Morgunblaðið - 28.02.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2011
Öflugir TUDOR High Tech
rafgeymar fyrir jeppa.
Kristinn Ingvarsson, ljósmyndari á
Morgunblaðinu, fékk þrenn verð-
laun við opnun Ljósmyndasýn-
ingar Blaðaljósmyndarafélags Ís-
lands í Gerðarsafni sl. laugardag.
Kristinn átti myndröð ársins
2010 sem er af hjartaskiptum í
Svíþjóð, portrett ársins af Erró og
íþróttamynd ársins af íþrótta-
manni ársins, Alexander Pet-
ersson.
Við sama tækifæri afhenti
Blaðamannafélag Íslands Blaða-
mannaverðlaunin ársins 2010.
Verðlaun fyrir bestu umfjöllun
fóru til ritstjórnar Morgunblaðs-
ins, Fréttastofu RÚV og Frétta-
stofu Stöðvar 2 fyrir umfjöllun um
eldgosin. Verðlaun fyrir rann-
sóknarblaðamennsku fékk Ingi-
björg Dögg Kjartansdóttir, blaða-
maður á DV, fyrir skrif um
kynferðisbrotamál. Blaða-
mannaverðlaun ársins fékk Krist-
inn Hrafnsson fyrir fréttir um
þyrluárás í Bagdad og störf á veg-
um WikiLeaks.
Brynjar Gauti Sveinsson átti
ljósmynd ársins. Fréttamynd árs-
ins átti Gunnar V. Andrésson.
Rakel Sigurðardóttir, Vilhelm
Gunnarsson og Óskar Páll Elf-
arsson voru einnig verðlaunuð
fyrir myndir sínar og Baldur
Hrafnkell Jónsson og Guðmundur
Bergkvist fyrir myndskeið.
Kristinn
með þrenn
verðlaun
Umfjöllun um
eldgosin verðlaunuð
Morgunblaðið/Kristinn
Íþróttamynd ársins Alexander Petersson í landsleik.
Morgunblaðið/Kristinn
Portrettið Listamaðurinn Erró.
Morgunblaðið/Kristinn
Úr myndröð ársins Hjartaflutningur á Sahlgrenska sjúkrahúsinu.
Morgunblaðið/Ómar
Verðlaunahafar Blaðamenn með verðlaun sín.
Verðlaunahafar Ljósmyndarar og kvikmyndatökumenn í Gerðasafni.
FRÉTTASKÝRING
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Óvíst er hver niðurstaðan kann að
verða í atkvæðagreiðslu á Alþingi
um að þingið skipi stjórnlagaráð í
stað stjórnlagaþingsins sem kosið
var til í nóvember sl., en eins og
kunnugt er ógilti Hæstiréttur kosn-
ingarnar í síðasta mánuði vegna ým-
issa ágalla á framkvæmd þeirra.
Tveir þingflokkar eru óklofnir í af-
stöðu sinni til stjórnlagaráðs svo vit-
að sé. Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins leggjast allir gegn málinu en allir
þrír þingmenn Hreyfingarinnar
styðja það. Að sögn Margrétar
Tryggvadóttur, þingflokksformanns
Hreyfingarinnar, skipti sköpum í
þeim efnum að samþykkt var að
tryggja sjálfstæði ráðsins í störfum
sínum. Hins vegar væri þessi leið
engin óskaniðurstaða.
Óljóst með Samfylkinguna?
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra ætlar ekki að styðja skipun
stjórnlagaráðs og hefur sagt að með
því sé verið að fara í kringum
ákvörðun Hæstaréttar. Þá hefur
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG,
staðfest við Morgunblaðið að hún
ætli ekki greiða málinu atkvæði sitt
m.a. af sömu ástæðu. Ekki er ósenni-
legt að fleiri þingmenn flokksins geti
lagst gegn málinu.
Meirihluti þingmanna Framsókn-
arflokksins er andvígur stjórnlaga-
ráði og þar með talinn formaður
flokksins, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson. Aðspurð hvort þingflokkur
Samfylkingarinnar væri alfarið
hlynntur málinu svaraði Þórunn
Sveinbjarnardóttir, þingflokksfor-
maður flokksins, að það yrði að koma
í ljós. Sjálf ætlaði hún hins vegar að
greiða því atkvæði sitt.
Samkvæmt Ríkisútvarpinu ætla
a.m.k. 14 af þeim 25 sem náðu kjöri á
stjórnlagaþing í nóvember að taka
sæti í stjórnlagaráði.
Óvissa um
stuðning við
stjórnlagaráð
Lilja Mósesdóttir andsnúin málinu
Morgunblaðið/Ernir
Alþingi Þingmenn og ráðherrar í
sætum sínum í þinginu.
Íris Lind Sæmundsdóttir
lögfræðingur
Stefán Gíslason
umhverfisstjórnunarfræðingur
Þorgeir Tryggvason
texta- og hugmyndasmiður
Jón Ólafsson
prófessor
Magnús Thoroddsen
fv. hæstaréttarlögmaður
Birna Þórðardóttir
ferðaskipuleggjandi
Gunnar Hersveinn
rithöfundur
Guðrún Högnadóttir
framkvæmdastjóri
Þorsteinn Arnalds
verkfræðingur
Árni Indriðason
framhaldsskólakennari
Næstir inn
STJÓRNLAGARÁÐ
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Það var bara meiriháttar mæting
hjá íbúum. Þetta hafa verið um 70 til
80 manns allavega sem er auðvitað
rosalega gott á þessu svæði. Þetta er
eins og 12 til 15 þúsund manns
mættu í Reykjavík,“ segir Ásgeir
Harðarson hjá Íbúasamtökum Kjal-
arness en samtökin stóðu fyrir mót-
mælum í gær gegn lokun endur-
vinnslustöðvar Sorpu á Kjalarnesi.
130 tonn af úrgangi
Ásgeir segir að lokunin þýði að
íbúar svæðisins þurfi að fara 30 kíló-
metra með úrgang í næstu endur-
vinnslustöð, en um 130 tonn fari í
gegnum stöðina á Kjalarnesi á ári.
Hann segir að vilja skorti til þess að
finna leiðir til þess að reka stöðina á
Kjalarnesi með ódýrari hætti en ver-
ið hefur og tryggja þannig áfram-
haldandi rekstur hennar. Það væri
himinn og haf á milli þess t.d. að
stytta afgreiðslutíma eða eitthvað í
þá veruna og að loka alveg fyrir
þessa þjónustu.
„Borgarráð tók ekki málið fyrir á
fundi sínum á fimmtudaginn var sem
þýðir að lokunin frestast um ein-
hvern tíma þar sem samþykki þess
þarf til,“ segir Ásgeir en stjórn
Sorpu hafði tekið ákvörðun um að
loka endurvinnslustöðinni 1. mars sl.
Því hafi verið ákveðið að safnast
saman fyrst og fremst í þeim til-
gangi að vekja athygli á því að þessi
starfsemi skipti máli fyrir íbúa Kjal-
arness.
Vilja ekki keyra 30 km á
næstu endurvinnslustöð
Tugir mót-
mæltu vegna lok-
unar á Kjalarnesi
Morgunblaðið/Eggert
Mótmæli Fjöldi íbúa á Kjalarnesi mætti við endurvinnslustöð Sorpu á svæð-
inu til þess að mótmæla fyrirhugaðri lokun hennar.