Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011 ✝ Ástríður H.Andersen fæddist í Reykja- vík 4. desember 1918. Hún lést á Landspítalanum 14. apríl 2011. Hún var dóttir hjónanna Helga Hallgrímssonar fulltrúa og Ólafar Sigurjónsdóttur kennara. Systkini Ástríðar voru: Hallgrímur tónskáld, Sigurður forstjóri, Gunnar lögfræðingur og Hall- dór matvælaverkfræðingur. Þeir eru allir látnir. Eiginmaður Ástríðar var Hans G. Andersen þjóðrétt- arfræðingur, f. 12. maí 1919, d. 1994. Þau eignuðust tvö börn, þau eru: 1) Gunnar Þ. Andersen forstjóri, í sambúð með Margréti Kr. Gunn- arsdóttur sérfræðingi. Þau eiga saman Richard Vilhelm, f. 1996. Kona Gunnars var Monica Clasen. Þeirra börn eru: Victoria Ástríður, f. 1976, Tiffany Louise, f. 1982, og Er- ic Ian, f. 1987. Victoria Ást- ríður á drengina Christopher Frimann og Alexander Scott Farrington. 2) Þóra alþjóða- ár í Bandaríkjunum. Hans var fyrst skipaður fastafulltrúi Ís- lands hjá NATO í París 1954 og síðar jafnframt sendiherra Íslands í Frakklandi og einnig fastafulltrúi hjá OECD. Þaðan lá leiðin til Svíþjóðar, síðar Noregs þar sem Ástríður var sendiherrafrú. Þau dvöldu síð- an á Íslandi frá 1970 til 1976 en þá fluttu þau til Wash- ington, D.C. í Bandaríkjunum þar sem Hans var sendiherra í 10 ár þar til hann var skip- aður sendiherra hjá Samein- uðu þjóðunum í New York til 1989. Sem sendiherra í einu landi og með aðsetur í því landi var hann jafnframt sendiherra í mörgum öðrum löndum samtímis. Slíku starfi fylgdu mikil ferðalög þeirra hjóna sem og vegna þáttar Hans í útfærslu landhelgi Ís- lands, þátttöku og síðar for- mennsku í sendinefnd Íslands á Hafréttarráðstefnum Sam- einuðu þjóðanna. Ástríður hlaut riddarakrossinn 1968 fyrir störf í opinbera þágu. Eftir andlát Hans átti Ást- ríður náið vináttusamband, um 10 ára skeið, við fyrrver- andi bekkjarbróður sinn frá námsárunum í Mennta- skólanum í Reykjavík, Hjalta Gestsson ráðunaut, þar til hann lést árið 2009. Útför Ástríðar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag, 26. apríl 2011, og hefst athöfnin kl. 15. túlkur, búsett í Genf, Sviss, gift Roger Schneider verkfræðingi. Börn Rogers eru þrjú. Ástríður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1938. Hún nam málaralist hjá norskum málara, Jörleif Uthaug. Hún hélt margar málverkasýningar bæði erlendis og á Íslandi. Ástríður ólst upp á tónlistar- heimili og var tónlist ætíð stór þáttur í lífi hennar. Hún lærði á píanó í bernsku og lék á það hljóðfæri langt fram eftir ævi. Eftir stúdentspróf fór hún til New York í Bandaríkjunum og vann á skrifstofu aðalræð- ismanns Íslands. Í New York, árið 1945, giftist hún Hans G. Andersen, sem nýlokið hafði þá námi við Harvard-háskóla. Þau fluttu heim og Hans hóf störf í utanríkisþjónustu Ís- lands og starfaði þar til ævi- loka og var Ástríður við hlið hans í utanríkisþjónustunni, erlendis í Evrópu 16 ár og 14 Andlát Ástríðar H. Ander- sen kom mér á óvart þótt hún hefði náð þeim aldri sem meiri- hluti Íslendinga nær ekki. Þessi glæsilega kona var síung í hugsun, fylgdist með flestu og hafði skoðun á öllu sem skipti máli í okkar samfélagi. Ástríður hafði komið víða við á sinni löngu vegferð. Ung ferð- aðist hún um Evrópu og Bandaríkin með vinkonu sinni Sonju Zorrillu eftir stúdents- próf í MR. Síðar vann hún nokkurn tíma í New York. Eft- ir að hún giftist Hans G. And- ersen lögfræðingi og síðar sendiherra varð hennar starf ekki eingöngu starf eiginkonu og móður heldur sendi- herrafrúar, en þeirra störf eru oftast mjög vanmetin. Hans G. Andersen var einn af okkar merkustu sendiherrum, hann var sendiherra á þeim stöðum sem oft mæddi