Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS VALDIMARSSON,
Kleppsvegi 62 ,
áður til heimilis að Rauðalæk 23,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 9. apríl, verður jarð-
sunginn frá Laugarneskirkju miðvikudaginn
27. apríl kl. 11.00.
Valdemar Steinar Jónasson, Unnur Kristinsdóttir,
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson, Davíð Nóel Jógvansson,
Arndís Reynisdóttir,
Hrólfur Þór Valdemarsson, Valdís Karen Smáradóttir,
Hilda Valdemarsdóttir, Birgir Már Björnsson,
Steinar Smári Hrólfsson,
Þóra Dís Hrólfsdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, lang-
afi og langalangafi,
SIGURÐUR STURLUSON
frá Þverdal, Aðalvík,
Faxabraut 13–15,
Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi föstu-
daginn 15. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 27. apríl
kl. 13.00.
Kolbrún Sigurðardóttir,
Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir,
Hansína Sigurðardóttir, Pétur Jónsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SKÚLI MARTEINSSON
vaktmaður,
Háaleitisbraut 18,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstu-
daginn 15. apríl.
Útför hans fer fram frá Grensáskirkju miðvikudaginn 27. apríl
kl. 15.00.
Valgerður Skúladóttir, Sigurður Gunnarsson,
Georg Páll Skúlason, Linda Ósk Sigurðardóttir,
Marteinn Bergþór Skúlason, Hrefna Jóhannsdóttir,
Fjölnir Daði Georgsson,
Daníel Gauti Georgsson,
Katrín Lára Sigurðardóttir,
Kristín Þóra Sigurðardóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐBJÖRG ÞÓRHALLSDÓTTIR,
áður til heimilis á Kirkjuvegi 1,
Keflavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi
föstudaginn 15. apríl, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 27. apríl kl. 15.00.
Þórdís Þormóðsdóttir, Karl Steinar Guðnason,
Úlfar Þormóðsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Hrönn Þormóðsdóttir, Hallbjörn Sævars,
Logi Þormóðsson,
Anna Björg Þormóðsdóttir, Erling Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra,
RAGNARS GEORGSSONAR,
skólastjóra og forstöðumanns
Skólaskrifstofu Reykjavíkur.
Rannveig Magnúsdóttir,
Steinunn B. Ragnarsdóttir, Hans Gústafsson,
Brynhildur Björnsdóttir, Helgi Gunnarsson,
Ragnar Logi, Arent Orri, Steinunn Thalía,
Gerður Tinna.
Hjartfólginn eiginmaður minn
GYLFI GUNNARSSON
endurskoðandi
lést á heimili sínu að Hlíðarbakka, Fljótshlíð
þann 21. apríl sl.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigurlín Sveinbjarnardóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi
SVEINN GÍSLASON
vélstjóri
frá Hvanneyri, Vestmannaeyjum,
lést á Landspítalanum laugardaginn 23 apríl.
Auður Brynjólfsdóttir,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGURLAUG STEINUNN
GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Jörfa, Víðidal,
sem lést af slyförum 19. apríl verður
jarðsungin frá Víðidalstungukirkju
föstudaginn 29. apríl kl. 13:00.
Jóhannes Ragnarsson,
Hjalti Jóhannesson, Ingunn Lena Bender,
Guðmundur H. Jóhannesson, Goretty Dias,
Ægir Jóhannesson, Stella Levy,b
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurbjörg eða Begga eins og
hún var alltaf kölluð á Íslandi var
fædd í Bárðarbúð, Hellnum,
Snæfellsnesi.
Árið 1944 kynnist Begga eig-
inmanni sínum, Walter G. Far-
rell, d. 1993, en hann þjónaði her-
þjónustu fyrir Bandaríkjaher á
Íslandi í heimsstyrjöldinni síðari.
Þau giftust í Reykjavík og árið
1945 fæddist þeim dóttir sem
fékk nafnið June. Begga fluttist
með eiginmanni sínum og dóttur
til Bandaríkjanna í lok árs 1945.
Fyrstu fjögur árin bjuggu þau í
Elisabeth NJ en árið 1949 fluttu
þau til Garwood sem varð þeirra
framtíðarheimili.
Árið 1959 fæddist þeim önnur
dóttir sem fékk nafnið Kristín L.
Sigurbjörg Fjóla
Farrell
(Kristjánsdóttir)
✝ SigurbjörgFjóla Farrell
(Kristjánsdóttir)
fæddist 15. desem-
ber 1920. Hún lést
25. mars 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Kristján
Brandsson og
Kristjana Þorvarð-
ardóttir, systkini
voru Leifur, f.
1923, Kristinn G., f.
1925, og Kristín L., f. 1928. Þau
eru öll látin.
Sigurbjörg Fjóla giftist Wal-
ter G. Farrell, d. 1993. Dætur
þeirra eru June og Kristín L., d.
