Morgunblaðið - 02.02.2011, Page 24

Morgunblaðið - 02.02.2011, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Svo mikill arnsúgur fylgir sumum mönn- um, að við skyndilegt og ótímabært fráfall þeirra er eins og nístandi þögn hvolfist yfir eftirlifandi samferða- menn þeirra. Óli G. Jóhannsson list- málari á Akureyri var tvímælalaust í þeim hópi. Ungur maður var hann meðal fræknustu sundmanna sinnar kynslóðar, seinna gerðist hann ástríðufullur hestamaður, stang- veiðimennskuna fékk hann í föð- urarf og sinnti henni af ákefð, síðan hefur ötulli sýningarhaldari vart sést á Akureyri. Loks nam hann myndlist af sjálfum sér og gerðist á endanum einn víðförlasti myndlist- armaður okkar Íslendinga. Óli G. var ekki einasta alltumlykjandi í at- hafnasemi sinni, heldur var hann stærri í sér en flestir menn. Mót- læti tók hann af auðmýkt og karl- mennsku, erfði ekki missætti við nokkurn mann og kappkostaði að deila síðbúinni velgengni sinni með fjölskyldu og vinum. Skyndilegt frá- fall hans örfáum dögum eftir opnun glæsilegrar málverkasýningar í Listasafni Reykjaness í Keflavík minnir á harmrænan viðsnúning ör- laganna í grískum leikbókmenntum. Sá Óli G. sem kvaddi sýningargesti laugardaginn 15. janúar var glaður og reifur, þakklátur fyrir velvild Keflvíkinga í sinn garð fyrr og síð- ar. Tengsl okkar Óla G. ná allt aftur til áttunda áratugar síðustu aldar. Hann vann þá að því að koma myndlist á Akureyri til nokkurs þroska; ég var þá myndlistargagn- rýnandi DV. Og þessi tengsl rofn- uðu ekki fyrr en yfir lauk. En upp í hugann kemur fyrst mynd frá síð- asta sumri, þegar ég hitti Óla G. við veiðar í Staðará á Snæfellsnesi. Við lágt klettabelti sem liggur að einum hylnum hafði Óli G. komið sér fyrir eins og herforingi, um- hverfis hann voru nokkrir opnir kassar með flugum í öllum regn- bogans litum. Þar við bættust stangirnar: klassísk flugustöng, kaststöng með spún og voldug tví- henda fyrir maðk. En Óli G. var „multitasking“ eins og sagt er á al- þjóðlegu viðskiptamáli, því meðan hann kastaði flugunni í sífellu talaði hann í farsíma við umboðsmenn sína í útlöndum og leiðbeindi óreyndum veiðimanni um köst og veiðistaði. Í kappsemi sinni hafði honum einnig láðst að fara í vöðlur, en sat á steini í betri buxum og blankskóm. Skyndilega fær óreyndi veiðimaðurinn átta punda sjóbirting á línuna en ræður illa við fiskinn. Þá er það Óli G. sem stekkur út í hylinn með háf á lofti, klöngrast þar um stund með straumharða ána upp að mitti, og í sameiningu landa þeir fengnum. Af meðfæddu örlæti hrósaði Óli G. veiðimanninum síðan fyrir frammistöðuna, þó svo hann hefði sjálfur lagt sig í lífshættu við að aðstoða hann. Myndlist Óla G. var framlenging af honum sjálfum, örlát í sköpunar- gleði sinni og vísan til myndlist- arhefðarinnar, kraftmikil, gáskafull og margbrotin. Hún er reist á þeirri sannfæringu að nýstefna 20stu aldar, módernisminn, hafi ekki enn runnið sitt skeið á enda, heldur eigi enn mikið inni, eins og sagt er á íþróttamáli. Sjálfur átti Óli G. mikið inni þegar örlögin gripu í taumana. Fjölskyldu Óla sendi ég hug- heilar samúðarkveðjur. Aðalsteinn Ingólfsson. Þær voru hreint lamandi frétt- irnar af veikindum og andláti Óla. Óli G. Jóhannsson ✝ Óli G. Jóhannssonfæddist á Ak- ureyri 13. desember 1945. