Morgunblaðið - 09.02.2011, Side 15
UGANDA
300 km
EÞÍÓPÍA
Khartoum
Abyei
Juba
KENÍA
MIÐ-
AFRÍKU-
LÝÐVELDIÐ
AUSTUR-KONGÓ
SÚDAN
S U Ð U R -
S Ú D A N
Olíuleiðsla
Helstu olíulindir Svæði þar sem fyrirtæki
hafa fengið olíuvinnsluleyfi
SUÐUR-SÚDAN
Heimildir: Reuters, stjórn
Suður-Súdans, Mannfjöldasjóður
SÞ, Alþjóðabankinn
Í HNOTSKURN
Stærð: 640.000 ferkm
Íbúafjöldi: 8,26 millj.*
Þjóðflokkar Trúarbrögð
Aðrir
40%
Azande 8% Kristnir 20%
Andatrú 80%Dinka
40%
Nuer
12%
*Gert er ráð fyrir því að íbúunum fjölgi um allt að
þrjár milljónir á næstu sex árum vegna eðlilegrar
mannfjölgunar og heimkomu fólks sem þurfti að
flýja heimkynni sín vegna langvinnra átaka
EFNAHAGUR
Meðalneysla ámann:
sem svarar 4.570 kr. á mánuði
Íbúar undir fátæktarmörkum: 51%
Fáni Suður-
Súdans
„Við erum frjáls, við höfum öðlast
sjálfstæði!“ hrópaði gamall hermað-
ur, William Machar, þegar tilkynnt
var að tillaga um að Suður-Súdan
yrði sjálfstætt ríki hefði verið sam-
þykkt með 98,83% atkvæða í þjóðar-
atkvæðagreiðslu í janúar. „Þetta er
stund okkar í sögunni, þegar við
sjáum litla landið okkar fæðast.“
Machar var á meðal þúsunda
manna sem fögnuðu ákaft í Juba,
höfuðstað Suður-Súdans, þegar
niðurstaða þjóðaratkvæðisins var
tilkynnt í fyrrakvöld. Þjóðar-
atkvæðið er liður í friðarsamningi
sem náðist árið 2005 og batt enda á
22 ára borgarastríð sem kostaði um
tvær milljónir manna lífið. Niður-
staðan gat vart verið skýrari: Af
3.837.406 gildum atkvæðum voru
aðeins 44.888 á móti sjálfstæði
Suður-Súdans, eða 1,17%.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
og leiðtogar fleiri ríkja lýstu því yfir
að þeir myndu viðurkenna sjálfstæði
Suður-Súdans 9. júlí þegar nýja rík-
ið verður stofnað formlega.
Öldungarnir svonefndu, hópur
fyrrverandi leiðtoga, fóru lofsam-
legum orðum um framkvæmd at-
kvæðagreiðslunnar. Nelson Man-
dela, fyrrverandi forseti Suður--
Afríku, stofnaði hópinn árið 2007 til
að stuðla að friði í stríðshrjáðum
löndum á borð við Súdan.
Einn öldunganna, Desmond Tutu,
fyrrverandi erkibiskup í Suður-
Afríku, kvaðst hafa hrifist af frelsis-
þránni og vongleðinni sem hefði
komið greinilega fram í þjóðar-
atkvæðinu. „Ég hreifst sérstaklega
af því hversu staðráðið fólkið var í að
kjósa; sumir gengu í marga daga til
að geta kosið,“ sagði hann.
Tveir aðrir öldungar, Jimmy
Carter, fyrrverandi Bandaríkja-
forseti, og Kofi Annan, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, tóku í sama streng. Þeir
hvöttu þó ríki heims til að gleyma
ekki vandamálum sem steðjuðu enn
að norðurhluta Súdans, svo sem
fátækt, átökum og mannréttinda-
brotum. bogi@mbl.is
Fæðingu ríkis
ákaft fagnað
Nær 99% studdu sjálfstæði S-Súdans
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Hundruð þúsunda manna streymdu inn í miðborg
Kaíró í gær til að krefjast þess að Hosni Mubarak
léti þegar í stað af embætti forseta. Fréttaritari
breska ríkisútvarpsins í Kaíró sagði þetta fjöl-
mennustu mótmæli í borginni frá því að götumót-
mælin í Egyptalandi hófust 25. janúar. Skilaboð
mótmælendanna til stjórnvalda væru skýr: stuðn-
ingurinn meðal almennings við kröfuna um afsögn
Mubaraks væri gríðarlegur og tilslakanir, sem
stjórn hans hefur boðað síðustu daga, dygðu ekki.
Fjölmennustu mótmælin til þessa
Hundruð þúsunda Egypta söfnuðust saman í miðborg Kaíró til að krefjast þess
að Mubarak segði af sér tafarlaust Treysta ekki loforðum um lýðræðisumbætur
Mubarak hefur sagt að hann
hyggist ekki gefa kost á sér til
endurkjörs í forsetakosningum,
sem eiga að fara fram í sept-
ember, en hann neitar því að
verða við kröfu mótmælend-
anna um að láta af embætti þeg-
ar í stað. Omar Suleiman, nýr
varaforseti Egyptalands,
ræddi við Mubarak í gær og
sagði hann hafa samþykkt að
skipuð yrði nefnd til að leggja drög að nýrri
stjórnarskrá og önnur til að koma stjórnarskrár-
Mótmælt í miðborg
Kaíró í gær.
breytingum og öðrum lýðræðisumbótum í fram-
kvæmd. Þriðja nefndin ætti að rannsaka átök milli
stuðningsmanna og andstæðinga Mubaraks í
Kaíró í vikunni sem leið og niðurstöðum hennar
yrði vísað til ríkissaksóknara Egyptalands. Dag-
inn áður hafði stjórn Mubaraks tilkynnt að laun
opinberra starfsmanna yrðu hækkuð um 15%.