2006.
Útför Sigurbjargar Fjólu hef-
ur farið fram.
en hún lést 2006.
Begga og Walter
áttu yndislegt heim-
ili þar hlúð var að
öllu, dæturnar döfn-
uðu og voru auga-
steinar foreldra
sinna. Walter hugs-
aði og sá vel um fjöl-
skylduna og ekkert
skorti svo þeim liði
öllum vel.
Begga hafði unun
af ferðalögum, hún fór um nokk-
ur ríki Bandaríkjanna, til Evrópu
og margar ferðir til Íslands til að
heimsækja ættingja og öll eigum
við yndislegar minningar um
þessa frænku okkar.
Dóttir Beggu og Walters,
June, á yndislega fjölskyldu, eig-
inmaður hennar er James V. Gu-
erriero og eiga þau börnin Lynn,
Lísu, og James. Lynn á tvo
drengi, Michael og John, en eig-
inmaður hennar er Craig.
Guð blessi minningu frænku
minnar Sigurbjargar Fjólu.
Kristján Hafsteinn Leifsson.
✝ Stefán Sig-urdórsson
fæddist í Götu í
Hrunamanna-
hreppi hinn 26.
apríl árið 1920.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 14. apr-
íl 2011.
Stefán var sonur
hjónanna Sig-
urdórs Stefáns-
sonar, bónda í Götu, f. 11. febr-
úar 1891, d. 22. júlí 1970, og
Katrínar Guðmundsdóttur hús-
freyju, f. 22. október 1895, d. 22.
maí 1976. Systkini hans voru
Sigurgeir, f. 18. desember 1915,
d. 19. júní 2010, Guðfinna, f. 5.
september 1921, d. 31. desember
2003, Guðmundur, f. 5. sept-
ember 1921, d. 10 desember
2004, Ágústa, f. 23. ágúst 1923
og 2 barnabörn. 3) Jón Ágúst, f.
23. ágúst 1949, kvæntur Sigrúnu
Högnadóttur og eiga þau 2 börn
og 4 barnabörn. 4) Helga, f. 1.
mars 1955, var gift Sveini Kjart-
anssyni en þau slitu samvistir og
eiga 3 börn og 3 barnabörn.
Stjúpbörn Helgu, börn Sveins,
eru 3 og barnabörnin 6. Fyrir
átti Þórunn soninn Finnboga
Sævar Guðmundsson, f. 29. sept-
ember 1937, sem Stefán gekk í
föðurstað en hann er kvæntur
Sigríði Sigurþórsdóttur og eiga
þau 2 börn og 4 barnabörn.
Stefán ólst upp í Götu í
Hrunamannahreppi þar til hann
var tvítugur en þá lá leiðin í
Bændaskólann á Hvanneyri þar
sem hann var við nám í tvö ár.
Stefán vann síðar hjá Steypu-
stöðini en einnig hjá bróður sín-
um Sigurgeiri sem var með út-
gerð og fiskverkun. Lengst af
vann Stefán þó sem versl-
unarmaður hjá Tékkneska bif-
reiðaumboðinu, sem síðar varð
Jöfur.
Útför Stefáns verður gerð frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 26.
apríl kl. 13.
býr á Eyrarbakka
og Sigurður, f. 1.
júlí 1933 býr í
Hveragerði.
Stefán kvæntist
Þórunni Halldóru
Gísladóttur 4. des-
ember 1943. Þór-
unn fæddist 1. sept-
ember 1917 í Viðey
en hún lést hinn 4.
febrúar 1991. For-
eldrar hennar voru
Svava Sigurðardóttir, f. 27.
ágúst 1881, d. 17. júlí 1959 og
Gísli Gíslason, f. 14. maí 1871, d.
10. desember 1948. Börn Stef-
áns og Þórunnar eru 1) Svavar
Gísli, f. 20. apríl 1944, kvæntur
Dagrúnu Sigurðardóttur og
eiga þau 3 börn og 2 barnabörn.
2) Sigurdór, f. 24. febrúar 1947,
kvæntur Guðnýu Jódísi Stein-
þórsdóttur og eiga þau 3 börn
Stefán Sigurdórsson tengda-
faðir minn til 30 ára er látinn 91
árs að aldri.
Mig langar til að minnast hans
í nokkrum orðum um leið og ég
þakka honum góð kynni þessi 30
ár. Það verður töluvert mikið
tómlegra þegar hann er farinn
frá okkur. Engar verslunarferðir
á laugardagsmorgnum klukkan
10. Engar bókaferðir í miðri viku
og ekkert kaffi með súkku-
laðirúsínum í Hæðargarði. Stef-
án bauð alltaf upp á kaffi með
rúsínum þegar við litum inn hjá
honum og passaði að alltaf væru
súkkulaðirúsínur á innkaupalist-
anum þegar farið var í búðina.
