Morgunblaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
SUMARTILBOD
HVÍTT BORD OG TVEIR STÓLAR
stóll 9990.-
14.900.-bord
verd ádur: 34.880
22.900.-
tilbod
BAKSVIÐ
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Reykvíkingar, sem beðið hafa eftir
sumrinu, tóku vafalaust eftir því í
gærmorgun að Esjan blasti hvít við
þeim í upphafi dags. Fyrstu níu dagar
júnímánaðar eru köldustu dagar í
Reykjavík og á sunnanverðum Faxa-
flóa frá árinu 1956.
„Vorið hefur verið kalt frá miðjum
maí og ég minnist þess ekki að hafa
séð svona mikinn snjó í Esjunni í júní-
mánuði,“ segir Páll Bergþórsson
fyrrum veðurstofustjóri. Fremur
svalt hefur verið í veðri að undan-
förnu og má búast við svölu veðri
áfram næstu daga þó spáð sé skamm-
góðum vermi um helgina. Páll bendir
á að þrátt fyrir að sumarið virðist fara
fremur hægt af stað sé engin ástæða
til að afskrifa það í heild sinni. „Bæði
júlí og ágúst gætu verið
mjög góðir, það er ekkert
sem bendir til annars að
svo stöddu,“ segir Páll og bætir
við að það loftslag sem ríkt hefur á
landinu að undanförnu sé í raun af-
leiðing tilviljana og að ekki sé um
loftslagsumskipti að ræða.
Undir það tekur Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur. „Orsökin
liggur í því að um er að ræða tilviljun
sem veldur þessu. Allt í kringum
landið er mildara loft en kaldur kjarni
af lofti, sérstaklega háloftakulda, hef-
ur sest að hér við land og hringsólað
meira og minna um það,“ segir Einar.
Hann bendir á að snemma sumars sé
oft um að ræða leifar af síðbúnu vori
fyrir norðan og þær aðstæður sem
við búum við sem eyland eru þess eðl-
is að loftið hitnar síður. „Það er varmi
á tiltölulega afmörkuðu svæði sem
berst aftur upp og blandast við þetta
kalda loft. Hafið gefur engan varma,
heldur tekur það til sín sólarorkuna
og hlýnar um nokkur brot úr gráðu
við það en loftið ekki neitt,“ segir
Einar.
Fyrstu dagana í júnímánuði hefur
verið um að ræða háloftakulda í
bland við fremur lága frostmarkshæð
og telst slíkt vera heldur óeðlilegt.
„Við erum inni í svalanum þó það
gæti komið ágætis veður um helgina.
Hafa verður það í huga að þegar
snjóar í fjöll og jafnvel á láglendi fyr-
ir norðan, þá endurkastast hátt hlut-
fall sólargeisla aftur út í stað þess að
fara í upphitun,“ segir Einar. Er því
ljóst að síðbúin leysing og snjór eru
til þess fallin að seinka raunverulegu
sumri. Einar bendir á að lokum að sú
kuldatíð sem hefur verið að undan-
förnu virki í raun svalari en hún er í
raun, einkum sökum þess hve langt
er liðið frá seinasta tilfelli.
Í hringiðu háloftakulda
Fátt bendir til að hlýir sunnanvindar berist hingað til lands á næstunni
Bændur fyrir austan hafa orðið varir við talsverðar kalskemmdir á túnum sínum
Morgunblaðið/Eggert
Kuldalegt Þegar skemmtiferðaskipið Crown Princess sigldi að höfn í Reykjavík í gær tók snjóhvít Esjan á móti fjölmörgum farþegum og áhöfn skipsins.
Á hverju ári grein-
ast 1.387 Íslend-
ingar með krabba-
mein og sex af
hverjum tíu geta
vænst þess að lifa í
fimm ár eða leng-
ur. Þetta kemur
fram í svari Guð-
bjarts Hannessonar
velferðarráðherra
við fyrirspurn Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Einnig kom fram að svonefnd
dánartíðni vegna krabbameins hafi
lækkað um 16% á árabilinu 2005-
2009 og er það einkum þakkað fyrri
greiningu og bættri meðferð.
Algengasta krabbamein hjá körl-
um er í blöðruhálskirtli en brjósta-
krabbamein er algengast hjá kon-
um.
