Morgunblaðið - 11.06.2011, Side 41
DAGBÓK 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji dagsins er dálítill bíla-áhugamaður frá fornu fari.
Áhuginn hefur þó breyst í áranna rás.
Eitt sinn voru það stórir jeppar sem
áttu hug hans allan og var honum það
mjög í mun að faðir hans eyddi aleigu
sinni í að eignast slíkt tryllitæki. Nú-
orðið, þegar Víkverji finnur sjálfur
hversu þungt rekstur eins fólksbíls
leggst á heimilisbókhaldið, eru
áherslurnar orðnar aðrar.
x x x
Víkverji er áhugasamur um rafbílaen hefur alltaf átt í erfiðleikum
með að sætta sig við eitt atriði í fari
þeirra. Það er hversu ofboðslega litl-
ir, ljótir og leiðinlegir þeir hafa verið í
gegnum tíðina. Þess vegna urðu
ákveðin tímamót í vikunni þegar
haldin var rafbílasýning í Hörpu. Þar
leit Víkverji augum fyrstu almenni-
legu rafbílana sem hann hefur séð.
Þetta voru stórir fullbúnir borgar-
jeppar. Ekki litlar dósir, eða Cheer-
ios-pakkningar á hjólum. Víkverja er
alltaf minnisstæður lítill dvergbíll
sem kallaðist Smart. Hversu smart
var það að aka um í pappakassa innan
um þriggja tonna pallbíla og þeim
mun stærri flutningabíla? Loksins,
loksins. Það var mikill léttir að sjá að
það er raunverulega eitthvað að ger-
ast í þessum málum. Víkverja langar
svo mikið í rafbíl að hann iðar í skinn-
inu. Áður fyrr bara fyrir hönd budd-
unnar, en nú einnig til þess að eiga
flottan og skemmtilegan bíl.
x x x
Allir nýir vistvænir orkugjafar eruaf hinu góða. Víkverji er áhuga-
samur um þá alla, sama hvort þeir
heita vetni eða metan eða eitthvað
annað. En hagkvæmnin virðist mest
liggja í augum uppi þegar rafbíllinn
er annars vegar. Vetni er til dæmis
orkugjafi sem þarf að framleiða sér-
staklega (með notkun rafmagns!) og
flytja svo á tankbílum á dreifingar-
stöðvar, með ærnum tilkostnaði.
Mesta snilldin við rafbílinn er að nú
þegar höfum við dreifikerfið fyrir
orkuna um allt land og inn á hvert
einasta heimili. Þangað flæðir hún
sjálf eins og ekkert sé. Það er snilldin.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fljótfærni, 8 ör-
lög, 9 ól, 10 veiðarfæri, 11
tálga, 13 tómum, 15 toll, 18
óhamingja, 21 blóm, 22
skóf í hári, 23 að baki, 24
léttlyndur.
Lóðrétt | 2 erfið, 3 drátt-
ardýrin, 4 hefja, 5 fléttað, 6
tuddi, 7 tölustafur, 12 dreg úr,
14 ótta, 15 stofuhúsgagn, 16
stétt, 17 ófús, 18 reykti, 19
kynið, 20 beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 breks, 4 fjöld, 7 líðum, 8 örgum, 9 ill, 11 römm, 13 alur,
14 ærleg, 15 bjór, 17 grun, 20 hal, 22 keyta, 23 eljan, 24 nýtin,
25 tunna.
Lóðrétt: 1 bílar, 2 eyðum, 3 sómi, 4 fjöl, 5 öngul, 6 dæmir, 10
lúlla, 12 mær, 13 agg, 15 bókin, 16 ólykt, 18 rýjan, 19 nenna, 20
hann, 21 lest.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
11. júní 1911
Melavöllurinn í Reykjavík var
vígður. Hann var þá suðvestur
af kirkjugarðinum við Suð-
urgötu en var síðar fluttur
austar og sunnar og vígður
þar í júní 1926.
11. júní 1935
Auður Auðuns lauk lögfræði-
prófi frá Háskóla Íslands,
fyrst kvenna. Hún varð síðar
fyrst kvenna borgarstjóri í
Reykjavík og ráðherra.
11. júní 1938
Lög um stéttarfélög og vinnu-
deilur voru staðfest. Þau voru
talin marka tímamót í sam-
skiptum launþega og atvinnu-
rekenda.
