Morgunblaðið - 14.07.2011, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samgöngubætur hafa skapað tækifæri fyrir
íbúa Siglufjarðar og Ólafsfjarðar til að snúa
vörn í sókn. Tekið er myndarlega á móti þeim
mörgu ferðamönnum sem þangað leggja leið
sína. Þá er mannlífið orðið fjölbreyttara og
áhugaverðara þegar íbúar þessara tveggja
staða auka samskipti sín og tengsl við Eyja-
fjarðarsvæðið.
Siglufjörður og Ólafsfjörður hafa verið í
mikilli varnarbaráttu á undanförnum árum og
áratugum. Samdráttur í sjávarútvegi hefur
haft sín áhrif. Íbúunum hefur fækkað um
fjórðung á þrettán árum. Þannig voru íbúar
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar liðlega 2.700 á
árinu 1998 en nú eru íbúar Fjallabyggðar 700
færri, eða liðlega 2.000. Siglufjörður er stærri
staðurinn með um 1.200 íbúa en 820 búa á
Ólafsfirði.
Báðir staðirnir voru á endastöð sam-
gangna. Því má líkja Héðinsfjarðargöngum,
því mikla mannvirki sem tengdi firðina saman
síðastliðið haust, við byltingu í samgöngum.
Auðveldara að eignast félaga
Áhrifin koma fram á löngum tíma en þegar
eru mörg merki um jákvæðar afleiðingar
samgöngubótanna.
Báðir staðirnir voru með eitt af öllu, svo
sem bæjarskrifstofur, grunnskóla, leikskóla,
íþróttahús, íþróttafélög og golfklúbba, svo
nokkuð sé nefnt, þótt báðir væru orðnir það
litlir að erfitt væri að veita fulla þjónustu.
Sveitarfélögin sameinuðust fyrir fáeinum ár-
um í Fjallabyggð en sveitarstjórn gat lítið
unnið að hagræðingu fyrr en staðirnir tengd-
ust betur.
Sameining grunnskólanna er dæmi um vel
heppnaða ráðstöfun. Einn skólastjóri er nú
yfir báðum skólunum og öllum börnunum úr
þremur efstu bekkjunum er kennt á Siglu-
firði. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjar-
stjóri Fjallabyggðar, segir að sameiningin
hafi gengið vel og hún skili að minnsta kosti
60 milljóna króna sparnaði fyrir sveitarfélag-
ið á ári.
Til stendur að sameina skólana alveg, með-
al annars með því að kenna öllum yngstu
börnunum á Ólafsfirði, en til þess að gera það
kleift þarf að byggja á báðum stöðum og er
verið að undirbúa það. Bæjarstjórinn bætir
því við að hagræðingin muni skila sveitarfé-
laginu miklu á næstu tíu árum, á þessu sviði
og öðrum.
Jónína Magnúsdóttir, skólastjóri Grunn-
skóla Fjallabyggðar, segir þegar komið í ljós
að daglegt samneyti íbúanna sé dýrmætt.
Tekur hún dæmi úr skólanum. „Fleiri nem-
endur í unglingadeildunum eignuðust félaga í
vetur og færri voru lagðir í einelti, sam-
kvæmt könnunum sem gerðar voru í vetur og
hægt var að bera saman við kannanir frá
vetrinum áður.“ Jónína segir að skýringuna
megi finna í því að hópurinn sé stærri og
fleiri möguleikar fyrir unglingana að eignast
félaga. „Fámennið fer ekki vel með alla,“ seg-
ir hún.
Aukin samskipti
Þótt umferðin úr Eyjafirði hafi aukist mik-
ið eftir að Héðinsfjarðargöng voru opnuð er
umferðin enn meiri um Héðinsfjarðargöng.
Það sýnir að íbúar staðanna fara töluvert á
milli. Verið er að keyra saman ýmsa þjón-
ustu, eins og íþróttastarf og búið að sameina
krafta knattspyrnunnar í Íþróttafélagi Fjalla-
byggðar. Krakkar frá Siglufirði sækja hinn
nýja Menntaskóla á Tröllaskaga sem hefur
aðsetur á Ólafsfirði og hefur orðið mikil lyfti-
stöng fyrir samfélagið. Þá vinna menningar-
félög meira saman en áður. Fleiri menningar-
viðburðir og fjölbreyttara tómstundastarf
stendur íbúunum til boða.
Almenningssamgöngur í Fjallabyggð mið-
ast við flutning nemenda skólanna. Sigurður
Valur bæjarstjóri viðurkennir að það sé baga-
legt og bæta þurfi úr því til þess að sam-
félagið geti orðið að samstilltri heild og allir
geti sótt íþróttaæfingar og þjónustu á milli
staðanna.
„Öll þessi hreyfing á fólki gjörbreytir sam-
félaginu, ekki aðeins í verslun og viðskiptum,
aukin samskipti íbúanna skapa ýmsa mögu-
leika,“ segir Jónína Magnúsdóttir.
Er þá ótalið öryggið sem aðgangur að öfl-
ugri sjúkrahúsþjónustu og margvíslegri þjón-
ustu á Akureyri veitir.
Gamalgróinn hrepparígur er á milli Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar og bæjarbragurinn að
mörgu leyti ólíkur. Ólafsfirðingar eru dugleg-
ir sjósóknarar og vanir að bjarga sér. Tölu-
verð atvinna er í kringum einyrkja á ýmsum
sviðum. Siglufjörður byggir á fornri frægð.
Hann byggðist upp í síldarævintýrinu og þótt
staðurinn hafi lengi verið á niðurleið hefur
verið þar ótrúlega mikil þjónusta og blómstr-
andi menningarlíf. Stóru fyrirtækin, sem at-
vinnulífið grundvallaðist á, voru lengi í eigu
ríkisins og þykjast menn sjá þess merki á
bæjarbragnum.
