Morgunblaðið - 28.02.2011, Page 1
APPELSÍNA NORÐURSINS 10
M Á N U D A G U R 2 8. F E B R Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 49. tölublað 99. árgangur
BORÐA UM 80
TONN AF GULRÓFUM
Á SPRENGIDAG
EGIPTALAND OG KÍPUR
EIGA SÖGULEGA HEFÐ
SIGRÍÐUR SOFFÍA
HÖFUNDUR NÝS
DANSVERKS
BAKSVIÐ 16 SIRKUS OG MENNING 25
Rúnar Pálmason veltir fyrir sér ríkjaheitum
og ræðir við Jóhannes B. Sigtryggsson
Reuters
Flóttamannastraumur Egypskir flótta-
menn í túnísku landamæraborginni Zarzis.
Gríðarlegur flóttamannavandi er
í uppsiglingu á landamærum Líbíu
við Túnis, þar sem þúsundir manna
hafa safnast saman á flótta undan
ofbeldi og óróa í landinu. Á frétta-
vef BBC er haft eftir fulltrúa
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna að um 20.000 Egyptar séu
fastir við landamærin í sárri þörf
fyrir mat og húsaskjól. Margir sofa
undir berum himni þrátt fyrir vetr-
arkulda.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti aðfaranótt sunnudags
að setja viðskiptabann á stjórn
Gaddafis vegna viðbragða hennar
við uppreisninni í Líbíu. »15
Mikill og alvarlegur
flóttamannavandi í
uppsiglingu í Líbíu
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
„Það eina ábyrga sem við getum gert
er að horfast í augu við að breytinga
er þörf,“ segir Katrín Júlíusdóttir,
iðnaðarráðherra, um afkomu
Byggðastofnunar á síðasta ári, en 2,6
milljarða tap varð á rekstrinum. Hún
segir að nefnd um endurskoðun á
lánveitingum Byggðastofnunar muni
skila af sér innan tveggja mánaða.
Stærstan hluta taps Byggðastofnun-
ar á síðasta ári má rekja til afskriftar
á lánum sem stofnunin veitti fimm
sparisjóðum, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins. Stofnunin af-
skrifaði um 1,2 milljarða vegna lána
til sparisjóða Bolvíkinga, Vestfirð-
inga, Þórshafnar, Norðlendinga og
Norðfjarðar. Einnig þurfti stofnunin
að afskrifa um 700 milljónir króna í
kjölfar þess að sjávarútvegsráð-
herra gaf rækjukvóta frjálsan, sem
gerði veð í aflaheimildum fyrir rækju
verðlaus. Að auki kostaði uppgjör á
gjaldmiðlaskiptasamningi við skila-
nefnd Glitnis um 360 milljónir.
Ríkissjóður lagði Byggðastofnun
til 3,6 milljarða króna eiginfjárfram-
lag í fyrra. Aðalsteinn Þorsteinsson,
forstjóri Byggðastofnunar, segir að
afskriftum vegna bankahrunsins sé
nú að mestu lokið: „Ef Byggðastofn-
un á að halda áfram lánastarfsemi í
núverandi mynd þarf að koma til
aukið framlag frá ríkissjóði,“ segir
Aðalsteinn, sem segir að stofnunin
þurfi um 2,5 milljarða framlag til að
ná lögbundnu lágmarki eiginfjár-
hlutfall, en eigið fé er nú neikvætt
um 498 milljónir. Katrín Júlíusdóttir
segir að beðið verði með fjárveiting-
ar til stofnunarinnar, umfram þann
milljarð sem gert er ráð fyrir í fjár-
lögum, þar til endurskoðunarnefndin
hefur lokið störfum og skilað
skýrslu.
