Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.02.2011, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þeir 25 semfengu útgef-in kjörbréf til setu á svo köll- uðu stjórnlaga- þingi, sem voru afturkölluð af Landskjörstjórn eftir af- greiðslu Hæstaréttar á kærum vegna kosninganna bera enga sök á því klúðri sem varð. Það á rót í flumbrugangi við lagasetn- ingu þar sem kapp var mikið en forsjá lítil. En þessi 25 manna hópur verður þó að sætta sig við að umboð þeirra er úr gildi fallið og einstaklingarnir sem skipa hann hafa ekkert meira með málið að gera en aðrir Ís- lendingar. Ekkert eitt atriði leiddi til niðurstöðu Hæstaréttar lands- ins sem sagðist ekki hafa kom- ist hjá að taka þá afstöðu sem hann tók. Ákvörðun réttarins var ítarlega rökstudd og það er óviðeigandi að hártoga hana með þeim hætti sem borið hefur á. Það er hárrétt sem Stefán Gunnar Sveinsson sagði í grein hér í blaðinu: „Venjan hefur verið sú í vestrænum lýðræðis- ríkjum að kosningin sé leynileg en talningin opin. Hér var farið þveröfugt að.“ Þannig var þetta og hvernig gat Hæstiréttur lát- ið eins og ekkert væri fyrst málið var að lögum borið undir hann? Lýsing Atla Harðarsonar í annarri grein í blaðinu á hraða og flumbrugangi í aðdraganda stjórnlagaþingsins og hinni flumbru- kenndu umgjörð sem því var ætluð er einnig sláandi: „Þingið átti ein- faldlega að starfa með hraði eftir að það hafði verið kosið með skömmum fyr- irvara samkvæmt lögum sem voru sett í miklum flýti og breytt á síðustu stundu. Þetta leit út eins og tilraun til að setja heimsmet í flumbrugangi.“ En Atli er ekki viss um að allt sé sem sýnist. Hann bætir við: „Í júní 2010 skipaði Alþingi 7 manna stjórnlaganefnd sem skyldi meðal annars leggja hugmyndir um breytingar á stjórnarskrá fyrir stjórnlaga- þingið. Átti þessi 7 manna hóp- ur sem var valinn af Alþingi í sumar kannski að búa til nýja stjórnarskrá? Var stjórnlaga- þingið bara til að gefa breyting- unum sem keyra átti í gegn án opinskárrar umræðu lýðræðis- legt yfirbragð? Ég veit þetta auðvitað ekki. En mér finnst ekki koma heim og saman að það hafi raunverulega staðið til að kjörnir fulltrúar almennings ynnu að stjórnarbót en væri hvorki veittur tími til að undir- búa framboð og rökræða kosti í stöðunni né til að vinna verkið. Kannski var þetta allt saman úthugsuð sýndarmennska en ekki eintómt bráðræði og óða- got?“ Þetta er mjög áhugaverð spurning. Spurningin sem varpað er fram er þessi: Er ekki allt sem sýnist?} Úthugsuð sýndarmennska? Stjórnmálamennsvara því stundum til, þegar reynt er að fá þá út í óþægilegar vanga- veltur, að þeir vilji ekki svara spurningum í við- tengingarhætti. Iðulega er í raun átt við þáskildagatíð, en hún er mönnum sjálfsagt enn fjarlægari en viðtengingarhátt- urinn, sem nú mun eiga undir högg að sækja. En þó að stjórn- málamönnum sé kennt um margt verður þeim ekki umfram aðra menn kennt um vanda við- tengingarháttarins þrátt fyrir að þeir misstígi sig stundum í beygingakerfi sagna. Sagnbeygingar eru hins veg- ar á undanhaldi, ef marka má rannsókn Hildar Ýrar Ísberg, nema í íslensku við Háskóla Ís- lands, sem sagt var frá í Morg- unblaðinu í gær. Þar kemur fram að ungmenni nota viðteng- ingarhátt mun sjaldnar en þeir sem eldri eru, sem þýðir með öðrum orðum að viðtengingar- hátturinn gæti fallið út úr mál- inu. Þeir sem flytja fréttir kunna að bera nokkra ábyrgð umfram aðra í þessu sambandi, enda verður því ekki neitað að alloft sjást sagnir í framsöguhætti þar sem nota skyldi viðtengingarhátt, ekki síst í óbeinni ræðu. Foreldrar og skólar hljóta einnig að bera sína ábyrgð, því að þeir hafa mikil áhrif á máltilfinningu ung- menna. Íslendingar eiga saman fal- legt tungumál sem sjálfsagt er að fara vel með og varðveita. Vitaskuld