Morgunblaðið - 02.02.2011, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 02.02.2011, Qupperneq 19
UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Í heiðnum sið fögn- uðu menn aukinni dagsbirtu með jólum. Og enn gleðjumst við á þessum árstíma; hver kannast ekki við að hafa upplifað hversu yndislegt er þegar bjartara verður með hverjum morgn- inum í janúar? Sann- arlega verður líka lengur bjart á daginn, og sú vissa að bjartar sumarnætur eru fram- undan er gott veganesti í skamm- deginu. Nýlega kom fram þingsályktun- artillaga á Alþingi um breyttan tíma og bjartari morgna. Í kjölfarið hafa ýmsir látið þá skoðun í ljós að birta síðdegis væri mikilvægari mannlífi hér á norðurhjara og að- alrök eru þau að kvöldkulinu seink- aði og við gætum líkt eftir daglegu lífi suðrænna þjóða. En það er sýndarveruleiki, Ísland verður hvorki fært austar né sunnar á hnöttinn. Heili okkar skynjar áfram birtuna miðað við hnattstöðu lands- ins og miðlar þeim upplýsingum til líkamans. Enginn velkist í vafa um að rann- sóknir á hinum ýmsu fyrirbærum heimsins hafa eflst hin síðari árin, m.a. í stjörnufræði, veðurfræði en einnig á sviði lífvísinda. Þar hefur t.d. verið sýnt með æ skýrari hætti fram á að aðlögun lífvera að bú- svæði sínu er skilyrði fyrir afkomu tegundarinnar og víðkunnir nátt- úrulífsþættir í sjónvarpi hafa gefið okkur innsýn í lífsbaráttuna í ýms- um afkimum jarðarinnar. Í yf- irgnæfandi tilvikum ræður dags- birtan hvað mestu um atferli dýra, sum eru virk á daginn, önnur að nóttu. Lífveran hefur skynnema sem mælir birtustig og úr þeim upplýsingum er unnið til þess að samhæfa líkamsstarfsemina til sam- ræmis við þarfir dags eða nætur! Líkamsklukkan er því stillt reglu- lega og aðalviðmið er umhverf- isbirta. Hjá manninum, eins og hjá mörgum dýrum, er melatón- ínhormón myndað í myrkri en birta hindrar það. Styrkur þess í blóði miðlar því óbeint upplýsingum um birtu í umhverfinu til frumna líkamans, hár blóðstyrkur táknar einfaldlega nótt fyrir frumur líkamans, sama hvað veggklukkan sýn- ir! Með seinkaðri dag- renningu vegna flýttr- ar klukku sem við höf- um búið við í rúm 40 ár, er lífeðlisfræðileg- um ferlum seinkað. Við höfum því tilhneigingu til að verða seinna syfjuð en vakna á morgnana, áður en við höfum sofið nægju okkar, enda klukkan þá í raun 90 mínútum of fljót, sami tími og í Englandi. Það leiðir til innri togstreitu því þrátt fyrir að heilinn gefi enn merki um næturhvíld neyðist líkaminn til að hefja daginn samkvæmt stað- artíma. Slíka togstreitu hafa margir upplifað í fyrstu eftir ferð yfir mörg tímabelti, þegar ósamræmi skapast milli innri og ytri klukku. Þessar aðstæður valda styttingu næt- ursvefns, sem leiðir til dagsyfju, minni einbeitingar og árvekni. Ný- legar rannsóknir sýna einnig fram á fylgni milli of stutts svefns og of- fitu. Andmælendur þess að stilla klukkuna til samræmis við nátt- úrulegan tíma benda gjarnan á að víða í heiminum sé klukkunni breytt að vori og hausti og því sé okkur engin vorkunn. En það virð- ist gleymast að við skiptum ekki milli sumar- og vetrartíma heldur erum við stöðugt föst á röngum tíma. Tekist er á um klukkuna víðar en á Íslandi. Í breska þinginu deila menn nú um frumvarp að lögum um að flýta klukkunni um eina klukku- stund og festa hana á þeim tíma allt árið. Hvort tveggja er stutt vellíð- unar- og efnahagsrökum líkt og hér á landi. Helsti talsmaður þess hér, Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins heldur því ítrekað fram í fjöl- miðlum að engar rannsóknir séu til um áhrif þessa fyrirkomulags, og trúi ég að hann viti ekki betur. Raunin er sú að fjölmargar rann- sóknir hafa verið gerðar, sem varpa ljósi á mikilvægi þess að tekið sé mið af náttúrulegri birtu. Í tilefni