Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 10
Sjálfstraust er lykillinn að því að breytast úr
áhorfanda í geranda samkvæmt bókinni
Meira sjálfstraust: Sannleikurinn um það af
hverju lítil breyting getur gert gæfumuninn.
Bókin kom nýverið út í íslenskri þýðingu og í
henni má lesa um það hvernig allt sem þú
tekur þér fyrir hendur veltur á því hvernig
sjálfstraust þitt er. En það er ótrúlegt hve
miklu þú færð áorkað þegar þú hefur sjálfs-
traust til að fara af stað. Höfundur bókar-
innar er Paul McGee, atferlis- og félags-
sálfræðingur.
Endilega …
… eflið sjálfstraustið
Úrslit
French
1. sæti meistara - Rósa Björk Hauks-
dóttir
2. sæti meistara - Olga Eremina
1. sæti nema - Hafrún Helga Arnar-
dóttir
2. sæti nema - Íris Dögg Asare Helga-
dóttir
Fantasía
1. sæti meistara - Una Nikulásdóttir
2. sæti meistara - Ingunn María Guð-
jónsdóttir
1. sæti nema - Íris Dögg Asare Helga-
dóttir
2. sæti nema - Marjorie Paola Hernandez
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Einar Erlendsson ljós-myndafræðingur fer afstað með fjölbreyttanámskeiðsröð er varðar
stafræna myndvinnslu næstkom-
andi mánudag. Einar hefur víðtæka
reynslu og þekkingu á sviði staf-
rænnar myndvinnslu og hefur hald-
ið fyrirlestra bæði erlendis og hér-
lendis um efnið. „Ég er lærður
ljósmyndafræð-
ingur og starfaði
um alllangt skeið
á íslenskum
markaði, var t.d.
með framköll-
unarfyrirtæki á
síðustu öld. Þeg-
ar tölvutæknin
kom hreifst ég af
henni. Til að
byrja með var
hugur minn all-
lengi við að innleiða skjalastjórn á
myndum á tölvutæku formi í ís-
lenskt samfélag en það reyndist
þrautin þyngri. Síðar ákvað ég að
láta gamlan draum rætast, það var
að standa fyrir alþjóðlegum ljós-
myndanámskeiðum á Íslandi þar
sem vel þekktir ljósmyndarar eru
leiðbeinendur og nemendurnir eru
aðallega erlendir ljósmyndarar,“
segir Einar.
Fólk heldur hópinn
Hann var með fyrsta slíka
námskeiðið árið 2008 og hafa þau
gengið vel síðan. „Ég er með 8 til
12 námskeið árlega, þau eru viku-
löng og aðallega hugsuð fyrir er-
lenda ljósmyndara. Ég sá útlend-
inga koma með fallegar filmur í
framköllun á sínum tíma með
heillandi myndum af Íslandi og mig
langaði að bjóða þessu fólki upp á
betri aðstöðu og dagskrá tengdri
innlendri þekkingu á birtunni og
staðháttum.
Skemmtilegt er að það er að
verða til FocusOnNature-fjölskylda
í Bandaríkjunum, en það eru að-
allega Bandaríkjamenn sem koma
á þessi námskeið og það myndast
vinskapur á milli þátttakenda og
þeir halda sýningar á myndum sín-
um frá Íslandi sem er verðmæt
landkynning.“
Í gegnum verkefnið hefur Ein-
ar myndað tengsl við stórfyrirtæki
í Bandaríkjunum og víðar varðandi
hugbúnaðarlausnir og vélbúnað. „Í
gegnum þau sambönd gefst mér
svo gott tækifæri til að fylgjast
með öllum nýjungum á mark-
aðinum.“
Gagn og gaman
Námskeiðin fyrir erlendu ljós-
myndarana taka sumartímann hjá
Einari, hann notar svo skammdegið
til að læra á nýjungarnar. „Í fram-
haldi af því býð ég upp á nám-
skeiðsröð fyrir íslendinga. Miðla
því sem ég er að læra í sambandi
við nýjungar, verkferla, grunn-
atriði, stafræna myndvinnslu, vist-
un, skráningu, flokkun vinnslu og
prentun,“ segir Einar sem hefur
alltaf boðið upp á þessi námskeið af
og til en ekki í sama mæli og nú.
Hann kenndi einnig ljósmyndun í
Iðnskólanum í 25 ár.
„Markmið þessara námskeiða
er að bjóða þeim sem hafa áhuga á
eða starfa við ljósmyndun að koma
á einstök námskeið sem fjalla um
tiltölulega afmörkuð svið með von
um að allir hafi gagn og gaman af.