mest á og Ást- ríður stóð þar fast við hlið hans. Fljótlega var hann valinn til að stjórna hafréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna vegna yf- irburða þekkingar sinnar á al- þjóðarétti og landaði því máli með glæsibrag. Ástríður sagði mér að hafréttarmálið hefði reynt mikið á Hans og hana. Ástæða þess að ég tók mér penna í hönd var að ég kynnt- ist ekki Ástríði fyrr en hún kom inn í okkar fjölskyldu um 1996 með eftirminnilegum hætti, en tvo bræður hennar, Gunnar og Sigurð Helgasyni, þekkti ég áður sem góða veiði- félaga. Systur mínar hringdu í mig, höfðu áhyggjur af föður okkar, náðu ekki í hann í síma en vissu af honum í gleðskap með gömlum bekkjarfélögum úr MR, vildu að ég hefði sam- band við lögreglu og að leitað væri jafnvel utan vega. Þetta dularfulla hvarf föður okkar fór allt á betri veg. Hann hitti Ástríði bekkjarsystur sína úr MR, bæði búin að missa maka sína fyrir nokkrum árum. Æv- intýrin gerast enn og róman- tíkin hefur engin aldursmörk. Samband þeirra var mjög gott og náið allt þar til að faðir minn lést um haustið 2009. Faðir minn og Ástríður voru ekki í sambúð en eyddu mörg- um stundum saman, áhugamál- in svipuð, bekkjarfélagarnir, tónlistin, söngurinn, bók- menntir o.fl. Ástríður var mikil lífsfylling fyrir föður minn og hann líka fyrir hana. Það voru farnar margar ferðir innan- lands og erlendis enda vinir víða heim að sækja. Einnig ófáar ferðir í sumarbústað föð- ur míns á Hæli. Þar átti hann fjárhús og fáeinar kindur. Gaman var að sjá Ástríði hjálpa föður mínum við sauð- burðinn, sendiherrafrúin, sem þekkt hafði þrjá forseta Bandaríkjanna, kunni vel til verka, enda áður verið lítil telpa í sveit. Ég vil þakka Ástríði fyrir kynnin, hún var skemmtileg og glæsileg kona en fyrst og fremst var hún góð við föður minn. Blessuð sé minning hennar. Samúðarkveðjur sendi ég börnum hennar og fjöl- skyldum. Ólafur Hjaltason. Nú er látin ágæt frænka mín Ástríður Helgadóttir Ander- sen. Ég hef þekkt Ástu á ýmsu æviskeiði og alltaf virt hennar mannkosti og glæsileik. Ég minnist þess þegar hún átti heima í Gömlu gróðrar- stöðinni innst við Laufásveg- inn. Þangað kom ég í eftir- minnileg jólaboð, þar sem krakkar fóru í ýmsa innileiki. Systir mín Sigþrúður og Ásta voru skólasystur og gengu saman eftir Laufásveginum í Menntaskólann í Reykjavík. Ásta var tíður gestur hjá okk- ur í húsunum við Laufásveg- inn, en einnig kom hún í sum- arbústað okkar við Laxfoss í Norðurá í Borgarfirði. Frá þeim tíma er mér sér- staklega minnisstætt eitt atvik, er við gengum á fjallið Baulu. Vorum við þrjú í ferðinni, því auk okkar Ástu var Guðrún Steingrímsdóttir bekkjarsystir hennar með. Ég hafði frá unga aldri litið upp til þessa ein- stæða fjalls. Á einum heiðskírum sumar- degi héldum við þrjú ríðandi að fjallsrótum og gengum svo upp á Baulu. Við komumst á tindinn, en þar sem við stóðum þarna hreykin á fjallinu, kom allt í einu hópur af fólki, sem hafði gengið upp að norðan- verðu. Eyðilagði þetta nokkuð ánægju okkar af þessari ein- stæðu fjallgöngu. En við vor- um á undan. Og Ásta var fyrst. Ásta var vel að sér í tónlist, eins og hún átti ætt til. Eitt sinn var bekkjarsystkinum mínum boðið til skemmtunar heim á Laufásveginn. Kom Ásta frænka mín þá og lék á flygil fyrir okkur. Á stríðsárunum var ég í Bandaríkjunum og hitti þar Ástu nokkrum sinnum. Þá starfaði hún í íslenska sendi- ráðinu í New York. Þar tók hún meðal annars á móti Ásu Wright frænku minni og öldnum föður hennar, Guð- mundi lækni frá Stykkishólmi, sem fékk að hinkra þar við á meðan Ása var í útréttingum í borginni. Sat Guðmundur þar í sendiráðinu úti við glugga og horfði á skýjakljúfana, og varð þá að orði þessi fræga setning: „Ja, mikið eru þeir nú búnir að byggja hér í Hólminum.