Morgunblaðið - 16.04.2011, Side 10
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Þ
að er dálítið vætusamt
veður og rok þegar ég
tipla á lakkskónum eft-
ir Laugaveginum og
inn á skemmtistaðinn
Boston. Örugglega aldrei svona
vont veður á Manhattan, hugsa ég
þar sem hárið feykist til og festist í
varalitnum. Hvernig myndu þessar
Mad Men-skvísur annars ná að
halda sér svona sætum allan dag-
inn? Örugglega ekki með því að
vera úfnar og veðurbarðar.
Kannski þær noti alltaf svona plast
yfir hárið eða úði það bara með
mörgum lítrum af hárlakki … Í
anda Manhattan-skvísanna frá
sjötta áratugnum hef ég troðið mér
í þröngt pils og litla gollu við. Bæði
gollan og bolurinn eru af systur
minni og númeri of lítil. Því hef ég
átt erfitt með öndun yfir daginn en
hvað gerir maður ekki til að sýna
vöxtinn? Ég er reyndar ekki með
uppsett hár en ég kann að vélrita.
Fékk 9 ef ekki 10 í lokaprófinu í
Hagaskóla hér í denn og þá vantar
mig bara að geta hrist saman góða
kokteila. Þá verð ég orðin hinn full-
komni ritari samkvæmt Mad Men-
stöðlum og get hengt upp hatt yf-
Hrist og hrært
á Manhattan
Það er list að hrista saman ljúffenga kokteila. Blaðamaður spreytti sig á kokteil-
gerð í anda Mad Men-þáttanna sem segja frá störfum á stórri auglýsingastofu á
Manhattan á sjöunda áratugnum. Hann drakk þó ekki áfengi á vinnutíma held-
ur smakkaði drykkina aðeins lítillega.
Morgunblaðið/Kristinn
Fagmaður Stefán Bjartur Runólfsson, barþjónn á Boston, kann réttu handtökin og blaðamaður fylgist vel með.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011
Nú þegar dagur bókarinnar er fram-
undan er um að gera fyrir foreldra
að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að hvetja börn sín til
bóklesturs. Fyrir þau sem ólæs eru
ætti að vera regla að lesa upphátt
fyrir þau, hvort sem er fyrir svefn-
inn eða á einhverjum öðrum tímum
dagsins. Það eru einstaklega gef-
andi gæðastundir. Snemmvakinn
bókaáhuga taka börnin svo með sér
út í lífið. Líf án bóka er svo miklu
fátækara en líf með bókum, það
vita allir sem kynnst hafa. Ekki þarf
að fjárfesta í bókum til að lesa þær,
bókasöfnin eru jú kjörinn vett-
vangur til að nálgast bækur, fá þær
lánaðar um stundarsakir. Auk þess
eru ferðir á bókasöfn einstakar
skemmtiferðir og heilmikil upplifun,
þar er svo margt forvitnilegt. En
það er líka gaman að eignast bækur
og það er gaman að vera í bóka-
klúbbi. Einn slíkur heitir Bókaklúbb-
ur barnanna og nálgast má hann á
vefsíðunni klubbhusid.is. Klúbburinn
er sniðinn að áhugasviði og þroska
2-6 ára barna og bækurnar eru sí-
gild ævintýri með geisladiskum.
Vefsíðan klubbhusid.is
Morgunblaðið/Heiddi
Bóklestur Börn hafa gaman af að hverfa inn í töfraheim bókanna.
Bókaklúbbur fyrir börnin
Það verður nóg að gera hjáEddu Björgu Eyjólfsdótturleikkonu um helgina enda
ætlar hún að flakka landshluta á
milli til að sinna vinum, ættingjum
og vinnu. „Mig langar að hitta afa og
ömmu svo ég ætla að reyna að fara í
smá-kaffi til þeirra fyrir hádegi á
laugardag,“ segir hún. „Eftir hádegi
ætla ég síðan að fljúga norður til að
sýna þar eina sýningu á Farsælum
farsa á laugardagskvöldinu.“
Undanfarið hefur Edda lagt
áherslu á heilsusamlegt fæði og
drykk. „Ég er búin að borða hollan
mat og drekka detoxsafa í svolítinn
tíma og ætla að halda því áfram yfir
helgina svo ég eigi góða innistæðu
fyrir páskalambi og páskaeggi
helgina á eftir. Tobba vinkona mín
fyrir norðan er líka í þessu svo við
eigum eftir að taka stöðuna á því
hvernig við höfum staðið okkur og
svo fáum við okkur eitthvað hollt og
gott að borða eftir sýninguna. Ég
ætla líka að reyna að hitta Sunnu
Borg, sem er leikkona fyrir norðan
en hún rekur líka heilsuverslun þar
sem hún er með blómaolíur og ann-
að slíkt. Það væri frábært að ná að
kíkja til hennar fyrir sýningu svo
hún gæti jafnað mig alla út, orku-
lega séð,“ segir Edda og skellir upp
úr.
Á sunnudeginum verður svo flug-
ferð suður á ný. „Það er óráðið hvað
ég geri á sunnudagskvöldið. Það er
búið að vera dálítið mikil vinna á
kvöldin hjá okkur hjónunum und-
anfarið og þar sem maðurinn minn
er í fríi er líklegt að þetta verði kær-
komið kvöld heima með fjölskyld-
unni.“
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
Nærist á heilsufæði
og þeytist milli
Norður– og Suðurlands
Ljósmynd/Kristinn
Á flakki Edda Björg Eyjólfsdóttir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
FERÐAÆVINTÝRI
Í FERMINGARGJÖF
Silva ferðasjónaukar
10X25 vandaðir, léttir
og handhægir.
Verð: 7.990 kr.
Polar FT4 púlsmælir
Tilvalið fyrir þá sem vilja púlsmæli
með innbyggðu æfingakerfi.
Innbyggt armbandsúr.
Vatnshelt allt að 30 m.
Fermingartilboð: 15.990 kr.
Garmin eTrex Legend HCx
Handhægt GPS-tæki.
Möguleiki að bæta Íslandskorti í tækið.
Verð fyrir 39.990 kr.
Fermingartilboð 29.990 kr.
Íslandskortið kostar 18.990 kr. aukalega. ÍSLE
N
S
K
A
/S
IA
IS
/U
T
I
54
21
2
03
/1
1