Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Samgöngubætur hafa skapað tækifæri fyrir íbúa Siglufjarðar og Ólafsfjarðar til að snúa vörn í sókn. Tekið er myndarlega á móti þeim mörgu ferðamönnum sem þangað leggja leið sína. Þá er mannlífið orðið fjölbreyttara og áhugaverðara þegar íbúar þessara tveggja staða auka samskipti sín og tengsl við Eyja- fjarðarsvæðið. Siglufjörður og Ólafsfjörður hafa verið í mikilli varnarbaráttu á undanförnum árum og áratugum. Samdráttur í sjávarútvegi hefur haft sín áhrif. Íbúunum hefur fækkað um fjórðung á þrettán árum. Þannig voru íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar liðlega 2.700 á árinu 1998 en nú eru íbúar Fjallabyggðar 700 færri, eða liðlega 2.000. Siglufjörður er stærri staðurinn með um 1.200 íbúa en 820 búa á Ólafsfirði. Báðir staðirnir voru á endastöð sam- gangna. Því má líkja Héðinsfjarðargöngum, því mikla mannvirki sem tengdi firðina saman síðastliðið haust, við byltingu í samgöngum. Auðveldara að eignast félaga Áhrifin koma fram á löngum tíma en þegar eru mörg merki um jákvæðar afleiðingar samgöngubótanna. Báðir staðirnir voru með eitt af öllu, svo sem bæjarskrifstofur, grunnskóla, leikskóla, íþróttahús, íþróttafélög og golfklúbba, svo nokkuð sé nefnt, þótt báðir væru orðnir það litlir að erfitt væri að veita fulla þjónustu. Sveitarfélögin sameinuðust fyrir fáeinum ár- um í Fjallabyggð en sveitarstjórn gat lítið unnið að hagræðingu fyrr en staðirnir tengd- ust betur. Sameining grunnskólanna er dæmi um vel heppnaða ráðstöfun. Einn skólastjóri er nú yfir báðum skólunum og öllum börnunum úr þremur efstu bekkjunum er kennt á Siglu- firði. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjar- stjóri Fjallabyggðar, segir að sameiningin hafi gengið vel og hún skili að minnsta kosti 60 milljóna króna sparnaði fyrir sveitarfélag- ið á ári. Til stendur að sameina skólana alveg, með- al annars með því að kenna öllum yngstu börnunum á Ólafsfirði, en til þess að gera það kleift þarf að byggja á báðum stöðum og er verið að undirbúa það. Bæjarstjórinn bætir því við að hagræðingin muni skila sveitarfé- laginu miklu á næstu tíu árum, á þessu sviði og öðrum. Jónína Magnúsdóttir, skólastjóri Grunn- skóla Fjallabyggðar, segir þegar komið í ljós að daglegt samneyti íbúanna sé dýrmætt. Tekur hún dæmi úr skólanum. „Fleiri nem- endur í unglingadeildunum eignuðust félaga í vetur og færri voru lagðir í einelti, sam- kvæmt könnunum sem gerðar voru í vetur og hægt var að bera saman við kannanir frá vetrinum áður.“ Jónína segir að skýringuna megi finna í því að hópurinn sé stærri og fleiri möguleikar fyrir unglingana að eignast félaga. „Fámennið fer ekki vel með alla,“ seg- ir hún. Aukin samskipti Þótt umferðin úr Eyjafirði hafi aukist mik- ið eftir að Héðinsfjarðargöng voru opnuð er umferðin enn meiri um Héðinsfjarðargöng. Það sýnir að íbúar staðanna fara töluvert á milli. Verið er að keyra saman ýmsa þjón- ustu, eins og íþróttastarf og búið að sameina krafta knattspyrnunnar í Íþróttafélagi Fjalla- byggðar. Krakkar frá Siglufirði sækja hinn nýja Menntaskóla á Tröllaskaga sem hefur aðsetur á Ólafsfirði og hefur orðið mikil lyfti- stöng fyrir samfélagið. Þá vinna menningar- félög meira saman en áður. Fleiri menningar- viðburðir og fjölbreyttara tómstundastarf stendur íbúunum til boða. Almenningssamgöngur í Fjallabyggð mið- ast við flutning nemenda skólanna. Sigurður Valur bæjarstjóri viðurkennir að það sé baga- legt og bæta þurfi úr því til þess að sam- félagið geti orðið að samstilltri heild og allir geti sótt íþróttaæfingar og þjónustu á milli staðanna. „Öll þessi hreyfing á fólki gjörbreytir sam- félaginu, ekki aðeins í verslun og viðskiptum, aukin samskipti íbúanna skapa ýmsa mögu- leika,“ segir Jónína Magnúsdóttir. Er þá ótalið öryggið sem aðgangur að öfl- ugri sjúkrahúsþjónustu og margvíslegri þjón- ustu á Akureyri veitir. Gamalgróinn hrepparígur er á milli Siglu- fjarðar og Ólafsfjarðar og bæjarbragurinn að mörgu leyti ólíkur. Ólafsfirðingar eru dugleg- ir sjósóknarar og vanir að bjarga sér. Tölu- verð atvinna er í kringum einyrkja á ýmsum sviðum. Siglufjörður byggir á fornri frægð. Hann byggðist upp í síldarævintýrinu og þótt staðurinn hafi lengi verið á niðurleið hefur verið þar ótrúlega