Enn tapar Byggðastofnun
Þurfti að afskrifa 700 milljónir króna eftir að rækjuveiðar voru gefnar frjálsar
Fékk 3,6 milljarða í fyrra en þarf 2,5 milljarða á þessu ári Eigið fé neikvætt
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Atvinnulausir innflytjendur sem
eiga rétt á félagslegri aðstoð, ann-
arri en atvinnuleysisbótum, neita
sér oft um hana til að missa ekki
möguleikann á að fá ríkisborgara-
rétt. Samkvæmt lögum mega um-
sækjendur um ríkisborgararétt ekki
hafa þegið framfærslustyrk frá
sveitarfélagi í tvö ár og því reyna
margir að draga fram lífið á litlum
sem engum tekjum. Hætt er við því
að heilu fjölskyldurnar einangrist
félagslega þar sem atvinnulaust
foreldri situr heima með börnin,
sem ekki eru send í tómstunda-
starf vegna kostnaðar og læra
fyrir vikið enga íslensku. Ráð-
gjafi hjá Vinnumálastofnun
segir að útlendingar standi
verr að vígi en aðrir á vinnu-
markaði. »12 og 13
Einangrast vegna atvinnuleysis
Atvinnuleysi er meira meðal
innflytjenda en annarra landsmanna
Guðni A. Jóhannesson, orku-
málastjóri, segir að innan Orku-
stofnunar hafi menn áhyggjur af
ofnýtingu svæðisins við Reykjanes-
virkjun. Þess vegna geri drög að
virkjanaleyfi HS orku, veitt til að
framleiða 50 megavött til viðbótar
á svæðinu, ráð fyrir að vinnslu-
svæðið verði stækkað. Guðni segist
ekki draga tölur frá HS orku um
aukinn kostnað í efa. Virkjanaleyfi
séu hins vegar ekki veitt á grund-
velli hugsanlegs kostnaðar fyrir-
tækja. »4
Hafa áhyggjur af
ofnýtingu svæðisins
„Sjávargrænmeti
er nýjasta hollustan
og megrunarfæðan
hjá stjörnunum í
Hollywood og á
neyslan eftir að
aukast mikið í hin-
um vestræna heimi,
en í Asíu er aldalöng hefð fyrir
neyslu á sjávargróðri,“ segir Símon
Sturluson, einn af eigendum Ís-
lenskrar bláskeljar ehf. í Stykk-
ishólmi.
Íslensk bláskel er eina íslenska
fyrirtækið sem hefur leyfi til þess að
selja ferska bláskel hérlendis. »9
Bláskelin dafnar og
þarinn vinnur á
sem hollustufæði
Boðið var til sannkallaðrar bolluveislu í gær á
heimili hjónanna Ásdísar Ármannsdóttur og
Helga Heiðars Stefánssonar í Bústaðahverfinu í
Reykjavík. Samtals voru bakaðar 317 bollur af
tólf mismunandi tegundum og vinafólk þeirra
ásamt börnum gæddi sér á þeim. Bolluveislan
var fyrst haldin fyrir fjórum árum og hefur
smám saman fest sig í sessi. Hún hefur alltaf ver-
ið haldin sunnudaginn fyrir bolludaginn nema í
ár þar sem sá dagur hentaði ekki nú.
Bolludagurinn verður haldinn hátíðlegur 7.
mars næstkomandi.
Morgunblaðið/Ómar
Yfir 300 bollur af 12 tegundum
„Það er svo gott að hitta annað fólk og spjalla en sitja ekki bara
heima. Mér finnst þetta hjálpa mér mjög mikið en það getur verið
að ekki viti allir af úrræðunum,“ segir Silvia Alice Martins
Zingara sem kemur frá Portúgal en hefur verið búsett á Ís-
landi í þrjú ár. Silvia missti vinnuna þegar kaffihúsið sem hún
vann á varð gjaldþrota en hún heldur sér virkri með því að
sækja ýmis námskeið. Hjá Vinnumálastofnun reynist þó oft
erfiðara að hjálpa útlendingum enda staða þeirra flóknari en
atvinnulausra Íslendinga.
Mikilvægt að halda sér virkum
15,5% ATVINNULEYSI MEÐAL ÚTLENDINGA