Morgunblaðið - 11.06.2011, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
Díana Rós A. Rivera
diana@mbl.is
Caput-tónlistarhópurinn stendur
fyrir tvennum kvöldtónleikum í
Hörpu, í kvöld og annað kvöld kl.
20.00.
Fyrri tónleikarnir, Bassaflautu-
fuglar, eru bassaflaututónleikar
Kolbeins Bjarnasonar í samvinnu
við norður-írska tónskáldið Simon
Mawhinney. Á seinni tónleikunum
leikur Caput-hópurinn í fullri stærð
og eru tónleikarnir kenndir við verk
Önnu S. Þorvaldsdóttur, Hrím, sem
var valið besta tónverk síðasta árs á
Íslensku tónlistarverðlaunahátíð-
inni. Stjórnandi er Guðni Franzson.
Caput er tónlistarhópur Reykja-
víkur í ár og samkvæmt kynningu
er hann iðinn við að halda tónleika,
skipuleggja alþjóðleg verkefni og
gefa út hágæða tónlist á heims-
mælikvarða. Stofnandi hópsins er
Kolbeinn Bjarnason og segir hann
að markmið hópsins frá upphafi hafi
verið að kynna nýja tónlist fyrir
fólki. Caput hefur verið starfræktur
í 25 ár og hefur Kolbeinn rekið
hann ásamt Guðna Franzsyni síðan
1987. Að sögn Kolbeins er hópurinn
mjög sveigjanlegur. „Stærsta útgáf-
an af honum er kannski svona 20
manna lítil hljómsveit en minnsta
útgáfan er bara sólisti og núna er
það ég sem fæ að spila sóló,“ segir
hann.
Kolbeinn segir að einleikur sinn,
Bassaflautufuglar, sé nokkuð
óvenjulegur þar sem þetta séu
hreinir bassaflaututónleikar. „Ég er
nú ekki viss um að svona tónleikar
hafi verið haldnir hér á landi áður,“
segir Kolbeinn og bætir við að
bassaflautan sé í rauninni frekar
nýtt hljóðfæri. Saga þess á Íslandi
t.d. nái aðeins aftur til 1988 þegar
Kolbeinn kom til landsins frá Hol-
landi með bassaflautu í farteskinu.
„Þetta er svo hljómfagurt hljóðfæri
þótt það sé ekki sterkt og heyrist
ekki mikið í því.“ Kolbeinn frum-
flytur m.a. hálftíma langt verk á
tónleikunum, Xewkija-Dranger-
Cornageerie, eftir tónskáldið Simon
Mawhinney og segir hann stífar æf-
ingar liggja að baki. „ Ég held að
það sé alveg hægt að segja að þetta
sé það erfiðasta sem skrifað hefur
verið fyrir bassaflautu síðan árið
1986.“
Yfirskrift tónleikanna beggja er
Söngvar farfuglanna og segir í
kynningu að þeir séu liður í und-
irbúningi evrópsks samvinnuverk-
efnis sem snýst um nýja tónlist, far-
fugla og börn. „Við viljum gjarnan
að Harpa verði lifandi vettvangur
fyrir nýja músík, ekki bara á Íslandi
heldur líka alþjóðlega,“ segir Kol-
beinn og bætir við að það sé ástæða
þess að hópurinn hafi boðið erlend-
um tónskáldum að vinna með sér að
seinni tónleikunum. „Það eru stóru
tónleikarnir og eru verkin bæði
krefjandi og erfið. Þetta er bara
upptaktur hjá mér í kvöld,“ segir
Kolbeinn og hlær við.
Harpa verði lifandi vett-
vangur fyrir nýja músík
Morgunblaðið/Ernir
Upptaktur Kolbeinn Bjarnason og Caput á æfingu fyrir tónleika í kvöld og annað kvöld.
Caput með tvenna tónleika í Hörpu um helgina, Bassa-
flautufugla og Hrím Markmiðið að kynna nýja tónlist
Árleg tónleikaröð sem haldin er í Þingvallakirkju,
Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju, hefur göngu sína
að nýju á þriðjudag, en þetta mun vera í fimmta sinn
sem hátíðin er haldin.
Tónleikarnir eru allir haldnir í kirkjunni á Þing-
völlum að vanda,en kveikja að tónleikunum er stofn-
un Minningarsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá
Kárastöðum til eflingar tónlistarstarfi við kirkjuna.
Á fyrstu tónleikunum nú á þriðjudaginn koma fram
þau Helga Aðalheiður Jónsdóttir, blokkflautuleikari,
og Þórarinn Sigurbergsson, gítarleikari. Þar verður
barokktónlist í öndvegi.
Þær systur Pálína og Margrét Árnadætur leika
dúó fyrir fiðlu og selló viku síðar, þann 21. júní. Þar
verða m.a. flutt verk eftir Haydn og Beethoven.
Kolbeinn Bjarnason, flautuleikari, og Guðrún Ósk-
arsdóttir, semballeikari, bjóða upp á blöndu af gam-
alli og nýrri tónlist á þriðju tónleikunum sem haldnir
verða 28. júní.
Lokatónleikar raðarinnar verða svo 5. júlí, en þá
flytur miðaldasönghópurinn Voces Thules tónlist frá
fyrri öldum.
Allir tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Aðgangur er
ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum í minn-
ingarsjóðinn við kirkjudyr. Gestir eru beðnir að
mæta tímanlega, enda verður jafnan þröngt setinn
bekkurinn því kirkjan rúmar ekki nema fimmtíu
manns.
Tónleikaröð
á Þingvöllum
Morgunblaðið/Kristinn
Þingvallakirkja Tónleikaröð verður á Þingvöllum.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Lau 11/6 kl. 20:00 lokasýn
Tveggja tíma hláturskast...með hléi. Síðustu sýningar þessa leikárs
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Lau 11/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 aukasýn
Mið 15/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 aukasýn
Sýningum lýkur í júní. Ósóttar pantanir seldar daglega
Húsmóðirin – sýningum líkur í júní
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Ferðasaga Guðríðar / The saga of Gudridur
Sun 19/6 kl. 20:00
sýnd á ensku /in english
Fös 24/6 kl. 20:00
Lau 25/6 kl. 16:00
Sun 26/6 kl. 20:00
sýnd á ensku / in english
Hetja / Hero
Sun 19/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english
Fös 24/6 kl. 18:00
Lau 25/6 kl. 20:00
Sun 26/6 kl. 16:00
sýnd á ensku / in english
Rokkgoðið og Idol-dómarinn Ste-
ven Tyler slakar á þessa dagana
á Maui eftir annasaman vetur.
Þessar myndir voru teknar af
kappanum í gær þar sem hann og
unnusta hans Erin Brady nutu
sólarinnar. Tyler þykir hafa stað-
ið sig vel í vetur og jókst áhorfið
á þáttinn, þvert á spár, en búist
hafði verið við að brotthvarf Sim-
onar Cowell myndi hafa meiri
áhrif á áhorfið.
Strandklæðnaður Tylers var í
óformlegra lagi og minnti hann
lítið á rokkstjörnu í múndering-
unni.
Steven Tyler nýtur
sólar á ströndinni
Koss Tyler og Brady knúsast eins og enginn sé morgundagurinn.