“ Þessa perlu greip Ásta á lofti. Ásta kynnist þar Hans And- ersen, giftist honum og varð sendiherrafrú, sem fór víða um heim og gerðist virðulegur fulltrúi Íslands á erlendum vettvangi. Hún studdi við bak- ið á manni sínum við útvíkkun landhelgi okkar Íslendinga og átti þá væntanlega sinn þátt í hve okkur tókst vel í því stríði. Síðar var hún góð vinkona starfsfélaga og kunningja míns Hjalta Gestssonar. Enn ber þess að minnast, að Ásta sat reglulega á fundum í Franska fræðsluklúbbnum ásamt Sig- rúnu konu minni og nokkrum fróðleiksfúsum dömum um franska menningu. Á þessari löngu lífsleið var Ásta jafnan glæsileg og ein- staklega vel að manni gerð. Ég hef alltaf verið hreykinn af Ástu frænku minni, hvort sem hún hefur staðið á Baulutindi eða verið annars staðar í far- arbroddi. Ég og fjölskylda mín send- um afkomendum Ástríðar og vinum samúðarkveðjur okkar. Sturla Friðriksson. Merkiskonan Ástríður And- ersen er gengin. Langar okkur í örfáum orðum að minnast hennar og koma á framfæri þakklæti okkar hjóna fyrir vin- áttuna okkar í millum. Sameig- inlegt barnabarn okkar var oftar en ekki tilefni skemmti- legra samfunda þar sem heimskonan Ástríður gat gert smásamkomu að miklum við- burði. Hún hafði það sem þurfti til þess að sameina ólík- an hóp fólks svo úr varð opin umræða um menn og málefni. Hún lá ekki á skoðunum sínum og setti þær fram af einurð og festu. Hún hafði góðan húmor og var oft á tíðum miðpunktur gleðinnar. Barnabarni sínu, Richard Vilhelm, sem einnig er okkar barnabarn, var hún góð amma og ríkti mikill vinskapur milli hennar og Rikka. Hún sagði gjarnan að hann Rikki gerði allt fyrir sig og hún launaði honum það ríkulega í hlýju og ástúð. Hina opinberu hlið hennar þekktu fleiri þar sem hún starfaði við hlið manns síns fyrir land og þjóð sem sendiherrafrú í mörgum lönd- um og vakti eftirtekt hvar sem hún fór. Við kveðjum mikla heiður- skonu sem átti þátt í að kynna þjóð okkar útávið og var inná- við fjölskyldu sinni mikill leið- togi. Við hjónin sendum Gunnari og Þóru, mökum þeirra, börn- um og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Vilhelmína og Gunnar Sigurðsson. Það er bæði erfitt og auðvelt að skrifa um Ástríði Andersen. Erfitt vegna þess að maður veit ekki hvar á að bera niður, af svo mörgu er að taka, en auðvelt því hún stóð mér svo nærri. Ég ætla líka að segja bara gott um hana vegna þess að ég hef af okkar samskiptum einungis gott að segja. Þau hafa alla tíð verið hnökralaus og eingöngu skemmtileg. Ég bar mikla virðingu fyrir henni og þá virðingu ávann hún sér með framkomu og gerðum við mig og mína. Hún var listamaður, skap- mikil og geysilegur eldhugi, alltaf að framkvæma, og hún var síung og fram í andlátið fylgist hún vel með því sem var að gerast í þjóðlífinu. Hún m.a. kaus í Icesave-kosningunni fimm dögum fyrir andlát sitt. Hún fylgdist með á öllum svið- um lífsins, enda þurfti hún að vera víða vel að sér vegna starfa sem hún sinnti á ævinni. En það var ekki af skyldu sem hún gerði þetta heldur af áhuga á lífinu, hún elskaði lífið með öllum þess litbrigðum og hún kunni að njóta þess. Flest- ir þekktu hana fyrir þau störf sem hún gegndi fyrir land og þjóð um árafjölda á erlendri grund sem sendiherrafrú og eiginkona Hans G. Andersen þjóðréttarfræðings og var þar þekkt af dugnaði. Þessi dugn- aður er meðal þess sem ég dáðist að í hennar fari og ótta- leysið sem maður skynjaði. Skömmu eftir 11. september 2001 áttum við samleið til Bandaríkjanna. Fjölskyldan var komin inn úr vegabréfa- skoðuninni