11. júní 1994
Jón Baldvin Hannibalsson
sigraði Jóhönnu Sigurð-
ardóttur í formannskjöri á
flokksþingi Alþýðuflokksins
með 60% atkvæða. Þegar úr-
slitin lágu fyrir sagði Jóhanna
í ræðu: „Ósigur er ekki enda-
lok alls, því í sigri geta rætur
ósigurs leynst en í ósigri ræt-
ur velgengni. Minn tími mun
koma.“
11. júní 2007
Sjö göngugarpar luku göngu á
fimm fjallstinda í fimm lands-
hlutum, Heiðarhorn á Vest-
urlandi, Kaldbak á Vest-
fjörðum, Kerlingu á
Norðurlandi, Snæfell á Aust-
urlandi og Heklu á Suður-
landi. Ferðalagið tók tvo og
hálfan sólarhring.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Ég ætla að byrja á því að mæta í útskriftina og
svo verð ég með smá útskriftarboð eftir það, þar
sem ég tek á móti fjölskyldu og vinum. Svo verða
bara örlögin að ráða rest,“ segir Hildur Björns-
dóttir sem heldur upp á útskrift og afmæli á sama
tíma. Óhætt er að segja að Hildur búi yfir miklum
drifkrafti því hún gegndi áður formennsku í Stúd-
entaráði ásamt því að ljúka bæði BA-gráðu við
stjórnmálafræðideild og lagadeild Háskóla Íslands
árið 2009. Í dag, á sjálfum afmælisdeginum, út-
skrifast hún með meistaragráðu í lögfræði.
Ljóst er að árið 2009 var viðburðaríkt í lífi Hild-
ar, því á jóladag eignaðist hún barn á meðan hún var í meistaranámi.
„Það var auðvitað mikið púsluspil og mikil viðbrigði að fara úr því að
þurfa bara að hugsa um sjálfan sig og að vera skyndilega komin með
annan einstakling sem hefur forgang fram yfir allt og treystir á
mann. Þetta gekk allt saman upp og er vel hægt,“ segir Hildur og
bætir við að sonur hennar sé mikill orkubolti. Hildur hefur frá því í
haust unnið hjá Rétti lögmannsstofu og segir það bæði fjölbreytt og
krefjandi. „Í framtíðinni stefni ég að því að sinna lögmennsku, vera
móðir og njóta lífsins,“ segir hún. khj@mbl.is
Hildur Björnsdóttir er 25 ára í dag
Afmæli og útskrift í senn
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hugmyndirnar þyrlast í kringum þig
og það er ósköp gaman. Staldraðu við og
forgangsraðaðu hlutunum og kláraðu þá svo
einn af öðrum á skipulegan hátt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert friðsæll og í góðu jafnvægi og
hefur því góð áhrif á alla í kringum þig. Vertu
ánægður með þinn hlut því grasið er ekkert
grænna handan girðingarinnar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Reyndu ekki að þröngva óraunhæf-
um hugmyndum þínum upp á vini og vanda-
menn. Styrktu sjálfsmyndina.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ekki berja höfðinu við steininn, þegar
þú sérð að fyrirætlanir þínar eru ófram-
kvæmanlegar. Mundu að þú verður einhvern
veginn að leggja þitt af mörkum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það sem þér kann að finnast skipta
öllu máli getur öðrum virst þýðingarlítið. Vin-
ir þínir geta reynst þér hjálplegir þessa dag-
ana.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gleymt og glatað samband ratar aft-
ur inn í líf þitt. Gerðu annað í dag; skoðaðu
þitt nánasta umhverfi betur en áður.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Afbrýðisemi er andstyggileg og eyðandi;
ekki láta hana ná tökum á þér. Með smáveg-
is sköpunarmætti tekst þér jafnvel að láta
þægilegan túr treysta böndin.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að finna þér lausar
stundir til þess að eyða í friði og ró. Nú ríður
á hvort þú vilt grípa tækifærið.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ef þú ert mjög heiðarlegur get-
urðu viðurkennt að hafa eytt miklum tíma í
eitthvað sem ekki skiptir máli.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Við sönkum svo oft að okkur ýms-
um hlutum sem við höfum enga raunveru-
lega þörf fyrir. Farðu þér því hægt á meðan
þú endurnýjar þig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vinkona þín hefur eitthvað mik-
ilvægt að segja þér í dag. Ekki verða hissa
þótt þeir sem eru í kringum þig njóti óbeinn-
ar ánægju af viðfangsefnum þínum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Félagar þínir hafa sýnt þér það traust
að velja þig til forystu í félagsskap ykkar.
Leyfðu tímanum að vinna með þér og gerðu
drauminn að veruleika.
