Morgunblaðið - 02.02.2011, Síða 26

Morgunblaðið - 02.02.2011, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2011 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Antík Antikklukkur og viðgerðir Sérhæfð viðgerðarþjónusta á gömlum klukkum og úrum. Guðmundur Hermannsson úrsmíða- meistari, ur@ur.is, s. 554 7770 - 691 8327. Gisting Ibúð i Barcelona i Exsample til leigu, skammtima og langtima. www.starplus.is www.starplus.info English version. Upplýsingar í síma 899 5863. Þú átt skilið að komast í hvíld! Í Minniborgum bjóðum við upp á ódýra gistingu í notalegum frístunda- húsum. Þú færð 3 nætur á verði 2. Fyrirtækjahópar, óvissuhópar, ættarmót. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. Minniborgir.is Gisting á góðum stað. Upplýsingar í síma 868 3592. Sumarhús Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratugareynsla. Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Verslun Fallegu silfurskeiðarnar eru smíðaðar í smiðjunni okkar ásamt borðsilfrinu íslenska. Skeiðarnar kosta 16.300,- og við getum áletrað ef vill með stuttum fyrirvara. ERNA, s.552 0775, www.erna.is Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta ERFÐASKRÁR Ég, Hilmar Þorsteinsson, meistara- nemi í lögfræði, tek að mér samningu erfðaskráa, þannig að öllum lagaskilyrðum sé fullnægt. Hóflegt verð — persónuleg þjónusta. Sími: 696 8442, netfang: hth56@hi.is Bílaþjónusta Ökukennsla Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '08. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Visa/Euro. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar, gler og gluggaskipti. og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Páll Gíslason andað- ist 1. janúar síðastlið- inn. Ég kynntist Páli vorið 1956, hafði þá nýlokið svokölluðu miðhlutanámi í lækn- isfræði. Á þessum tímamótum í læknanáminu byrja læknanemar venjulega að vinna á hinum ýmsu sjúkrahúsum. Ég ákvað þó að bíða með það og sótti í þess stað um úti- vinnu til að hvíla mig eftir mikla inniveru sem fylgdi náminu og ströngum próflestri. Hafði ég strax að loknu prófi fengið vinnu við frá- gang lóðarinnar við Heilsuverndar- stöðina. Ég hafði unnið þarna í nokkra daga og allan tímann var rigning og rok. Ég fór þá að hugsa að sennilega hefði verið skynsam- legra að sækja um starf á einhverj- um spítalanna. Þá var eins og örlög- in gripu inn í. Við vorum allir að vinna austanmegin við bygginguna, en þá þurfti verkstjórinn að senda Páll Gíslason ✝ Páll Gíslasonfæddist á Vífils- stöðum 3. október 1924. Hann lést á Landspítalnum í Foss- vogi 1. janúar 2011. Útför Páls fór fram frá Hallgrímskirkju 10. janúar 2011. mig eftir „járnkarli“ sem var geymdur vestanmegin þ.e. Bar- ónsstígsmegin. Á þessum tímapunkti, sem varaði aðeins nokkrar mínútur, gengur maður nokkur niður Barónsstíginn og kallar til mín: „Daníel, hvað ert þú að gera þarna í þessu slagviðri. Af hverju ferðu ekki upp á Akra- nes til hans Páls Gísla- sonar, hann vantar að- stoðarlækni.“ Hér var á ferðinni Ólafur Jónsson, sérfræðingur í melt- ingarsjúkdómum. Ég hringdi í Pál og sagði hann mér að taka rútuna þá seinna um daginn. Páll gerði sér far um að leiðbeina læknanemum og gaf sér alltaf góðan tíma þrátt fyrir mik- ið annríki, en á þessum tíma var hann yfirlæknir alls spítalans. Auk starfa sinna við sjúkrahúsið sinnti hann margvíslegum félags- málum í bænum. Hann sat í bæj- arstjórn, stjórn Norræna félagsins, en hæst bar starf hans fyrir Skátafé- lagið. Það ríkti ákaflega góður andi á sjúkrahúsinu og var það ekki síst að þakka Páli sem gerði sér far um að öllum liði vel í starfinu. Páll hafði fallega og mjúka söng- rödd og hafði gaman af að taka lagið, jafnvel við skurðarborðið. Páll