Morgunblaðið - 16.04.2011, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2011
Rangt var farið með útfar-
ardag Vigdísar Þormóðsdóttur
í æviágripi sem birtist í Morg-
unblaðinu í gær.
Morgunblaðið biður alla
hlutaðeigandi innilega velvirð-
ingar á mistökunum.
Það er svo skrítið hvað tím-
inn líður hratt. Svo skrítið
hvað lífið breytist. Ég er víst
ekki lengur lítil stelpa á leið-
inni upp í Skorradal með
ömmu og afa. Lítil stelpa sem
ligg þvert í aftursætinu í fjalla-
bílnum hans afa. Þá löngu
stund, að mér fannst, að keyra
upp í sumarbústað styttir þú
mér amma með því að segja
sögur. Áður en ég vissi af vor-
um við komin á leiðarenda
enda kunnir þú þær margar.
Ég er heldur ekki lengur 10
ára stelpa sem bý hjá ömmu
minni og afa í Grænuhlíð.
Stelpa sem á hverjum morgni
kem fram úr og hitti þá ömmu
mína sem var löngu vöknuð
með bros á vör, tilbúin til að
gera allt fyrir mig. Þá er ég
heldur ekki lengur unglingur-
inn sem beið óþolinmóður eftir
að amma mín kláraði að sauma
kjólinn minn fyrir árshátíðina í
skólanum. Þeir voru víst ófáir
kjólarnir sem við saumuðum
saman. Mikið rosalega væri nú
gott að geta stundum farið aft-
ur í tímann og haft það huggu-
legt í Grænuhlíðinni með þér
og afa. En eitt er víst að í dag
átt þú amma mín stóran hluta í
mér og þeirri manneskju sem
ég er og af þeirri staðreynd
verð ég alltaf stolt.
Með þér og afa fór ég mína
fyrstu útlandaferð um það bil
12 ára gömul. Við fórum, ég,
þú og afi, saman til Stokk-
hólms þar sem afi var í heim-
ildasöfnun fyrir eina af bók-
unum sínum. Á meðan afi sat
líklega sveittur við vinnu á
bókasöfnum borgarinnar nut-
um við veðurblíðunnar í Sví-
þjóð saman. Þar voru meðal
annars tíndir sveppir, sniglar
og blóm, farið í göngutúra, far-
ið út að borða, horft af svöl-
unum yfir höfnina og skemmti-
ferðaskipin og að sjálfsögðu
fórum við aðeins í búðir saman.
Í Grænuhlíðinni fékk ég allt-
af að sofa í rúminu með þér
amma. Alltaf eins og prinsess-
Vigdís
Þormóðsdóttir
✝ Vigdís Þor-móðsdóttir
fæddist á Finns-
stöðum í Ljósa-
vatnshreppi 1. júní
1931. Hún lést á
Landspítalanum,
Borgarspítala 8.
apríl 2011.
Útför Vígdísar
Þormóðsdóttur fór
fram frá Fossvogs-
kirkju fimmtudag-
inn 14. apríl 2011.
an á bauninni,
undir mér voru að
minnsta kosti fjór-
ar sængur og ekki
voru þær færri of-
an á. Afi færði sig
í hornherbergið
svo við stelpurnar
gætum legið, haft
það huggulegt
saman og horft á
sjónvarpið.
Allra þessara
ára minnist ég með bros á vör
og gleði í hjarta. Ég er þakklát
fyrir að hafa fengið að kynnast
þér svona vel. Þakklát fyrir að
hafa lært svo margt af þér.
Síðast en ekki síst er ég þakk-
lát fyrir þær stuttu en mik-
ilvægu stundir sem við áttum
saman á spítalanum síðustu
daga. Ég hélt þó og vonaði að
þær yrðu fleiri en við ráðum
víst ekki örlögunum. Líklega
ert þú núna búin að skála við
hann afa minn og þið saman
fylgist með okkur afkomendum
ykkar. Í hjarta mínu er sorg
en líka gleði yfir þeirri tilhugs-
un og von minni að þið afi séuð
nú sameinuð á ný í annarri
veröld.
