Morgunblaðið - 14.07.2011, Side 10

Morgunblaðið - 14.07.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011 Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Sigurbjörg er verkefnastjóri Fis- hernet-verkefnisins sem fellur undir Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. „Þetta er Evrópuverkefni sem hefur staðið í þrjú ár. Ég er að safna sam- an efni sem hefur komið út á ís- lensku um íslenska strand- og fisk- veiðimenningu. Ég safna saman fyrirlestrum og ritgerðum, stórum sem smáum, og svo er ég að vinna með Ríkisútvarpinu við að taka við- töl við fólk sem vinnur við sjávarsíð- una og hefur unnið þar, bæði sjó- menn, fiskverkakonur sem og konurnar sem voru heima og ólu upp börnin á meðan mennirnir voru á sjó. Verkefnið tekur til allra þátta menningarinnar við ströndina,“ seg- ir Sigurbjörg og viðurkennir að um sé að ræða gríðarmikla vinnu. Stuggað til fjalla eins og sauðkind að vori „Ég er ein fárra Íslendinga sem ólust í meira en 20 km fjarlægð frá strönd. Ég er afdalabarn,“ segir Sigurbjörg. „Sem barni og unglingi fannst mér sjórinn spennandi en líka ógnvænlegur og það var í raun ekki fyrr en ég flutti til útlanda og fór að koma með erlenda ferðamenn til landsins, sem ég lærði að hlusta og lærði að sjá mitt eigið land með augum ferðalangsins.“ Hún segir að á svipuðum tíma og hún hóf að koma með fyrstu hópa erlendu ferðalanganna hingað til lands hafi Íslendingar verið að upp- götva hálendið. „Þegar ég var að undirbúa ferðirnar uppgötvaði ég að fólk vildi sjá hvar og hvernig við bjuggum og hvernig við lifðum af í Eigum margt eftir ólært um strandmenningu Sigurbjörg Árnadóttir segist vera ein fárra Íslendinga sem ólust upp í meira en 20 km fjarlægð frá strönd. Sem barni þótti henni sjórinn bæði spennandi og ógnvæn- legur en það var ekki fyrr en eftir að hún flutti til útlanda sem áhuginn kviknaði á strandmenningu. Hún kom að stofnun Íslenska vitafélagsins og vinnur nú að Evrópuverkefninu Fishernet þar sem hún safnar saman útgefnu efni um íslenska strand- og fiskveiðimenningu. Í Ósvör Sigurbjörg og Finnbogi Bernódusson, fyrrverandi safnvörður í Ós- vör við Bolungarvík. Safnið er endurbyggð verbúð og minjasafn. Æðardúnn „Við erum ábyggilega 30 árum á eftir Norðmönnum í að nýta æðardún,“ segir Sigurbjörg. „Fáir vita að hann er hluti strandmenningar.“ Í dag, á sjálfum Bastilludeginum, er ekki úr vegi að vera dálítið „fransk- ur“. Á bloggsíðu sinni lefrancophon- ey.com lýsir höfundurinn April Wendy Hollands því hvernig best sé að þykj- ast vera Frakki. Líkt og nafn vefsíð- unnar bendir til. Hollands er upp- runalega áströlsk en hefur búið í Frakklandi undanfarin ár. Hollands skrifar á gamansaman hátt um líf sitt í Frakklandi og hvernig hún upplifir það sem „aðkomumaður“ eins og hún orðar það sjálf. Á vefsíðunni skrifar hún meðal annars skemmti- lega færslu um að það sé mjög franskt að fara á flóamarkað um helgar. Þar megi helst ekki gleyma að prútta en það geri hún hins vegar sjaldan. Í þetta umrædda skipti tekst henni þó að prútta niður verðið á málmpotti alveg óvart og það ein- göngu með því að grínast við sölu- manninn. Vefsíðan www.lefrancophoney.com Þykjustu Frakkar á flóamarkaði Gómsætir Það gerist nú ekki mikið franskara en það að fá sér ost. Grænmetismarkaður verður opnaður á bílastæði Leikfélags Hveragerðis við hliðina á Eden á morgun föstudag kl. 