Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011 Undanfarið hefur verið mikið framboð íbúða ætluðum öldruðum. Stóru hjúkrunarheimilin hér á höf- uðborgarsvæðinu, Eir og Hrafn- ista, bjóða upp á þjónustu- og ör- yggisíbúðir en Grund fyrir 60 ára og eldri. Við í þjónustunefnd LEB höfum verið að skoða þessar íbúðir sem eru hinar glæsilegustu á að líta og haganlega innréttaðar. Þjónustu- og öryggisíbúðirnar eru leiguíbúðir með eða án búsetu- réttar. Afnotaréttargjald eða íbúð- arréttargjald er upphæð sem greidd er í upphafi leigutíma fyrir búsetu- rétt. Leigan miðast síðan við þá upphæð sem greidd er í upp- hafi en innifalið er þjónustugjald eða hús- sjóður. Minnstu íbúð- irnar eru 63 ferm. en þær stærstu 101,0 ferm. Lægsta leiga er 36.644 kr. fyrir 63 ferm. íbúð þar sem búseturéttargjald er 27.750.000 kr. og hef- ur þá verið greitt að fullu. Hæsta leiga er 244.173 kr. fyrir 87 ferm. íbúð þar sem búseturéttur er 37.650.000 kr. en þá eru fimm milljónir borgaðar inn fyrir bú- seturéttinn. Íbúðir fyrir 60 ára og eldri eru frá 79,4 ferm. til 138,6 ferm. Lægsta leiga er 112. 940 kr. fyrir minnstu íbúðirnar og íbúðarrétt- argjald 7.564.102 kr. Hæsta leiga fyrir stærstu íbúðirnar er 218.631 kr. og íbúðarréttargjald 14.770.327 kr. Alltaf er tenging á milli upp- hæðar íbúðarréttargjalds og leigu. Við þetta bætist hússjóður og bíla- stæði eru til leigu í bílakjallara. Einnig er greitt fyrir aðgang að þjónustu. (Verðið er samkvæmt verðskrá sem afhent var á kynn- ingardögum íbúðanna mars-des. 2010). Eftir vangaveltur okkar þjón- ustunefndarinnar komumst við að þeirri niðurstöðu að tilvonandi íbú- ar þessara íbúða verði að vera eig- endur verulega stórra einbýlis- húsa, söluverð venjulegrar blokkaríbúðar myndi duga skammt til að fjármagna búsetu í þessum íbúðum. Ef stefnt er á að fjölga „sjálfborgandi aðilum“ eins og við sáum í framtíðarmark- miðum einhvers staðar verður að gera okkur eldri borgurum kleift að borga fyrir okkur á raunhæfu verði. Verði sem venjulegt eft- irlaunafólk ræður við og getur greitt af meðan því endist heilsa til að nýta þetta búsetuform. Hjúkrunarheimilin Heldur dapurleg staðreynd varðandi aðbúnað heimilisfólks á hjúkrunarheimilum kom fram í rannsókn Ingibjargar Hjaltadóttur um stöðu hjúkrunarheimila gagn- vart gæðaviðmiðum RAI-mats en útkoman var að 1⁄3 kæmi mjög vel út, 1⁄3 viðunandi og 1⁄3 illa út og þarfnaðist aðstoðar. Sérstaka at- hygli vekur í skýrslunni mikil notkun þunglyndis- og svefnlyfja, sem stórlega eykur líkur á byltum heimilisfólks og hátt hlutfall legu- sára. Vonandi verður fljótt og vel unnið að úrbótum hjá þessum heimilum því enginn vill búa eða vita af sínum nánustu við slíkar aðstæður. En óneitanlega vakna spurningar á þessum nið- urskurðar- og uppsagnartímum um fullyrðingar yfirvalda um að þjónustugæði minnki ekki. Í dag nær mönnun varla öryggismörkum og með þessu framhaldi verður ekki komist hjá alvarlegum afleið- ingum bæði fyrir heimilisfólk og starfsfólk. Nýjar kenningar í hug- myndafræði hjúkrunarheimila hafa verið að ryðja sér til rúms und- anfarið, t.d. Eden- hugmyndafræðin og Lev og bo, þar sem áhersla er lögð á að hlúa að andlegri líðan heimilisfólksins og sjálfsákvörðunarrétti, með aukinni þátttöku þess í heimilishaldinu