Þið afi kennduð mér svo
margt og vonandi fæ ég tæki-
færi síðar til að kenna litlu
fólki að sá fræjum, baka klein-
ur, föndra jólapoka, skera
laufabrauð, setja niður kart-
öflur og sauma kjóla. Í leiðinni
mun ég segja þeim frá henni
ömmu Dísu sem gerði alla
þessa hluti og svo marga
marga fleiri með mér og fyrir
mig þegar ég var lítil.
Nú er það svo einkennileg
tilfinning að amma Dísa sé far-
in úr þessum heimi. Furðulegt
að vakna einn daginn og átta
sig á því að hún amma mín er
ekki lengur hér með okkur. Ég
get ekki lengur komið í heim-
sókn til þín í Hvassaleitið. Ég
hugga mig þó við þá tilhugsun
að geta í staðinn talað við þig
hvar sem er og hvenær sem er.
Því að ég veit að þú ert með
okkur áfram og munt fylgjast
með okkur hinum sem eftir
stöndum. Ég hlakka til að fara
í Skorraskjólið okkar í Skorra-
dalnum í sumar. Þar mun ég,
eins og svo oft áður, ganga
„ömmustíg“ og „afastíg“. Í það
skiptið veit ég að þú og afi
verðið bæði með mér.
Takk elsku amma mín fyrir
allar þær samverustundir sem
við áttum, fyrir alla þína visku
og þá þolinmæði sem þú hefur
sýnt mér og sérstaklega fyrir
allar þær minningar sem ég á
um þig og hann afa Skorra.
Elsku amma mín, þessum
stundum með þér og minning-
um okkar mun ég aldrei
gleyma.
Þín dótturdóttir,
Valgerður.
HÓTEL SAGA, REYKJAVÍK
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
GUÐMUNDUR BJÖRN SVEINSSON,
Kirkjuteig 13,
Reykjavík,
andaðist á Landspítala Landakoti föstu-
daginn 25. mars.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 19. apríl
kl. 15.00.
Esther Ósk Karlsdóttir,
Sævar Sveinn Guðmundsson,
Elísabet Anna Guðmundsdóttir, Bengt Wallin,
Auður Björk Guðmundsdóttir,
Siegfried Gudmundsson,
Sabina Gudmundsson,
Sarah Gudmundsson,
Belinda Wallin-Tolf, Nicklas Tolf,
Isabelle og Patricia,
Nathalie Wallin,
Ozzy Wallin,
Philip Wallin,
Arthúr Sveinsson,
Már Sveinsson, Margrét Björnsdóttir,
Sveina M. Sveinsdóttir, Runólfur Sölvason,
Linda M. Runólfsdóttir,
Birgir Þór Runólfsson,
Jón Guðmann Jónsson, Karítas Sól Jónsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁSGEIR HÓLM JÓNSSON,
Dalsgerði 2e,
Akureyri,
lést fimmtudaginn 14. apríl.
Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 20. apríl kl. 10.30.
Guðrún Elín Hartmannsdóttir,
Haukur Ásgeirsson Þorbjörg Kristín Jónsdóttir,
Hulda Ásgeirsdóttir, Heiðar Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
EYGLÓ ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Laugarvatni,
lést á líknardeild Landspítalans miðviku-
daginn 13. apríl.
Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju laugar-
daginn 23. apríl kl. 11.00.
Jarðsett verður að Laugarvatni.
Jón G. Óskarsson, Kolbrún Leifsdóttir,
Þórður Óskarsson, Ingunn Gylfadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞORVALDUR THORODDSEN,
Heiðarhjalla 37,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi
þriðjudaginn 5. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju mánu-
daginn 18. apríl kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Ægir Gauti Þorvaldsson,
Hrefna Kristín Ágústsdóttir,
María Ásgeirsdóttir,
Ágúst Breiðfjörð,
Kristrún Guðmundsdóttir,
Tristan Berg Arason.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI ÁRNASON
húsasmíðameistari og bóndi
frá Höskuldarnesi,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
lést föstudaginn 8. apríl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 20. apríl
kl. 13.30.
