Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 Andri Karl andri@mbl.is Raunhæfur möguleiki er á því að næsti vígslubiskup í Skálholti verði kona. Fari svo verður brotið blað í sögu kirkjunnar á Íslandi því aldrei hefur kona gegnt embætti vígslu- biskups hér á landi og aðeins einu sinni hefur kona verið í kjöri til embættisins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru þegar tvær konur í kjöri og getur þeim enn fjölgað enda skulu tilnefningar ásamt skriflegu samþykki hlutað- eigandi hafa borist kjörstjórn með sannanlegum hætti á Biskupsstofu fyrir kl. 16 hinn 22. mars nk. Tveir vígslubiskupar eru á Íslandi og situr annar á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði en hinn í Skálholti í Bisk- upstungum. Vígslubiskup er það embætti innan íslensku þjóðkirkj- unnar og sambærilegra kirkna sem er næst fyrir neðan biskup og næst fyrir ofan prófast. Síðasta vígslubiskupskjör fór fram árið 2003, á Hólum, og þá bauð Dalla Þórðardóttir sig fram, en einnig Kristján Valur Ingólfsson og Jón Aðalsteinn Baldvinsson sem var kjörinn. Brautin rudd í síðasta kjöri Að því er Morgunblaðið kemst næst hafa fjórar tilnefningar þegar komið fram. Þar á meðal eru Agnes M. Sigurðardóttir, prófastur í Vest- fjarðaprófastsdæmi og sóknarprest- ur í Bolungarvíkurprestakalli, og Sigrún Óskarsdóttir, prestur í Ár- bæjarkirkju. „Ég tel að það muni geta haft afar góð áhrif á kirkjuna ef kona kemur þarna inn, því það brýtur blað. Ég held raunar einnig að það fari svolít- ið eftir því hvað sú kona sem kemur til starfa gerir sjálf í þessu emb- ætti,“ segir Auður Eir Vilhjálms- dóttir, sem sjálf var fyrsti kven- prestur á Íslandi. Auður segir algjörlega tímabært að kona gegni embætti vígslubiskups hér á landi. Dóttir Auðar, fyrrnefnd Dalla, tók þátt í síðasta kjöri, og segir Auður að það hafi verið undirbún- ingur fyrir þetta kjör. „Þá er búið að vinna svona verk, búið er að tilnefna konu, eða hún bauð sig raunar fram. Það er undirbúningur fyrir þetta vígslukjör. Þetta kemur allt svona stig af stigi. Það þarf að plægja jörðina sem svo gengið er eftir.“ Myndi bæta ímynd kirkjunnar Segja má að þjóðkirkjan hafi gengið í gegnum töluvert erfiða tíma undanfarin misseri. Aðspurð telur Auður að kjör konu í embætti vígslubiskups geti bætt ímynd kirkj- unnar á nýjan leik. „Kirkjan sýnir styrk sinn til nýrra skrefa með því að kjósa konu. Ég held hún þurfi það og vona innilega að það gerist.“ Þegar talið berst að því hvað kona í embætti vígslubisups þurfi að gera segist Auður telja að embættið þurfi að vera þannig að það sé til þjónustu fyrir prestana í hvorum landshlut- anum fyrir sig, það sé mikilvægast. Einnig hefur Morgunblaðið heim- ildir fyrir því að tilnefndir hafi verið Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknar- prestur í Hallgrímskirkju, og áður- nefndur Kristján Valur, verkefnis- stjóri á Biskupsstofu og lektor við guðfræðideild. Ráðgert er að kosning hefjist í byrjun apríl og gæti verið lokið um páska. Ef fara þarf aðra umferð þá yrði henni lokið u.þ.b. mánuði seinna. Kjörgengur er hver guð- fræðikandídat sem fullnægir skil- yrðum til þess að vera skipaður prestur í þjóðkirkjunni. Til að til- nefning sé gild þurfa 10 af hundraði kosningabærra manna að lágmarki að standa að henni, en óheimilt er þó fleirum en 25 af hundraði að standa að tilnefningu vígslubiskups- efnis.  Tvær konur eru í vígslubiskupskjöri í Skálholti og því möguleiki á fyrsta kvenvígslubiskup Íslands  Fyrsti kvenprestur landsins telur það tímabært og yrði til að styrkja kirkjuna á erfiðum tímum „Sýnir styrk sinn til nýrra skrefa“ Agnes M. Sigurðardóttir Sigrún Óskarsdóttir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórn- arformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segist hafa lagt mikla áherslu á að staðið væri eins faglega að ráðningu nýs forstjóra OR og kostur væri á. Stjórn OR hefur ráðið Bjarna Bjarnason, jarðfræðing og verk- fræðing, forstjóra fyrirtækisins. Tekur hann við starfinu af Helga Þór Ingasyni, sem ráðinn var tíma- bundið í ágúst í fyrra. Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í stjórn OR, hefur gagnrýnt ráðningarferlið, m.a. að stjórn OR hafi ekki fengið að taka þátt í ferlinu á öllum stigum þess. Haraldur segist vera undrandi á gagnrýninni. „Það var farin sú leið að hafa hæfisnefnd og ferlið sem farið var eftir var ákveðið fyrirfram. Það lá því fyrir hvernig þetta yrði unnið og stjórnin var upplýst um framvinduna á öllum stigum máls- ins,“ segir Haraldur. Gögnin aðgengileg stjórninni „Gögnin hafa á öllum stigum verið aðgengileg stjórnarmönnum, bæði nafnalisti umsækjendanna 60 og all- ar umsóknir og fylgigögn,“ segir hann. Tillaga að ráðningarferlinu og starfslýsingu forstjóra var lögð fyrir stjórn OR og að sögn Haraldar var á seinustu stigum ráðningarferlisins stuðst við mjög stífan mæli- kvarða á hæfi umsækjenda, sem hefðu geng- ist undir um- fangsmikil hæfn- is- og persónuleikapróf, sem ráðningar- fyrirtæki önnuð- ust. Sextíu sóttu um starfið en smám saman þrengdist hópurinn niður í 10-12 sem teknir voru í viðtöl. „Við- tölin voru stöðluð og fyrirfram ákveðnir mælikvarðar notaðir til að meta árangur þeirra. Þetta var allt kynnt fyrir stjórninni. Að þessu loknu voru fjórir umsækjendur eftir sem fóru í umfangsmikil próf hjá Hagvangi og Capacent.“ Um var að ræða persónuleikapróf, talnarýni- próf o.fl. auk leikinna æfinga í stjórnun funda. „Hugmyndin var sú að gera þetta eins faglega og kostur væri á, en ef menn eru ekki vanir þessu verklagi horfir þetta kannski skringilega við,“ segir Haraldur, sem kveðst mjög ánægður með ráðningu Bjarna. „Ég tel að þetta ferli hafi leitt til farsællar niðurstöðu.“ Bjarni tekur til starfa 1. mars. Vildi gera þetta eins faglega og kostur væri á  Tóku m.a. persónuleika- og talnarýnipróf Haraldur Flosi Tryggvason Ólíklegt er talið að það kjöt og mjólk sem hugsanlega var yfir mörkum að díoxíni í Skutulsfirði, nálægum fjörðum og á Svínafelli og fór á markað hafi áhrif á heilsu fólks. Þetta kemur fram í sameig- inlegri tilkynningu frá Matvæla- stofnun, Sóttvarnalækni og Um- hverfisstofnun. Ekki áhrif á fólk Eru mælingar sagðar benda til að lítill hluti af sex og hálfu tonni af kjöti sem fór á markaði hafi verið yfir mörkum. Af þeim fóru fimm tonn til útflutnings en eitt og hálft tonn fór ferskt á innan- landsmarkað og er líklega ekki lengur á markaði. Matvælastofnun vinnur að því að kanna hvert kjöt- ið fór og taka það af markaði ef enn er eitthvað í dreifingu. Þá bendi frumathuganir ekki til merkjanlegra eitrunaráhrifa á fólk, samkvæmt upplýsingum sóttvarnalæknis. Sóttvarnalæknir mun engu að síður standa að rannsóknum á fólki til að ganga úr skugga um hvort díoxín hafi borist í það og þá í hvaða magni. Haldnir verða borgarafundir í nágrenni eldri sorpbrennslna þar sem íbú- um verður kynnt staða mála og næstu skref. Díoxínmengunin líklega ekki verið hættuleg Kjartan Kjartansson Andri Karl Stefnuljósanotkun ökumanna á höfuðborgarsvæðinu virðist vera töluvert ábótavant. Lögregla stoppaði í gær um 80 ökumenn sem fóru um Grandatorg í Reykjavík án þess að gefa stefnumerki. Fylgist lög- reglan sérstaklega með notkun stefnuljósa í febrúar. „Flestir taka okkur vel og hafa skilning á þessu og iðrast. Menn verða að líta á stefnumerkjagjöf ekki sem skyldu heldur að þeir séu að leiðbeina öðrum öku- mönnum um hvert þeir ætla þannig að aðrir vegfar- endur geti tekið tillit til þeirra,“ segir Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Notkun stefnumerkja sé því í þágu eigin öryggis ökumanna. Tímasetning stefnuljósa ekki síður mikilvæg Í nýlegri könnun Umferðarstofu kom í ljós að innan við helmingur ökumanna gaf stefnuljós á tveim- ur hringtorgum í borginni. Jón Haukur Edwald, for- maður stjórnar Ökukennarafélags Íslands, segir þess- ar tölur staðfesta tilfinningu sem hann hefur haft en hann kunni ekki skýringar á því hvers vegna svo margir noti ekki stefnuljós. „Það held ég að finni allir sem eru í umferðinni að þetta má vera miklu betra,“ segir hann. Mikil áhersla sé lögð á notkun stefnuljósa í ökunámi og segist hann hafa grun um að yngra fólkið sé jafnvel betra í notkun þeirra en það eldra. Jón Haukur bendir einnig á að það sé ekki síður mikilvægt hvernig fólk notar stefnuljósin. „Fólk gefur oft seint stefnuljós, oft á tíðum um leið og það beygir. Það skilar mjög takmörkuðum upplýsingum í viðbót við það sem þegar er orðið ljóst.“ Í ökunáminu sé lögð áhersla á að stefnuljósin séu notuð rétt. Þá sé oft miðað við þá þumalputtareglu að gefa stefnuljós fimm sekúndum áður en beygt er þannig að það sé ljóst hvað ökumaður vill gera. Morgunblaðið/Sigurgeir Stefnuljós Lögreglan fylgdist með ökumönnum á Grandatorgi í vesturbæ Reykjavíkur í gær í tvo tíma. Á þeim tíma voru áttatíu stefnulausir ökumenn stoppaðir sem notuðu ekki stefnuljós í hringtorginu. Stoppa stefnulausa  Lögreglan í átaki í febrúar til að fylgjast með notkun stefnuljósa 80 ökumenn stoppaðir í gær í Reykjavík Morgunblaðið/Sigurgeir Eftirlit Sérstök áhersla verður lögð á eftirlit með stefnuljósanotkun í febrúar hjá lögreglu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.