Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011 Gildi - lífeyrissjóður Sætúni 1 105 Reykjavík Sími 515 4700 www.gildi.is gildi@gildi.is Á R S F U N D U R Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel, Reykjavík fimmtudaginn 28. apríl kl. 17.00. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Tillögur um réttindabreytingar. a. Um hækkun vegna örorkuframlags. b. Um lækkun vegna tryggingafræðilegrar stöðu. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni, Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum. Reykjavík 12. apríl 2011, lífeyrissjóður Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. 2 0 11 www.gildi.is Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Tugir manna féllu í Sýrlandi í gær þegar herinn réðst gegn mótmæl- endum í borginni Deraa í suðurhluta landsins og í úthverfum höfuðborg- arinnar Damaskus. Fréttir herma að í kringum fimm þúsund hermenn hafi tekið þátt í árásinni á Deraa og hafi notið stuðn- ings að minnsta kosti sjö T-55 skrið- dreka og ónefnds fjölda annarra brynvagna. Talsmenn stjórnarand- stöðunnar segja að meira en tuttugu og fimm manns hafi látið lífið í borg- inni, en þetta hefur ekki fengist stað- fest. Þá eru þrettán manns sagðir hafa fallið í borginni Jabla í norður- hluta landsins. Í frétt AFP er haft eftir sjónar- vottum að hermennirnir hafi skotið í allar áttir með þungavopnum og vél- byssum. Leyniskyttur skjóti einnig á vegfarendur af húsþökum. Þá er sagt að hermenn hafi skotið á vatnstanka á húsþökum svo fólki skorti neysluvatn. Árásin á Deraa er sérstök að því leyti að hingað til hefur einræð- isstjórn Assads forseta ekki beitt skriðdrekum í bardögum sínum við mótmælendur, en í frétt BBC segir að allt bendi til þess að stjórnvöld séu tilbúin að grípa til hvaða aðgerða sem er til að brjóta hreyfingu stjórnar- andstöðunnar á bak aftur. Einræðisstjórnin þurfti síðast að kljást við mótmæli af þessu tagi árið 1982, þegar faðir núverandi forseta sendi hermenn inn í bæinn Hama og er talið að þeir hafi drepið allt að 10.000 manns þar. BBC hefur eftir talsmanni mót- mælenda að stjórnin heyi nú grimmi- legt stríð sem hafi það markmið að út- rýma lýðræðissinnum í Sýrlandi. Á föstudag er talið að 95 manns hið minnsta hafi fallið í Sýrlandi í átökum við her og lögreglu og þá féllu tólf í viðbót á laugardag þegar skotið var á líkfylgdir. Alls hafa meira en 350 manns fallið í Sýrlandi frá því að mótmælin hófust í mars- mánuði. Tveir féllu í Jemen Öryggissveitir forsetans Ali Ab- dullah Saleh skutu tvo mótmælendur til bana og særðu fjölda annarra í Jemen í gær. Mótmælt var víða um landið í gær, eins og verið hefur með hléum frá því í janúar. Mótmælendur krefjast þess að forsetinn fari taf- arlaust frá völdum. Samstarfsráð Persaflóaríkja hefur lagt til áætlun sem felur það í sér að Saleh fari frá völdum innan 30 daga og að honum verði í kjölfarið veitt friðhelgi. Mótmælendum hugn- ast það ekki og hrópuðu slagorð gegn „böðlinum.“ Bandaríkjamenn hafa hvatt til þess að friðsamlegrar lausn- ar sé leitað. Einn mótmælandi lést og um 30 særðust eftir skotárás í Ibb, suður af höfuðborginni Sanaa, í gær. Í suð- austurhluta landsins var skotið á mótmælendur með þeim afleiðingum að einn þeirra lét lífið. Hundruð manna særðust í átökum víða um landið í gær. Hörð átök í Líbíu Þá féllu tugir manna í fallbyssu- árásum líbíska hersins á borgina Mis- rata um helgina. Stjórnarherinn hef- ur setið um borgina í meira en fimm vikur og fyrir helgi sagði stjórn Muammars Gaddafi að hún hefði gert hlé á aðgerðum. Það hlé stóð ekki lengi því frá þeim tíma hafa borg- arbúar þurft að þola einhverjar hörð- ustu árásir á borgina frá því að átök hófust. Misrata er í vesturhluta Líbíu, en sá hluti landsins hefur að mestu leyti verið í höndum stuðningsmanna