tímabreytinga í Bretlandi nú í haust birtist í British Medical Journal grein tveggja evrópskra vísinda- manna, sem báðir eru þekktir fyrir rannsóknir sínar á þessu sviði. Þar segir m.a.: Líkamsklukka mannsins hefur tilhneigingu til að byggja frekar á dagrenningu en sólsetri, og þess vegna seinkar svefntíma okkar eftir því sem sólarupprás er seinna að deginum. Ennfremur: Vegna minni birtu sérstaklega vegna inni- vinnu hafa líkamsklukkur okkar til- hneigingu til að seinka sér. Kann- anir sýna að yfir 90% einstaklinga vakna á vinnudögum áður en svefn- þörfinni er fullnægt og 74% reiða sig á vekjaraklukku til að vakna. Þetta ósamræmi milli líkamsklukku og staðarklukku kallast „félagslegt dægurrask“ (e. social jetlag.) Þeim mun meira sem dægurraskið er, þeim mun líklegri eru einstaklingar til að neyta tóbaks, áfengis og kaffis. Morgunbirtan flýtir líkams- klukku okkar, en kvöldbirtan seink- ar henni enn frekar og við það eykst félagslegt dægurrask með fyrrgreindum áhættuþáttum fyrir heilsuna. Við þurfum meiri birtu og við þurfum hana sárlega á morgn- ana. Þeir fullyrða að markmiðið ætti að vera að samræma staðar- og lík- amsklukku, þannig að vekj- araklukku yrði ekki lengur þörf. Þetta skapaði þrenns konar ávinn- ing: aukin afköst og framleiðni, bætt heilsufar og lífsgæði og minni fjárútlát til heilbrigðismála. Ljóst má vera af framansögðu að sterk heilsufarsleg rök, en einnig vellíðunar- og efnahagsrök, hníga að því að seinka klukkunni og færa með því íslenskan staðartíma nær náttúrulegum tíma. Tíminn og birtan Eftir Björgu Þorleifsdóttur » Sterk heilsufarslegrök, en einnig vellíð- unar- og efnahagsrök, hníga að því að seinka klukkunni og færa ís- lenskan staðartíma nær náttúrulegum tíma. Björg Þorleifsdóttir Höfundur er lífeðlisfræðingur og áhugamaður um rétta klukku. Það sló mig um dag- inn þegar ég var að lesa undir próf í Háskóla Ís- lands að í glærum frá þekktu almanna- tengsla- og ráðninga- fyrirtæki hér í bæ kom fram að þegar ráðgjafar fyrirtækisins ræða um samskiptastjórnun við- skiptavina eða (CRM) Customer Relationship Management þá meina þeir að öll slík samskipti miði að því að hámarka virði eigenda fyrirtækisins. Þetta útskýrði sérfræðingurinn með mynd þar sem í miðju var fern- ingur sem í var ritað – Hámörkun virðist til eigenda – og í hvert horn ferningsins kom nýr ferningur sem snertir þann stærsta og í þá var ritað – Hámarka tekjur, – Lágmarka kostnað, –Stjórna áhættu, – Nýta eignir. Þetta fannst mér hrikaleg mynd. Ég hef verið að læra stjórnun og stefnumótun undanfarin ár og í námi mínu hef ég auðvitað komið inn á markaðsfræði og sölumennsku auk vöruþróunar, bókhalds, reiknings- halds, sálfræði og hagfræði auk fleiri greina. Þegar ég sá þessa skýringamynd og heyrði rök sérfræðingsins tengd- ust allskonar óþægilegar tilfinningar eða straumar sem ég hef fundið í kennslutímum í gegnum námið í ólík- um fögum. Tengingin var þessi miðjukassi – Hámörkun virðis til eig- enda –. Nú er enginn vafi á því að fjárfestar og aðrir leggja pening í fyrirtæki í þeirri von og trú að þeir muni ávaxta sig þar og þá oft betur en ann- ars staðar. Þeir setja fjármuni sína yfirleitt þar sem þeir sjá fyrir sér mestu ávöxtunina eða bestu nýtnina. Það er bara eðlilegt. Ég hef engar athugasemdir við þessa hugsun. Mín vanlíðan á uppruna sinn í því að kennt er að tilgangur rekstrar fyr- irtækja sé að ávaxta eignir eigenda þeirra. Þessu er ég ósammála og tel reyndar þessu vera öfugt farið. Tilgangurinn hlýtur alltaf að vera að bjóða viðskiptavinum sínum bestu vöru og þjónustu á hagkvæmasta verðinu og skapa þannig atvinnu fyrir eigendur og starfsmenn. Þegar þetta kemur allt saman verður eðlileg af- leiðing þess mikil ávöxtun eigna eig- endanna. Ávöxtunin