Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.04.2011, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 2011 Atvinnuauglýsingar Málmiðnaðarmenn Óskum eftir að ráða málmiðnaðarmann til starfa nú þegar. Upplýsingar í síma 565 7390. Raðauglýsingar Atvinnuhúsnæði Flottur bar á góðum stað á Spáni Besti tíminn framundan... Nú er tækifærið.Til sölu 180 ferm. bar á Costa Blanca Spáni. Flottur bar á góðum stað, mikið útipláss, miklir möguleikar. Góður leigu- samningur, lág leiga. 2 pool-borð, stór og mikill bar. Verð 10 milljónir. Athuga skipti að hluta. Uppl. í síma 0034-634-034-590. Félagslíf  EDDA 6011042619 I Lf.I.O.O.F. Rb. 1 1604268- M.A.* Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Spádómar ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI – Spámiðill Spái í spil og kristalskúlu Heilunartímar Fyrirbænir Algjör trúnaður Sími 618 3525 www.engill.is Gisting Sumarhús i Flóahreppi til leigu rétt hjá Þjórsábrú. Starplus.is og starplus.info Upplýsingar í síma 899 5863. Þú átt skilið að komast í hvíld! Í Minniborgum bjóðum við upp á ódýra gistingu í notalegum frístunda- húsum. Þú færð 3 nætur á verði 2. Fyrirtækjahópar, óvissuhópar, ættarmót. Heitir pottar og grill. Opið allt árið. Minniborgir.is Gisting á góðum stað. Upplýsingar í síma 868 3592. Sumarhús Sumarbústaðalóðir Eignarlönd til sölu í landi Kílhrauns á Skeiðum, 75 km frá Rvk. í stærðunum 0,5 ha. til 1,1 ha. Hentar vel til gróðursetningar og er með fallega fjallasýn, kalt vatn, síma og þriggja fasa rafmagn að lóðarmörkum, til afhendingar strax, hagstætt verð og góð kjör. Verið velkomin. Hlynur í síma 824 3040. www.kilhraunlodir.is Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Til sölu Evrur til sölu 3% yfir seðlagengi. Sími 857 6711. Ódýr gæðablekhylki og tonerar í prentarann þinn. Öll blekhylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517 0150 Smáratorgi Lágvöruverðsverslun fyrir heimilið Mikið úrval af nýjum vörum. Lægsta verð kr. 290. Gott verð kr. 390. Hæsta verð kr. 690. Augnablik Geisladiskur með lögum við ljóð Hákonar Aðalsteinssonar, flutt af Nefndinni og gestum. Fæst í Hagkaupum, Tónspili, Samkaupum Egilsstöðum og hjá útgefanda í síma 863 3636. Netfang: darara@gmail.com Mbl. 1. febr. ★★★✰✰ ,,Það sem gerir plötur eins og þessar svo mikilvægar er hreinleikinn sem við þær er bundinn og forsendur allar”. Arnar Eggert Thoroddsen Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Skattframtöl Framtöl - bókhald - ársreikningar Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga og rekstraraðila. Mikil reynsla. Einnig bókhald, ársreikn. o.fl. fyrir fyrirtæki. HAGSTÆTT VERÐ. S. 517-3977. www.fob.is Þjónusta Húsgagnahreinsun Eldshöfða 1 Hreinsum flestar gerðir hús- gagna. Stök teppi, rúmdýnur o.fl. Upplýsingar í síma 577 5000 og 892 1460. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Green-house Fallegur danskur vor- og sumar- fatnaður. Af útsöluslá er 2 fyrir 1 og greitt fyrir dýrari vöruna. Kíkið við og fáið bækling. Opið í dag 13-19. Green-house, Rauðagerði 26. Verkfæri Til sölu loftpressa 100 lítra, reimdrifin, ný pressa og 24 lítra notuð loftpressa. upp. í S: 897-3308 Reiðhjól Rafmagnsreiðhjól. Enginn bensínkostnaður, engin trygg- ingariðgjöld, ekkert próf. Kíktu á el-bike.is EL-BIKE, Bakkabraut 4, Kópavogur. Bílaþjónusta                      ! "       #                            !  !!      ! Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, 4WD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '08. 6960042/5666442. Snorri Bjarnason BMW 116i. 8921451/5574975. Visa/Euro. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '11. 8924449/5572940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 8637493/5572493. Húsviðhald Þak og utanhússklæðningar, gler og gluggaskipti. og allt húsaviðhald Ragnar V Sigurðsson ehf Sími 892 8647. Hreingerningar Alhliða hreingerningarþjónusta Hreingerningar – Teppahreinsun – Steinteppahreinsun – Bónvinna – Ræstingar – Meðhöndlun náttúru- steins. Upplýsingar í síma 770-4630. Fagleg og góð þjónusta. Kaupi silfur! Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is – Sími 551-6488. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is ...þú leitar og finnur ✝ ÞorgerðurRagnarsdóttir fæddist á Blöndósi 20. október 1925. Hún andaðist á líknardeild (L5) Landakotsspítala að kvöldi 17. apríl 2011. Maki hennar var Kristján G. Jónasson, búfræð- ingur og húsa- smíðameistari frá Sléttu í Sléttuhreppi, f. 8. apríl 1918, d. 29. nóvember 1992. Börn þeirra eru: Þórhallur Krist- jánsson, bifvéla- virki, fæddur 1954. Björg Krist- jánsdóttir, kven- sjúkdómalæknir í Gautaborg, fædd 1956. Barnabörn Þorgerðar eru Magnús Þór Stephensen, Krist- ján Már Steph- ensen, Anna Gerða Jonäll og Jónas Karl Jonäll. Útför Þorgerðar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag, 26. apríl 2011, kl. 15. Elsku „amma mamma/amma Gerða“, eins og við kölluðum þig, nú ert þú loksins komin til hans afa, sem þú unnir svo heitt. Við vorum litlu kútarnir, prinsarnir og prinsessan og elskurnar þínar, sem þú gerðir allt fyrir. Þú undirbjóst okkur fyrir lífið og framtíðina. Gafst okkur heilræði, hlustaðir ótrauð, leiðbeindir okkur í hví- vetna og hvattir til dáða. Þol- inmæði og þrautseigja var engu lík. Heimili þitt og fjöl- skylda var þér kær og ávallt í fyrirrúmi. Þér tókst með ein- dæmum að samtvinna heimilis- störfin og leik við okkur börn- in. Notalegt var að búa hjá afa og ömmu á sumrin. Hjá ömmu var góð regla á hlutunum. Góður og hollur matur, kaffi með öllu tilheyr- andi, oftast kleinur eða nýbök- uð jólakaka með ískaldri mjólk, var borið á borð og allt- af á tilsettum tíma. Óteljandi ferðir voru farnar í sundlaug- ina og þú þorðir amma að fara í stóru rennibrautina. Við vor- um svo stolt af þér. Um jól kom ávallt stór kassi úttroðinn af ýmsu íslensku góðgæti. Eitt sinn kom til- kynning frá pósthúsinu, „sæk- ið pakkann strax“. Það var harðfiskurinn góði sem olli því. Þú varst frábær amma, svo ljúf og góð og klár í öllu. Nú ert þú alsæl í faðmi afa Krist- jáns. Við kveðjum þig með virðingu og miklum söknuði. Minninguna um þig elsku amma geymum við í hjörtum okkar. Þín ömmubörn, Magnús, Kristján, Anna Gerða og Jónas. Hinn 17. apríl sl. á pálma- sunnudag lést Þorgerður Ragnarsdóttir vinkona mín og móðir bestu vinkonu minnar og æskuvinkonu Bjargar Kristjánsdóttur. Var ég þeirr- ar gæfu aðnjótandi að vera ná- granni þeirra og vinur í ára- tugi, þessi tengsl hafa aldrei rofnað þrátt fyrir að við höfum öll flutt hvert í sína áttina. Þegar ég fer í huganum aftur í tímann í Hlaðbrekkuna þegar við Bogga vorum litlar stelpur þá er það fyrsta sem kemur upp í hugann myndarskapur Þorgerðar, allt var gert af mikilli natni. Það var sama hvar bar niður; allt listilega vel gert hvort sem það var handavinna, matseld, bakstur eða þrif. Þorgerður stóð alltaf fast á sínu, vinnusöm, reglusöm og hafði gaman af góðum sam- ræðum en var jafnframt góður hlustandi, hún var vefnarðar- kennari að mennt. Stundirnar voru ófáar í Hlaðbrekku 18, þar var mikið skrafað og hleg- ið enda fjölskyldan létt og kát. Oft vorum við Bogga ákafar í gleðinni og fengum mörg hlát- ursköstin, minnist ég þess ekki að Þorgerður hafi nokkurn tíma skammað okkur heldur dró hún sig bara í hlé og leyfði okkur vinkonunum að ærslast. Þorgerður var mjög gæfu- söm í lífinu, giftist drauma- prinsinum sínum, þau eignuð- ust tvö börn, Þórhall og Björgu. Barnabörnin eru fjög- ur og er langömmubarn á leið- ini. Þetta er allt mikið mann- kostafólk og fjölskyldan hefur alla tíð verið mjög samrýnd. Að lokum langar mig að þakka þér Þorgerður mín fyrir allar góðu stundirnar í æsku og síðustu stundirnar fyrir andlát þitt, hvatningarorð og hlýhug í minn garð. Þú kvadd- ir sátt og veit ég að Kristján draumaprinsinn þinn tekur vel á móti þér. Elsku Bogga vinkona, Þór- hallur minn og barnabörn guð blessi minningu Þorgerðar Ragnarsdóttur. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. (Tómas Guðmundsson) Kær kveðja Guðfinna (Gussý). Þorgerður Ragnarsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efn- isliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.