Morgunblaðið - 16.04.2011, Síða 28

Morgunblaðið - 16.04.2011, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Forystaríkis-stjórn- arinnar heldur því fram að hún sé öllum öðrum hæfari til að gæta hagsmuna Íslands erlendis í Icesave-málinu eftir að þjóðin hefur í tví- gang með afgerandi hætti hafnað þeim lausnum sem stjórnin hefur boðið upp á. Forsætisráðherra upplýsti á Alþingi að hún hefði meira að segja „notað öll tæki- færi“ sem hún hefði haft þegar hún hitti kollega sína „á hinum ýmsu fundum er- lendis til að tala máli Ís- lands“. Þetta segir sína sögu um viðhorf stjórnvalda til hags- munagæslunnar í málinu. Þegar forsætisráðherra rekst á kollega sína nefnir hún Icesave-málið í framhjá- hlaupi og þá væntanlega til þess að koma á framfæri þeirri skoðun sinni að Ís- lendingar eigi að gefa eftir gagnvart löglausum kröfum. Það sér hver maður að hagsmunagæsla núverandi stjórnvalda í þessu máli er eins ótrúverðug og hugsast getur og því miður er sömu sögu að segja í öðru ekki síður mikilvægu máli. Morgunblaðið greindi frá því fyrir réttri viku að í fréttatilkynningu frá Evr- ópuþinginu kæmi fram að Ísland hefði lýst þeirri af- stöðu að stjórn fiskveiða við landið verði „að einhverju leyti“ áfram í höndum Ís- lands, sem felur í sér að Ís- land sé reiðubúið að afsala sér yfirráðunum að verulegu leyti. Í sömu fréttatilkynn- ingu er ítrekuð sú afstaða Evrópusambandsins að Ís- land verði að aðlaga lög um fiskveiðar að reglum sam- bandsins. Sjávarútvegsráðherra brást við með því að segja það rangt að Ísland væri tilbúið til að gefa eftir full- veldisréttindi sín í sjávarútvegi. Hann sagðist enn fremur telja ástæðu til að ut- anríkisráðherra leiðrétti frétt Evrópuþingsins. Utanríkis- ráðherra sér hins vegar enga ástæðu til þess að krefjast leiðréttingar, og segir í samtali við Morg- unblaðið: „Sjálfur hef ég nú ekki lagt það í vana minn að elta ólar við fréttatilkynn- ingar, þarna geta ein- hverjum blaðafulltrúa hafa verið mislagðar hendur.“ Hann bætir svo við að hann haldi mjög fast á sjónar- miðum Íslendinga og hviki hvergi. Hversu trúverðugur er þessi málflutningur? Utan- ríkisráðherra nennir ekki að leiðrétta ranga frétta- tilkynningu sjálfs Evrópu- þingsins um afstöðu Íslands og heldur því fram að op- inber tilkynning þess skipti engu máli, þar gæti bara einhverjum blaðafulltrúa hafa orðið á! Nú er ekki hægt að útiloka að þessi kenning ráðherrans sé rétt, en er þá ekki nauðsynlegt að leiðrétta misskilninginn og koma réttum skilaboðum á framfæri? Öllu alvarlegra er hins vegar ef þessi skýring ráð- herrans er ekki rétt og ekki síst þess vegna er alveg nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld geri athugasemd- ir við tilkynninguna ef hún er röng. Ef tilkynningin er rétt lýsing á þeim skila- boðum sem fulltrúar Íslands hafa komið á framfæri á fundum sínum í Evrópu er auðvitað um grafalvarlegt mál að ræða. Því skal ekki trúað að óreyndu að svo sé, en reynslan af hags- munagæslu íslenskra stjórn- valda gefur fulla ástæðu til efasemda. Það er því full- komlega óviðunandi að ekki fáist botn í málið. Hvaða skilaboð hafa stjórnvöld verið að senda til Evrópu um afstöðu Íslands í sjávarútvegs- málum?