getur aldrei verið frumorsök rekstrarins. Afleiðingin af vel reknu fyrirtæki er mikil ávöxtun og aukning virðis eigendanna vegna aukinna viðskipta. Það er og verður aldrei annað en af- leiðing af öðru því án ánægðra við- skiptavina, ánægðs starfsfólks og vel rekins fyrirtækis hækkar virði eig- endanna ekki. Í námi mínu er einnig kennt mik- ilvægi þeirra hlutverka sem við sem einstaklingar tökum að okkur í lífinu og hvernig hægt er að hafa áhrif á hegðun okkar í gegnum hlutverk. Búningar, einkennisföt, vinnuum- hverfi, bitlingar, allt eru þetta atriði sem hafa áhrif og mögulega geta breytt hegðun okkar og annarra til hins betra eða verra allt eftir að- stæðum og áreitinu. Þetta er grundvallarþekking sem krafist er í markaðsfræðum, stjórnun og sölumennsku því umhverfi og útlit skiptir gríðarlegu máli þegar kemur að því að sannfæra aðra. Upplifun ein- staklingsins fer langt með að sann- færa hann og því þarf að vanda til allra hluta. Traust er annað sem kennt er að skiptir verulegu máli þegar kemur að samskiptum og fólk er fljótt að skynja þegar því er ekki treyst eða traust þess er ekki endurgoldið. Allt hefur þetta áhrif á gengi fyrirtækja og sam- skipti því viðskiptavinurinn leggur ósjálfrátt allt þetta saman, eigin upp- lifun, það sem augun sjá, það sem eyr- að nemur og hvað stenst og hvað stenst ekki. Með því að leggja höfuðáherslu á það að virði eigendanna hámarkist er það mín skoðun að eggið sé þannig farið að segja hænunni fyrir verkum. Út úr því kemur ekkert gott og má í því sambandi horfa yfir stöðu versl- unar og þjónustu á Íslandi í dag. Hvaða tilfinningu hefur þú sem neytandi þegar þú horfir á þau fyr- irtæki sem bjóða þér núna þjónustu sína og vörur? Við getum í huganum flokkað fyrirtækin í hópa, annars veg- ar þau sem hafa hagsmuni okkar sem viðskiptavina að leiðarljósi og hins vegar þeirra sem hafa hagsmuni eig- enda sinna að leiðarljósi. Muninn sjáum við væntanlega á vöru- og þjónustugæðunum. Ég spyr svona að lokum, hvers vegna ég ætti, ef ég kemst hjá því, að versla við fyrirtæki sem ég veit að set- ur hagsmuni eigenda sinna töluvert ofar mínum hagsmunum? Hvers vegna ætti ég ekki að beina viðskiptum mínum til þess fyrirtækis sem ég finn og sé greinilega að ber mína hagsmuni fyrir brjósti? Jafnvel þó að verðið sé örlítið hærra. Mínir hagsmunir sem neytandi liggja því í öflugu viðskiptasiðferði og öflugum eftirlitskerfum sem eru fær um að refsa fyrirtækjum sem brjóta af sér en einnig í því að hámenntaðir sér- fræðingar sem snúa öllu á hvolf upplifi gagnrýna hugsun frá þeim sem á þá hlusta. Hámörkun virðis til eigenda Eftir Ásmund R. Richardsson »… Traust er annað sem kennt er að skiptir verulegu máli þegar kemur að sam- skiptum og fólk er fljótt að skynja þegar því er ekki treyst … Ásmundur R. Richardsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Menn eru hugsi eftir persónukjörið til stjórnlagaþings 27. nóvember. Á kjördag var ég í hverfis- kjörstjórn í Laug- ardalshöll, stærsta kjörstað landsins. Þar tók mig tali maður frá Skotlandi, kvaddur af dómsmálaráðuneytinu vegna kosningarinnar. Áður hafði hann verið hér í sept- ember, þá tilkvaddur af alþingi vegna lagasamningar um kosninguna. Hann endursamdi lögin, sagði hann. Sem sagt kunnáttumaður um að- ferðina, greiðslu einfalds yfirfær- anlegs atkvæðis. Aðferðin væri við- höfð í Skotlandi, Írlandi, Norður-Írlandi, Ástralíu, Nýja- Sjálandi og Kanada – í breska heim- inum, skaut hann inn – og í Cam- bridge í Massachusetts á Nýja- Englandi. Gjarna væru kosnir 10-12, og flestir hefðu frambjóðendur verið 70 í sögu þessarar aðferðar. Þá gátu menn raðað 1, 2 o.s.frv, 69 og 70, en nú aðeins 25. Aðferðin verður hér metin að feng- inni reynslu. Fyrst dæmi, sem ekki er