Morgunblaðið - 19.04.2011, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 19.04.2011, Qupperneq 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011 Sudoku Frumstig 9 4 5 3 2 7 8 6 8 2 4 5 8 7 9 5 4 8 7 2 7 6 9 8 4 6 6 9 5 4 3 1 3 6 5 9 8 1 4 2 3 4 1 6 2 8 4 5 6 5 5 4 1 3 2 8 4 9 1 6 7 8 3 6 9 5 2 1 5 6 7 4 3 7 6 2 9 5 1 8 4 2 5 9 4 8 1 3 7 6 1 4 8 7 6 3 2 5 9 9 3 1 5 7 6 8 4 2 6 8 5 3 4 2 7 9 1 7 2 4 8 1 9 5 6 3 5 6 2 9 3 7 4 1 8 4 9 3 1 5 8 6 2 7 8 1 7 6 2 4 9 3 5 5 6 3 4 7 2 1 8 9 9 7 4 1 6 8 2 5 3 8 2 1 3 9 5 4 6 7 3 9 7 8 2 1 5 4 6 4 8 5 6 3 7 9 1 2 2 1 6 9 5 4 7 3 8 1 5 2 7 8 6 3 9 4 6 4 9 2 1 3 8 7 5 7 3 8 5 4 9 6 2 1 2 1 8 3 4 6 5 7 9 5 3 4 7 1 9 8 6 2 9 6 7 5 8 2 1 3 4 1 5 9 8 6 4 3 2 7 7 2 6 1 9 3 4 5 8 8 4 3 2 5 7 9 1 6 6 8 2 4 3 1 7 9 5 4 7 1 9 2 5 6 8 3 3 9 5 6 7 8 2 4 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 19. apríl, 109. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Kærleikurinn er lang- lyndur, hann er góðviljaður. Kærleik- urinn öfundar ekki. (I.Kor. 12, 4.) Meðal jákvæðari áhrifa krepp-unnar er aukinn áhugi lands- manna á menningu, listum og annarri afþreyingu. Landinn streymir ekki til útlanda í jafn stríðum straumum og áður og menningarneysla hvers kon- ar hefur um leið aukist innanlands. Fólk fer oftar í leikhús, út að borða og á tónleika. Nægir að nefna miðasölu á tónleika með Eagles, þar sem uppselt var á svipstundu þrátt fyrir himinhátt miðaverð. Og Björgvin Halldórsson var varla búinn að fylla Laugardals- höll oftar en einu sinni um jólin þegar boðaðir voru afmælistónleikar í tilefni 60 ára afmælis kappans. Fór hann létt með að fylla Háskólabíó í þrí- gang. Með honum söng m.a. fimm- tugur Eyfi, sem er að túra um landið með góðum árangri. x x x Víkverji telur sig hafa tekið þátt íþessari menningarneyslu með því að hafa farið á þrenna ef ekki ferna tónleika frá áramótum. Sé farið mánuði aftar mætti bæta við fimmtu tónleikunum með jólagestum Björg- vins. Enn eykst menningarneyslan í vor þegar Harpa verður opnuð og Víkverji gat ekki verið minni maður en svo að panta þrjá miða í heiðurs- stúku á Pál Óskar og Sinfó. Eru þeir miðar í hópi á þriðja tug þúsunda miða sem landsmenn hafa keypt á fyrstu viðburði Hörpunnar. Eðlilega er tónlistarhúsið eftirsótt svona fyrsta kastið og vonandi sem allra lengst. Víkverji óttast þó að þegar frá líður verði rekstrargrundvöllur húss- ins erfiður og áhrifin á önnur sam- komuhús verði neikvæð. Íslendingum þarf þá að fjölga all-snarlega og ferðamenn að streyma hingað sem aldrei fyrr. Eða bara eitt stykki góð- æri í anda 2007. Þá er nú vissara að vera búinn að fara a.m.k. einu sinni í Hörpuna áður en næsta hrun dynur yfir þjóðina. x x x Að endingu lýsir Víkverji yfirstuðningi við þá hugmynd sem viðruð var nýlega á þessum vett- vangi: Að Tónskóli Hörpunnar fái inni í Hörpunni. Þá verða allir sælir og glaðir – nema kannski aðrir tón- listarskólar! víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vindhöggs, 8 tek snöggt í, 9 borguðu, 10 spils, 11 láta af hendi, 13 skilja eftir, 15 reifur, 18 ugla, 21 kvendýr, 22 minnast á, 23 hæsi, 24 hjálpar. Lóðrétt | 2 fimur, 3 álíta, 4 krók, 5 málmi, 6 dúsk, 7 rola, 12 spott, 14 bókstafur, 15 vandræði, 16 fékk í arf, 17 priks, 18 askja, 19 sárri, 20 straumkastið. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 búlki, 4 sekta, 7 tinna, 8 listi, 9 nál, 11 róms, 13 undu, 14 æskan, 15 töng, 17 dund, 20 ann, 22 felds, 23 endum, 24 norpa, 25 tomma. Lóðrétt: 1 bætur, 2 linum, 3 iðan, 4 soll, 5 kösin, 6 atinu, 10 álk- an, 12 sæg, 13 und, 15 tófan, 16 nælur, 18 undum, 19 dimma, 20 assa, 21 nekt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 Dc7 6. Be3 a6 7. Dd2 Rf6 8. 0-0-0 Bb4 9. f3 Re5 10. Rb3 b5 11. De1 Be7 12. f4 Rg6 13. e5 Rg4 14. Re4 Rxe3 15. Dxe3 O-O 16. h4 Bb7 17. h5 Hac8 18. Bd3 Rxe5 19. fxe5 Dxe5 20. Rbd2 f5 21. Rf3 Dc7 22. Reg5 Bd5 23. Rh4 Dc5 24. Dd2 Bf6 25. a3 b4 26. axb4 Dd4 27. c3 Staðan kom upp á Evrópumeist- aramóti einstaklinga í Aix-les-Bains í Frakklandi. Sigurvegari mótsins, rúss- neski stórmeistarinn Vladimir Potkin (2.653), hafði svart gegn armenskum kollega sínum Samvel Ter-Sahakyan (2.575). 27. … Bxg5! 28. Dxg5 Hxc3+! 29. Bc2 hvítur hefði einnig tapað eftir 29. bxc3 Dxc3+ 30. Kb1 Dxb4+. 29. … Hxc2+! 30. Kxc2 Hc8+ 31. Kb1 Be4+ 32. Ka1 Dxb4 33. De3 Hc5! 34. Hd3 Hb5 og hvítur gafst upp enda fátt til varnar. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Furstinn. Norður ♠ÁG53 ♥ÁDG ♦G4 ♣ÁK65 Vestur Austur ♠104 ♠8 ♥10843 ♥9765 ♦93 ♦KD765 ♣D9872 ♣1043 Suður ♠KD9762 ♥K2 ♦Á1082 ♣G Suður spilar 7♠. Franski landsliðsmaðurinn Gerard Desrousseaux (1927-1985) þótti slægur spilari og ófyrirleitinn. „Machiavelli hefði orðið grænn af öfund,“ skrifaði samlandi hans og vinur, José Le Dentu um spilið hér að ofan. Það kom upp í landsleik við Englendinga. Fórnarlömin voru Tony Forrester og Steve Lodge. Forrester kom út með ♦9 og Desrousseaux sá strax að 13. slagurinn fengist ekki með heiðarlegu móti. Hann lagði ♦G á níuna og drap drottningu austurs. Spilaði svo ♣G með því hugarfari að láta gosann rúlla. En Forrester hélt vöku sinni og lagði á. Desrousseaux drap, tók tvisvar tromp, svo þrisvar hjarta og henti ♦10 heima. Kláraði svo trompin og skildi ♣Á eftir sambandslausan í borði! Í við- leitni til að valda laufið henti Lodge ♦K í lokastöðunni … 19. apríl 1954 Fermingarbörn á Akureyri klæddust hvítum kyrtlum „til að spara foreldrum barnanna peninga og forðast að ferm- ingin verði nokkurs konar tískusýning,“ eins og það var orðað í Morgunblaðinu. Er þetta talið upphaf þess sem síðan hefur tíðkast. 19. apríl 2009 Sex manns voru handteknir vegna smygls með seglskút- unni Sirtaki til Austfjarða. „Um 109 kíló af fíkniefnum, amfetamín, marijúana, hass og e-töflur, voru flutt með skútunni til landsins,“ að sögn Morgunblaðsins. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Magnús Már Einarsson fagnar þrjátíu ára afmæli sínu í dag. Hann er búsettur í Lyon í Frakklandi ásamt eiginkonu sinni, Jóhönnu Guðmundsdóttur, og syni þeirra, Guðmundi Elí, sem verður tveggja ára í sumar. Þau hafa búið í Frakklandi í á þriðja ár, fyrst í París, þar sem Jóhanna gekk í skóla. Að því búnu fluttu þau til Lyon, þar sem Magnús Már legur nú stund á MBA nám við EMYLON- viðskiptaháskólann. Tengdafaðir Magnúsar Más er í heimsókn hjá þeim hjónum, og von á vini þeirra í dag. Magnús Már segir að ætlunin sé að elda dýrindis máltíð og eiga góða stund saman í tilefni af áfanganum þó vinir og ættingjar séu auðvitað flestir fjarri, en Magnús Már er Bolvíkingur sjálfur. Áður en þau hjónin fluttu til Frakklands nam Magnús Már iðn- aðarverkfræði við Háskóla Íslands. Á meðan á náminu stóð var hann einn stofnenda nýsköpunar- og frumkvöðlasetursins Innovit, og er hann einn eigenda í dag. Spurður að því hvort hugurinn standi heim að námi loknu segir hann svo ekki vera að sinni. Jóhanna sé komin með vinnu ytra og hann ætli sér slíkt hið sama. Dvölin muni því lengj- ast um einhver ár. einarorn@mbl.is Magnús Már Einarsson er þrítugur í dag Skýtur rótum í Frakklandi Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 19. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 0.53 -0,1 6.55 4,1 13.07 -0,1 19.20 4,3 5.43 21.13 Ísafjörður 3.01 -0,2 8.51 2,2 15.14 -0,2 21.19 2,4 5.37 21.28 Siglufjörður 5.00 -0,2 11.25 1,3 17.25 -0,0 23.38 1,4 5.20 21.11 Djúpivogur 4.06 2,2 10.11 0,1 16.28 2,5 22.48 0,1 5.09 20.44 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Vikan öll einkennist af rómantík og uppákomum í félagslífinu. Þér leiðist að þurfa að endurtaka hlutina. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þótt þér gangi margt í haginn, máttu ekki gleyma þínum innri manni. Nú eru góðar aðstæður til þess að leggja út í hagnýtt sam- starf sem skilar árangri til langs tíma litið. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Maður getur lesið sér til um fjármál til þess að firra sig vandræðum og fylgt ráð- um leiðbeinanda um ný atvinnutækifæri. Láttu undrun annarra engin áhrif hafa á þig. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Upplýsingarnar að utan koma þér á óvart. Varastu að dæma aðra áður en þú heyrir söguna alla. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það eru oft einföldustu hlutir sem vefj- ast mest fyrir manni. Fáðu hlutlausan aðila til aðstoðar því hann sér málið öðrum augum. Hristu af þér slenið. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú þarft að verja sjálfa/n þig betur og hætta að hafa svona miklar áhyggjur af öðru fólki. Ekki reyna að skella skuldinni á aðra. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það væri synd að missa af tækifæri til að rannsaka hlut af því að þú þorir ekki. Svarið við þreytunni gæti legið í breyttum lífsstíl. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Reyndu að hafa sem mesta stjórn á skapsmunum þínum, sérstaklega verður þú að forðast að láta þín mál bitna á öðrum. Orkan er til staðar. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú átt auðvelt með að einbeita þér að verkefnum sem krefjast mikillar ein- beitingar. Félaglífið blómstrar sem aldrei fyrr. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Breyttu venju þinni með því að tala lengi við einhvern sem þú ert vanur að skiptast á örfáum orðum við. Einhver býður þér í ferðalag. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Nú er nauðsyn að þú takir af skar- ið og nýtir forystuhæfileika þína. Rökhugsun þín og vilji til þess að hjálpa verða þess valdandi að aðrir virða þig. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ert svo sannarlega í skapandi merki. Mundu að það þarf tvo til að deila og haldir þú aftur af þér verður friður áfram. Hugur þinn er skipulagður og agaður. Stjörnuspá Magnea Aðalgeirsdóttir og Hauk- ur Þórðarson eiga sextíu ára brúð- kaupsafmæli í dag, 19. apríl. Þau gengu í hjónaband í Keflavík sum- ardaginn fyrsta. Þann dag var mik- il ófærð á Suðurnesjum og var erf- iðleikum háð að sækja prestinn sem bjó á Útskálum í Gerðahreppi. Magnea og Haukur eyða deginum með fjölskyldu sinni. Demantsbrúðkaup

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.