Nokkrir mótmælendanna í Kaíró sögðu að til-
slakanir ríkisstjórnar Mubaraks væru skref í rétta
átt, en aðrir sögðust ekki telja að Suleiman stæði
við loforðin. „Við treystum þeim ekki lengur,“
sagði einn mótmælendanna um Mubarak og vara-
forsetann.
Veðji á lýðræði
» Alain Juppe, varnarmálaráð-
herra Frakklands, sagði í gær
að vestræn stjórnvöld þyrftu
að „veðja á lýðræðisöflin“ þótt
ráðamennirnir í Kaíró fullyrtu
að valið stæði á milli þeirra og
íslamskra öfgamanna.
» Robert Gates, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði
að stjórn Egyptalands þyrfti að
koma á lýðræðislegum umbót-
um.
Börn leika á hljóðfæri á snjóskúlptúr af Himnahofinu í
Peking á árlegri snjóhátíð í borginni Sapporo á eyjunni
Hokkaido í Japan. Snjóhátíðin er nú haldin í 62. skiptið
og stendur til sunnudagsins kemur. Hún er ein af vin-
sælustu vetrarhátíðum Japans og var fyrst haldin 1950
þegar framhaldsskólanemar tóku upp á því að búa til
snjólistaverk í almenningsgarði í borginni. Hátíðin hef-
ur undið upp á sig og um tvær milljónir manna koma í
borgina til að skoða hundruð snjólistaverka. Sum
þeirra eru meira en 25 metra breið og 15 metra há.
Reuters
Vinsæl snjóhátíð í Japan
Geimrannsóknastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, hefur birt fyrstu
þrívíddarmyndirnar frá tveimur
geimförum sem send voru á braut
um sólina í því skyni að taka þrí-
víðar myndir af henni og rannsaka
sólgos, sólvinda og áhrif þeirra á
jörðina.
Þetta er í fyrsta skipti sem sólin
er rannsökuð frá tveimur stöðum í
einu í geimnum. Við rannsóknina
eru einnig notuð gögn frá athug-
unarstöðvum á jörðinni.
Geimförunum var skotið á loft í
október 2006. Þau fóru sitt hvorum
megin við sólina og eru nú í fyrsta
skipti aðskilin í 180 gráður, þannig
að þau geta ljósmyndað og rann-
sakað sinn helming sólarinnar
hvort.
Vísindamenn NASA geta nú
rannsakað sólina í þrívídd í átta ár
meðan myndavélarnar haldast í
réttri stöðu.
Meginmarkmiðið er að rannsaka
sólvinda og sólgos sem geta haft
mikil áhrif á jörðina, t.a.m. valdið
rafmagnsleysi, fjarskiptatruflunum
og norðurljósum. M.a. á að rann-
saka svonefnd kórónugos, gríðar-
stórar gasbólur sem springa út frá
kórónu sólar og geta valdið miklum
segulstormum við jörðina með til-
heyrandi norðurljósum.
„Með slíkum gögnum getum við
flogið í kringum sólina til að sjá það
sem gerist handan við sjóndeildar-
hringinn án þess að fara frá skrif-
borðinu okkar,“ sagði einn vísinda-
manna NASA, Lika Guhathakurta,
í höfuðstöðvum stofnunarinnar.
„Við væntum mikilla framfara í
sólareðlisfræði og geimveður-
spám.“
Heimild: NASA
Lýsing:
Þyngd: 620 kg
Stærð hvors geimfars:
1,1 m (h) x 2,0 m (l) x 1,2
til 6,5 m (b)*
Eru nákvæmlega eins, kanna sólina
frá tveimur ólíkum sjónarhornum. Í
hvoru geimfari eru alls sextán
rannsóknartæki
SECCHI
Rannsakar þróun kórónu-
gosa í þrívídd
IMPACT
Mælir jónir og rafeindir
þegar þær þeytast frá
kórónu sólar (kórónugos) og
í sólblossum
HGA
Loftnet
með mikla
mögnun
PLASTIC
Rannsakar
kórónu sólar,
sólvinda og
sólvindahvolfið
STEREO-GEIMFÖRIN
S/WAVES
Fylgist með því hvernig
fjarskiptatruflanir
hefjast og þróast þegar
sólvindar nálgast braut
jarðar
SÓLIN Í ÞRÍVÍDD
Átt brautar
Jörð
Sól Merkúr
VenusSTEREO„B”
(á eftir)
STEREO„A”
(á undan)
2007
2008 2009
2010
2012
2012
2013
2013
2014
2014
2015
2007
2008
2009
2010
Febr.
2011
Febr.
2011
BRAUTIN Staða geimfaranna á brautinni ár hvert frá
júní 2007 til júní 2015
Tvö geimför Nasa, STEREO (Solar Terrestrial Relations Observatory) hafa náð
180 gráðu aðskilnaði hvort frá öðru á braut um sólu til að taka þrívíðar myndir
af sólinni og virkni hennar. Geimförunum var skotið á loft árið 2006
Annað farið er á undan jörðinni á braut
um sólina, hitt á eftir
Geimför NASA rann-
saka sólgos í þrívídd