Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011
Í dag hefst Bryggjuhátíð á Stokks-
eyri, sem nú er haldin í áttunda sinn
og heitir reyndar fullu nafni
Bryggjuhátíð á Stokkseyri –Brú til
brottfluttra – Vinir frá Vík. Það er
Hrútavinafélagið Örvar á Suður-
landi sem stendur fyrir hátíðinni, í
samvinnu við góða samstarfsaðila en
dagskrá Bryggjuhátíðarinnar er af-
ar fjölbreytt og skemmtileg og eitt-
hvað þar að finna fyrir alla fjöl-
skylduna.
Fyrsti viðburður hátíðarinnar fer
fram í samkomuhúsinu Gimli kl.
20.30 í kvöld en þá verður opnuð
málverkasýning Péturs Behrens í
tilefni 90 ára afmælis Gimli á þessu
ári. Hljómsveitin GRANÍT efnir síð-
an til útgáfutónleika í húsinu en með
hljómsveitinni mun stíga á svið
söngkonan Hlín Pétursdóttir frá
Keldnaholti.
Á föstudaginn hefst fjölskyldu-
skemmtun á og við Stokkseyrar-
bryggju kl. 20 og er hún einn stærsti
viðburður hátíðarinnar. Björgvin
Franz skemmtir börnunum, Árni
Johnsen syngur við varðeldinn,
Landhelgisgæslan býður upp á
þyrlusýningu, slegið verður til
bændaballs á bryggjunni og svona
mætti lengi telja.
Á laugardaginn verður m.a. efnt
til sandkastalakeppni við Stokkseyr-
arbryggju, haldin hin stór-
skemmtilega Hverfakeppni í knatt-
spyrnu, boðið verður upp á
andlitsmálun og leiki fyrir börnin og
hægt verður að fara í söguferðir í
rútu um Stokkseyri og Eyrarbakka.
Á sunnudeginum efnir Hags-
munafélag hestaeigenda á Stokks-
eyri til hópreiðar og hestamanna-
leikja en auk þeirrar dagskrár sem í
boði verður á hátíðinni verða margs-
konar söfn, sýningar, þjónusta og af-
þreying opin alla dagana.
Nánari upplýsingar má finna á
slóðinni www.stokkseyri.is.
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á Bryggjuhátíð
Sungið Á dagskrá Bryggjuhátíðar má finna eitthvað fyrir alla, auk þess er opið á söfnum og sýningum ýmis konar.
Fluguveiði á Þingvöllum
Sunnudaginn 17. júlí kl. 9-14
verður haldið fluguveiðinámskeið
á Þingvöllum en fyrir því standa
Veiðiheimur, Veiðikortið og Þjóð-
garðurinn á Þingvöllum. Meðal
annars verður farið yfir hverjar
eru þörfustu silungaflugurnar, all-
ir helstu veiðihnútarnir verða
kenndir, farið yfir helstu atriði
flugukasta með einhendu og nám-
skeiðinu lýkur síðan með kast-
keppni.
Skráning fer fram á síðunni
www.veidikortid.is og þar má
einnig nálgast nánari upplýsingar.
Fótboltagolf í Þorlákshöfn
Golfsjúkar fótboltabullur geta
svo sannarlega fundið íþrótt við
sitt hæfi í Þorlákshöfn. Þar er að
finna 18 holu fótboltagolfvöll, en
lengsta brautin er 100 metrar.
Þátttakendur þurfa að klára völl-
inn í sem fæstum spörkum, að
gefnum ákveðnum reglum og
þrautum sem flækja málin á hverri
braut.
Grænmeti í Hveragerði
Á morgun kl. 14 opnar Græn-
metismarkaðurinn í Hveragerði en
þar verður hægt að gera góð kaup
á fersku íslensku gróðurhúsagræn-
meti og icebergsalati, kínakáli,
hvítkáli og hnúðkáli. Einnig verð-
ur í boði bleikja og hrossabjúgu.