14:00. Opið verður allar helgar fram á haust: Föstudaga kl 14:00 - 18:00, laugardaga og sunnudaga kl. 12:00 - 18:00. Í boði verður nýtt grænmeti úr gróðurhúsum auk þess sem hægt verður að kaupa ný- upptekið útigrænmeti um leið og það þroskast. Á boðstólnum verða m.a. tómatar, gúrkur, paprika, salat, kál, rófur, gul- rætur, kartöflur, púrra, sellerí og hver veit nema bleikja og heimagerð hrossabjúgu fái að vera með. Endilega ... ... farið á græn- metismarkað Morgunblaðið/Eggert Ómótstæðilegt Ferskt grænmeti. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Fjölmiðlafræðideild Háskólans í Missouri í Bandaríkjunum hefur framkvæmt löngu tímabæra rann- sókn á hegðun iPad-notenda. Loks hafa fengist svör við spurningum á borð við: Hvar notarðu helst iPad- inn? Og hvað skoðarðu helst í iPad- inum? 561 iPad eigandi var spurður spjörunum úr og í ljós kom að flest- ir (51%) koma sér vel fyrir í sófa eða hægindastól, frekar en að vera inni á skrifstofu (6%), í vinnunni (7%), í svefnherberginu (17%) eða í eldhúsinu (6%). Ekki var spurt um notkun inni á baðherbergi. Eigendurnir nota helst Safari- vafrann (21%), póstforrit (20%) og skoða síðu New York Times (13%). Þá leiddi könnunin í ljós að fólk les mikið á iPad, meira en helmingur aðspurðra notar forrit sem tekur saman helstu fréttir líðandi stund- ar, og margir nota tækið til að lesa stafrænar útgáfur dagblaða (41%) og bóka (39%). Flestir þeirra sem eru áskrifendur að tímaritum gegn- um iPad skoða þau snemma á morgnana, milli kl. 5 og 8, eða á kvöldin, milli kl. 20 og 23. Rannsókn á hegðun iPad notenda Morgunblaðið/Golli Skoðar iPad Samkvæmt rannsókninni eru fáir hrifnir af því að nota iPad-inn inni á skrifstofu, ólíkt Arnari Eggerti sem kann vel við sig innan um bækurnar. Vafra um á iPad í sófanum Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Costa del Sol 19.júlí í 11 nætur 11 nátta ferð - ótrúleg kjör! Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Hotel Parasol Garden, sem er afar gott þriggja stjörnu hótel, þann 19. júlí í 11 nætur. Önnur gisting í boði á ótrúlegum kjörum. Costa del Sol býður allt það helsta sem maður getur óskað sér í fríinu. Gríptu þetta einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum vinsæla áfangastað í sumafríinu. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði - verð getur hækkað án fyrirvara. Frá kr. 127.900 með hálfu fæði Frá kr.127.900 - með hálfu fæði Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára í herbergi með hálfu fæði í 11 nætur. Verð m.v. gistingu í tvíbýli með hálfu fæði kr. 139.900 Hótel Parasol Garden HHH Talið er að notendur nýju sam- skiptasíðunnar Google+ verði orðnir 20 milljónir talsins fyrir helgina. Þeim hefur fjölgað gríðarlega hratt á örstuttum tíma; á aðeins sex dögum hafa skráningar aukist um 350%. Þetta segir sérfræðingurinn Paul Al- len sem gerði athugun á málinu. „Eigendur og starfsfólk Facebook ættu að vera ánægðir að vita að meirihluti reglulegra notenda þeirra er ánægður á Facebook. Flestir þeirra hafa ekki einu sinni heyrt minnst á Google+ ennþá. Jafnvel þótt notendum Google+ fjölgi með ógnarhraða munu margir dyggir Facebook-notendur eflaust ekki sjá nokkra ástæðu til að færa sig um set.“ Tækni Morgunblaðið/Þorkell Google Notendum Google+ hefur fjölgað ört á skömmum tíma. Google+ stækkar hratt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.