var frumkvöðull í æðaskurðlækningum á Íslandi og framkvæmdi fyrstu slag- æðaaðgerð á ganglim á Akranesi 1961. Páll var ákaflega farsæll í starfi og vel liðinn af samstarfs- mönnum og sjúklingum. Segja má að Páll hafi verið mikill örlagavaldur í mínu lífi, því á Akranesi kynntist ég konu minni. Ég minnist þess að hann þurfti að fara úr miðri brúðkaups- veislu okkar hjóna vegna bráðaað- gerðar. Segja má að Páll hafi verið á „krónískri“ vakt við spítalann allan tímann sem hann var þar. Soffía, kona Páls, stóð þétt við bak hans og studdi hann á alla lund. Eft- ir 15 ára starf á Akranesi varð Páll yfirlæknir á Landspítalanum og var þar mikill drifkraftur og vel látinn. Sonur okkar hjóna, Guðmundur, vann hjá Páli í tæp tvö ár að loknu læknanámi og átti það drjúgan þátt í að hann valdi æðaskurðlækningar sem sérgrein. Páll hætti störfum í árslok 1994. Þrátt fyrir vaxandi sjóndepru gerði hann sér far um að sækja sem flesta fundi í læknastétt- inni og tók þátt í umræðum af lífi og sál. Hann sótti alla fundi hjá eldri læknum og keyrði ég hann oft til síns heima að loknum þessum fund- um. Að leiðarlokum sendum við Gerð- ur innilegar samúðarkveðjur til Soffíu og barna þeirra. Blessuð sé minning Páls. Daníel Guðnason. Góðvinir kveðja og saknaðarkennd fer um hugans inni. Fyrir hugskotssjónum leiftra minningamynd- ir frá bernsku- og æskudögum þeg- ar Baldvin félagi minn og vinur er allur. Sumarið er 1946 og á næsta bæ er kominn drengur á mínu reki og ekki líður á löngu að fundum beri saman og kynni góð takast með sveitastráknum og Norðfirðingnum, því þaðan er hann Baldvin kominn, hann Baddi eins og hann vildi láta kalla sig. Baldvin missti móður sína barnungur, var alinn upp hjá ágæt- um móðursystkinum sínum, systur- sonur Sveinbjargar sem aftur var mágkona Gunnu minnar konu Gísla Baldvin Róbert Þorsteinsson ✝ Baldvin Þor-steinsson var fæddur í Neskaupstað 20. apríl 1934. Hann lést á Landspít- alanum, Hringbraut 6. janúar 2011. Útför Baldvins fór fram í kyrrþey 14. janúar 2011. frænda míns og þann- ig kom til sumardvöl hans hjá þeim sóma- hjónum. Kynnin urðu að góðri vináttu okkar tveggja sem entist vel og ávallt vinafundir er við hittumst. Þó að ólíkir værum við um margt náðum við vel saman og alveg sér- lega vorum við sam- rýndir í pólitíkinni þó að ungir værum og ræddum hana fram og aftur, „brennandi í andanum“ að eigin mati. Enn minn- ist ég þess þegar við æfðum okkur í „íþróttum“, ég stökk og hljóp, hann varpaði kúlu og kringlu en svo köll- uðum við steinana, afrekin mæld og skráð og enn á ég bókina góðu. Vor- ið 1948 var ég svo sendur á Norð- fjörð til að freista þess að læra sundíþróttina og gekk ekki alltof vel. Þá var ómetanlegt að eiga Bald- vin að sem góðvin og mega rölta með honum um bæinn ásamt Jóni Barðasyni sem ég átti síðar samleið með á Eiðum. Þetta voru góðir fé- lagar feimnum sveitastráknum og ekki aldeilis verið að minna hann á hversu brösótt sundnámið sóttist. Gott er í dag gömlum huga að minnast þessara stunda heima á Reyðarfirði og á Norðfirði, finna yl þeirra og angan á ný þegar hinzta kveðjan ein er eftir. Á ferðum mín- um hitti ég Baldvin oft á Seyðisfirði þar sem hann hafði fest ráð sitt, eignast ágætan lífsförunaut í henni Arabellu og það fann ég að fjöl- skyldan var honum allt, fyrir hana gerði hann allt sem unnt var, vakinn og sofinn í umhyggju sinni. Hann var verkmaður ágætur og harðdug- legur, laginn og samvizkusamur. Léttur hlátur hans ómar enn fyrir eyrum mér, því hann var gaman- samur vel á góðum stundum. Bald- vin flutti suður og stöku sinnum hittumst við og þá barst talið gjarna að löngu liðnum æskustundum, hlýtt var handtakið, einlægnin söm við sig. En svo er komið