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík 20. janúar 2011. Útför Óla G. fór fram frá Akureyr- arkirkju 31. janúar 2011. Síðast þegar við hitt- umst í Örkinni hans Nóa, þar sem hann var tíður gestur og sagði oft við komuna „Vantar ekki góða lykt í húsið?“, var hann svo yfirvegaður og ánægður með lífið. Hann hreinlega ljóm- aði enda hefur vegur hans og frami verið hreint stórkostlegur síðustu ár. Kynni okkar hjóna og vinskapur ná langt aftur. Við Óli unnum saman á póst- húsinu þar sem ég var sumarmaður og hann gjaldkeri, Lilja var mín hægri hönd hjá DNG í 17 ár og Óli tók líka að sér söluverkefni hjá fyr- irtækinu. Við hjónin hittumst oft og reglulega og gerðum okkur glaðan dag. Við Óli höfðum sameiginlegan áhuga á hestum og hrossarækt, átt- um saman hesthús um árabil og spáðum mikið í þau fræði og rugl- uðum reytum í ræktuninni. Sameig- inlegur áhugi okkar á myndlist var líka mikill og þar eins og í hest- unum var mikið spáð og spekúlerað. Hann var óþreyttur að sýna mér það sem var í gangi og nýtt á strig- anum. Snemma fórum við að gant- ast um það að vera saman við opn- un hans í New York, það væri ekki spurning um hvort heldur hvenær. Svo kom stundin, samstarf Óla við Opera-galleríið hafði gengið með einstökum ágætum. Vorið 2008 var ákveðið að hann sýndi í New York á vegum Opera og mikið lagt í und- irbúning og kynningu. Nokkru áður hafði Óli samband og sagði: „Þið hjónin verðið með í New York, við Lilja erum búin að ganga frá öllu og allt klárt!“ Það stóð heima. Ferðin var eitt ævintýri, algerleg ómetanleg reynsla og upplifun. Svona var Óli, stórbrotinn karakter sem kallaði ekki allt ömmu sína í lífinu. Hann var afar skýrt dæmi um hvað stórhugur, vilji, dugnaður og að sjálfsögðu einstakir hæfileik- ar geta skilað miklum árangri. Í framhaldi af ferðinni til New York bauð Óli mér að vera með sér á vinnustofunni og mála undir leið- sögn sinni, andrúmsloftið var ein- staklega rólegt og yfirvegað, þetta var eins og að detta yfir í annan heim. Enn og aftur ómetanleg reynsla fyrir mig. Hann skammaði mig að vísu einu sinni fyrir að taka til á vinnustofunni: „Þetta á að vera svona!“ Við sýndum saman afrakst- urinn í Festarkletti við afar góðar viðtökur í júní 2009. Hann ákvað að hafa sínar myndir sem minnst af- gerandi í þetta skiptið, mínar áttu að njóta sín. Tómið er mikið við fráfall Óla, hann átti eftir að gera svo margt og stórar sýningar og sigrar voru framundan. Lilja, Öddi, Siggi, Hjör- dís, Hrefna og fjölskyldur, við hjón- in sendum ykkur innilegar samúð- arkveðjur. Hugur okkar er með ykkur. Óli var stórbrotinn og alger- lega einstakur. Kristján Eldjárn. Hinn 12. september 1962 tóku sig til nokkur ungmenni á Akureyri og stofnuðu Sundfélagið Óðin. Þetta unga fólk var á aldrinum 15-18 ára og hafði um tíma verið óánægt með hvernig staðið var að málefnum sundmanna innan félaganna KA og Þórs. Þar virtist skipta meira máli kapp milli félaganna, en ekki íþrótt- in sjálf eða