} Illa haldið á hagsmun- um Íslands erlendis Höfuðborginneitar að taka á móti op- inberum gestum frá Þýskalandi með hefðbundnum hætti, af því að þar séu sjóliðar á ferð. Virðist engu breyta þótt þar fari gömul vinaþjóð og flotinn sé hluti af varnarbandalagi sem Ísland er aðili að. Sam- fylkingin, sem er í meirihluta- samstarfi í borginni, er um þessar mundir í ábyrgð fyrir sprengjum sem rigna yfir Líbíu. Þýskaland, stríðslandið sem borgarstjórinn neitar að sýna þann sóma sem ber, treysti sér ekki til að ganga jafn langt í hern- aðinum og Sam- fylkingin sem stjórnar með Jóni Gnarr Kristinssyni. Því væri meiri ástæða fyrir Jón að hætta að heilsa varaformanni Samfylk- ingarinnar á förnum vegi en taka vel á móti friðsömum flotaforingja. Borgarstjórinn er í bandalagi við flokk sem fer mikinn í styrjöldum og sýnir Þjóðverjum dóna- skap} Höfuðborg kann sig ekki Þ að er alltaf jafn gaman að undirbúa merkilegar stundir í fjölskyldunni. Nú er fermingardagur runninn upp (bjartur og fagur miðað við gamla spá sem ég fann á netinu í gær) og því verið í nógu að snúast upp á síð- kastið. En skemmtilegt. Allir í fjölskyldunni voru afslappaðir í gær- kvöldi, fóru snemma að sofa enda undirbúningi löngu lokið, eins og Íslendinga er siður. Brosið verður hengt á fjölskylduna áður en haldið verður í kirkjuna í dag því ekki viljum við hitta Guð með fýlusvip. Svo verður líka brosað framan í prestinn, ættingjana og loks ljósmyndarann áður en skundað verður til veislu. Þar verður líka brosað, ekki vegna gjafanna, heldur því að hitta alla góðu vinina og ættingjanna og eiga með þeim notalega stund. Svo verður brosað heima í kvöld vegna gjafanna, og afganganna úr veislunni. Við hjónin (lesist: eiginkona mín, systur hennar, systir mín og móðir, dætur mínar þrjár og fáeinir að auki) höfum haft nóg við að vera síðustu daga og notið aðstoðar nokk- urra hjartahlýrra fagmanna. Mig hafði lengi dreymt um að útbúa smáréttina en þurfti síðan ekki að hafa áhyggjur af því. Búið var að redda fólki í það áður en ég bað um að sjá um þann þátt. En marsipanterturnar? „Sonur Steinu vinkonu? Nú, er hann menntaður í fag- inu? Allt í lagi.“ Þá gæti ég kannski bakað og sett saman hin- ar ómissandi kransakökur. „Nú, ein vinkvenna þinna? Margreynd?“ Ég vissi að fermingarbarnið langaði í tertur úr sykurpúðum. Bauð fram krafta mína. „Hildur? Olræt.“ Best að strauja skyrtuna. „Jæja, baðstu mömmu að gera það?“ Ættingjar og vinir vita að ég er lúsiðinn og fellur aldrei verk úr hendi, þegar heimilið er annars vegar. Er af nýja skólanum hvað það varðar. Allir sáu því hve ég kvaldist yfir því í gær að fá ekki að leggja hönd almennilega á plóg. Ekki þýddi að ræða málið við húsbóndann. „Hvað heldurðu að dóttir okkar haldi?Að ég nenni ekki að taka þátt í undirbúningi ferm- ingar hennar? Hún heldur kannski að mér þyki ekki vænt um hana lengur.“ ??? „Jú, líklega þekkir hún pabba sinn nægilega vel til þess að taka þetta ekki nærri sér.“ Svo þurfti að panta pítsur ofan í vinnumennina undir kvöld. Og sækja pítsurnar. Jess! Ég vissi að ég kæmi að notum einhvers staðar í ferlinu. Áttu svo ekki eftir að skrifa pistil í blaðið á morgun? „Jú.“ Fyrst ég sótti pítsurnar, og skrifaði pistil, fæ ég að vera í veislunni í dag. skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Af fermingarundirbúningi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is U mtalsverðar breyt- ingar eru að verða á lífríki Íslands um þessar mundir meðal annars sem afleiðing af hlýnandi loftslagi samkvæmt um- fjöllun sem birtist nýverið á heima- síðu Náttúrufræðistofnunar Íslands. Aðrir áhrifavaldar eru t.a.m. breyt- ingar á búskaparháttum hér á landi og landnýtingu. Ekki síst vegna minnkandi sauðfjárbeitar sem hefur veruleg keðjuverkandi áhrif á lífríkið samhliða hlýnun. Hlýnandi