Námskeiðunum er skipt niður í
flokka eftir þekkingu og reynslu og
það þarf ekkert að skrá sig, bara
labba inn eins og í bíó. Fólk bara
velur þau námskeið sem það langar
til að sækja og borgar á staðnum.
Ef það koma bara tveir þá kenni
ég tveimur, kannski koma tíu og þá
kenni ég tíu,“ segir Einar. Hann
býður upp á allskonar námskeið á
mánudags- og miðvikudagskvöldum
og laugardögum fram í apríl. „Ég á
eftir að bæta við námskeiðum um
svokallaðar viðbætur, prentun
Besta leiðin til að læra
hlutina er að kenna þá
Ljósmyndafræðingurinn Einar Erlendsson hefur í nægu að snúast. Hann er að
fara af stað með fjölbreytta námskeiðsröð fyrir ljósmyndara og áhugafólk um ljós-
myndun í næstu viku. Á sumrin fær hann hingað til lands þekkta erlenda ljós-
myndara til að kenna ferðamönnum ljósmyndun og á haustin gerir hann við
gamlar myndir og endurmenntar sig í ljósmyndafræðunum.
Ljósmyndun Hægt er að eiga góðar stundir við það að taka myndir.
Fræðingurinn
Einar Erlendsson.
Fyrir ljósmyndarann og þá sem hafa
áhuga á ljósmyndun er eflaust
áhugavert að fara inn á síðuna Photo-
zone.de. Þarna má lesa sér til um
ljósmyndatækni og hvernig á að taka
myndir svo vel sé. Ýtarlegar upplýs-
ingar eru um það sem ætti að
gagnast sem flestum sem eiga
myndavél og vilja nýta hana betur.
Það sem virðist þó vera vinsælast
á síðunni og það sem hún fær athygli
sína út á er gagnrýni á myndavéla-
linsur. Framkvæmdar eru ýtarlegar
prófanir á linsunum og svo skrifaður
langur texti um þær og þeim gefnar
einkunnir eftir gæðum. Það er gaman
að sjá hvað það eru til margar gerðir
af linsum og hversu ólíkar þær eru að
gerð og gæðum. Gagnrýnin er vel
sett upp eftir merkjum og gerðum.
Vefsíðan www.photozone.de
Myndavél Linsan á þessari vél er heldur betur stór og mikil.
Gagnrýni á myndavélalinsur
Íslandsmeistarakeppni í naglaásetningu fór fram í Snyrtiskólanum íKópavogi síðastliðinn laugardag.Keppt var í tveimur flokkum meistara og nema í french-
ásetningu þar sem voru ellefu keppendur, og í fantasíunöglum þar sem
keppendur voru fimm.
„Íslandsmeistaramót í naglaásetningu hefur ekki verið haldið síðan
2008 en var haldið í fjögur ár fram að því. Við stefnum að því að hafa
þetta árlegt núna enda gekk keppnin um helgina mjög vel,“ segir Sig-
urbjörg Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri heildverslunarinnar Hjölur
sem er með umboð fyrir Professionails á Íslandi og stóð fyrir keppninni.
Sigurbjörg segir að það sé alltaf vinsælt að læra naglaásetningu,
margir taki námið með skóla enda eru þetta kvöldnámskeið, einnig eru
margir að vinna við að gera neglur með námi.
ingveldur@mbl.is
Tíska
Morgunblaðið/Kristinn
French og fantasía
Eldfjall Una Nikulásdóttir lenti
í fyrsta sæti meistara í fantasíu-
flokknum en módelið hennar
var rauðmálað eldfjall.
Forvitnilegt Þessi
stúlka skoðar lista-
verkið á nöglunum.
–– Meira fyrir lesendur
.
Morgunblaðið gefur út ÍMARK
fimmtudaginn 3. mars og er tileinkað
íslenska markaðsdeginum sem ÍMARK
stendur fyrir en hann verður haldinn
hátíðlegur 4. mars.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, fimmtudaginn 24. febrúar.
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
ÍMARK íslenski
markaðsdagurinn
S
É
R
B
L
A
Ð
MEÐAL EFNIS:
Viðtöl við fyrirlesara ráðstefnunnar
Viðtal við formann Ímark
Saga og þróun auglýsinga
hér á landi
Neytendur og auglýsingar
Nám í markaðsfræði
Góð ráð fyrir markaðsfólk
Tilnefningar til verðlauna
Hverjir keppa um
Lúðurinn
Viðtöl við fólkið á bak
við tjöldin
Ásamt fullt af öðru
spennandi efni