að kveðju- stund. Ég hlýt að minnast þakk- látum huga þessara góðu stunda forðum þegar ýmsar vonir fengu vængi í sumarblænum og gleði leikj- anna var allsráðandi. Henni Ara- bellu og fólkinu þeirra sendi ég mín- ar hlýju samúðarkveðjur um leið og ég kveð góðan dreng þakklátum huga. Blessuð sé kær minning Baldvins Róberts Þorsteinssonar. Helgi Seljan. Sveit Simon Gillis sigraði í 67 sveita keppni sem lauk sl. sunnu- dagskvöld í lokakeppni Bridshátíðar. Simon er Breti en með honum í sveitinni spiluðu norðmennirnir Bo- ye Brogeland, Marianne Harding og Odin Svendsen. Norðmenn urðu einnig í öðru sæti og Svíar í því þriðja. Sveit Garðsapó- teks hélt uppi heiðri gestgjafanna og varð í fjórða sæti. Lokastaðan: Gillis 190 Rune Hauge 184 Iceland Express 183 Garðsapótek 180 Sweden/USA 179 USA 178 Sparisj. Siglufjarðar 194 Grant Thornton 173 Jón Baldursson og Þorlákur Jóns- son sigruðu í tvímenningsmótinu eft- ir harða atlögu frá Norðmönnum í lokaumferðunum en þar varð loka- staðan þessi í %: Jón Baldursson - Þorlákur Jónss. 58,7 Rune Hauge -Tor Helness 58,2 Thor E. Hoftaniska - Thomas Charlsen 58,1 Arve Farstad - Lars Eide 56,7 Erik Sælensminde - Per Eric Austberg 55,6 Anja Alberti - Nikolas Bausback 55,4 Helgi Sigurðss. - Ísak Ö. Sigurðss. 54,4 Pörin í 2.-5. sæti eru öll frá Nor- egi, parið í 6. sæti frá Þýzkalandi og okkar menn svo í 7. sæti. Í upphafi bridshátíðar fer fram stjörnukeppni þar sem stigaminni spila með meisturunum í sveit. Þar var íslenskur sigur, „gamlir“ harð- jaxlar sem kölluðu sig Logoflex. Í sveitinni spiluðu Guðmundur Bald- ursson, Steinberg Ríkharðsson, Sveinn Rúnar Eiríksson og Steinar Jónsson. Mótið var að þessu sinni spilað í bakhúsi við Síðumúla og verður að segjast eins og er að merking hús- næðisins og staðsetning nær ekki þeim gæðum sem þetta velþekkta og vel skipulagða mót á skilið. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 28. janúar var spilað á 18 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Björn Árnason – Örn Einarsson 382 Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 344 Jón Sigvaldason – Skúli Bjarnason 340 Sæmundur Björnss.– Hreinn Hjartars. 338 A/V Katarínus Jónsson – Oddur Jónsson 399 Kristrún Stefánsd. – Sigríður Magnúsd. 383 Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónsson 382 Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 371 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn 27. janúar. Spilað var á 13 borðum. Meðalskor: 312 stig. Árangur N/S: Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 394 Jón Þór Karlsson – Birgir Sigurðss. 377 Jens Karlsson – Auðunn Guðmss. 368 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 350 Árangur A/V: Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgason 471 Björn Svavarss. – Jóhannes Guðmannss. 408 Elías Einarss. – Höskuldur Jónsson 337 Gunnar Jónsson – Óskar Ólafsson 328 Skor Helga og Sigurjóns er eft- irtektarvert, tæp 70%. Tvímenningskeppni spiluð mánu- daginn 31. janúar. Spilað var á 13 borðum. Meðalskor: 312 stig. Árangur N - S: Þorvaldur Matthíass. - Svava Ásgeirsd. 350 Sigurður Tómass. - Guðjón Eyjólfsson 339 Jón Lárusson - Ragnar Björnsson 330 Sigurður Pálss. - Þorsteinn Sveinsson 323 Árangur A /V: Gunnar Jónsson - Óskar Ólafss. 359 Óli Gíslason - Oddur Halldórss. 344 Björn Svavarss. - Jóhannes Guðmannss. 327 Bergur Ingimundars. - Axel Lárusson 326 Ljósmynd /Jón Bjarni Jónsson. Sigursveitin Bridshátíð lauk sl. sunnudag með sigri sveitar Bretans Simon Gillis en með honum spiluðu þrír Norðmenn. F.v. Boye Brogeland, Simon Gillis, Marianne Harding og Odin Svendsen. Norðmenn fjölmenn- ir og sigursælir BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.