íþróttamennirnir. Þau sem fremst fóru í flokki þessara ungmenna voru Óli G., sem við kveðjum í dag, Júlíus Björgvinsson, Björn Arason, Björn Þórisson og Erla Hólmsteinsdóttir. Margir töldu að þetta félag myndi lognast fljótt út af þar sem stofnendur voru svo ungir og reynslulitlir. En með seiglu og dyggum stuðningi nokk- urra eldri einstaklinga tókst að halda félaginu á floti og er það í dag eitt af stærri sundfélögum landsins. Þetta má ekki síst þakka Óla G. og Jóni Árnasyni, sem voru í fremstu röð íslenskra sundmanna á sínum tíma, sem og öðrum er komu að frumkvöðlastarfi félagsins. Þótt Óli hafi hætt sundiðkun vissi hann samt alltaf hvað var að gerast og var með tímana á hreinu. Hann heiðraði nú síðast sundið árið 2009 á Landsmóti UMFÍ á Akureyri og veitti verðlaun í sundgreininni. Við minnumst Óla G. með þakk- læti og virðingu fyrir framlag hans til sundsins á Akureyri. Eftirlifandi eiginkonu Óla, börnum og öðrum aðstandendum vottum við samúð á þessum erfiðu tímum. F.h. stjórnar og þjálfara Sund- félagsins Óðins, Karen Malmquist. Það eru ekki mörg ár frá því að ég kynntist Óla G. Jóhannssyni. Hann gekk inn á vinnustofu mína þar sem ég var við vinnu og kynnti sig, ófeiminn en hæverskur. Við átt- um ágætt samtal og ég fann að hann var góður viðmælandi. En þetta var ekki sá Óli G. sem ég átti eftir að kynnast síðar því sú persóna, sem mig grunaði ekki að ætti eftir að verða samstarfsfélagi minn og vinur, reyndist önnur og stærri en við fyrstu kynni. Ævintýrið um Óla G. Jóhannsson byrjaði árið 2007 þegar opnaðist fyrir einkasýningu í Opera Gallery í London á tólf stórum myndum sem hann hafði málað sérstaklega af því tilefni. Eigendum gallerísins hafði borist sýningarskrá frá Íslandi með verkum þessa hispurslausa málara og höfðu þeir ákveðið að kynna hann í galleríi sínu í London. Töldu þeir verk Óla kærkomna og ferska viðbót við flóru þeirra u.þ.b. 200 listamanna sem þeir höfðu á sínum snærum. Mér verður ævinlega minnisstætt það augnablik þegar ég vaknaði við símhringingu frá London um há- bjarta júnínótt og rödd í símanum sagði „þær eru allar seldar“. Ég áttaði mig ekki í fyrstu hvað um var að vera en skildist brátt að kampa- kátur Óli G. Jóhannsson hafði sleg- ið rækilega í gegn með sinni fyrstu einkasýningu í London. Þessi velgengni átti eftir að halda áfram því sýningar á vegum Opera Gallery urðu í kjölfarið úti um allan heim allt frá New York til Seoul að ónefndum sýningum í Mónakó, Dúbaí og Singapúr. Árangur Óla G. með málverk sín á erlendri grundu varð með ólík- indum en má skýra að nokkru með því öfluga kynningarstarfi sem gall- eríið í London stóð fyrir. Þeir sem þar réðu ferð höfðu álit og trú hon- um sem málara og stóðu rækilega við sinn hlut. Hann varð einn sölu- hæsti listamaður gallerísins og var orðinn þekkt nafn á erlendri grundu. En það er líka í velgengn- inni sem reynir á hvaða mann hver hefur að geyma. Óli G. var sjálf- menntaður sem málari sem gerði þar af leiðandi róður hans erfiðari, en kannski um leið hann sjálfan frjálsari í sinni sköpun. Hann hafði vaxið upp af sjálfum sér sem lista- maður með mikilli elju og var á leið með