Morgunblaðið - 28.06.2011, Blaðsíða 25
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Sigríður Elín og Svava Björk.
Hinn 17. júní lauk ferðalagi afa.
Hann var sannur skáti sem hafði í
heiðri góð gildi, elskaði landið og
naut náttúrunnar, enda segir mál-
tækið: Einu sinni skáti, ávallt
skáti.
Það var því kannski engin til-
viljun að afi og amma kynntust í
skátunum og á sjálfum Þingvöll-
um. Afi, sem ættaður var að vest-
an, var hluti af þeirri kynslóð sem
mótaði þjóðina eftir að sjálfstæði
hennar var fengið. Kynslóð sem
átti stóran systkinahóp og átti sér
þann draum að byggja hús á möl-
inni fyrir sunnan. Þessi kynslóð
verður alltaf góð fyrirmynd ann-
arra kynslóða fyrir áræði og
dugnað, og fyrir mér var afi slík
fyrirmynd. Með vilja en þó litlum
efnum létu afi og amma drauminn
rætast og byggðu heimili fyrir sig
og börnin fjögur á Sogavegi 16.
Afi hafði menntað sig sem hús-
gagnasmiður og eftir langan
vinnudag tók hann til við að móta
allt húsið og innviði þess. Eftir að
húsið var risið bar það gott vitni
um áræðið og þann hagleik sem
ávallt einkenndi afa. Fallegar
hurðir sem hann sjálfur hafði
smíðað og spónlagt, panill á
veggjum, innréttingar, stigi og
hverskyns mublur eins og hann
kallaði húsgögnin sem hann smíð-
aði. Húsið tók líka breytingum
eftir því sem árin liðu og fjöl-
skyldumynstrið breyttist og að
lokum þegar börnin voru öll flogin
að heiman og verkstjóraferillinn í
húsgagnasmíðinni á enda, bjó
hann sér til sitt eigið verkstæði í
kjallaranum á Sogaveginum og
hélt áfram smíðum. Það voru eng-
ar venjulegar smíðar. Hann var
frumkvöðull þegar hann hóf smíði
á kistum fyrir eigendur gæludýra
sem horfin voru úr þessum heimi.
Vegna veru pabba erlendis urðu
ekki til pabbahelgar heldur afa-
og ömmuhelgar. Við hverja heim-
sókn til þeirra ilmaði nýsmíðaður
viður í bland við matinn sem
amma útbjó og kökurnar sem
bornar voru á borð. Það voru líka
ófáar stundirnar sem maður
ræddi við afa og fylgdist með hon-
um takast á við úrlausn hinna
ýmsu verkefna. Það var allt í senn
útfærslan og smíðin sem mótaði
áhuga minn fyrir hönnun og ný-
sköpun ásamt því að njóta náttúr-
unnar. Það var aldrei til umræðu
hjá afa að slaka á. Ef hann var
ekki að vinna úti eða heima þá
stundaði hann sund, fjallgöngur
eða gönguskíði. Hann faðmaði
náttúruna, geislaði af hreysti og
var sólbrúnn allan ársins hring.
Með ömmu sér við hlið mynduðu
þau sterka heild sem ræktaði vel
heimili sitt og þá afkomendur sem
þeim lánaðist. Ég bið guð að
vernda og blessa afa sem senni-
lega hefur fundið sér verkefni nú
þegar við að dytta að einhverju á
himnum, og að englarnir veiti
ömmu styrk til að takast á við lífið
án þess að hafa hann sér við hlið.
Ingólfur Örn Guðmundsson.
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Barnavörur
Gæða barnarúm til sölu - Bino
Dönsk barnarúm til sölu á gjafaverði.
Mjög góð dýna fylgir hverju rúmi,
hægt er að velja á milli spring- eða
heilsudýnu. Þetta eru í raun þrjú rúm í
einu, fyrir börn á aldrinum 0-6 ára.
Verð 59 þ. með dýnu. Uppl. Heiða
í 699-6328.
Bækur
Bækur til sölu
Sturlungasaga 1-2 1817-1820,
Árbækur Espólíns 1821, 1-3, 5-9,
11-12, Vídalínspostilla 1858, 1-2,
Jarðskjálftarnir á Suðurlandi
1899, Iðnsaga Íslands G.F.,
Strandamenn, Manntalið 1703,
Sléttuhreppur, Sýslumannaævir
1-5, Íslenskir annálar 1847,
Sturlungasaga 1-3 sv.hv., Maður
og kona 1. útg. 1876. Kvenna-
fræðari 4. útg., Kjalnesingar,
Reykjavík sögustaður við sund
1-2.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Garðar
Er mosinn að eyðileggja
grasflötinn?
Erum með góðar lausnir við því.
Eiríkur, s. 774-5775.
