Morgunblaðið - 16.04.2011, Qupperneq 48
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Enn er of snemmt að segja fyrir um
páskaveðrið með neinni vissu og
hvort við fáum páskahret, að sögn
Einars Sveinbjörnssonar veður-
fræðings. „En það líða fáir páskar án
þess að því fylgi eitthvert páskahret
einhvers staðar á landinu,“ sagði
Einar.
Í gær taldi hann hægt að fá
þokkalega marktæka mynd af veð-
urhorfum allt fram á þriðjudag. Útlit
er fyrir hraglanda fram yfir helgi.
Eftir það lítur út fyrir einhverjar
breytingar en ekki verður séð nú
hvernig þær verða.
„Hvort hér tekur við betri tíð með
vorgróanda eða við fáum 2-3 daga
svoleiðis áður en aftur fer í hragl-
anda eða við fáum norðanátt með
meiri kulda fyrir norðan er ekki vit-
að,“ sagði Einar.
Hann taldi aðaltíðindin vera þau
að háloftakuldinn, sem verið hefði
vestan við Ísland og beint ein-
hverjum öngum til landsins úr
vestri, virtist ætla að verða úr sög-
unni eftir helgina.
Þessi háloftakuldi hefur haldið sig
á þessum slóðum frá því fyrir síð-
ustu helgi. Óveðrið sem brast hér á
síðastliðinn sunnudag var beint af-
sprengi þessa háloftakulda, að sögn
Einars.
Páskaveðrið er enn á huldu
Einar Sveinbjörnsson veðurfræð-
ingur spáir hraglanda fram yfir helgi
LAUGARDAGUR 16. APRÍL 106. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Vísað úr Hörpu
2. Ráðgáta að Ísland skyldi ekki …
3. Segist ekki skilja Icesave-kröfu…
4. Brúðgumi réðst á brúði sína
Grammy-verðlaunahafinn Elvis
Costello heldur tónleika í tónlistar-
húsi Reykjavíkur, Hörpu, 21. nóv-
ember næstkomandi. Fáir starfandi
dægurtónlistarmenn eru jafn leitandi
og litríkir og Costello og á 34 ára
löngum ferli hefur hann lagt fyrir sig
ótal stíla, allt frá nýbylgjurokki til nú-
tímatónlistar og starfað með mönn-
um eins og Burt Bacharach og Paul
McCartney. Forsala aðgöngumiða
mun fara fram á Harpa.is og hefst
miðasalan klukkan 12:00 stundvís-
lega þriðjudaginn eftir páska, 26.
apríl. »43
Elvis Costello með
tónleika í haust
Dagskrá Rásar 2 um þessa helgi
verður að miklu leyti helguð söngv-
aranum ástsæla úr Hafnarfirði,
Björgvini Helga Halldórssyni, sem
verður einmitt sextugur í dag. Í gær
brá hann sér t.a.m. í hlutverk út-
varpsmanns í þættinum Hunangs-
raddir, en þar leikur hann lög með
uppáhaldsröddunum sínum. Bergs-
son & Blöndal birta lista yfir 30
bestu lög Björgvins að mati hlust-
enda Rásar 2 þennan morgun en valið
fór fram á Facebook-síðu þáttarins.
Á sunnudaginn
verður Björgvin eini
gestur Rokklands
og á sunnudags-
kvöld er það svo
Af fingrum fram,
upptaka frá tón-
leikum Jóns
Ólafssonar og
Björgvins í Salnum í
Kópavogi 10. mars sl.
Björgvin Helgi á Rás
2 um helgina
FÓLK Í FRÉTTUM
ÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-13 og skúrir eða él en léttir til á Norðaustur- og Aust-
urlandi. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast austanlands.
Á sunnudag Suðvestan 5-13 og él á vestanverðu landinu, en hægari og þurrt austantil.
Hiti 0 til 8 stig að deginum, mildast austanlands.
Á mánudag Ákveðin sunnanátt og víða rigning, en slydda vestast. Vestlægari og él vest-
antil síðdegis. Hiti 0 til 10 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu.
Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður 21
árs landsliðsins í knattspyrnu, yfir-
gefur enska félagið West Ham í vor
eftir þriggja ára dvöl þar. Hólmar seg-
ir að allt sé opið hjá sér og ýmsir
kostir í boði en hann sé nokkuð
spenntur fyrir því að leika í Dan-
mörku eða Belgíu. Hann bíður jafn-
framt spenntur eftir úrslitakeppni
EM í Danmörku. »2
Hólmar spenntastur fyr-
ir Danmörku og Belgíu
„Þetta var mjög góður leik-
ur af okkar hálfu og sá
besti í mótinu að mínu
mati,“ sagði markahrók-
urinn Egill Þormóðsson
þegar 5:3 sigur Íslands á
Kína var í höfn í Sportova-
höllinni í Zagreb í gær.
Með sigrinum steig Ísland
stórt skref í áttina að
bronsverðlaunum í 2. deild
heimsmeistaramótsins í ís-
hokkí annað árið í röð. »3
Brons er innan
seilingar í Zagreb
Derrick Rose hefur farið á kostum
með Chicago Bulls í NBA-deildinni í
körfubolta í vetur og lið hans stóð
uppi sem besta lið tímabilsins. Úr-
slitakeppnin hefst í kvöld og Gunnar
Valgeirsson, NBA-sérfræðingur
Morgunblaðsins, er ekki jafn viss og
hann var í haust um að Lakers og
Boston séu næsta örugg með að
komast alla leið í
lokaúrslitin. »4
Ekki jafn viss að Lakers
og Boston fari alla leið
Vegagerðin gaf í gær út nýtt kort sem sýnir ástand
fjallvega. Þar er stórum svæðum lokað fyrir öllum
akstri vegna hættu á vegarskemmdum. Kjalvegur er
opinn og hægt er að fara í Þórsmörk . Opið er úr Sig-
öldu í Landmannalaugar en Sprengisandur, Fjalla-
baksleiðir og Öskjuleið eru til dæmis lokaðar. Búast
má við að lokunin vari í 2-4 vikur.
„Það er komin bullandi drulla í kringum allar snjó-
línur,“ sagði Bjarni Jón Finnsson, yfirverkstjóri Vega-
gerðarinnar í Vík. Hann sagði að hægt væri t.d. að
komast upp Mýrdalsjökul fyrir þá sem vilja fara í vél-
sleðaferðir. Talsverður snjór er t.d. enn á milli Eldgjár
og Landmannalauga. Lokunina ber nánast upp á sama dag nú og í fyrra.
„Það er komin bullandi drulla
í kringum allar snjólínurnar“
FJALLVEGUM LOKAÐ Á STÓRUM SVÆÐUM
Ferð Vélsleðar eru
vinsæl farartæki.
VEÐUR
Gestastofan á Þorvaldseyri undir
Eyjafjöllum verður opnuð formlega
í dag fyrir gesti og gangandi. Hjón-
in Ólafur Eggertsson og Guðný A.
Valberg voru önnum kafin við að
undirbúa móttöku fyrir vini sína í
gærkvöldi í tilefni af opnuninni.
Ólafur sagði að í gær hefðu komið
um 50 manns þótt í raun væri ekki
búið að opna. „Við vorum að vinna
hérna og fólkið bankaði bara upp
á,“ sagði Ólafur.
Í Gestastofunni er búið að setja
upp sýningar á veggspjöldum af
sögu gossins í Eyjafjallajökli sem
hófst 14. apríl 2010. Einnig má
fræðast þar um sögu fjölskyldu
Ólafs á Þorvaldseyri frá því að afi
hans, Ólafur Pálsson, flutti þangað
árið 1900. Sýnd verður kvikmynd
um gosið sem Ólafur lét gera. Þá
geta gestir keypt þar minjagripi og
afurðir frá Þorvaldseyri, m.a.
morgunkornið Byggi sem gert er
úr korni af ökrum bæjarins.
Morgunblaðið/Guðni Einarsson
Gestastofa Hjónin Guðný A. Valberg og Ólafur Eggertsson voru kampakát í nýju Gestastofunni í gærkvöldi.
Gestastofa
opnuð á
Þorvaldseyri