málverk sitt inn á nýjar braut- ir sem enginn veit nú hvar hefði endað. Hann var enn að reyna nýj- ar leiðir í listsköpun sinni, en um leið að taka ákveðnari stefnu. En það verða ekki til fleiri málverk gerð af hendi Óla G. Jóhannssonar. Ævintýrinu er lokið. Samstarf okkar Óla var með ágætum þann stutta tíma sem við áttum samleið. Hann hélt þrjár einkasýningar hjá mér í Studio Stafni auk þess sem hann var með verk í sölu milli sýninga. Það var ýmislegt á döfinni, ný bók í smíðum á fjórum tungumálum og væntanleg sýning í New York á vordögum. Við vorum í nær daglegu sam- bandi þann tíma sem kynni okkar stóðu og bar aldrei skugga þar á. Þegar vel gekk var hann manna kátastur og örlátastur. Hann naut þess að gefa og vera aflögufær. Ég þakka Óla gott samstarf og vináttu og votta Lilju, börnum hans og fjölskyldum samúð mína á erf- iðum tímum við ótímabært fráfall Óla G. Jóhannssonar. Megi hann hvíla í friði. Viktor Smári Sæmundsson. ✝ Þökkum af alhug auðsýnda vináttu og samúð við andlát okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengda- föður, bróður, afa og langafa, STEFÁNS JÓHANNSSONAR forstjóra, Seyðisfirði. Sérstakar þakkir til Heilbrigðisstofnunar Austur- lands í Neskaupstað og á Seyðisfirði fyrir góða umönnun. Guðrún Auðunsdóttir, Ólafía Þ. Stefánsdóttir, Guðjón Már Jónsson, Nína S. Waldmann, Paul Waldmann, Auður J. Stefánsdóttir, Níels E. Daníelsson, Jóhann Stefánsson, Bára Mjöll Jónsdóttir, Stefán Þór Stefánsson, Helga Ó. Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur vináttu, hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SKARPHÉÐINS ÁRNASONAR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilisins Höfða fyrir nærgætni og hlýju. Landssamtökum smábátaeigenda færum við einnig sérstakar þakkir fyrir einstaka vináttu og virðingu sem þau sýndu honum með þátttöku sinni í athöfninni. Sigurbjörn Skarphéðinsson, María Karlsdóttir, Sigrún Birna Skarphéðinsdóttir, Pétur Örn Jónsson, Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, ÁRNA BALDVINS HERMANNSSONAR, Hátúni 26, Keflavík. Sérstakar þakkir viljum við færa öllu því yndislega starfsfólki D-deildar á Heilbrigðisstofnun Suður- nesja fyrir ómetanlegan stuðning og kærleik. Guð blessi ykkur öll. Þóra Svanlaug Ólafsdóttir, Sveindís Árnadóttir, Hermann Árnason, Ásta Baldvinsdóttir, Jón Ólafur Árnason, Soffía Karen Grímsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn, Sigríður Hermannsdóttir. ✝ Hjartans þakkir færum við þeim sem heiðruðu minningu mömmu okkar, tengdamömmu, ömmu og langömmu, PÁLDÍSAR EYJÓLFS. Við þökkum auðsýnda samúð og vináttu og færum starfsfólki Droplaugarstaða kærar þakkir fyrir kærleiksríka umönnun. Halldóra Konráðsdóttir, Þorvaldur Sigurbjörnsson, Elísabet Konráðsdóttir, Sigurður Halldórsson, Elín Konráðsdóttir, Guðni Bergsson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARGRÉT EYÞÓRSDÓTTIR, verður jarðsungin á morgun, fimmtudaginn 3. febrúar kl. 13.00, frá Hafnarfjarðarkirkju. Ástríður Gunnarsdóttir, Trausti Gunnarsson, Sesselja Gunnarsdóttir, Eggert Kristinsson, Ingibjörg Jóna Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.