Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011 Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Í næsta mánuði kemur út hjá JPV útgáfu skáldsagan Sláttur, en hún er fyrsta bók Hildar Knútsdóttur. Hildur er 26 ára og vinnur sem texta- og hugmyndasmiður á aug- lýsingastofunni Pipar/TBWA. Að- alpersóna bókarinnar er Edda, tutt- ugu og fjögurra ára Reykvíkingur sem fór í hjartaskipti fyrir fimm ár- um. Hún reynir að hugsa sem minnst um framtíðina því tölfræðin sýnir að hjartaþegar lifa ekki alltaf lengi. En hún er forvitin um fyrri eiganda hjartans og er sannfærð um að ýmislegt hafi fylgt því. Stundum veit hún jafnvel ekki hvað tilheyrir henni sjálfri og hvað hún fékk með hjartanu. Skemmtilegt að skrifa Þegar Hildur er spurð hvaðan hún hafi fengið hugmyndina að skáldsögunni segir hún: „Ég rakst á grein um bandaríska könnun þar sem kom fram að líffæraþegar vildu síður þiggja líffæri úr morðingjum sem teknir væru af lífi. Þar kom líka fram að þónokkur hluti líffæraþega telur sig hafa fengið eitthvað auka- lega með líffærunum. Mér fannst þetta áhugavert og fór að lesa mér til um þessi efni. Bókin sprettur svo upp af þessum vangaveltum og svo fjallar hún líka um ýmislegt annað sem ég vil helst ekki gefa upp að svo stöddu. Það var ótrúlega gaman að skrifa bókina. Ég var líka fljót að því, ekki nema tvo eða þrjá mánuði með fyrsta uppkast. Þetta kom næstum því eins og af sjálfu sér, eig- inlega alveg áreynslulaust, eins og ég væri að rifja söguna upp frekar en að semja hana. En aftur á móti tók svo svolítið meira á að endur- skrifa hana, fara yfir hana aftur og aftur og laga og breyta. Ætli það megi ekki segja að mér finnist skemmtilegt að skrifa en svo aftur minna skemmtilegt að endurskrifa.“ Slæm gagnrýni betri en engin Er þetta dramatísk bók? „Þetta er dramatískt efni og sennilega er bókin líka dramatísk á vissan hátt, en annars finnst mér erfitt að lýsa henni. Ég stend svo nærri henni sjálf.“ Hildur, sem er með BA-próf í rit- list og bókmenntafræði sem auka- fag, segist hafa skrifað nokkrar skáldsögur áður en þá einungis fyrir skúffuna. Hún hefur dvalið mikið í útlöndum þar sem hún hefur notað tímann til að skrifa, en hún hefur Gaman að sjá hvað gerist  Hildur Knútsdóttir er nýr rithöfundur  Sendir frá sér skáldsöguna Sláttur  Verkið fjallar um unga konu sem fór í hjartaskipti og er forvitin um fyrri eiganda hjartans  Önnur skáldsaga í fæðingu Morgunblaðið/Kristinn Hildur Knútsdóttir „Þetta er dramatískt efni og sennilega er bókin líka dramatísk á vissan hátt, en annars finnst mér erfitt að lýsa henni.“ meðal annars ferðast um latnesku Ameríku, búið veturlangt í Berlín og dvalið í eitt ár í Taívan þar sem hún lærði kínversku við Cheng Chi- háskólann í Taipei. „Ég hafði mjög góðan tíma til að skrifa í Taívan,“ segir hún. „Þegar ég var hér heima í menntaskóla vann ég alltaf mikið með skóla og hafði lítinn tíma aflögu til að skrifa, en í Taívan var ég á styrk og bara með stúdenta-visa svo ég mátti ekki vinna með námi og þá hafði ég mikinn tíma til að skrifa. Þegar maður er kominn til útlanda þar sem maður þekkir ekki margt fólk er heldur engin fjölskylda til að heimsækja, engin matarboð, afmæli og fermingarveislur sem maður verður að fara í, þannig að maður fær allt í einu helling af tíma sem maður hafði ekki áður og ég nýtti tímann til að skrifa.“ Hvernig tilfinning er það að vita af því að bók er að koma út eftir mann? „Það er mjög skrýtin tilfinning. Ég skrifaði undir útgáfusamning- inn í maí í fyrra og svo er eitt og hálft ár síðan ég skrifaði bókina, þannig að fæðingin hefur verið löng. Ég hlakka bara mikið til þeg- ar bókin er kemur loksins út og við- brögð koma við henni. Ég hef verið svo lengi ein að garfa í henni að það verður gaman að sjá hvað gerist. Það versta sem ég get ímyndað mér er að bókin komi út og enginn segi neitt. Ég held að slæm gagnrýni geti verið betri en engin gagnrýni.“ Ný skáldsaga í smíðum Spurð um eftirlætisrithöfunda sína segir Hildur: „Ég hef gaman af alls konar bókum. Ég elskaði Isabel Allende þegar ég var yngri og sömuleiðis John Irwing, Charles Dickens og Jane Austen. Ingibjörg Haraldsdóttir er uppáhalds- ljóðskáldið mitt og ég les allt eftir Steinunni Sigurðardóttur og Jón Kalman Stefánsson. Svo les ég mik- ið af fantasíum líka og ég er ein- hverra hluta vegna mjög hrifin af unglingabókum.“ Sláttur er ekki eina bókin sem Hildur kemur nálægt þetta árið. Hún heldur úti satíru tískubloggi þar sem alter-egó hennar skrifar. „Lífsstílsbók eftir þetta alter-egó kemur út í haust,“ segir Hildur. „Ég er að leggja lokahönd á handritið, Lóa Hjálmtýsdóttir og Hugleikur Dagsson myndskreyta og Ókeibæ(!) kur gefa út. Svo er ég komin með hugmynd að nýrri skáldsögu og ætla að fara að snúa mér að henni bráðum og sjá hvað kemur út úr því.“ Heimili og hönnun Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Heimili og hönnun föstudaginn 6. maí. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 2. maí Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Í blaðinu verða kynntir geysimargir möguleikar og sniðugar lausnir fyrir heimilin. Skoðuð verða húsgögn í stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi og innréttingar bæði í eldhús og bað. MEÐAL EFNIS: Hvaða litir verða áberandi í vor og sumar? Hönnun og hönnuðir. Sniðugar lausnir á heimilinu. Stofan: sófasett og borð. Eldhúsið: ísskápar, uppþvottavélar, eldavélar, span og gas. Baðið: sturtugræjur og baðinnréttingar. Svefnherbergið: rúm og náttborð. Barnaherbergið: barnahúsgögn. Myrkvunargardýnur. Teppi, mottur, dúkar og parket. Hillur í geymsluna. Þjófavörn. Ásamt fullt af öðru spennandi efni um heimili og hönnun. SÉ R B LA Ð –– Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.