Morgunblaðið - 19.04.2011, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
E
vgenia Ilyinskaya er
mikill íþróttagarpur.
Hún stundaði dokt-
orsnám í Cambridge
þar sem hún komst í
úrvalslið í róðri og keppti á móti
Oxford í árlegri viðureign liðanna
sem á sér langa sögu. Hún er nú
önnum kafin við að undirbúa sig
fyrir hálfan Járnkarl sem hún mun
takast á við í sumar.
Stífar æfingar
„Ég æfði listskauta þegar ég
var yngri en byrjaði að æfa fyrir al-
vöru í háskóla. Ég lauk BS-gráðu
frá London og síðan doktorsnámi í
Cambridge. Ég byrjaði að róa í
London en róðurinn varð að alvöru
í Cambridge þar sem hann er stór
íþrótt. Þar komst ég í úrvalslið þar
sem æft var til að keppa á móti Ox-
ford í árlegri keppni. Róður er
mjög vinsæll á meðal stúdenta en
flestir æfa að gamni sínu. Úrvals-
liðin æfa hins vegar mikið og mað-
ur þurfti að vinna fyrir því að kom-
ast í liðið. Við rérum út á ána fimm
sinnum í viku og önnur sex eða sjö
skipti í viku vorum við inni á róðra-
vélum, lyftum lóðum og stunduðum
jóga. Svo þurfti maður að passa
mataræðið, segir Evgenia.
Lifði fyrir ástríðuna
Hún segir skemmtilegt
kannski ekki vera rétta orðið yfir
þennan tíma. Þetta hafi verið
ástríðan sem hún lifði fyrir þetta og
hugsaði um lítið annað. „Af því að
maður lagði svo mikla líkamlega og
andlega vinnu í þetta þá var þetta
ekkert allt skemmtilegt. Maður
varð oft fyrir vonbrigðum þegar
maður stóð ekki undir væntingum
og þegar illa fór og maður tapaði.
Það var versta áfall og maður
þurfti að vera jafn andlega sem lík-
amlega sterkur,“ segir Evgenia.
Hún segir meiri hefðir vera í kring-
um karlaliðið en það hefur verið til
í ein 150 ár. Konur byrjuðu að róa
1927 en þær máttu þá bara vera í
kjólum og máttu ekki vera úti á
ánni á sama tíma og Oxford og
Cambridge. Dæmt var eftir því
hversu fallega þær réru ekki
hversu fljótar þær voru. Konur
máttu ganga í háskóla en ekki út-
Konur máttu bara
róa í kjólunum
Evgenia Ilyinskaya keppti í úrvalsliði ræðara í Cambridge á námsárum sínum.
Hún starfar nú sem eldfjallafræðingur á Veðurstofu Íslands og æfir sund og stund-
ar hjólreiðar af kappi til að æfa sig fyrir Járnkarlinn í sumar.
Morgunblaðið/Golli
Ánægð Evgenia nýtur þess að fara í Fossvoginn til að hjóla og hlaupa.
Gott lið Kvennaliðið stóð þétt saman gegn andstæðingum sínum í Oxford.
Fátt er betra en að fara í góða
göngutúra í páskafríinu til að
hrista af sér streitu og annir
hversdagslífsins. Þá er um að gera
að kanna nýjar slóðir og til að
finna slíkar er upplagt að fara inn
á vefsíðuna www.ganga.is. Vef-
urinn er samstarfsverkefni Ung-
mennafélags Íslands, Ferða-
málastofu og Landmælinga Íslands
en UMFÍ rekur og hefur umsjón
með vefnum. Á honum er að finna
upplýsingar um 800 gönguleiðir á
Íslandi ásamt áhugaverðum fróð-
leik fyrir göngu- og útivistarfólk.
Gönguleiðirnar eru útlistaðar á
sérstökum kortavef, sem hægt er
að skipta upp eftir landshlutum
eða þysja inn á sérstök svæði. Fyr-
ir utan greinargóðar lýsingar á
styttri og lengri gönguleiðum
bæði á láglendi og upp á fjöll, eru
merktar inn á kortavefinn sund-
laugar, tjaldstæði, neyðarskýli,
heilsugæslur og golfvellir svo fátt
eitt sé nefnt.