og beið eftir frúnni. Lengi biðum við og var okkur ekki farið að standa á sama. Að lokum kemur hún skelli- hlæjandi en öskuvond til okk- ar. Sagði farir sínar ekki slétt- ar. Hafði verið færð í yfirheyrslu og var skipað á bekk með sakamönnum sem sátu í hlekkjum og hringlaði í keðjunum allt í kringum hana. Hún var þá með diplómat- apassa sem ekki var alveg skv. nýjum reglum landsins. Flestir hefðu verið sem skjálfandi strá þar sem allt var morandi af vörðum brynjuðum vopnum, en hún sá húmorinn í stöðunni, fín frú sitjandi á bekk með hryðju- verkamönnum, vopnasölum og eiturlyfjasmyglurum. Ekki smeyk eitt augnablik. Lífssögu stórbrotinnar manneskju sem Ástríðar verð- ur ekki komið fyrir í lítilli grein. Hún lifði viðburðaríka ævi. Eftir að hún varð ekkja kom nokkurt tóm í hennar líf en átti hún þá því láni að fagna að hitta sálufélaga sinn, fyrr- verandi bekkjarbróður úr MR, Hjalta Gestsson ráðunaut. Með þeim var innileg vinátta fram að andláti Hjalta árið 2009. Ástríður tengdist börnum Hjalta sterkum böndum enda þau einstök í allri framkomu og umhyggjusemi. Ástríður, sem lagði allt upp úr því að njóta lífsins til fulln- ustu, var með fulla meðvitund og skýra hugsun allt þar til hún kvaddi lífið að kvöldi fimmtudagsins 14. apríl á fæð- ingardegi föður síns. Hún hitti mörg fyrirmennin á lífsleið sinni en mesta virðingu bar hún fyrir eiginmanni sínum og föður. Það er eins og örlögin hafi meira að segja beygt sig fyrir vilja hinnar einbeittu konu í lok ferðar hennar hér á jörð. Ástríður átti engan sinn líka. Ég kveð hana með andann fullan af þakklæti fyrir allar samvistirnar og að hafa auðgað líf mitt á svo margan hátt. Margrét Kr. Gunnarsdóttir. Mér er ljúft og skylt að minnast frænku minnar Ástu eins og hún var jafnan kölluð. Ásta og móðir mín Sigþrúður voru æskuvinkonur og skóla- félagar. Vinskapur þeirra hélst alla ævi. Ég minnist Ástu fyrst uppi á Laxfossi þar sem ég sem lítill strákur, dvaldi oft sumarlangt í sumarbústað ömmu minnar. Þangað kom iðulega stórfjölskyldan í heim- sóknir ásamt vinum og kunn- ingjum og var þá oft glatt á hjalla enda amma einstakur gestgjafi. Seinna meir minnist ég ferðalaga með foreldrum mínum erlendis er við heim- sóttum Ástu og Hans bæði í Ósló og Washington. Þar var vel tekið á móti gestum enda þau hjón höfðingjar heim að sækja. Það var vart hægt að hugsa sér glæsilegri fulltrúa Íslands á erlendri grund en þau Ástu og Hans. Og líklega hefur hlutur Ástu í sendiráðs- starfinu verið mikið vanmet- inn, enda var þá talið sjálfsagt að sendiherrafrúr stæðu sína plikt sem Ásta svo sannarlega gerði. En Ástu var fleira til lista lagt. Hún var listfeng og eftir hana liggja mörg falleg abstraktmálverk. Þegar að kveðjustund er komið minnist ég hinnar tryggu vináttu sem ætíð ríkti á milli Ástu og móð- ur minnar, vináttu sem byggð- ist á 19. aldar gildum sem senn hverfa að fullu úr okkar sam- félagi. Ég sendi Þóru, Gunnari og fjölskyldum þeirra mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Andri Arinbjarnarson. Þau hjónin Ástríður og Hans Andersen áttu glæsilegt heimili á Avenue d́Eylau í Par- ís þegar traust vinátta tókst með okkur öllum. Þetta var á 6. áratugnum þá er Hans var sendiherra okkar hjá NATO og OECD en hafði svo sem jafnan næstu áratugina hafréttarmál- in að sínu farsæla aðalverkefni. Heimili þeirra hjóna var hið glæsilegasta og réð þar eins og annars staðar á lífsleið þeirra, hinn frábæri og listræni smekkur Ástríðar. Með árun- um komu hæfileikarnir á sviði myndlistar æ betur fram. Hún málaði gleðirík og litfögur verk, oft sérkennilega kraft- mikil, allt að því explósíf! Það var ánægjulegt