Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011 Sudoku Frumstig 4 3 7 9 8 6 5 8 9 7 7 3 1 8 5 4 3 1 9 5 6 4 6 4 9 3 5 3 9 7 3 6 2 9 3 8 7 2 1 4 1 9 8 6 8 3 7 1 2 8 4 3 1 8 4 7 6 2 5 9 3 6 4 3 8 5 9 4 2 3 8 3 7 5 1 8 6 2 4 3 1 9 5 7 3 1 5 7 9 6 2 4 8 7 4 9 5 2 8 1 3 6 6 8 1 3 5 4 7 2 9 9 5 3 2 6 7 4 8 1 2 7 4 1 8 9 5 6 3 1 2 7 8 4 3 6 9 5 5 3 6 9 1 2 8 7 4 4 9 8 6 7 5 3 1 2 5 9 3 8 1 6 4 7 2 6 7 8 2 9 4 3 5 1 4 2 1 7 5 3 6 9 8 2 1 4 5 8 9 7 6 3 7 8 6 4 3 2 5 1 9 9 3 5 6 7 1 2 8 4 1 4 2 9 6 7 8 3 5 3 5 7 1 2 8 9 4 6 8 6 9 3 4 5 1 2 7 4 3 5 7 2 6 8 1 9 6 8 2 9 5 1 7 4 3 1 7 9 8 3 4 2 5 6 3 9 8 5 4 2 1 6 7 5 2 4 6 1 7 9 3 8 7 6 1 3 8 9 5 2 4 2 4 3 1 7 8 6 9 5 8 1 6 4 9 5 3 7 2 9 5 7 2 6 3 4 8 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 26. apríl, 116. dag- ur ársins 2011 Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I. Kor. 8, 3.) Eins og fram hefur komið í fjöl-miðlum eru íbúar á Kjalarnesi afar ósáttir við fyrirhugaða lokun Sorpu í Grundahverfi en á borgar- stjórnarfundi um miðjan mars var ákveðið að loka endurvinnslustöð- inni. Í nýjasta tölublaði Kjalnesings, fréttabréfs íbúasamtaka Kjalarness, sem út kom á dögunum, segir á for- síðu: „Það er með ólíkindum sem heyrst hefur að nú eigi að hætta móttöku í endurvinnslustöðinni án þess að kynna það fyrir íbúum. Svo virðist sem stjórnendur borgarinnar og Sorpu séu svo gjörsneyddir öllum áhuga á þjónustu við Kjalnesinga að þeir sjái ekki ástæðu til að kynna íbúum hvað þeir eiga að gera við þann endurvinnsluúrgang sem til fellur. Þetta reiðarslag er gjörsamlega á skjön við allar fyrri yfirlýsingar um samráð við íbúana. Við höfum kallað eftir umræðu og teljum að verulega sé hægt að lækka rekstrarkostnað þessarar stöðvar. Aldrei hefur sér- staklega verið farið fram á að halda dósagám og þessi lokun drepur nið- ur þann áhuga sem undanfarið hefur verið byggður upp varðandi meðferð á endurvinnsluúrgangi. Þá hefur Kjalnesingur heimildir fyrir því að innan Sorpu sé áhugi á að loka end- urvinnslustöð Sorpu í Mosfellsbæ.“ x x x Í téðu tölublaði Kjalnesings er líkalýst eftir Vegagerðinni: „Ólíklegt er að einhvers staðar í þessari borg sé jafn ömurlegt ástand á malbikaðri götu eins og á Vallargrund hér í Grundarhverfi. Fyrir þá sem ekki átta sig á því hvaða gata það er þá er það gatan sem fólk ekur börnum sín- um í skólann, leikskólann o.fl. Gatan þar sem fólk þarf að sveigja framhjá þvílíkum holum í veginum að halda mætti að loftárás hefði verið gerð á veginn. Líklegt er að minni bílar og hjólreiðafólk hyrfu með öllu ef þau ækju ofan í eina slíka. Einnig hefur heyrst að Landmælingar Íslands hafi verið að íhuga að skrá þá stærstu sem stöðuvatn, Vallar- grundarvatn!“ Ábyrgðarmaður Kjalnesings er Guðni Indriðason, Laufbrekku. vík- verji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 mjög þykk, 8 út- limur, 9 kjánar, 10 þræta, 11 heitir á, 13 hagnaður, 15 heilnæms, 18 syrgja, 21 ílát, 22 ávöxtur, 23 tortímir, 24 úrsvöl. Lóðrétt | 2 gagnlegur, 3 ýlfrar, 4 kös, 5 grænmetið, 6 eldstæðis, 7 skjótur, 12 reið, 14 sefa, 15 hitta, 16 læsir, 17 brotsjór, 18 grikk, 19 hóp, 20 siga. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skjól, 4 halda, 7 rýkur, 8 ölóði, 9 Týr, 11 káma, 13 etin, 14 kaðal, 15 hopa, 17 lekt, 20 krá, 22 látún, 23 meini, 24 agnar, 25 nælan. Lóðrétt: 1 strók, 2 jukum, 3 lært, 4 hjör, 5 ljótt, 6 afinn, 10 ýfð- ur, 12 aka, 13 ell, 15 hylja, 16 pútan, 18 ekill, 19 teikn, 20 knýr, 21 áman. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 e6 2. Rc3 c5 3. Rf3 b6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 a6 6. e4 Bb7 7. Be3 d6 8. Be2 Rf6 9. f3 Be7 10. Da4+ Rfd7 11. 0-0 0-0 12. Hfd1 Dc7 13. Dc2 Rf6 14. Hac1 Rbd7 15. Bf1 Hac8 16. Df2 Db8 17. b4 Hfe8 18. a3 Bd8 19. Kh1 Re5 20. Ra4 d5 21. exd5 exd5 22. Rf5 Reg4 23. fxg4 Rxg4 24. Dg1 De5 25. Bd4 Dxf5 26. Bd3 Dh5 27. c5 b5 28. Rc3 Bg5 29. Ha1 Be3 30. Bxe3 Hxe3 31. Re2 Staðan kom upp á Evrópumeist- aramóti einstaklinga sem lauk fyrir skömmu í Aix-les-Bains í Frakklandi. Franski stórmeistarinn Tigran Ghar- amian (2.650) hafði svart gegn Rúss- anum Nikolay Maevsky (2.342). 31. … Hh3! og hvítur gafst upp enda óverj- andi mát, t.d. eftir 32. gxh3 d4+ 33. Dg2 Dxh3! Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Smolen-sagnvenjan. Norður ♠ÁKG52 ♥G1084 ♦G103 ♣Á Vestur Austur ♠98 ♠D106 ♥753 ♥62 ♦K754 ♦D982 ♣G1097 ♣K853 Suður ♠743 ♥ÁKD9 ♦Á6 ♣D642 Suður spilar 6♥. Lítum til norðurs. Hvernig á hann að svara opnun makkers á grandi? Bandaríkjamaðurinn Michael Smo- len (1940-92) þróaði þægilega aðferð til að eiga við slíkar hendur – geim- kröfuspil með 5-4 í hálitunum. Fyrst er spurt um hálit með Stayman, en ef sú leit skilar engum árangri stekkur svarhönd næst í þrjá í styttri lit sín- um. Norður byrjar því á 2♣ og hyggst svo segja 3♥ við 2♦. En hér sýnir suður sýnir hjartalit og þá tekur norður stefnuna á slemmu. Útspilið er ♣G. Samgangurinn er þungur. Sagnhafi þarf að trompa lauf tvisvar í borði og jafnframt að fríspila spaðann. Ým- islegt kemur til greina, en líklega er best að gefa einfaldlega strax slag á spaða! Þá leysist framhaldið af sjálfu sér. 26. apríl 1944 Gamall öskuhaugur kom í ljós þegar verið var að grafa fyrir húsi við Tjarnargötu í Reykja- vík. Þar fundust bein úr svín- um, geirfugli og fleiri dýrum. Jafnvel var talið að þetta hefði verið öskuhaugur Ingólfs Arn- arsonar. 26. apríl 1951 Fjörutíu daga Vatnajök- ulsleiðangri Íslendinga og Frakka lauk. Farið var um jökulinn á „skriðbíl,“ þykktin mæld og flutt efni í skála. „Til þess að ráða gátur Vatnajök- uls til hlítar þarf miklar og vandaðar rannsóknir,“ sagði Jón Eyþórsson leiðang- ursstjóri í samtali við Morg- unblaðið. 26. apríl 1966 Akraborg kom í síðasta sinn til Borgarness. Þá hafði áætl- unarferðum með skipum milli Reykjavíkur og Borgarness verið haldið uppi í hálfan átt- unda áratug. 26. apríl 1979 Ríkisstjórnin samþykkti að heimila umtalsverðar hækk- anir á opinberri þjónustu. Áburður hækkaði um 52%, rafmagn um 30%, heitt vatn um 20-30%, fargjöld stræt- isvagna um 25% og sement um 23%. 26. apríl 1991 Sorpa, móttöku- og flokk- unarstöð Sorpeyðingar höf- uðborgarsvæðisins í Gufunesi, var formlega tekin í notkun. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Þetta var ansi óvænt. Núna í hádeginu leiddu eiginmaður minn og dæturnar mig út í bíl með bundið fyrir augun og sjálf lét ég mér detta í hug að fara ætti í Bláa lónið enda sögðu þau mér að taka sundfötin með. Í þessum blindingsleik fórum við í bíltúr um borgina uns ég var leidd inn í hús heima hjá systur minni þar sem vinir og ættingjar voru saman komnir, alls um þrjátíu manns,“ segir Sigurlaug Bragadóttir, sem er fimmtug í dag. Sigurlaug var enn í afmælisboðinu góða þegar Morgunblaðið náði tali af henni síðdegis í gær. „Þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt. Góð- ar veitingar og fallegar gjafir. Allt hefur þetta komið mér mjög á óvart,“ segir Sigurlaug sem starfar sem skrifstofumaður á fjár- málasviði Skýrr – en hún hefur unnið hjá því fyrirtæki og fyrirrenn- urum þess sl. átta ár. Hún er fædd og uppalin norður á Sauðárkróki; en rætur hennar liggja í Skagafirði og vestur á Snæfellsnesi. Hún fluttist á barnsaldri frá Króknum suður í Borgarnes og þaðan til Reykjavíkur. Eiginmaður Sigurlaugar er Ólafur Hauksson, ráðgjafi í almanna- tengslum, og eiga þau tvær dætur; Tinnu og Hildi. sbs@mbl.is Sigurlaug Bragadóttir er fimmtug í dag Í boð með bundið fyrir augu Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 26. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 0.58 3,0 7.28 1,3 13.37 2,7 19.54 1,4 5.18 21.34 Ísafjörður 3.07 1,6 9.45 0,6 15.52 1,3 22.07 0,8 5.09 21.53 Siglufjörður 5.00 1,1 11.33 0,4 18.14 0,9 4.52 21.36 Djúpivogur 4.19 0,9 10.12 1,5 16.35 0,8 23.17 1,6 4.44 21.07 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Til er starfssvið sem þú myndir virki- lega njóta þín í, ekki eyða tímanum í vinnu sem þér líkar ekki. Þú færð sendingu að ut- an. (20. apríl - 20. maí)  Naut Gerðu umbætur á heimili þínu í dag og leggðu þig fram um að bæta samband sem hefur verið að versna. Manneskja sem verður hugsanlega í lífi þínu næstu árin gæti skotið upp kollinum. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Í dag er ekki rétti tíminn til þess að leita sátta, of skammur tími er liðinn. Smá- samkeppni gæti valdið uppþoti. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú hefur öðlast það tækifæri að fá yfirsýn yfir visst mál og nú er rétti tíminn til að rannsaka það nánar. Einhver þakkar þér fyrir að vera þú. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Tvær manneskjur sem þú elskar þola ekki að vera nálægt hvor annarri. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú stendur í þeim sporum að þér finnst þú hafa gleymt einhverju mikilvægu en getur ómögulega sagt til um hvað það er. Af þeim sökum verður þú að gangast við ábyrgð á því sem þú segir. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það skiptir öllu máli að þú farir vel af stað og náir forskoti. Ekki fresta ákvörðun sem þú þarft að taka. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ímyndar þér að þú getir leyst öll heimsins vandamál með því að íhuga. Mundu að gleypa ekki allt sem sagt er gagn- rýnislaust. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Láttu ekki hugfallast þótt sam- skipti þín og vinnufélaga þinna gangi ekki snurðulaust með öllu. Staða himintunglanna lofar góðu í ástamálunum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert föst/fastur í hinni klassísku togstreitu milli heimilis og starfsvettvangs í dag. Mundu eftir boðorðunum tíu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er allt gott á milli þín og ást- vina. Láttu ekkert trufla þig á meðan þú ferð í frí, þú munt verða sátt/ur við útkomuna. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Taktu pásu í dag. Heimspekilegar vangaveltur og trú annarra vekja áhuga þinn. Breyttu um klippingu, það gefur lífinu lit. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.