Hann var dálítið sérstakur hann
tengdafaðir minn. Allt í kringum
hann var í föstum skorðum og
helst alltaf alveg eins. Tímasetn-
ing framkvæmd og staðsetning
alltaf eins. Hann var svona ljúfur
verkstjóri, mínútumaður með allt
á hreinu til hinstu stundar.
Maður verður hálfmunaðar-
laus um tíma þegar foreldrarnir
kveðja og þannig verður það
núna hjá okkur úr Fífuselinu. Við
erum verulega þakklát fyrir
þann tíma sem við áttum samleið
með Stefáni gegnum lífið.
Fjölskyldan á góðar minning-
ar frá liðnum árum með föður
tengdaföður og afa.
Takk fyrir okkur, afi,
Sigurður, Halldór Þór,
Svavar og Dagrún.
Fel þú, Guð, í faðminn þinn,
fúslega hann afa minn.
Ljáðu honum ljósið bjarta,
lofaðu hann af öllu hjarta.
Leggðu yfir hann blessun þína,
berðu honum kveðju mína.
(LEK)
Í dag hefði hann afi orðið 91
árs og verður hann jarðsunginn á
afmælisdaginn sinn. Hann var
feginn að fá að fara, sáttur við
sitt og fannst sinn tími kominn.
Afi var mikill húmoristi og alltaf
stutt í hláturinn. Hann var mikið
snyrtimenni og hreifst af litum,
rautt var hans uppáhald, rauður
bíll, peysa eða jakki, afi var alltaf
flottur. Ég man alltaf eftir því
þegar ég var sex til sjö ára að
rembast við að fara handahlaup
og standa á höndum og afi gerði
sér lítið fyrir og fór heljarstökk
án handa og sagði að svona ætti
ég að gera þetta, vá hvað mér
fannst hann flottur. Hann hafði
æft glímu og verið glímukóngur,
hann stundaði sund í mörg ár og
á hverjum morgni var hann
mættur í laugarnar. Hann var
alltaf vel á sig kominn líkamlega.
Takk fyrir allt afi minn, með
þessum orðum kveð ég þig.
Frá öllum heimsins hörmum,
svo hægt í friðar örmum
þú hvílist hels við lín. –
Nú ertu af þeim borinn
hin allra síðstu sporin,
sem þér unnu og minnast þín.
(Einar Ben.)
Þín
Laufey.
Ég man eftir að hafa verið
mikið hjá afa Stebba og ömmu
Lóu sem strákur og gisti ég oft
hjá þeim. Afi Stebbi var söng-
elskur maður og kenndi mér
mikið af vísum og kvæðum sem
við sungum saman. Einnig
kenndi hann mér, hvað lestur
góðra bóka er góð skemmtun, en
sjálfur var hann fluglæs 5 ára
gamall.
Þegar afi kom heim í hádeg-
ismat úr vinnunni, hljóp ég á
móti honum niður götuna og fékk
að sitja í síðustu 200 metrana og
sagði ég honum hvað væri í mat-
inn og hvað við amma hefðum
gert þann morguninn.
Mér er minnisstætt að hafa
farið með honum nokkrum sinn-
um í sund í Laugardalslauginni,
eins og hann gerði á hverjum
morgni í fjöldamörg ár. Þar var
mætt um það bil 10 mínútum áð-
ur en opnað var og var þar hópur
af fólki, sumir voru byrjaðir að
losa bindin og hneppa frá skyrt-
unum, til að vera fyrstir út í laug
og að sjálfsögðu átti hver sinn
skáp.
Við afi fórum í marga göngu-
túrana um Bústaðahverfið og var
hitaveitustokkurinn genginn
fram og aftur og þar lærði maður
að ganga rösklega, því afi var
skreflangur maður og var ekki á
neinu rólegheita rölti.
Við fórum í bíltúra og þá oft
upp í Götu að heimsækja Stebba
og Gústu og alltaf þegar við
keyrðum yfir Stóru-Laxá opnaði
hann gluggann og teygaði að sér
hreppaloftið.
Eftir að maður fullorðnaðist
var gaman að koma til afa og
ræða við hann. Hann fylgdist vel
með og var með þjóðmálin á
hreinu og hafði sterkar skoðanir
og mörg góð ráð handa manni.
Sérstaklega var gaman að koma
til hans eftir að strákarnir okkar
Sólveigar, Einar Ernir og Tómas
Vigur fæddust. Hann hafði virki-
lega gaman af því að fá okkur í
heimsókn.
Elsku afi minn, þín verður sárt
saknað og ég veit að amma Lóa
tekur vel á móti þér. Ég vona að
ég verði þeirrar gæfu aðnjótandi
að vera heilbrigður og hraustur
og lifa lengi eins og þú. Minning
þín mun lifa lengi með okkur öll-
um.
Magnús Sveinsson.
Stefán
Sigurdórsson