Morgunblaðið - 16.04.2011, Blaðsíða 26
GJALDEYRISFORÐINN EYKST
Heimildir: AGS, COFER, seðlabankar ríkjanna, Reuters
*Skv. síðustu gögnum ** Þ.e. þegar gjaldeyris-
samsetning forðans er þekkt
Kína
Japan
Rússland
Sádi-Arabía
Taívan
Brasilía
Indland
Suður-Kórea
Sviss
Hong Kong
ALLS
9.258
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
milljarðar $
3.044,70 $
1.116,03 $
493,84 $
448,89 $
392,63 $
317,15 $
301,59 $
297,67 $
275,02 $
272,50 $
TÍU EFSTU RÍKIN
Röð skv. opinberum tölum*
Evrur 1.348
Japanska
jenið
195
Svissneski frankinn 5
Aðrir
224
Breska pundið
203
FORÐINN EFTIR GJALMIÐLUM**
2010, milljarðar $
GJALDEYRISFORÐI HEIMSINS
2010, milljarðar $
3.144 $
Banda-
ríkja-
dollar
Þróunar-
lönd
6.165
Iðnríki
3.093
Gjaldeyrisforði Kína heldur áfram að
stækka og fór í fyrsta skipti yfir þrjár
billjónir Bandaríkjadollara, eða 3.000
milljarða dollara, í lok mars.
Ennfremur var skýrt frá því í gær
að hagvöxturinn í Kína á fyrsta fjórð-
ungi ársins hefði verið 9,7% ef miðað
er við heilt ár, ívið minni en á síðasta
fjórðungi liðins árs þegar hagvöxtur-
inn mældist 9,8%.
Verðbólgan hefur aukist í Kína og
hefur ekki verið jafnmikil í 32 mán-
uði. Neysluverðsvísitalan hækkaði
um 5,4% í mars miðað við sama mán-
uð á liðnu ári og um 5% á fyrsta
fjórðungi ársins. Matvælaverð
hækkaði um 11% á fyrstu þremur
mánuðum ársins og húsnæðiskostn-
aður um 6,5%, samkvæmt hagtölum
sem birtar voru í gær.
Forðinn stækkar enn
Gjaldeyrisforði Kína fór í fyrsta skipti
yfir þrjár billjónir dollara í lok mars
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011
Ný sending af Gardsman öryggiskerfum komin
Dalvegi 16b Sími: 554-2727
Öryggiskerfi fyrir fastlínu CTC-1131
hægt að tengja við 20 þráðlausa skynjara
Öryggiskerfi GSM CTC-1132
hægt að tengja 30 þráðlausa skynjara
Öryggiskerfi GSM CTC-1563
g e t u r u n n i ð e i n g ö n g u á r a f h l ö ð u m
Skoðið nánar á
www.hugna.is
20% páska afsláttur
Gildir út apríl
Vertu þinn eigin öryggisvörður og verðu þína eign.
G
a
rd
sm
a
n
PÁSKATILBOÐ
Faxafeni 5, Reykjavik
Sími 588 8477 • www.betrabak.is
Heilsudýnan
sem styður svo
vel við þig
að þér
finnst
þú svífa
í svefni
Heilsudagar
í apríl
Allar TEMPUR®
heilsudýnur og -koddar
á 25% afslætti
ÞRÝSTIJÖFNUNAR HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR
Frakkar ýja að nýrri ályktun
Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands segja það „óhugsandi“ að
Gaddafi verði við völd í Líbíu Rússar segja að SÞ hafi ekki heimilað loftárásir
Trípolí. AFP. | Leiðtogar Bandaríkj-
anna, Bretlands og Frakklands
sögðu í sameiginlegri grein, sem birt
var í gær, að „óhugsandi“ væri að
Muammar Gaddafi yrði áfram við
völd í Líbíu. „Það er óhugsandi að
maður, sem hefur reynt að strádrepa
eigin þjóð, geti átt aðild að ríkis-
stjórn hennar í framtíðinni,“ sagði í
sameiginlegri grein Baracks Obama,
forseta Bandaríkjanna, Davids
Camerons, forsætisráðherra Bret-
lands, og Nicolasar Sarkozy, forseta
Frakklands. Greinin var birt í dag-
blöðunum The Times, The Wash-
ington Post og Le Figaro.
Segja að forðast beri hernað
Gerard Longuet, varnarmálaráð-
herra Frakklands, sagði að með
þessari yfirlýsingu gengju leiðtogar
ríkjanna þriggja lengra en gert var í
ályktun öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Í ályktuninni heimilar ráð-
ið „allar nauðsynlegar aðgerðir“ til
að vernda íbúa Líbíu en ekkert er
þar sagt um aðgerðir til að steypa
stjórn landsins af stóli. Longuet
bætti þó við að til greina kæmi að ör-
yggisráðið samþykkti nýja ályktun
sem heimilaði aðgerðir til koma
Gaddafi frá völdum í Líbíu. „En ég
tel að þegar þessi þrjú miklu veldi
segja það sama sé það mikilvægt fyr-
ir Sameinuðu þjóðirnar og ef til vill
samþykkir öryggisráðið nýja álykt-
un.“
Enn er þó deilt um málið á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna. Fulltrú-
ar Brasilíu, Rússlands, Indlands,
Kína og Suður-Afríku sögðu í gær að
forðast bæri hernað í Líbíu. Dmítrí
Medvedev, forseti Rússlands, gekk
lengra og sagði að ályktun öryggis-
ráðsins heimilaði ekki loftárásirnar á
Líbíu.
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins, sagði hins vegar að banda-
lagið væri staðráðið í því að halda
loftárásunum áfram eins lengi og
þörf væri á til að vernda óbreytta
borgara í Líbíu. „Og það er óhugs-
andi að hættan hverfi á meðan Gadd-
afi er við völd.“
Reuters
Vilja frið Líbískar stúlkur í Benghazi mynda friðarmerki með fingrunum.
Mennta-
málaráðuneytið í
Armeníu hyggst
gera skák að
skyldufagi í
barnaskólum
landsins. „Skák-
kennsla í skólum
verður traustur
grunnur að því
að landið verði
stórveldi í skák,“ sagði embættis-
maður í ráðuneytinu.
Ríkisstjórn Armeníu hefur lofað
að verja sem svarar rúmum 170
milljónum króna í skákkennsluna.
Börnin eiga að byrja að læra skák
þegar þau eru sex ára og skák-
kennslan á að standa í tvær klukku-
stundir á viku.
Skák nýtur mikilla vinsælda í
Armeníu. Lið landsins fékk gull-
verðlaun á ólympíuskákmótum á
árunum 2006 og 2008 og öflugasti
skákmaður Armena, Levon Aroni-
an, er álitinn þriðji sterkasti skák-
meistari heims.
ARMENÍA
Skák gerð að
skyldufagi í öllum
barnaskólum
Levon Aronian
Skannaðu kóðann
til að lesa það nýj-
asta um Líbíu