Morgunblaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2011
Stuttar fréttir ...
● Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði
um 0,13 prósent í viðskiptum gær-
dagsins og endaði í 205,25 stigum.
Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði
um 0,08 prósent en sá óverðtryggði um
0,27 prósent. Velta á skuldabréfamark-
aði í gær nam 9,6 milljörðum króna.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækk-
aði um 0,07 prósent í afar litlum við-
skiptum í gær og endaði í 979,13 stig-
um. bjarni@mbl.is
Skuldabréf lækka
● Veðlán
spænskra banka
hjá Evrópska seðla-
bankanum jukust
um fjórðung í maí
samkvæmt Fin-
ancial Times. And-
virði þeirra fór í 53
milljarða evra í
mánuðinum úr því
að vera 42 millj-
arðar í apríl. End-
urspeglar þetta mikla lausafjárþurrð
spænska bankakerfsins og afar skert
aðgengi að hefðbundinni lánafyr-
irgreiðslu. Samhliða bágri stöðu
spænska hagkerfisins hafa menn
áhyggjur af stöðu spænskra banka.
Ekki minnkuðu þær í síðustu viku þegar
Banco Santander, stærsti banki lands-
ins, náði aðeins að selja helming í eins
milljarðs útboði á sérvörðum skulda-
bréfum bankans. Skuldabréfin voru
með veðum í lánum bankans til lægri
stjórnsýslustiga á Spáni.
Spænskir bankar háðir
veðlánum ECB
Santander gat ekki
klárað útboð.
● Verðbólga mæld á tólf mánaða tíma-
bili hélst óbreytt, 3,3%, í Finnlandi í
maí. Er það meiri verðbólga en að með-
altali í ríkjum Evrópusambandsins. Er
það húsnæðisliður vísitölu neysluverðs
sem hefur mest áhrif á hve mikil verð-
bólgan er í Finnlandi, segir í tilkynningu
frá Hagstofu Finnlands.
Óbreytt verðbólga
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Dómur Hæstaréttar í máli þrota-
bús dótturfélags Kaupþings á
eynni Mön gegn þrotabúi Kaup-
þings banka getur skipt kröfuhafa
dótturfélagsins miklu máli. Með
dómi Hæstaréttar fyrir helgi hefur
463 milljóna punda krafa dóttur-
félagsins verið viðurkennd sem al-
menn krafa í þrotabú Kaupþings
banka, sú fjárhæð samsvarar tæp-
um 90 milljörðum króna. Héraðs-
dómur Reykjavíkur hafði áður
hafnað kröfunni. Samþykktar kröf-
ur í þrotabú dótturfélagsins, Kaup-
thing Singer & Friedlander (Isle
of Man) ltd., nema alls um 890
milljónum punda og er því um um-
talsverða fjárhæð að ræða í þessu
samhengi. Slitastjórar dóttur-
félagsins vara þó kröfuhafa við því
að langur tími geti liðið þar til
greiðslur fáist úr þrotabúi móð-
urfélagsins og óvíst sé hve stór
hluti kröfunnar fáist greiddur.
Deilan, sem Hæstiréttur þurfti að
greiða úr, snerist um ábyrgðaryf-
irlýsingu, sem Ingólfur Helgason,
forstjóri Kaupþings á Íslandi,
skrifaði undir í september 2007.
Samkvæmt henni ábyrgðist Kaup-
þing banki lögmætar skuldbinding-
ar dótturfélagsins á Mön, sem ekki
fengjust greiddar með eignum
þess.
Kaupþing á Mön er í slitameð-
ferð eins og Kaupþing sjálft og
hefur komið í ljós að eignir fyr-
irtækisins duga ekki til að greiða
útistandandi skuldir. Því hefur
slitastjórn bankans á Mön lýst
kröfu við slit Kaupþings fyrir þeim
mismun.
Slitastjórn Kaupþings hafnaði
kröfunni og taldi að Ingólfur
Helgason hefði farið út fyrir um-
boð sitt þegar hann skrifaði undir
ábyrðaryfirlýsinguna. Héraðsdóm-
ur tók undir þetta og segir að ekk-
ert í gögnum málsins bendi til þess
að stjórn Kaupþings hafi haft vitn-
eskju um yfirlýsinguna.
Hæstiréttur taldi hins vegar að
yfirlýsing Kaupþings um ábyrgð,
sem Ingólfur skrifaði undir, fæli í
sér bindandi skuldbindingu gagn-
vart Kaupthing Singer & Fried-
lander Isle of Man Limited. Var
krafa síðarnefnda bankans því tek-
in til greina.
Viðurkennir 90 milljarða
kröfu í þrotabú Kaupþings
Morgunblaðið/Golli
Innlán Ábyrgðaryfirlýsingin kom til þegar Kaupþing keypti innlánsstofnun
á Mön, en bankinn lagði áherslu á að safna innlánum á þeim tíma.
Forstjóri Kaup-
þings á Íslandi
skuldbatt bankann
Krafan
» Dótturfélag Kaupþings á
Mön krafðist þess að krafan,
sem hljóðaði upp á um 90
milljarða króna, yrði við-
urkennd sem forgangskrafa.
» Hæstiréttur féllst ekki á þá
kröfu en viðurkenndi hana hins
vegar sem almenna kröfu sam-
kvæmt 113. grein laga um
gjaldþrotaskipti.