og þar með hafi það áhrif á umhverfi sitt, allt eftir getu hvers og eins. Grundvall- aratriðið er að starfs- fólkið starfar inni á heimili fólksins en fólkið býr ekki á vinnustað þeirra. Dýrahald er leyfilegt með samþykki heim- ilisfólks og jafnvel hænur eru úti í kofa. Matjurtarækt er stunduð þar sem því er við komið. En þessi hugmyndafræði geng- ur ekki upp á meðan heimilisfólkið er svipt fjárræði og því eru skammtaðir svokallaðir vasapen- ingar eftir að óskilgreind dval- argjöld eru dregin af lífeyr- isgreiðslum þess. Sömu upphæðar er krafist þrátt fyrir mismunandi aðstæður innan sama heimilis, t.d. einbýli, tvíbýli, lítil eða stór her- bergi. Hvar er greidd sama leiga fyrir kjallaraherbergi eða herbergi með svölum? Grunnhjúkrun ætti að vera greidd af því opinbera en önnur útgjöld greiði heimilismaður sjálfur hafi hann greiðslugetu til. Gera verður kröfu um að þjón- ustusamningar verði gerðir við öll hjúkrunarheimili og fylgt eftir að við þá sé staðið. Flutningur málefna aldraðra Nú stendur fyrir dyrum flutn- ingur málefna aldraðra til sveitar- félaga. Við í þjónustunefnd LEB álítum að áður en að flutningi kemur verði að fara fram gagnger og heildstæð endurskoðun laga um málefni aldraðra. Lögin eru frá 1999 og eru orðin margbætt og breytt, nánast stagbætt. Nú er lag og því tækifæri megum við ekki glopra niður. Spyrja má: Hvers vegna þarf sérlög um málefni aldr- aðra? Er ekki eðlilegast að fella réttindi aldraðra að lögum um fé- lagsþjónustu sveitarfélaga? Mik- ilvægt er að vel sé að undirbúningi staðið þó að flutningi seinki eitt- hvað. Gagnger endurskoðun laga er ekki árlegur viðburður og það er alltaf erfitt að vera vitur eftir á. Búseta og sjálfræði aldraðra Eftir Bryndísi Steinþórsdóttur, Jónu Valgerði Kristjánsdóttur og Ragnheiði Stephensen »… áður en að flutningi kemur verði að fara fram gagn- ger og heild- stæð endur- skoðun laga um málefni aldraðra. Bryndís Steinþórsdóttir Höfundar eru eftirlaunafólk í þjónustunefnd Landsambands eldri borgara LEB. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Ragnheiður Stephensen Á síðastliðnum tveimur áratugum hefur íslenskur al- menningur þurft að horfa upp á glóru- lausa stjórnun þar sem útgerðarmönnum hefur verið sjálfrátt að ýmist selja eða leigja frá sér afla- heimildir sem í raun tilheyra þjóðinni. Ef þessi auðlind hefði verið þjóðarinnar síðustu 20 árin og leigð til útgerða á samkeppn- isgrundvelli hefðu tekjur þjóð- arinnar numið á bilinu 600-800 milljörðum króna að teknu tilliti til kostnaðar í dag við veiðar og vinnslu og svo markaðsverðs. Á ári nemur þessi tala 30-40 millj- örðum króna. Þessar tölur segja okkur hversu mikil tækifæri hafa farið for- görðum og eru hér engar ýkjur hafðar uppi. Það liggur í augum uppi að framlegð greinarinnar er ótrúlega mikil (EBITDA) enda til útgerðir í dag sem leigja til sín aflaheimildir á verði sem nemur rúmlega 2/3 af fisverði og samt komast þær af, með herkjum þó, enda sömu útgerðir múlbundnar í klafa lénsfyrirkomulags sem á sér engan sinn líka í hinum vestræna heimi nútímans. Er þetta búið – eða eru enn tækifæri fyrir íslenska þjóð? Tækifærin eru svo sannarlega enn til staðar. Gerum okkur í hug- arlund að kvótakerfið fari í þjóðaratkvæði og hvað gæti tekið við ef kerfið yrði fellt. Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að ríkið leigi frá sér aflaheimildir með hjálp fiskmarkaðanna. Leigan færi fram á rafvæddu uppboðskerfi fisk- markaðanna sem nær yfir allt landið og fer fram á verald- arvefnum. Leigutakar stæðu fram fyrir því að leigja til sín heimildir á jafnréttisgrundvelli en leigusali væri ís- lenska þjóðin eða hin- ir raunverulegu eig- endur auðlindarinnar. Fiskmarkaðskerfið myndi vinna í verk- töku fyrir okkur öll. Svæðisbinda þyrfti uppboðin til að tryggja jafnan rétt byggða til veiðanna. Eftir leiguna myndu bátar róa til fiskjar en allur afli yrði skyldaður til sölu á fiskmarkaði þar sem hann yrði seldur á hverjum degi til áhuga- samra kaupenda. Greiðslan fyrir kvótaleiguna færi frá fiskmarkaði til ríkissjóðs í hverri viku. Fiskmarkaðir skila af sér af- reiknum (koma í stað reikninga frá útgerð til fiskmarkaða) í dag til útgerða sem selja afla sinn á fiskmörkuðum. Eina sem myndi breytast er að það kæmi frádrátt- arliður fyrir kvótaleiguna á af- reikninginn frá fiskmörkuðunum til útgerðarinnar sem þannig myndu ávallt tryggja fulln- aðargreiðslu til leigusalans (okkar Íslendinga). Kerfi sem þetta myndi einnig tryggja jafnrétti í launamálum sjómanna. Leigan 750 milljónir króna á viku? Getur það verið? Gefum okkur að 5.000 tonn af fiski færu að jafnaði vikulega (ca. 250.000 á ári) í gegnum ímyndaða kvótaleigu fiskmarkaðanna og kvótaleiguverðið yrði að jafnaði 150 kr./kg eða 0,15 milljónir króna pr. tonn. Heildarleigutekjur yrðu því hverjar? 5000 x 0,15 milljónir króna = 750 milljónir króna á viku og 750 milljónir x 52 vikur = 39 milljarðar króna í leigutekjur á hverju ári. Hafa ber í huga að útgerðin og fiskvinnslan er að fá sem nemur 400-500 krónum fyrir þorsk upp úr sjó í dag. Er pláss fyrir 150 króna leigutekjur til ríkisins fyrir hvert kg? Já, að sjálfsögðu! Get- ur þú nú, lesandi góður, ímyndað þér hversu miklum tekjum ís- lensk þjóð hefur orðið af hin síð- ustu ár? Í stað þess að feta þessa leið var auðlindin seld fram og til baka eða leigð til ungra manna sem vildu gerast útgerðarmenn en því miður þeirra vegna – of seint. Einstaklingar og fjöl- skyldur hafa efnast óhóflega mik- ið við sölu aflaheimilda á umliðn- um árum og ekki er sérstökum hæfileikum þessa fólks þar fyrir að þakka, heldur liðónýtu kerfi sem má lýsa sem stærstu mistök- um Íslandssögunnar. En það eru enn tækifæri og því miður virðist eingöngu einn flokkur á Alþingi Íslendinga vilja ná þessum mikilvægu breytingum fram – Samfylkingin. Á meðan hin kraftmikla valkyrja að vestan, Ólína Þorvarðardóttir, berst við íhaldið og fjárglæframennina þá er lítið gert úr henni og fer þar Mogginn gamli fremstur í flokki. Skömm ykkar er mikil – eru þetta skilaboð til þeirra sem vilja viðhalda óhæfu lénsfyrirkomulagi sem gerir ekkert annað en að arðræna íslenska þjóð ár eftir ár. Á meðan þið arðrænið börnin okkar mun aldrei vera friður um þessi mál. Eftir Hjört M. Guðbjartsson »En það eru enn tækifæri og því miður virðist eingöngu einn flokkur á Alþingi Íslendinga vilja ná þessum mikilvægu breytingum fram – Samfylkingin Hjörtur M. Guðbjartsson Höfundur er framkvæmdastjóri og varaformaður atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar. Áframhaldandi