Morgunblaðið - 03.06.2011, Síða 36
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 154. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Miður sín vegna myndbands
2. „Hræðileg lífsreynsla“
3. Kvartaði yfir móður sinni
4. Treysta æ meira á foreldrana
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
FM Belfast sendir frá sér plötuna
Don’t want to sleep í dag og verður
hún fáanleg í verslunum um allan
heim. Þetta er önnur breiðskífa sveit-
arinnar en sú fyrri, How to make
friends, kom út árið 2008.
Önnur breiðskífa FM
Belfast kemur í dag
Kristbjörg Kjeld
hlaut í síðustu
viku verðlaun sem
besta leikkona í
aðalhlutverki á
kvikmyndahátíð í
Rússlandi fyrir
hlutverk sitt í
Mömmu Gógó í
leikstjórn Friðriks
Þórs Friðrikssonar.
Um var að ræða alþjóðlegu kvik-
myndahátíðina Polar Lights í Múr-
mansk.
Kristbjörg verðlaun-
uð í Rússlandi
Götuspilarinn geðþekki Jojo hefur
opnað heimasíðu á vefslóðinni sir-
jojo.com. Þar er m.a. að finna heims-
fræga upptöku frá
Strikinu, er hann og
stjórinn sjálfur,
Bruce Springsteen,
renndu sér í gegn-
um ódauðlega smíð
Springsteens, The
River.
Meistari JoJo opnar
nýja heimasíðu
Á laugardag Ákveðin suðvestan- og vestanátt. Léttskýjað á
austanverðu landinu, en skýjað og súld með köflum vestantil. Hiti
8-17 stig. Á sunnudag Snýst í norðan 5-10 m/s. Léttir til sunnan-
og vestanlands, en dálítil rigning á NA- og A-landi fram eftir degi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 8-13 m/s og víða skúrir. Hiti 5 til 15
stig, hlýjast á Austurlandi.
VEÐUR
Víkingar frá Ólafsvík komu
á óvart í gærkvöld þegar
þeir urðu fyrstir til að taka
stig af Skagamönnum í 1.
deild karla í fótbolta á
þessu tímabili. Liðin gerðu
jafntefli, 1:1, í Vesturlands-
slag á Akranesi. Leiknir R.
og Selfoss gerðu líka 1:1-
jafntefli en Grótta, Haukar,
ÍR og Þróttur unnu sína
leiki. ÍA er með 10 stig á
toppnum og Haukar eru
með 9 stig í öðru sæti. »2
Ólsarar sóttu stig
á Skagann
„Danir eru sú þjóð sem okkur langar
hvað mest til að vinna í íþróttum og
þar af leiðandi eru leikir við þá alltaf
svolítið sér á báti,“ segir Ólafur Jó-
hannesson, landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu, en Ísland mætir Danmörku á
Laugardalsvellinum annað kvöld. »4
Danir sú þjóð sem okkur
langar mest að vinna
Íslensku keppendurnir á Smáþjóða-
leikunum í Liechtenstein héldu áfram
að gera það gott í gær. Í sundinu
unnu Íslendingar til tíu verðlauna.
Árni Már Árnason, Ragnheiður Ragn-
arsdóttir og Hrafnhildur Lúthers-
dóttir fengu öll gull og þá vann karla-
sveit Íslands 4x100 metra fjórsund.
Fimm silfurverðlaun komu í hús sem
og ein bronsverðlaun. »1-3
Tíu verðlaun í sundinu á
Smáþjóðaleikunum
ÍÞRÓTTIR
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
„Eitt af því sem kemur mér á óvart er
hversu fýldir íslenskir starfsmenn
eru í þjónustustörfum. Í Japan
myndu viðskiptavinir reiðast slíku
viðmóti. Líklega er ástæðan fyrir
þessu mismunandi viðhorf til vinnu í
Japan og á Íslandi,“ segir Yuta Oda,
japanskur skiptinemi sem kom hing-
að til lands á vegum AFS-samtak-
anna á síðasta ári.