Jóhannes Árnason, Ragnhildur Þorgeirsdóttir,
Jórunn Árnadóttir,
Árni Árnason, Kristín Margrét Axelsdóttir,
Guðbjörg Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
LISSÝ BJÖRK JÓNSDÓTTIR,
Hlíðarhjalla 61,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 10. apríl.
Útför hennar fer fram frá Árbæjarkirkju
miðvikudaginn 20. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta krabbameins-
lækningadeild 11-E njóta þess, sími 543 1159.
Jón Viðar Matthíasson, Helga Harðardóttir,
Hörður Már Jónsson, Elfa Björg Aradóttir,
Viðar Jónsson, Mardís Heimisdóttir,
Björk Jónsdóttir,
Arnar Jónsson,
Aldís Helga og Hjördís Svava Harðardætur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BALDVINA JÓNA GUÐLAUGSDÓTTIR,
Bella,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ Dalvík laugar-
daginn 9. apríl.
Útför hennar fer fram frá Dalvíkurkirkju
miðvikudaginn 20. apríl kl. 13.30.
Ebba Gunnlaugsdóttir, Magnús Bjarnason,
Margrét Gunnlaugsdóttir,
Björgvin Þorleifur Gunnlaugsson, Hafdís Sigurbergsdóttir,
Gunnlaugur Jón Gunnlaugsson, Ósk Finnsdóttir,
Kári Gunnlaugsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Albert Gunnlaugsson,
Víðir Gunnlaugsson, Rósa Ragúels,
Andrea Guðrún Gunnlaugsdóttir, Jónas Rafn Tómasson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær eiginmaður minn og minn besti vinur,
faðir okkar, tengdafaðir, tengdasonur og afi,
LÁRUS SIGURBERG ÁRNASON,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans eftir
stutt veikindi miðvikudaginn 13. apríl.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtu-
daginn 28. apríl kl. 15.00.
Valborg Fríður Svanholt Níelsdóttir,
Hjörvar Örn Brynjólfsson, Guðný Björg Karlsdóttir,
Arnar Helgi Lárusson, Sóley Bára Garðarsdóttir,
Jón Björn Lárusson, Jóna Rúna Erlingsdóttir,
Ægir Þór Lárusson, Ágústa Guðný Árnadóttir,
Guðrún Jóna Lárusdóttir, Benedikt Rafn Guðjónsson,
Lýður Valgeir Lárusson, Nína Hildur Oddsdóttir,
Þorvarður Lárusson, Hólmfríður Anna Aðalsteinsdóttir,
Ágústa Þórey Haraldsdóttir, Níels P. S. Björgvinsson
og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RÓSA RÖGNVALDSDÓTTIR PEDERSEN,
áður til heimilis í Þingvallastræti 42,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn
7. apríl.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Alúðarþakkir til starfsfólksins í Einihlíð fyrir góða umönnun.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Hlíð.
Ragna Guðný Pedersen,
Hildur Pedersen
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNA SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á heimili sínu laugardaginn 9. apríl.
Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 20. apríl kl. 13.00.
Pétur Hafsteinn Bjarnason, Selma Karlsdóttir,
Bryndís Bjarnadóttir, Hörður Gunnarsson,
Bjarnheiður S. Bjarnadóttir, Kristjón Másson,
Bjarni Þór Pétursson,
Edda Björk Pétursdóttir,
Már Kristjónsson,
Brynjar Harðarson,
Ragna Sigrún Kristjónsdóttir,
Auður Þóra Harðardóttir,
Birta Hugadóttir,
Eva Lóa Pétursdóttir.