Ekki er því að neita að núningur hefur orð-
ið í sumum greinum, vegna viðleitni bæjar-
stjórnar við að hagræða í rekstri og
keyra sameiningu sveitarfélaganna í
gegn. Það koma oft upp raddir um að
ef eitthvað sé gert á Siglufirði þurfi að
gera það líka á Ólafsfirði, og öfugt. Ás-
geir Logi Ásgeirsson, fyrrverandi bæj-
arstjóri og bæjarfulltrúi á Ólafsfirði,
segir eðlilegt að sameiningin taki tíma.
„Menn hafa verið svo lengi að berjast
fyrir sinn fjörð og þurfa tíma til að
hafa sig upp úr því fari og sjá að þetta
eru sameiginlegir hagsmunir allra,“
segir hann.
Ásgeir Logi segir að göngin skapi mögu-
leika til að snúa vörn í sókn í atvinnumálum,
eins og á öðrum sviðum. Þannig skapar fjölg-
un ferðamanna tækifæri sem reynt er að
nýta.
Tölur umferðardeildar Vegagerðarinnar
um umferð um Múlagöng og Héðinsfjarðar-
göng sýna að margir ferðamenn hafa ákveðið
að skoða göngin og staðina sem þau tengja.
Mesta aukningin er um helgar. Umferðin um
Múlagöng jókst til dæmis um fjórðung á fyrri
hluta ársins og meðalumferðin um Héðins-
fjarðargöng var 470 bílar á dag að meðaltali
sem er þriðjungi meira en reiknað var með
þegar göngin voru undirbúin.
Stærstu seglarnir á þessu svæði, fyrir utan
göngin sjálf, eru Síldarminjasafnið og Þjóð-
lagasetrið á Siglufirði. Aðsókn hefur stórauk-
ist. Á Siglufirði er verið að byggja upp mynd-
arlegt ferðaþjónustufyrirtæki við
smábátahöfnina. Gerð hafa verið upp gömul
hús og opnaður fínn veitingastaður og kaffi-
hús, ásamt fundasölum og útisvæði. Staðirnir
hafa einnig dregið að sér fjölda fólks.
„Það er okkar stóra áskorun að fá ferða-
fólkið til að staldra lengur við,“ segir Ásgeir
Logi sem aðild á að ferðaþjónustufyrirtæki á
Ólafsfirði. Ýmislegt hefur verið gert til þess
og fleira í bígerð á báðum stöðum. Göngin
gefa kost á hringleið um Tröllaskaga og er
unnið að markaðssetningu afþreyingar á öll-
um hringnum.
Langtímaverkefni
Betri höfn er á Siglufirði en Ólafsfirði og
þar er fiskmarkaður. Stærsta sjávarútvegs-
fyrirtæki Fjallabyggðar er með starfsemi á
báðum stöðum. Hugað er að því að auka
hafnsækna starfsemi á Siglufirði. Meðal ann-
ars er horft til þjónustu við námarekstur á
Austur-Grænlandi. Aukin verkefni við höfn-
ina nýtast smiðjum og þjónustufyrirtækjum á
báðum stöðum.
„Með göngunum voru stóru línurnar lagð-
ar. Við þurfum að nýta tækifærin sem þau
skapa. Það er langtímaverkefni,“ segir Ásgeir
Logi Ásgeirsson.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Opið Ólafsfjörður var endastöð en er orðinn hluti af stærri heild með Héðinsfjarðargöngum og sameiningu við Siglufjörð.
Fjölbreyttara mannlíf
Héðinsfjarðargöngin bæta lífsskilyrði íbúa Siglufjarðar og Ólafsfjarðar Fjölgun ferðamanna
skapar ný tækifæri Sameining skólanna sparar 60 milljónir og möguleikar á frekari hagræðingu
Safn Síldarminjasafnið er aðal aðdráttarafl Siglufjarðar. Erlend-
ir ferðamenn spyrja flestir til vegar þangað.
Jónína
Magnúsdóttir
Sigurður Valur
Ásbjarnarson
Ásgeir Logi
Ásgeirsson
Morgunblaðið/Ómar
„Mér finnst meiri jákvæðni hér en
víða annars staðar. Það er mikið líf
á Siglufirði í sumar,“ segir Hall-
grímur Páll Sigurbjörnsson,
fulltrúi í upplýsingamiðstöð ferða-
mála í ráðhúsinu á Siglufirði.
Ferðafólki hefur fjölgað mjög eftir
að Héðinsfjarðargöng voru opnuð
og margir leita til upplýsinga-
miðstöðvarinnar sem í sumar er í
Bóka- og héraðsskjalasafni Fjalla-
byggðar.
Hallgrímur segir að innlendir
ferðamenn komi mikið til að skoða
göngin. Áberandi hafi verið hversu
margir hópar hafi komið í vor.
Hann segir að erlendir ferðamenn
spyrji meira til vegar að Síldar-
minjasafninu og Þjóðlagasetrinu
og margir fari á veitingastaðina
við smábátahöfnina.
Útlendingarnir eru einnig á hött-
unum eftir óvenjulegri ferða-
mannastöðum. „Það komu hingað
tveir Þjóðverjar um daginn til að
spyrja um fiskbúðina frægu á
Siglufirði.“ Svo vill til að Fiskbúð
Siglufjarðar er við hliðina á ráð-
húsinu.
„Siglufjörður var endastöð en er
kominn í hringiðuna,“ segir Hall-
grímur.
Siglufjörður í hringiðuna
FERÐAFÓLKI FJÖLGAR Á TRÖLLASKAGA