að geta stuðlað að sýningu á verkum Ástríðar síðar í Genf en Þorvaldur Skúlason hvatti til þess eitt kvöldið í Reykjavík. Þess mætti geta að málverk vinkonu hennar Nínu Tryggvadóttir áttu jafnan sinn heiðurssess á heimilunum. Þegar kynni okk- ar tókust bjó Nína og eigin- maður hennar Al Copley í Par- ís. Var það vissulega mikill fengur að geta þá kynnst Nínu og einnig eignast listaverk eft- ir hana. Og Ástríður var sönn heims- manneskja. Hún var við störf í New York á stríðsárunum þeg- ar þau Hans felldu hugi saman og giftust. Var frá mörgu að segja af fjölmennu Íslendinga- samfélagi þar í borg á þeim tíma. Síðar gegndi Hans sendi- herrastarfi í Washington í ára- tug og síðan um skeið sem fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Ástríð- ur var því sem á heimavelli þar vestra, en þar með er síður en svo sagan sögð af henni í út- landinu. Máladeild Mennta- skólans í Reykjavík hefur verið henni, eins og mörgum stúd- entinum þaðan, góður grund- völlur til málanáms. Langar dvalir í Frakklandi og Noregi sýndu sig í fullkomnu valdi á þeim þjóðtungum. Einum for- sætisráðherra Noregs var boð- ið í spjallþátt í sjónvarpi með gest að eigin vali. Og það var íslenska sendiherrafrúin sem varð fyrir því vali. En það var hin einlæga vin- átta við Ástríði og Hans meðan hann lifði sem var óbreytt. Öll höfum við þörf á trúnaðarvin- um og hinu tæpitungulausa sem því fylgir og var alltaf hjá þeim Elsu. Hans Andersen féll frá langt fyrir aldur fram. Síð- ar meir urðu þau Ástríður og Hjalti Gestsson félagar hin seinni ár. Það samband var þeim og öðrum til gleði og ánægju. Samúðarkveðjur okkar eru til Gunnars og Þóru, maka þeirra og barna. Elsa og Einar. Merk kona og lífsreynd hef- ur kvatt okkur eftir langa lífs- göngu. Við hjónin kynnumst Ástu er hún hafði látið af öllum umsvifum, orðin ekkja, á fínu máli „sest í helgan stein“, sem hún reyndar aldrei gerði. Hún var síung, fróðleiksfús, var í ræktinni og í tölvunni, var vel heima í menningarlífinu, eink- um tónlist og myndlist, sann- kölluð heimskona. Þar sem ég sit nú hef ég t.d. fyrir augum litaglaða olíumynd eftir hana. Fyrir rúmum áratug endur- nýjuðu hún og tengdafaðir minn, Hjalti, gömul skóla- kynni. Hann var þá líka orðinn einn. Þau komu hvort um sig inn í nýja veröld eftir tómleika og einveru. Bæði héldu sín heimili og sinni reisn en urðu einlægir vinir og nutu saman margra ánægjustunda. Eftir áratuga búsetu Ástu erlendis í hringiðu lífsins, var það undr- unarefni hversu mikinn aðlög- unarhæfileika hún hafði til fá- brotnara lífs. Hún var náttúrubarn og er okkur minn- isstætt að sjá hana þenja sig á töðuvelli með hrífu í hönd í helgidómi Hjalta austur á Hæli, klædd eins og stelpa. Ásta var stórlynd og eftir- minnileg. Hún var ætíð þakk- lát fyrir hvað eina sem gert var með henni í fjölskyldu okk- ar og uppskárum við öll marg- ar gleðistundir. Hún kom í heimsókn í Kópavoginn, við fórum saman í ferðir milli landshluta og oft lágu leiðir saman austur í Hreppum. Ásta og Hjalti nutu í ríkum mæli að dvelja í sumarbústað hans á æskuslóðum. Hún hafði yndi af hestum og var ótrúlega áhuga- söm um kindur vinar síns. Hún náði góðum tengslum við lífs- taktinn þar eystra, einkum þegar horft er til heimsborga- lífsins í París og New York forðum. Nú hafa þau bæði kvatt okk- ur og ákveðinn sterkur tónn í lífi okkar hljóðnaður. Við þökkum henni samfylgd alla og vottum börnum Ástu og fjöl- skyldunni allri okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Ástríðar H. Andersen. Margrét Hjaltadóttir og Kristján Guðmundsson. Ástríður H. Andersen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.