1.387 Íslendingar
greinast með
krabbamein á ári
Guðbjartur
Hannesson
Töluverð umferð
var um þjóðveg-
ina eftir hádegið
í gær enda löng
fríhelgi fram-
undan. Að sögn
lögreglunnar í
Borgarnesi var
„þétt umferð“
sem dró úr á sjö-
unda tímanum.
Umferðin
gekk áfallalaust
að sögn lögregluembætta. Margir
eru með vagna í eftirdragi og
leggja með því lögreglunni lið við
að halda ökuhraðanum niðri, eins
og einn lögreglumaður benti á.
Þung umferð úr
bænum í gærdag
Þétt umferð var á
þjóðvegum í gær.
Fjórir erlendir
karlmenn voru í
gær dæmdir til
fangelsisvistar
fyrir að smygla 58
kílóum af fíkniefn-
inu khat til lands-
ins. Einn þeirra
var dæmdur í 4
mánaða fangelsi
og þrír í tveggja
mánaða fangelsi.
Mennirnir voru handteknir á hót-
eli í Reykjavík í maí eftir að tolla-
yfirvöld höfðu lagt hald á sex
pappakassa með efninu en menn-
irnir ætluðu að senda það til Banda-
ríkjanna og Kanada.
Þeir þrír sem fengu styttri dóm
játuðu og hefja afplánun dóms
strax, en sá fjórði neitaði og tók sér
áfrýjunarfrest. Honum var gert að
sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til
áfrýjunarfrestur rennur út eða til 8.
júlí nk.
Fjórir dæmdir fyrir
að smygla khat
Lögregla haldlagði
58 kg af khat.
„Það er ljóst að búfénaður hefur
ekki haft það sérstaklega gott í
þessari veðráttu og töluvert kal í
túnum í sumum sveitum,“ segir
Guðný Harðardóttir
hjá Búnaðarsam-
bandi Austurlands,
aðspurð hvernig ástand
túna og búfénaðar sé
fyrir austan. Hún segir
gæsir hafa hrakist af
hreiðrum sínum í hret-
inu sem leið og vís-
bendingar séu um að
vaðfuglar séu margir ekki á
hreiðrum sínum um þessar
mundir líkt og eðlilegt væri.
„Sem bóndi sjálf hef ég tekið eft-
ir vaðfuglum allt í kringum íbúð-
arhúsið, svo þeir eru ekki að
verpa á meðan,“ segir Guðný.
Veðráttan fyrir austan er að
mörgu leyti misjöfn að mati Guð-
nýjar. Sem dæmi nefnir hún að á
ferð sinni um nærsveitir sínar
hafi hún keyrt inn í krapaóveður.
Er því nokkuð ljóst að sumarið
lætur bíða eftir sér þetta árið.
Veðráttan er mjög misjöfn
ÝMSIR HAFA ÁHYGGJUR AF TÚNUM OG GRÓÐRI
Ríkissáttasemjari hefur boðað til
næsta fundar í deilu flugvirkja og
Icelandair næstkomandi þriðjudag.
Samkvæmt upplýsingum frá Guðjóni
Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa
Icelandair, þokar viðræðunum í sam-
komulagsátt. Flugmenn Icelandair
boðuðu hins vegar til allsherj-
aratkvæðagreiðslu um tillögu að
verkfallsboðun um hádegisbilið í gær.
Flugvirkjar hafa lagt niður störf í
fjóra tíma síðustu þrjá daga með
þeim afleiðingum að flugi tuga þús-
unda farþega hefur seinkað. Nú er
útlit fyrir að flugmenn bætist í hóp
þeirra en fundi hjá ríkissáttasemjara
var slitið í gær eftir árangurslausar
viðræður. Atkvæðagreiðslan um til-
lögu að verkfallsboðun er í formi yf-
irvinnubanns flugmanna Icelandair
Group hf./Icelandair ehf. Verði til-
lagan samþykkt mun yfirvinnubann
hefjast þann 24. júní næstkomandi.
Atkvæðagreiðslu lýkur 17. júní 2011.
mep@mbl.is
Viðræðum slitið hjá flugmönn-
um og kosið um verkfall
Morgunblaðið/Ernir
Fljúga Flugmenn Icelandair munu kjósa um verkfallsaðgerðir í júní.
Næsti fundur í deilu flugvirkja og Icelandair á þriðjudag