mikil þjónusta og blómstr- andi menningarlíf. Stóru fyrirtækin, sem at- vinnulífið grundvallaðist á, voru lengi í eigu ríkisins og þykjast menn sjá þess merki á bæjarbragnum. Ekki er því að neita að núningur hefur orð- ið í sumum greinum, vegna viðleitni bæjar- stjórnar við að hagræða í rekstri og keyra sameiningu sveitarfélaganna í gegn. Það koma oft upp raddir um að ef eitthvað sé gert á Siglufirði þurfi að gera það líka á Ólafsfirði, og öfugt. Ás- geir Logi Ásgeirsson, fyrrverandi bæj- arstjóri og bæjarfulltrúi á Ólafsfirði, segir eðlilegt að sameiningin taki tíma. „Menn hafa verið svo lengi að berjast fyrir sinn fjörð og þurfa tíma til að hafa sig upp úr því fari og sjá að þetta eru sameiginlegir hagsmunir allra,“ segir hann. Ásgeir Logi segir að göngin skapi mögu- leika til að snúa vörn í sókn í atvinnumálum, eins og á öðrum sviðum. Þannig skapar fjölg- un ferðamanna tækifæri sem reynt er að nýta. Tölur umferðardeildar Vegagerðarinnar um umferð um Múlagöng og Héðinsfjarðar- göng sýna að margir ferðamenn hafa ákveðið að skoða göngin og staðina sem þau tengja. Mesta aukningin er um helgar. Umferðin um Múlagöng jókst til dæmis um fjórðung á fyrri hluta ársins og meðalumferðin um Héðins- fjarðargöng var 470 bílar á dag að meðaltali sem er þriðjungi meira en reiknað var með þegar göngin voru undirbúin. Stærstu seglarnir á þessu svæði, fyrir utan göngin sjálf, eru Síldarminjasafnið og Þjóð- lagasetrið á Siglufirði. Aðsókn hefur stórauk- ist. Á Siglufirði er verið að byggja upp mynd- arlegt ferðaþjónustufyrirtæki við smábátahöfnina. Gerð hafa verið upp gömul hús og opnaður fínn veitingastaður og kaffi- hús, ásamt fundasölum og útisvæði. Staðirnir hafa einnig dregið að sér fjölda fólks. „Það er okkar stóra áskorun að fá ferða- fólkið til að staldra lengur við,“ segir Ásgeir Logi sem aðild á að ferðaþjónustufyrirtæki á Ólafsfirði. Ýmislegt hefur verið gert til þess og fleira í bígerð á báðum stöðum. Göngin gefa kost á hringleið um Tröllaskaga og er unnið að markaðssetningu afþreyingar á öll- um hringnum. Langtímaverkefni Betri höfn er á Siglufirði en Ólafsfirði og þar er fiskmarkaður. Stærsta sjávarútvegs- fyrirtæki Fjallabyggðar er með starfsemi á báðum stöðum. Hugað er að því að auka hafnsækna starfsemi á Siglufirði. Meðal ann- ars er horft til þjónustu við námarekstur á Austur-Grænlandi. Aukin verkefni við höfn- ina nýtast smiðjum og þjónustufyrirtækjum á báðum stöðum. „Með göngunum voru stóru línurnar lagð- ar. Við þurfum að nýta tækifærin sem þau skapa. Það er langtímaverkefni,“ segir Ásgeir Logi Ásgeirsson. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Opið Ólafsfjörður var endastöð en er orðinn hluti af stærri heild með Héðinsfjarðargöngum og sameiningu við Siglufjörð. Fjölbreyttara mannlíf  Héðinsfjarðargöngin bæta lífsskilyrði íbúa Siglufjarðar og Ólafsfjarðar  Fjölgun ferðamanna skapar ný tækifæri  Sameining skólanna sparar 60 milljónir og möguleikar á frekari hagræðingu Safn Síldarminjasafnið er aðal aðdráttarafl Siglufjarðar. Erlend- ir ferðamenn spyrja flestir til vegar þangað. Jónína Magnúsdóttir Sigurður Valur Ásbjarnarson Ásgeir Logi Ásgeirsson Morgunblaðið/Ómar „Mér finnst meiri jákvæðni hér en víða annars staðar. Það er mikið líf á Siglufirði í sumar,“ segir Hall- grímur Páll Sigurbjörnsson, fulltrúi í upplýsingamiðstöð ferða- mála í ráðhúsinu á Siglufirði. Ferðafólki hefur fjölgað mjög eftir að Héðinsfjarðargöng voru opnuð og margir leita til upplýsinga- miðstöðvarinnar sem í sumar er í Bóka- og héraðsskjalasafni Fjalla- byggðar. Hallgrímur segir að innlendir ferðamenn komi mikið til að skoða göngin. Áberandi hafi verið hversu margir hópar hafi komið í vor. Hann segir að erlendir ferðamenn spyrji meira til vegar að Síldar- minjasafninu og Þjóðlagasetrinu og margir fari á veitingastaðina við smábátahöfnina. Útlendingarnir eru einnig á hött- unum eftir óvenjulegri ferða- mannastöðum. „Það komu hingað tveir Þjóðverjar um daginn til að spyrja um fiskbúðina frægu á Siglufirði.“ Svo vill til að Fiskbúð Siglufjarðar er við hliðina á ráð- húsinu. „Siglufjörður var endastöð en er kominn í hringiðuna,“ segir Hall- grímur. Siglufjörður í hringiðuna FERÐAFÓLKI FJÖLGAR Á TRÖLLASKAGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.