrirlesara má nefna Lee Hibbard, verkefnisstjóra hjá Evrópuráðinu og dr. William Drake. Í málstofun verður m.a. fjallað um fjölmarga fleti netnotk- unar, svo sem barna og unglinga, samspil mannréttinda og netnotk- unar, stafrænt aðgengi mennta- og menningarefnis, uppbyggingu nýrra atvinnugreina á netinu, þró- un á efni til náms og kennslu og álitaefni varðandi öryggi fjar- skiptainnviða á Íslandi. Netráðstefna BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Flaggað var í hálfa stöng við St. Jósefsspítala í Hafnarfirði í gær og báru starfsmenn sorgarbönd á hendi eða slaufur í barmi. Tilefnið var samein- ingin við Landspítalann sem tók gildi í gær, en mjög þungt hljóð er í starfsfólki vegna hennar. Til marks um það var rituð frétt á vef spítalans í gær undir yfirskriftinni „Sorgardagur í sögu St. Jós- efsspítala“ en sagan nær allt aftur til ársins 1926. Óánægja starfsmanna er mjög mikil og sagði einn þeirra við Morgunblaðið að um hreina yfirtöku væri að ræða, ekki sameiningu í sátt beggja aðila. Efast starfsmenn um að sameining skili einhverj- um sparnaði, í raun sé allt tekið af St. Jósefsspít- ala en ekkert komi frá Landspítala. „Þetta er ekki síst sorgardagur í nafni nunn- anna sem byggðu upp spítalann og unnu hérna mjög góð störf,“ sagði einn starfsmanna spítalans. Starfsmannafundur var í gær með stjórnendum Landspítalans, þar sem samruninn var kynntur nánar, en trúnaðarmenn á St. Jósefsspítala munu funda í dag með fulltrúum sinna stéttarfélaga. Einnig er óánægja meðal starfsmanna yfir fram- göngu bæjaryfirvalda í Hafnarfirði, þar sem þeir telja að þau hefðu getað beitt sér mun meira gegn samrunanum og varið spítalann betur. Engum starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum en fólki boðin önnur störf annars staðar, aðallega á Landspítalanum í Fossvogi eða við Hringbraut í Reykjavík. Um 115 starfsmenn hafa verið í tæplega 80 stöðugildum á St. Jósefsspítala og margir þeirra eru búsettir í Hafnarfirði. Stef- anía G. Ámundadóttir, læknaritari og trúnaðar- maður SFR, sagði við Morgunblaðið að í raun væri verið að leggja St. Jósefsspítala niður. Eina deild- in sem ætti að fá að standa væri lyfjadeildin. Þar væru verkefnin óljós og líklega minni en áður. „Við skiljum ekki forgangsröðun ríkisstjórnar- innar. Það vantaði ríflega 300 milljónir króna í þennan spítala, til að halda honum í fullum rekstri. Á meðan er ausið hér 14 milljörðum í Sparisjóð Keflavíkur og 12 milljörðum í Sjóvá. Fyrir starfs- fólk í heilbrigðiskerfinu er þetta óskiljanlegt. Það er bara verið að plata fólk,“ sagði Stefanía, sem ef- aðist um að allir myndu þiggja þau störf sem í boði væru. Starfsfólki væri tvístrað út og suður. Gæti þurft að fækka fólki Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir alla starfsmenn St. Jósefsspítala halda sínum störfum, enda gildi um það lög við sameiningu stofnana, en þeir geti þurft að skipta um vinnustað. Hins vegar geti þurft með tímanum að fækka starfsfólki á Landspítalanum en engum sé sagt upp beint vegna sameiningarinnar sem slíkrar. Björn segir sameininguna hafa verið undirbúna eins vel og kostur var, m.a. með þátttöku verkefnastjórnar sem skipuð var fulltrúum beggja spítala. Eftir sé m.a. að koma í ljós hverjir þiggja áframhaldandi starf og hverjir ekki. Morgunblaðið/RAX Flaggað í hálfa Nokkrir starfsmenn St. Jósefsspítala létu mynda sig fyrir utan spítalann í gær, þegar sameining við Landspítalann tók formlega gildi. Starfsmenn flögguðu í hálfa stöng og báru sorgarbönd Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segist vel skilja óánægju og áhyggjur starfsmanna St. Jósefsspítala. Óöryggi grípi alltaf um sig við breytingar á starfsumhverfi fólks. „Fólk hefur haft sitt sjálfstæði í Hafnarfirði og er skiljanlega óánægt með að sameinast stærri stofnun. Það var ákvörðun velferð- arráðherra, áður heilbrigðisráðherra, að gera þetta svona og við munum vinna úr því með starfsmönnum að gera þetta sem best fyrir þá,“ segir Björn. Hann segir það hafa legið fyrir lengi að flutningur yrði á verk- efnum, í tengslum við nið- urskurð í heilbrigðiskerf- inu. Mikil sparnaðarkrafa hafi verið sett á St. Jós- efsspítala fyrir samein- ingu og hugsun ráðherra væntanlega verið sú að ná fram hagræðingu með sameiningunni. Segist vel skilja áhyggjur starfsfólks FORSTJÓRI LANDSPÍTALANS Björn Zoëga  Mikil óánægja á St. Jósefsspítala með sameininguna við Landspítalann Leit að Matthíasi Þórarinssyni, 21 árs, hefur enn engan árangur borið. Í síðustu viku barst lög- reglu höfuðborg- arsvæðisins vís- bending um mannaferðir í Reykjadal við Hveragerði. Vit- að er til þess að Matthías hefur kom- ið við á svæðum þar sem eru heitar lindir. Björgunarsveitarmenn leit- uðu í Hveradal en án árangurs. „Það hefur mjög lítið komið inn af vísbendingum,“ sagði Ágúst Svans- son, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, og bætti við að slíkt væri mjög sérstakt. Ekkert hefur spurst til Matthías- ar frá 27. október sl. Lögregla höf- uðborgarsvæðisins stýrir leitinni og er talið líklegt að Matthías haldi til einhvers staðar á Suðurlandi en sjálfur bjó hann lengi á Stokkseyri. Að sögn lögreglunnar þykir Matt- hías nokkuð sérstakur í háttum og mikill einfari. Hann ferðaðist um landið á gömlum Rússajeppa en gæti nú haft annað ökutæki til umráða. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Matthíasar eru vinsamleg- ast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. Leitin að Matthíasi hefur enn engan árangur borið  Leitað í Reykjadal í síðustu viku Matthías Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.