lénskerfi eða auknar þjóðartekjur upp á 30-40 milljarða króna? Villt dýr virðast verja mestum hluta tíma síns og orku til að afla sér matar. Svipað hlýtur því að hafa verið hlutskipti veiðimanna forðum og sást þetta hjá frumstæðum þjóðum eins og eskimóum fram á 19. öld. Væri lifað á heitari svæð- um jarðar var maturinn helmingur jarðargróður og restin úr dýraríkinu. Vil- hjálmur Stefánsson, landkönn- uður, sýndi fram á að unnt væri að lifa svo til eingöngu á kjöti, sem hann gerði í 9 ár að hætti eskimóa. Fólk á norðlægum slóð- um þurfti þó að gera sérstakar ráðstafanir með matinn til að lifa af veturinn. Á Íslandi gegndi mjólkursýran t.d. þessu hlutverki allt fram á þennan dag. Hér er það varðveisla vítamína og stein- efna sem var mikilvægust. Fyrir um 10 þúsund árum byrj- aði akuryrkja og að halda húsdýr. Nú breyttist fæðan í líklega 90% úr jurtaríkinu og 10% úr dýrarík- inu að talið er. Aðgengi matar varð stöðugra og menn gátu farið að nota heilann til annars en að afla bara viðurværis. Þetta er upphaf siðmenningarinnar. Með iðnbyltingunni og borgarmenn- ingunni fá fleiri og fleiri kost á að leggja menningunni lið. Fólk fer að treysta á verksmiðjuunninn mat og ein þessara vara er hvíti sykurinn sem er orðinn sam- félagsvandamál í þróuðu lönd- unum. BNA er með meðalneyslu 209 g á dag og mann og litla Ís- land er hæst í Evrópu. Þetta er ný afurð í sögu mannsins. Að vísu þurfum við glúkósa sem er helm- ingur hvíta sykursins, en hann getur líkaminn líka gert úr fitu og prótíni. Talið er að fyrrum hafi neysla akuryrkjuþjóða verið allt að 300 g glúkósi, en hinn helmingur hvíta sykursins, fúk- tósinn, bara um 8 g. Nú er frúk- tósinn orðinn 10-12 sinnum meiri og á líkaminn í vanda með að brjóta hann niður, en breytir hluta hans í kólesteról. Það er því ekki fitan sem þarf að óttast enda hefur hún verið okkur lífs- nauðsynleg sem orku- og bygg- ingarefni hér á norðurhjara. Ef við lítum okkur nær þá virð- ist hafa verið nægt aðgengi mat- ar á fyrstu öldum búsetu á Ís- landi enda unnu þrælar í byrjun og svo ánauðugt fólk að mataröfl- uninni. Þá sinntu höfðingjarnir menningu okkar sem reis hvað hæst enda erfitt að hugsa sér Snorra Sturluson í vinnu við mat- arframleiðslu. Eftir að loftslag kólnaði á 11. öld fór að bera á hungursneyð og smán saman fór líf fólks að snúast um að lifa af sökum fæðuskorts og lítill tími til annars. Nú urðu litlar menningar- framfarir um aldir og ekki hjálp- aði trúarlífið og erlend kúgun upp á. Við þetta bættust stór eld- gos með tilheyrandi vandræðum með húsdýr og jarðrækt og þar með fæðuöflun. Fólksfjöldinn reyndist um aldir 60-80 þúsund og mannfellir oft mikill. Er fiskveiðar, fyrst útlendinga og síðar Íslendinga sjálfra, hófust að ráði á 18. öld fór matarfram- boðið að aukast og um 1900 eru enn 90% landsmanna bændur og íbúatalan undir 100.000. Með betra aðgengi matar og meiri frí- tíma fer menningin aftur að blómstra. Það er því skilyrði blómlegrar menningar að sem minnstur tími fari í að sjá sér fyrir nauðþurftum og vonandi að núverandi ástand standi sem styst. PÁLMI STEFÁNSSON, efnaverkfræðingur. Frá Pálma Stefánssyni Pálmi Stefánsson Yfirlit sögu fæðu og menningar Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.