» Heildarkröfur í þrotabú
dótturfélagsins nema um 170
milljörðum króna.
Heildarlaunakostnaður á greidda
stund lækkaði á fyrsta ársfjórðungi
frá fyrri árs-
fjórðungi um
4,2% í iðnaði,
3,4% í verslun,
2,8% í sam-
göngum og 1,5%
í bygging-
arstarfsemi.
Þetta kemur
fram á vef Hag-
stofu Íslands.
Tólf mánaða
breyting heildarlaunakostnaðar á
greidda vinnustund var á bilinu
4,1% til 8,9%, mesta breytingin var í
byggingarstarfsemi en minnst í iðn-
aði.
Lægri launa-
kostnaður
Vinnandi hendur.
Á sama tíma og skuldabréfaútgáfa
og endurfjármögnun ýmissa jað-
arríkja evrusvæðisins er í fullkomu
uppnámi hefur skoska heimastjórn-
in loks fengið heimild til útgáfu eig-
in skuldabréfa. Um er að ræða heim-
ild sem fylgir nýrri lagasetningu
sem færir heimastjórninni mun
meira fjárhagslegt sjálfstæði frá
stjórnvöldum í London en þekkst
hefur frá því að Skotland gekk í kon-
ungssamband við England.
Samkvæmt lögunum hefur skoska
heimastjórnin nú heimild til þess að
gefa út ríkisskuldabréf fyrir allt að
2,2 milljörðum sterlingspunda.
Skoska heimastjórnin getur án sam-
ráðs við stjórnvöld í London ráðist í
skuldabréfaútgáfuna en myndi hún
vera tryggð af henni sjálfri. Þar sem
ábyrgð breska ríkisins í heild sinni
mun ekki hvíla á útgáfunni munu
kjörin því ráðast af því hversu traust
lánshæfi fjárfestar telja skosku
heimastjórnina vera.
Auk þessa hefur skoska heima-
stjórnin fengið frekari heimildir til
skattlagningar og munu fjárlög
hennar nú nema ríflega 40 millj-
örðum punda. Skoska heimastjórnin
fjármagnar og hefur umsjón með
ýmissi almannaþjónustu á borð við
menntakerfi og heilbrigðiskerfi.
ornarnar@mbl.is
Hafa heimild til að
gefa út hálandabréf
Pilsaþytur Skoskir hálendingar fara víða og nú er útlit fyrir að skuldabréf
skosku heimastjórnarinnar fylgi þeim í kjölfarið.
Morgunblaðið/Sverrir
Ívar Páll Jónsson
ivarpall@mbl.is
Atvinnuleysi minnkar milli ára, en
það var 7,4% í maímánuði, borið sam-
an við 8,3% í sama mánuði árið 2010.
Atvinnulausir á skrá voru að meðal-
tali 12.553 í mánuðinum og fækkaði
um 709 frá aprílmánuði, eða um 0,7
prósentustig. Þetta kemur fram í töl-
um frá Vinnumálastofnun.
Atvinnuleysi er meira hjá körlum
en konum. 7.125 karlar voru að með-
altali atvinnulausir í maí, eða 7,7%, en
5.428 konur, eða 7,1%. Hlutfallslega
fleiri voru atvinnulausir á höfuðborg-
arsvæðinu en á landsbyggðinni. At-
vinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu
var 8,2%, en á landsbyggðinni var það
6,1%. Hlutfallslega flestir voru þó at-
vinnulausir á Suðurnesjum, eða
12,1% af vinnuafli.
Heldur fleiri voru atvinnulausir í
lok mánaðarins en meðaltal mánaðar-
ins segir til um, eða 13.296 manns. Af
þeim var 11.161 atvinnulaus að fullu
og þar af voru 3.648 í einhvers konar
úrræðum á vegum Vinnumálastofn-
unar.
Þeim sem hafa verið atvinnulausir
lengur en sex mánuði fækkar og eru
þeir nú 7.993 talsins, borið saman við
8.348 í lok aprílmánaðar. Það eru 60%
af þeim sem eru á atvinnuleysisskrá.
Þeim sem hafa verið atvinnulausir í
meira en eitt ár fækkaði úr 4.801 í lok
apríl í 4.725 í lok maí.
Þegar litið er til aldurshópa at-
vinnulausra sést að flestir eru at-
vinnulausir í hópnum 25-29 ára, eða
tæplega 2.200. Atvinnuleysið fer svo
stiglækkandi eftir því sem aldurinn
hækkar, en 466 eru atvinnulausir á
aldrinum 65-69 ára.
Dregur úr atvinnuleysi milli ára
Morgunblaðið/Ernir
Atvinna Atvinnuleysi er meira hjá körlum en konum. 7.125 karlar voru að meðaltali atvinnulausir í maí, eða 7,7%,
en 5.428 konur, eða 7,1%. Þá voru hlutfallslega fleiri atvinnulausir á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni.
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.,
+/0-10
++0-.+
22-+32
2+-+34
+/-+./
+43-.4
+-,20,
+/4-.1
+3.-44
++,-/+
+//-,4
++0-/.
22-220
2+-22.
+/-2++
+43-1+
+-,4+3
+/,-+,
+3.-01
22+-5+54
++.-5/
+//-/1
++/-+1
22-212
2+-2/0
+/-23,
+40-21
+-,4./
+/,-31
+33-2.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
7,4% atvinnuleysi að meðaltali í maímánuði borið saman við 8,3% í maí 2010