Markaðurinn verður opinn um
helgar í sumar; á föstudögum frá
kl. 14-18 og laugardögum og
sunnudögum kl. 12-18.
Myndlist í hesthúsinu
Listamaðurinn Sigurlína Krist-
insdóttir hefur opnað myndlistar-
sýningu í hesthúsi í Reykholti í
Biskupstungum. Opið verður hjá
henni frá 11 til 17 á föstudag og
laugardag, en lokað á sunnudag-
inn. Listaverkin, aðallega málverk,
tengjast öll íslenska hestinum.
Börnin ættu líka að hafa áhuga á
þessu því tveir hestar verða á
staðnum til að skoða og klappa og
myndlistarhorn fyrir börnin, til að
teikna og lita.
Menning á Sólheimum
Menningarveisla á Sólheimum
stendur til 13. ágúst með tón-
leikum, fræðslu og listsýningum. Á
laugardaginn kl. 14 efnir tvíeykið
Pikkninn, þau Sigríður Eyþórs-
dóttir og Þorsteinn Einarsson í
Hjálmum, til tónleika í Sólheima-
kirkju og leikur sálmaskotna
sveitatónlist fyrir áheyrendur.
Kl. 15 mun síðan Hreinn Ósk-
arsson, skógfræðingur hjá Heklu-
skógum, halda fyrirlestur um end-
urreisn og uppgræðslu birkiskóga
á Íslandi í Sesseljuhúsi. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir.
Sunnlenskar vörur í Búbót
Í lok maímánaðar var opnuð lítil
sveitaverslun í Flóahreppi. Búðin
heitir Búbót og er við hringveginn
um 12 km frá Selfossi, á sama stað
og Þingborg. Þar er hægt að
kaupa nýjar og ferskar vörur, sem
allar eru framleiddar í héraðinu.
Gufuböðin á Laugarvatni opin
Búið er að opna hina endur-
bættu heilsulind Fontana við Laug-
arvatn. Aðgangseyrir fyrir full-
orðna er 2.100 krónur en hálfvirði
fyrir 13-16 ára unglinga. Börn tólf
ára og yngri fá frítt inn í fylgd
með forráðamönnum.
Bylgjulestin á Flúðum
Á móti sól, Jón Jónsson, Vinir
Sjonna, Dalton flokkurinn, söngv-
arar úr söngleiknum Hárinu, Ingó
Veðurguð, Pétur Ben og Eberg,
Jón Víðis töframaður, og Jóhanna
Guðrún troða upp á Flúðum.
Auk þess verða leiktæki fyrir
börnin, kók og pylsur á grillinu og
ómælt magn af grænmeti frá garð-
yrkjubændum. Hátíðinni lýkur svo
á laugardagskvöldið með stuðdans-
leik á Útlaganum. Aðgangur að
hátíðinni er ókeypis.
Sólríkir dagar
á Suðurlandi
Skemmtilegt tjaldstæði, fyrir þá sem vilja vera utan al-
faraleiðar, er í Grandavör í Hallgeirsey í Austur-
Landeyjum. Tjaldstæðið er í göngufjarlægð við fjöruna
og líklega aldrei betra að vera þar en nú um helgina, í
hægri og hlýrri norðlægri átt, ef veðurspár ganga eft-
ir.
Bátar hafa verið dregnir þar á þurrt land og er einn
þeirra notaður undir þjónustu við gesti á tjaldstæðinu,
en hinum bátunum þykir börnum skemmtilegt að leika
sér í og eru þeir notaðir við kappleiki á sjómannadag-
inn ár hvert. Þar er einnig leiktæki að finna og raunar
er þar búið að innrétta fjós fyrir mannfögnuði, allt að
fimmtíu manns.
Þar sem ströndin er í göngufjarlægð frá tjaldstæð-
inu er þetta eitt af fáum tjaldstæðum þar sem boðið er
upp á sjóstangaveiði frá landi og veiðast þar meðal
annars háfar, litlir hákarlar. Einnig er boðið upp á æv-
intýraferðir á alvöru hertrukk á fjörunni, en sumir láta
sér nægja að ganga þar um og bleyta tærnar í fjöru-
borðinu.