loftslag hefur t.a.m. í för mér sér landnám nýrra dýrateg- unda, breytingar á gróðurfari sem og á lífríki hafsins í kringum Ísland. Breytingarnar eru þó margar hverj- ar umdeildar þó aðrar, eins og t.a.m. sjálfgræðsla á örfoka landi, séu að flestra mati ánægjulegar. Nýir landnemar Landnám ýmissa framandi dýrategunda í vaxandi mæli er eins og áður segir ein afleiðing hlýnandi loftlags, ekki síst ýmiss konar smá- dýra, sem og landnám nýrra plöntu- tegunda. Nýjar plöntur koma til landsins fyrst og fremst fyrir til- stuðlan mannanna með innflutningi á þeim. Nýjar fuglategundir og teg- undir sjávarlífvera koma af sjálfs- áðum en smádýr koma hins vegar bæði til landsins af eigin rammleik og einnig með hjálp mannfólksins. Smádýrin hafa tvær leiðir til þess að berast til landsins samkvæmt því sem segir í umfjöllun Nátt- úrufræðistofnunar. Annars vegar er um að ræða flugleiðina með hag- stæðum vindum frá meginlandi Evr- ópu, sem t.a.m. fiðrildi nýta sér, og hins vegar flutningsleiðin með ýmiss konar varningi sem berst hingað til lands. Engan veginn er þó ljóst í öllum tilfellum að sögn Náttúrufræðistofn- unar með hvaða hætti nýjar tegundir smádýra kunni að hafa komið til landsins. Þá sé heldur ekki hægt að fullyrða að allar þær tegundir sem uppgötvaðar hafa verið hér á landi á síðustu árum hafi verið alveg nýjar í landinu. Í einhverjum tilfellum kunna t.a.m. aðstæður að hafa valdið því að ekki hafi borið mikið á þeim en það hafi síðan breyst með hlýnandi veðráttu og þar með auknum mögu- leikum þeirra til þess að ná fótfestu hér á landi. Mikill innflutningur á gróð- urvörum er ekki síst talinn stuðla að vaxandi landnámi framandi smádýra hér á landi en einnig innflutningur á kornvörum, grænmeti og timb- urvörum ýmiss konar. Þá er sá möguleiki alltaf fyrir hendi að smá- dýr lokist inni í umbúðum fyrir slysni án þess að tengjast umræddri vöru á neinn hátt. Heilu vistkerfin Í umfjöllun Náttúrufræðistofn- un er bent á að þegar fluttar eru inn plöntur og annar gróður erlendis frá sé með því oft á tíðum verið að flytja inn heilu vistkerfin. Ekki síst þegar um er að ræða stórar plöntur eins og tré ýmiss konar. Í jarðveginum sem kemur með þeim geti fylgt mosi, jarðvegssveppir, þörungar auk ým- iss konar örvera og smádýra. Þessu sé síðan gjarnan plantað í garða með tilheyrandi áhrifum á umhverfið. Fram kemur það álit Nátt- úrufræðistofnunar að heimildir til innflutnings á plöntum í jarðvegs- hnausum þyrfti að endurskoða frá grunni þar sem tekið sé tillit til þessa og mögulegra áhrifa þess á lífríkið. Hlýrra veður fjölgar nýjum landnemum Morgunblaðið/Ómar Breytingar Hlýnandi loftslag hefur haft í för með sér umtalsverðar breyt- ingar á lífríki Íslands á síðustu árum. Myndin er frá Þingvöllum. „Það er alveg ljóst að gróð- urinn er að aukast á landinu víðast hvar sem er breyting sem verður að teljast jákvæð. Þar hefur tvennt aðallega haft áhrif. Það hefur hlýnað og það er minni beit, en hún hefur minnkað mjög mikið frá því um 1980,“ segir Sigurður H. Magnússon, gróðurvistfræð- ingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Hann segir að fyrir vikið sé um að ræða talsvert landnám gróðurs á ýmsum stöðum á landinu þar sem hann hafi kannski áður átt undir högg að sækja og verið í litlum mæli. Þannig megi taka sem dæmi að birki sé að breiðast mjög út á Skeiðarársandi sem hafi varla sést fyrir ekki svo mörg- um árum. Gróður í vax- andi mæli SIGURÐUR H. MAGNÚSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.