samkvæmt reynslu, og þar á að- eins að kjósa einn. Kjósendur eru 21. Deilitalan til að finna sætishlut, þá tölu atkvæða, sem þarf til að ná kjöri, er tala þeirra, sem á að kjósa, 1+1. Teknir eru aukastafir af útkomunni og bætt við 1, sem sagt 21/2=10,5, sem styttist í 10 og bætt við 1. Það gerir 11. Um 5 er að velja: A, B, C, D og E. 11 kjósendur raða A B C D E en 10 kjósendur raða B C D E A A nær sætishlut. Þeir 11, sem því ráða, setja allir B næst- an. 10 setja B fremstan og A neðstan. Þetta dæmi hef ég áður kynnt til að bera greiðslu einfalds yf- irfæranlegs atkvæðis saman við raðval (Lýð- ræði með raðvali og sjóðvali, bls. 52-54). Í raðvali nær B kjöri; fyr- ir að vera í fyrsta sæti fær hann 10x4 stig og fyrir að vera í öðru sæti 11x3 stig, samtals 73 stig. A fær 11x4 stig, 44, fyrir að vera í fyrsta sæti, en ekkert stig fyrir neðsta sæti. Lítum á, hvernig getur farið um slíkt mat kjósenda, að forðast kosn- ingu sumra frambjóðenda, með að- ferðinni, sem viðhöfð var í nóvember. Í dæminu á að kjósa 25; deilitalan er því 25+1. Kjósendur eru 100000. Sætishlutur, nauðsynleg tala til að ná kjöri, er 3847. A er efstur hjá 3900 kjósendum. Það tryggir honum sæti. Þetta getur gerst, enda þótt allir aðr- ir hafi hann alls ekki meðal þeirra 25, sem þeir raða. Á sama hátt getur far- ið fyrir B, sem 3850 setja efstan, en allir aðrir leiða hann hjá sér og hafa hann alls ekki á kjörseðli sínum. Þannig geta náð kjöri 25, hver með þröngan hóp að baki, enda þótt lang- flestir telji þá ekki koma til greina, en í öðru og þriðja sæti gætu verið yfirleitt sömu frambjóðendurnir, sem sagt almennt nokkuð vel metnir, en við uppgjörið koma þeir ekki til álita. Af þeim 25, sem kjörnir voru á stjórnlagaþing, eru 24 frá höfuð- stöðum landsins og nágrenni, 22 frá höfuðborginni og nágrenni og 2 frá höfuðstað Norðurlands, en einn utan þeirra. Svona fór, enda þótt líklegt sé, að ekki nokkur kjósandi hafi vilj- að það. Í greiðslu einfalds yfirfær- anlegs atkvæðis er nefnilega engin samstilling, heldur veljast menn óvart saman. Það getur reyndar gerst, þó að aðeins eigi að velja tvo, eins og sýnt skal með dæmi, sem er ekki fjarri veruleikanum. Kennarafélag á að velja tvo full- trúa í stjórn skólans. Skólinn starfar á tveimur stöðum, í Kvennastræti, en þar eru fræðigreinar, sem konur kenna helst, og í Karlagötu, þar sem eru fræðigreinar, sem karlar kenna helst. Allir eru á því, að hvor staður skuli hafa sinn fulltrúa og hvort kyn sinn mann. Í lausbeisluðu persónu- kjöri, hvort heldur eins og menn eiga að venjast eða með greiðslu einfalds yfirfæranlegs atkvæðis, þar sem allir skipa í tvö efstu sætin samkvæmt of- ansögðu, er undir hælinn lagt, að nið- urstaðan verði í samræmi við þetta sameiginlega álit, heldur getur hún vel orðið sú, að tveir veljist úr Karla- götu eða tvær úr Kvennastræti. Með raðvali tvennda getur ekki farið svo. Þar mundu allar tvenndir, sem kost- ur er á, hafa þessa eiginleika, sem einhugur var um. Kjósendur raða tvenndunum, og stig eru reiknuð samkvæmt reglum raðvals. Þetta er auðvelt, þegar 2 eru kosn- ir og aðeins er um tvo eiginleika að ræða. Þegar kjósa á 25 og fleiri eig- inleikar koma til álita kjósenda, verð- ur raðval ekki viðhaft umsvifalaust, en umfjöllun um raðval stjórnar í Lýðræði með raðvali og sjóðvali (bls. 65-67) má hafa til hliðsjónar við leit á aðferð án framangreindra annmarka greiðslu einfalds yfirfæranlegs at- kvæðis. Persónukjör - 2 kosnir Eftir Björn S. Stefánsson Björn S. Stefánsson » Lýst er tvenns konar annmörkum á að- ferðinni við kosningu til stjórnlagaþings. Ef gera á betur í persónu- kjöri, er bent á að hafa raðval til hliðsjónar. Höfundur starfar í Lýðræðissetrinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.