Garðaþjónusta Reykjavíkur
20% afsláttur fyrir eldri borgara
Öll almenn garðvinna á einum stað
fyrir garðinn þinn. Trjáklippingar,
beðahreinsanir, trjáfellingar, garða-
úðun, þökulagnir, sláttur, hellulagnir
o.fl. Fagleg vinnubrögð og sanngjarnt
verð. Eiríkur, s. 774-5775.
Þórhallur, s. 772 0864.
Gisting
Hótel Sandafell Þingeyri
Býður gistingu og orlofsíbúðir.
Sími 456 1600.
Atvinnuhúsnæði
Um 300 m2 veitinga- eða verslunar-
húsnæði að Bæjarhrauni 26 Hafnar-
firði til leigu eða sölu.
Uppl. s. 664 5900 og 664 5901.
Gistihús á Norðurlandi
(sumarhótel)
285 fm mjög vandað gistihús með
góð viðskiptasambönd rétt við Akur-
eyri til sölu. Verð aðeins 57 millj.
Skoðar öll skipti. Uppl. á Fasteignas.
Torgi. Sigurbjörn 520 9555.
Verslun
Íslensk hönnun á frábæru verði
Bolir, peysur, buxur, úlpur, kjólar o.fl.
22. júní til 10. júlí. Opið alla daga
14:00 til 19:00. Skipholt 25.
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is – s. 551-6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Laga ryðbletti á þökum.
Hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk.
Upplýsingar í síma 847 8704
eða manninn@hotmail.com.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Íslandsmálarar ehf.
Þakmálun - Þakmálun!!
Húsfélög - Húseigendur
Þarf að huga að viðhaldi á þakinu?
Við sérhæfum okkur í málun og
viðgerðum á þökum.
Gerum tilboð ykkur að kostnaðar-
lausu.
Löggiltur málarameistari.
Grétar, s. 899 2008.
islandsmalarar@gmail.com
Ýmislegt
580 7820
580 7820
Kynningar-
Standar
...þegar þú vilt þægindi
Kr. 9.990-
Klossar. Svart-hvítt stærðir 35- 48
Rautt stærðir 36-42. Blátt stærðir
36-47.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- föstudag
kl. 11.00 - 17.00
Pantið vörulista okkar á
www.praxis.is
...þegar þú vilt þægindi
Kr. 8.900,-
Dömu leður sandalar með
frönskum rennilás. Litir: Svart -
Hvítt. Stærðir 36-42.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- föstudag
kl. 11.00 - 17.00
Pantið vörulista okkar á
www.praxis.is
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýjar vörur
Tunica með síðum topp undir.
St. S-XXXL.
Sími 588 8050.
Facebook - vertu vinur.
Teg. Kelly
Teg. Dotty
Frábærir gjafahaldarar í skálum
D,DD,E,F,FF,G,GG,H á kr. 7.990,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
lokað á laugardögum í sumar
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
SUMARSKÓR - SUMARSKÓR
Teg. 2211307 - Litur: Hvítt.
Stærðir: 36 - 41.
Verð: 13.950,-
Teg. 6223 - Litur: Sv/hv/rautt.
Stærðir: 36 - 41.
Verð: 13.950,-
Teg. 6308 - Litur: Hvítt.
Stærðir: 36 - 42.
Verð: 13.950,-
Teg. 6308 - Litur: Rautt.
Stærðir: 36 - 41.
Verð: 13.950,-
Teg. 6332 - Litur: Svart og hvítt.
Stærðir: 36 - 42.
Verð: 13.975,-
Teg. 504703 - Litur: Svart.
Stærðir: 36 - 42.
Verð: 13.975,-
Vandaðir og þægilegir sumar-
skór úr leðri, skinnfóðraðir.
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Lokað á laugardögum í sumar.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bátar
Viksund 340
Til sölu VIKSUND 340. Glæsilegur
bátur, vel búinn tækjum og búnaði.
Upplýsingar í síma 844 1207.
Fellihýsi
Til sölu COLEMAN FLEETWOOD
CHEYENNE 2003
Snyrtilegur vagn í góðu ástandi -
Hljóðlát miðstöð - svefntjöld -
heitt/kalt vatn - 12V/240V -
gasísskápur - útigaseldavél -
Verð kr. 1390 þús. Uppl. 897 9400.
Húsviðhald
Þak- og
utanhússklæðningar,
gler og gluggaskipti
og allt húsaviðhald.
Ragnar V. Sigurðsson ehf.
Sími 892 8647.
Stigateppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, s. 533 5800,
www.strond.is
mbl.is
finnur.is
Ég hugsa um þig og þú hugsar um mig.
Þú ert í hjarta mínu og ég í hjarta þínu.
Hvíldu í friði, elsku amma!
Ég elska þig.
Þitt barnabarn,
Anna Katrín Loftsdóttir.
Katrín Loftsdóttir
✝ Katrín Loftsdóttir fæddist á bænumBakka í Austur-Landeyjum 25. janúar
1917. Hún lést 12. júní 2011.
Útför Katrínar fór fram frá Víkur-
kirkju 18. júní 2011.