Yuta nam við Flensborgarskólann í
Hafnarfirði og hlaut verðlaun fyrir
góðan námsárangur auk þess að geta
talað og skrifað íslensku með ágæt-
um. „Fyrstu þrjá mánuðina talaði ég
ekki íslensku en gat ávallt bjargað
mér á ensku. Þar sem tólf ára „fóst-
ursystir“ mín talar hins vegar ekki
ensku varð ég fljótari að ná íslensk-
unni. Sjálfum finnst mér ég ekki sér-
staklega góður í íslensku.“
Yuta er einnig góður íþróttamaður
og æfir sund sex sinnum í viku með
Sundfélagi Hafnarfjarðar og hefur
gert allt frá því hann kom til landsins.
Hann er nú staddur á stærsta sund-
móti Evrópu sem haldið er í Dan-
mörku.
Merkilegt að sjá vel til himins
Spurður um reynslu sína hér segir
Yuta að sér hafi þótt mjög merkilegt
að sjá svona vel til himins en háhýsin
byrgja honum nær ávallt sýn í heima-
landinu. „Ég bjóst svo alls ekki
við að verða vitni að eldgosi en
hef nú þegar upplifað þrjú gos
og það var mjög spennandi
reynsla fyrir mig.“
Að mati Yuta eru flestir
íslenskir krakkar mjög
vingjarnlegir og ástæð-
una fyrir því telur hann
vera að Íslendingar séu
eins og lítil fjölskylda,
s.s. vegna þess hversu
fámenn þjóðin er. Hins
vegar komu samskipti
milli nemenda og kennara honum á
óvart þar sem miklar virðingarreglur
gilda um þau í Japan. „Mér líkaði vel í
Flensborgarskóla og gott að hafa
fengið að velja þau fög sem ég vildi
læra. Í Japan er ég í skóla sem nefn-
ist Tækniskóli Toyota (e. Toyota Nat-
ional College of Technology) og þar
eru kenndar raungreinar á borð við
verkfræði, tölvunarfræði og umhverf-
isfræði.“
Yuta telur agaskort ríkja í íslenska
skólakerfinu, sérstaklega í tengslum
við vindlingareykingar. „Í Japan eru
krakkar reknir úr skólanum ef þeir
reykja á skólalóðinni og ég er alveg
sammála því að reglur um slíkt eigi
að vera strangar.“
Yuta hvetur að lokum þá sem vilja
læra japönsku til að fara til Japans.
Íslendingar lítil fjölskylda
Japanskur
skiptinemi ánægð-
ur með dvölina
Morgunblaðið/Eggert
Fjölskyldan Yuta Oda með íslenskri fjölskyldu sinni, Þresti Valdimarssyni, Ólöfu Ragnarsdóttur og Eyrúnu Birtu.
,,Þegar maður fær nýjan ein-
stakling inn í fjölskylduna fer
maður að hugsa um hvernig
fjölskyldan vinnur saman og
uppgötvar að það er fullt af
óskráðum reglum í gangi sem
maður gerir sér ekki grein
fyrir,“ segir Ólöf, „fóst-
urmamma“ Yuta, en hún á
þrjú börn sem hafa farið út
sem skiptinemar í gegnum
AFS-samtökin, til Portúgals,
Argentínu og Ekvadors.
Hún segir mjög skemmtilegt
að fá skiptinema inn á heimilið
og að reynsla þeirra sem fara
út sé ómetanleg og þau eignist
vini um allan heim.
AFS eru fræðslusamtök sem
starfa í öllum heimsálfum og
markmið þeirra er að auka
kynni og skilning milli þjóða
heims og fólks af ólíkum upp-
runa, víkka sjóndeildarhring
ungs fólks og auka menntun
þess.
Virðing fær nýja merkingu
SKEMMTILEGT AÐ FÁ SKIPTINEMA
VEÐUR » 8 www.mbl.is
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á