Þá eru á síðunni fréttir úr heimi
göngufólks og útivistar, sagt er
frá verkefninu Fjölskyldan á fjallið
sem á að hvetja fjölskyldur til
fjallgangna, finna má umfjöllun
um náttúrusvæði og þjóðgarða og
svo mætti lengi telja.
Hreint frábært framtak sem
ætti að gefa hverjum sem er nýjar
hugmyndir að því hvernig njóta
má útivistar og hreyfingar á ein-
faldan, ódýran og skemmtilegan
hátt.
Vefsíðan www.ganga.is
Morgunblaðið/Kristinn
Gönguferð Hressandi ganga er góð fyrir líkama og sál.
Viðamikill kortavefur um
gönguleiðir
Það er ótrúlega mikil stemning sem
fylgir því að mála á hænuegg í að-
draganda páska og því tilvalið að
nota rólegu dagana í dymbilvikunni
til þess arna. Skemmtilegast er auð-
vitað að blása út úr eggjunum áður
en hafist er handa við skreytingarnar
þannig að þau verði fislétt og upp-
hengjanleg sem skraut á eftir.
Í raun krefst blásturinn ekki mik-
illar kúnstar heldur gera menn lítil
göt, hvort í sinn enda eggsins, og
blása í annað þeirra. Svo má
skemmta sér við að sjá þann sem
blæs eldroðna og tútna út í framan
við áreynsluna.
Þeir sem ekki treysta sér í slíkar
æfingar geta einfaldlega harðsoðið
eggin áður en þau eru máluð en þá
þarf að sjálfsögðu að geyma þau í ís-
skáp á eftir.
Málningargræjurnar þurfa ekki
heldur að vera mikilfenglegar; lítill
vatnslitakassi og tússlitir duga prýði-
lega og svo er bara að láta ímynd-
unaraflið ráða við skreytingarnar.
Endilega …
… málið á egg með börnunum
Fjölskyldugaman Það er notaleg stund fyrir páskana að mála saman á egg.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Skráning þátttakenda í Jökulsárhlaup
2011 er nú hafin á vefsíðunni www.jo-
kulsarhlaup.is/skraning-2011. Hlaupið
er nú haldið í áttunda sinn en það hef-
ur verið hlaupið á hverju sumri frá
árinu 2004. Sú breyting verður á að
nú er fer Jökulsárhlaup fram 6. ágúst,
helgina eftir verslunarmannahelgi en
ekki fyrir líkt og venjan hefur verið.
Þessi nýbreytni ætti að nýtast þeim
vel sem vilja einnig hlaupa Laugaveg-
inn þar sem nægur tími verður nú til
hvíldar milli hlaupa.
Hámarksfjöldi þátttakenda
Jökulsárhlaupið 2010 var fjölmenn-
asta utanvegahlaup landsins en þá
voru 360 þátttakendur skráðir í hlaup-
ið. Í ár verður settur hámarksfjöldi
þátttakenda við 350 hlaupara. Það er
því um að gera að skrá þátttöku sem
fyrst. Gjald fyrir hlaupið er það sama
og í fyrra og er 4.000 kr. afsláttur af
skráningargjaldi fram til 14. júní.
Hlaupið er með sama sniði og und-
anfarin ár. Boðið er upp á þrjár mis-
munandi vegalengdir svo allir geti
fundið eitthvað við sitt hæfi. Dettifoss
– Ásbyrgi er 32,7 km., Hólmatungur –
Ásbyrgi er 21,2 km og Hljóðaklettar –
Ásbyrgi er 13,2 km.
Jökulsárhlaupið fer fram í stórkost-
legu umhverfi Jökulsárgljúfra í Vatna-
jökulsþjóðgarði. Hlaupið hentar hvort
sem er reynslumiklum langhlaupurum
og þeim sem vilja takast á við ut-
anvegahlaup í fyrsta sinn. Óhætt er að
segja að þessi hlaupaleið eigi engan
sinn líka hvað varðar umhverfið. Öll
leiðin liggur um stígakerfi þjóðgarðs-
ins. Hlaupið er um hrjóstruga mela og
grófar klappir, eftir moldargötum í
grónu landi og eftir göngu-/fjárgötum
í gróskumiklum birkiskógi. Lokaleggur
allra leiðanna liggur meðfram barmi
Ásbyrgis, þeirri náttúrusmíð sem talið
er að Jökulsáin hafi grafið í miklum
hamfarahlaupum.
Jökulsárhlaup
Skráning þátttakenda hafin