Úrval fínna tjaldstæða á svæðinu
Mörg fín tjaldstæði eru annars á Suðurlandi, þar á
meðal í Hveragerði, á Hvolsvelli og öðrum byggða-
kjörnum þar sem stutt er í alla þjónustu, en einnig má
nefna tjaldstæðið við félagsheimilið Þjórsárver í Flóa-
hreppi, í Galtalæk og við Kaffi Langbrók á leiðinni inn
í Fljótshlíð, en þar er einnig að finna Meyjarhofið, sem
er hof að heiðnum sið sem tileinkað er konum og þykir
skemmtilegt að skoða á leiðinni þar um.
Á sjóstöng frá tjaldstæðinu
Ljósmynd/Grandavör
Litlir hákarlar Heldur betur bar vel í veiði hjá þessum tveimur. Margir hafa veitt fisk í háf en ekki háf á stöng.
Gönguleiðir eru margvíslegar á
Suðurlandi og fyrir stutta ferð er
fjallið Þríhyrningur kjörið. Ekki
mjög hátt en býður upp á mikil-
fenglegt útsýni. Þá er drjúg ganga í
kringum Bjólfell, frá Næfurholti í
Landsveit, yfir engi, í gegnum
hraun og fallegan birkiskóg.
Síðast en ekki síst má nefna Sel-
vogsgötu í Reykjanesfólkvangi.
Hún liggur frá Kaldárseli til Sel-
vogs og er dagleið, rúmlega 30 kíló-
metrar. Fyrst er gengið að Vala-
hnúkum en svo er leiðin vörðuð um
Mygludali, austur yfir Tvíbolla-
hraun að Bláfjallavegi og þaðan
upp í Grindaskörð, að Bollunum á
norðanverðri fjallsbrúninni. Svo er
leiðin vörðuð áfram að Hlíðarvatni í
Selvogi. Á leiðinni má sjá hella,
hraunrásir og margt fleira.
Ljósmynd/Ferlir.is
Gata Leiðin er að hluta klöppuð í
hraunið af fótum manna og dýra.
Selvogsgata
tilvalin leið
Í dag hefst Íslandsmót fullorðinna í
hestaíþróttum á Brávöllum á Sel-
fossi og stendur það fram eftir
laugardegi. Það er hestamanna-
félagið Sleipnir sem heldur mótið
og hefur undirbúningur staðið frá
því sl. vetur. Mikil uppbygging hef-
ur verið á svæði félagsins að undan-
förnu og þar m.a. verið reist ný
reiðhöll.
Allir bestu gæðingar og knapar
landsins mæta til leiks og keppa í
helstu greinum hestaíþrótta en alls
hafa 230 skráningar borist og því
ljóst að mikið verður um tilþrif.
Hestamót af þessu tagi eru frá-
bær skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una, eins og sannaðist á lands-
mótinu á Vindheimamelum á
dögunum og verður m.a. boðið upp
á leiktæki fyrir börnin á svæðinu.
Íslandsmót á Brávöllum
Sýningarsalur Listasafns Reykja-
nesbæjar er til staðar í hinum fal-
legu Duushúsum en þar stendur nú
yfir sýningin „Eitthvað í þá áttina.“
Á henni má sjá verk fjölmargra
listamanna, sem unnin eru útfrá
kortagerð, skrásetningu og stað-
setningu og spanna þau 30 ára tíma-
bil. Í Duushúsum er einnig að finna
sýninguna Bátafloti Gríms Karls-
sonar og sýninguna „Völlurinn, ná-
granni innan girðingar,“ sem fjallar
um störfin á vellinum og áhrif hans á
mannlífið á svæðinu.
Morgunblaðið/RAX
Sýningar í
Duushúsum