þróast tungan, sem er eðlilegt. En þegar við nennum ekki lengur að hafa fyrir því að beygja orðin dregur úr fjöl- breytni en flatneskja breiðist út. Þá hverfa líka mikilvæg og skemmtileg blæbrigði úr málinu og íslensk menning verður fá- tækari. Það er nauðsynlegt að verja viðtengingarháttinn og spyrna einnig við fótum þegar okkur sýnist við vera að missa tökin á tungunni á öðrum svið- um. Ný kynslóð gæti týnt niður viðteng- ingarhættinum} Forðumst flatneskjuna E itt af helgiritum unglingsára minna var bókin One-Dimensio- nal Man eftir þýska heimspek- inginn Herbert Marcuse. Á þeim tíma, í upphafi áttunda áratug- arins, var annar hver maður að blaða í Mar- cuse, þótt ekki hafi skilningurinn á verkinu kannski verið ýkja mikill. Ég man þó að mér þótti það flott greining á kapítalismanum að í neyslusamfélagi hans muni sál almúgans felast í varningi, bílum, stereógræjum (hvað er það annars), pallaraðhúsi og eldhústækjum. (Víst er þetta einföldun en á líka að vera það.) Því er þetta rifjað upp hér að ég rakst á One- Dimensional Man í bókabúð í fyrrakvöld og fór að fletta henni mér til gamans. Þar var margt sem hefur ekki staðist tímans tönn og inn á milli gullkorn eins og óborganleg tilvitnun í annan mikinn marxista, Jean-Paul Sartre. Sartre var sam- tímamaður Marcuse, nokkru yngri þó, og þeirra skoðanir lágu saman að mörgu leyti. Tilvitnunin sem Marcuse tínir til er úr ritinu Critique de la raison dialectique og fjallar um erótíska drauma kvennanna við vélina. Ég man ekki eftir að hafa tekið sérstaklega eftir henni á sínum tíma, en ég tók eftir henni núna og þá sérstaklega kvenfyrirlitning- unni sem bjó undir. Víst er innbyggt í fræði Marcuse, líkt og svo oft í vinstri- mennsku, lítið álit á almúganum, sem hann og aðrir marx- istar vildu vernda fyrir vondu kapítalistunum, en litu um leið niður á fyrir óstéttvísi, menntunarskort og smáborg- araskap. Minna hefur farið fyrir umræðu um það hvernig eðlislæg kvenfyrirlitning þess tíma smitaðist inn í byltingarfræðin. Svonefnd ’68-kynslóð tignaði Sartre sem spámann og hann stóð líka með byltingarsinn- uðum ungmennum á götum Parísar í lok sjö- unda áratugarins. Sagan hefur leitt í ljós að þótt hann hafi verið merkilegur á sinn hátt var sambýliskona hans og sálufélagi í gegnum ár- in, Simone de Beauvoir, mun næmari á það sem fram fór. Hún sá það sem var að í vinstri- hreyfingu þess tíma: Það var barist fyrir frelsi, og þá frelsi karla, en það var enn langt í land að konur fengju að njóta þess frelsis: „Karlar fluttu ræður, en konur vélrituðu þær. Karlar stóðu á sápukössum og í ræðupúlti, en kon- urnar voru inni í eldhúsi að búa til kaffi,“ er haft eftir Beauvoir, og það var ekki fyrr en konurnar áttuðu sig á því að þær þyrftu að hrinda af stað eigin byltingu að hjólin tóku að snúast: „Ég skildi það loks að konur gætu ekki vænst þess að frelsun þeirra myndi spretta af almennri byltingu, þær þyrftu að hrinda af stað eigin byltingu. Karlar voru alltaf að segja þeim að þarfir byltingarinnar gengju fyrir og síðar myndi röðin koma að þeim.“ Þess má geta að lokum að lykilrit Beauvoir, Hitt kynið, „Le Deuxieme Sexe“, kom út fyrir rúmum 60 árum. Franska dagblaðið Le Monde nefndi hana elleftu merk- ustu bók síðustu aldar í samantekt sem birtist um síðustu aldamót. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Mann- og kvenfyrirlitning STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is U m 100 manns starfa í þeim níu loðnuverk- smiðjum þar sem nú hefur verið boðað ótímabundið verkfall frá miðri næstu viku. Deiluaðilar hafa ekki rætt málin formlega síðan á sunnudag, en í gær var boðað til sáttafundar á morgun. Útgerðar- menn hafa íhugað að landa loðnu í nágrannalöndum komi til verkfalls; Færeyjar hafa einkum verið nefndar í því sambandi, en einnig Danmörk, Skotland og Noregur. Þess má geta að Skotar hafa krafist banns á lönd- un makríls af Íslandsmiðum. Framundan ætti að vera verð- mætasti tími vertíðarinnar, hrogna- tíminn með heilfrystingu og hrogna- kreistingu. Verði af verkfalli gæti þurft að afskrifa hana að miklu leyti. Sú vinnsla þarf að fara fram sam- hliða loðnubræðslu. Vel hefur veiðst síðustu daga og skipin einkum verið við Ingólfshöfða. Útgerðarmenn hafa verið í kapp- hlaupi við mögulegt verkfall og eru einhverjir langt komnir með afla- heimildir. Loðnan hefur ýmist verið brædd eða fryst á landi eða sjó síð- ustu daga. Gott verð hefur fengist fyrir mjöl og lýsi undanfarið. Mark- aðir voru þungir á tímabili fyrir frysta loðnu, en sú starfsemi skapar mörg störf. Nær ekki til Helguvíkur og Þórshafnar Boðun verkfalls nær ekki til verksmiðjanna á Þórshöfn og í Helguvík. Verkalýðs- og sjómanna- félag Keflavíkur fer með samninga í Helguvík, en verksmiðjan er í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Hún hefur oft verið starfrækt í lok loðnuvertíðar þegar loðnan hefur nálgast Reykjanesið. Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar á Húsavík, sem fer með viðræður um kjaramál í bræðslunni á Þórshöfn fyrir hönd verkalýðsfélagsins á staðnum, segir að komið verði í veg fyrir landanir úr öðrum skipum en þeim sem reglu- lega landa á Þórshöfn. Verksmiðjan er í eigu Ísfélagsins og fá skip ann- arra fyrirtækja ekki að landa þar komi til verkfalls, að sögn Aðal- steins. „Við höfum alls konar áhöld til þess og eigum samleið með hin- um félögunum,“ sagði Aðalsteinn. Slógu af kröfum sínum „Það verður þýðingarmikill fundur í deilunni á miðvikudag [í dag] og að honum loknum reikna ég með að starfsmenn ákveði fram- haldið. Við erum ekki enn með verk- fallsheimild og höfum ekki vísað deilunni til ríkissáttasemjara,“ segir Aðalsteinn. Hann segir að auk ým- issa sérmála sé krafa bræðslu- manna á Þórshöfn um 32% launa- hækkun, en upphafleg krafa Afls á Austurlandi og Drífanda í Vest- mannaeyjum var um 27% hækkun. Auk þessara félaga hefur verið boð- að verkfall í verksmiðjunni á Akra- nesi. Aðalsteinn segir muninn eink- um felast í ólíkri kröfu um orlofs- og desemberuppbót, en sé í raun sam- bærileg. Afl og Drífandi lækkuðu sínar kröfur um síðustu helgi og er nú krafist 8,5-10% launahækkunar eða sem jafngildir um 20 þúsund króna flatri hækkun á mánuði í samningi sem gildir til 30. nóv- ember. Félagið á Þórshöfn hefur ekki slakað á í sínum kröfum, en í bræðslunni þar starfa 18 manns, sem er fleira en víða annars stað- ar. Íhuga loðnulöndun í nágrannalöndum Loðnuverksmiðjur og loðnuflotinn Loðnuflotinn er staddur undan Ingólfshöfða Um 100 starfsmenn starfa í níu loðnu- bræðslum þar sem verkfall gæti skollið á ummiðja næstu viku Verksmiðjur þar sem verkfall er að skella á Verksmiðjur þar sem ekki er boðað verkfall Vestmannaeyjar Akranes Þórshöfn Helguvík Höfn Neskaupstaður Seyðisfjörður Eskifjörður Vopnafjörður Fáskrúðsfjörður „Það gæti orðið lítið úr þeim ávinningi fyrir þjóðarbúið, sem átti að koma með meiri kvóta. Ætli Norðmenn brosi ekki breitt þessa dagana og hugsi sem svo að það sé gott að fá minni sam- keppni á mörkuðum,“ segir Jó- hann P. Andersen hjá félagi fiski- mjölsframleiðenda. Hann segir hugsanlegt að landa í Færeyjum, Skotlandi, Danmörku og víðar. Upphafskvótinn var 200 þús- und tonn, en var aukinn um 125 þúsund tonn. Af þeim heimildum koma 252 þúsund tonn í hlut ís- lenskra skipa. Áætlað var að aukningin skapaði yfir sex millj- arða fyrir þjóðarbúið, en vertíðin í heild 14-15 milljarða. Búið er að landa um 125 þúsund tonnum samkvæmt vef Fiskistofu. Minni ávinningur 125 ÞÚSUND TONN Á LAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.