Gaddafis. Þess vegna hefur herinn lagt áherslu á að koma í veg fyrir að uppreisnarmenn nái fótfestu í Mis- rata. Mikið tjón hefur verið unnið á borginni og hefur meðal annars nýr spítali orðið fyrir skemmdum. Meðal þeirra sem féllu í borginni um helgina er 10 ára gamall drengur. Silvio Berlusconi, forsætisráð- herra Ítalíu, sagði um helgina að ítalski flugherinn myndi taka þátt í aðgerðum NATO í Líbíu. Hann hafði áður sagt að Ítalía myndi ekki taka þátt í árásum á Líbíu vegna þess að landið hefði um langa hríð verið ný- lenda Ítalíu. Reuters Mótmæli Sýrlendingar mótmæltu stjórn Assads við sendiráð Sýrlands í Amman, höfuðborg Jórdaníu, um helgina. Sýrlenskum skriðdrekum beitt gegn mótmælendum  Hundruð hafa fallið í Sýrlandi og vilji stjórnarinnar til að beita ofbeldi hefur síst dvínað  Mannfall í Jemen  Ítalía mun taka þátt í árásum á Líbíu Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Undanfarnar vikur hefur leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-Il, heim- sótt her- og flotastöðvar og óttast Suður-Kóreumenn að þessar heim- sóknir geti verið merki um að hern- aðaraðgerðir af einhverju tagi séu yfirvofandi. Fjallað er um málið á vefsíðu suðurkóreska dagblaðsins Chosun Ilbo. Vitað er að Kim fór í slíkar heim- sóknir skömmu áður en n-kóreskur kafbátur sökkti s-kóresku herskipi og sömuleiðis áður en norðurkóreski herinn lét sprengjum rigna yfir suð- ur-kóreska eyju í nóvember síðast- liðnum. Í heimsóknunum hefur Kim lagt áherslu á að N-Kórea verði að vera sjálfri sér nóg, en slíkur málflutn- ingur bendir venjulega til þess að stjórnvöld eigi í erfiðleikum með að tryggja sér erlenda aðstoð. Ein af byggingunum, sem Kim heimsótti í síðasta mánuði, er hin svokallaða „bygging númer þrjú“, en í henni er stofnunin sem sér sérstak- lega um aðgerðir gegn S-Kóreu og er talin hafa skipulagt árásina á her- skipið í fyrra. Þá vekur það einnig áhyggjur að n-kóreski herinn hefur undanfarna daga lagt meiri áherslu á að æfa her- menn sína í árásum frá sjó og í stór- skotaliðsárásum. Chosun Ilbo hefur hins vegar eftir öryggissérfræðingi að hugsanlega sé þetta allt saman einfaldlega tilraun til að auka þrýsting á suðurkóresk stjórnvöld í þeirri von að þau taki upp að nýju viðræður við nágrann- ann í norðri. Suður-Kórea ótt- ast fyrirætlanir Kim Jong-Il  Hegðun leiðtog- ans svipuð og var fyrir árásir í fyrra Reuters Leiðtoginn Kim Jong-Il. Afgönsk yfirvöld eru miður sín í kjölfar þess að 476 talibanar sluppu úr fangelsi í Kandahar. Alls komst um þriðjungur allra fanga í fangelsinu burt í gegnum mörg hundruð metra löng göng. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem fangar sleppa úr þessu fang- elsi. Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir afgönsk yfirvöld, sem hafa í auknum mæli tekið við öryggis- gæslu í landinu. Stefnt hefur verið að því að erlendar hersveitir verði með öllu farnar árið 2014. Nokkrir þeirra sem sluppu hafa þegar verið handsamaðir. Hátt í fimm hundruð talibanar sluppu úr fangelsi um helgina Reuters Fangar Holan sem fangarnir flúðu um. Yfirvöld í Íran segjast hafa fundið nýjan tölvuvírus, sem var hannaður til að dreifa sér um stofnanir írönsku ríkisstjórn- arinnar. Vírus- inn, sem kallaður er Stars, er sagð- ur hafa valdið minniháttar skaða. Þetta er önnur tölvuárásin sem gerð er á Íran á innan við ári. Gholam Reza Jalali, yfirmaður varnarmála íraska hersins, segir að það muni taka einhvern tíma að komast að því hvert markmiðið var með hönnun Stars-vírusins. Hann sagði ekkert um hver væri grun- aður um að standa að tölvuárásinni. Í fyrrasumar fannst Stuxnet- vírusinn sem hannaður var til að ráðast á úranvinnslu Írana. Nýr vírus ræðst á íranskar tölvur Her Íranskir her- menn í skrúðgöngu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.