Stjörnuspá
Sudoku
Frumstig
9 1
8 5 1 7
6 7 3 8 9
7 5
6 1 7 8 9
8 2 6
7 3
9
2 6
3 6 4 7
4 3
1 7
9 5 8 4
4 8 5
7 3
9 7
8 4 9 1 6
3 8
6 3
2 1 3 7 4
7 1
8 5 6 1
4 6 5
3 8
6 8
2
8 4 9
9 2 4 3 7 6 8 5 1
5 8 6 4 1 9 7 3 2
3 7 1 2 8 5 9 6 4
4 9 7 8 5 2 3 1 6
8 1 2 6 3 4 5 9 7
6 3 5 1 9 7 2 4 8
7 4 9 5 6 8 1 2 3
2 5 3 7 4 1 6 8 9
1 6 8 9 2 3 4 7 5
1 5 8 3 4 9 7 2 6
3 6 9 1 7 2 5 4 8
7 2 4 5 8 6 9 3 1
6 9 5 4 3 8 2 1 7
2 8 3 7 6 1 4 9 5
4 7 1 9 2 5 8 6 3
9 3 6 8 5 4 1 7 2
8 1 7 2 9 3 6 5 4
5 4 2 6 1 7 3 8 9
5 2 9 8 4 6 1 7 3
4 6 3 1 5 7 8 9 2
7 8 1 2 9 3 4 6 5
2 7 5 9 3 8 6 4 1
6 1 8 4 2 5 9 3 7
3 9 4 6 7 1 5 2 8
8 4 2 7 1 9 3 5 6
9 3 6 5 8 2 7 1 4
1 5 7 3 6 4 2 8 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 11. júní, 162. dag-
ur ársins 2011
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hraðakstur. A-AV.
Norður
♠1087
♥5
♦KD875
♣G532
Vestur Austur
♠ÁG53 ♠4
♥– ♥KDG108642
♦G632 ♦1094
♣ÁD1096 ♣7
Suður
♠KD962
♥Á973
♦Á
♣K84
Suður spilar 5♣ dobluð.
Austur á sjálfsagða opnun á 4♥ og
suður þarf að finna svar við hæfi.
Þótt keppnisspilarar noti flestir dobl
til úttektar í þessari stöðu (með sér-
staka áherslu á spaðann) er einspilið í
tígli virkilega fráhrindandi. Jeff
Meckstroth var þó hvergi smeykur og
dró upp rauða miðann.
Spilið er frá leik Nickells og Bat-
hursts í bandarísku landsliðskeppn-
inni. Eric Rodwell átti greinilega von á
spaðalit á móti, því hann tók út í 4♠ á
tíuna þriðju! En þegar vestur doblaði
þá sögn fékk Rodwell bakþanka og
breytti í 4G í leit að láglit. Meckstroth
valdi laufið af tvennu illu og vestur
trúði vart heppni sinni, doblaði og upp-
skar 1100.
„Það gerist ekki oft að M&R séu
teknir fyrir of hraðan akstur,“ stóð í
mótsblaðinu.
Ragney Eggertsdóttir, Eyja í Dal,
verður hundrað ára 13. júní næst-
komandi. Eyja tekur á móti gestum
í samkomusalnum í fjölbýlishúsinu
á Borgarbraut 65a í Borgarnesi frá
kl. 14 á afmælisdaginn. Eyja af-
þakkar vinsamlega öll blóm og
gjafir en minnir á reikning Holl-
vinasamtaka DAB nr. 0326-13-
301750 kt. 621209-1750.
Árnaðheilla
Flóðogfjara
11. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.45 3,3 8.07 0,8 14.28 3,3 20.48 0,9 3.02 23.54
Ísafjörður 3.39 1,9 10.11 0,5 16.36 1,9 22.55 0,6 1.33 25.33
Siglufjörður 6.02 1,1 12.19 0,3 18.45 1,2 1.16 25.16
Djúpivogur 5.01 0,7 11.29 2,0 17.49 0,7 23.55 1,8 2.19 23.36
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0
9. h3 Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12.
Rbd2 cxd4 13. cxd4 Rc6 14. Rb3 a5 15.
Be3 a4 16. Rbd2 Bd7 17. Hc1 Db7 18.
Bb1 h6 19. Rf1 Hfe8 20. d5 Ra5 21. b3
Bd8 22. Bd3 Bb6 23. b4 Rc4 24. Bxc4
bxc4 25. a3 Hac8 26. Bxb6 Dxb6 27.
Hc3 Rh5 28. Re3 Rf4 29. Dc2 Hc7 30.
Hc1 Hec8 31. Dd2 Bb5 32. H1c2 f6 33.
Kh2 Rd3 34. De2 Da6 35. g3 g6 36. Rh4
Kh7 37. Rg4 h5
Staðan kom upp í atskákhluta Am-
ber-mótsins sem lauk fyrir nokkru í
Mónakó. Búlgarinn Veselin Topalov
(2.775) hafði hvítt gegn Vassily Iv-
ansjúk (2.779) frá Úkraínu. 38. Rxf6+!
Kg7 39. Rxh5+! gxh5 40. Dxh5 Bd7
41. Dg6+ Kh8 42. Df7 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
100 ára