Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011 ✝ AðalheiðurLárusdóttir fæddist í Nes- kaupstað 28. ágúst 1928. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir 26. júní 2011. Hún var dóttir hjónanna Lárusar Ásmundssonar, f. 1885, d. 1971, og Dagbjartar Sig- urðardóttur, f. 1885, d. 1977. Aðalheiður var næstyngst tólf systkina og eru tveir bræður á lífi. Hinn 1. október 1955 giftist Aðalheiður Ottó Sigurðssyni bakarameistara, f. 1928, d. 2001. Börn Aðalheiðar og Ottós eru: 1) Sigurður verk- stjóri, f. 1949, kvæntur Öldu K. Helgadóttur. Þeirra börn eru: Ottó, sambýliskona Kar- en Lilja Sigurbergsdóttir. Börn þeirra eru: Breki og Aníta b) Helga, sambýlis- maður Kári Þór Guðmunds- son. Dóttir þeirra er, óskírð Kára- dóttir. 2) Her- mann, for- stöðumaður, f. 1955, kvæntur Jó- hönnu G. Þormar. Þeirra börn eru: a) Orri. Börn hans eru: Dagný Lilja, Alexander og Eirný Ósk. b) Val- ur, sambýliskona Hanna María Hermannsdótt- ir. Dóttir þeirra er Júlía Rún. c) Hrafnhildur. d) Katrín Þóra. 3) Dagbjört Lára hús- móðir, f. 1962, gift Ingólfi Erni Arnarsyni. Þeirra börn eru a) Heiða Rut. Sonur hennar er Birkir Örn. b) Elv- ar. 4) Friðrik Jón fram- reiðslumaður, f. 1964, sam- býliskona er Ragnheiður Helen Ólafsdóttir. Dætur Friðriks eru Hilma Sól og Aþena. Aðalheiður bjó í Neskaup- stað lengst ævi sinnar, stýrði stóru heimili og stundaði samhliða ýmis störf. Hún flutti til Reykjavíkur með manni sínum 1982 og bjó þar í rúm 20 ár. Fljótlega eftir lát Ottós flutti hún aftur til Nes- kaupstaðar og settist að í Breiðabliki, íbúðum aldraðra. Eftir heilsubrest um síðstu áramót naut hún aðhlynn- ingar á Hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík. Sjávarborg, heimili Aðalheiðar og Ottós og foreldra hennar í Nes- kaupstað, var annáluð fyrir gestrisni og að öllu jöfnu var mannmargt enda miðpunktur stórrar fjölskyldu. Sama tók við þegar til Reykjavíkur var komið en þá fylltist heimili hennar af börnum, barna- börnum, vinum og ættingjum. Á Reykjavíkurárunum stund- aði hún ýmis umönnunarstörf og var síðustu árin matráðs- kona í Foldaskóla og síðar í Hamraskóla. Aðalheiður hafði yndi af útsaumi og prjóna- skap og féll sjaldan verk úr hendi. Hún var mikill tónlist- arunnandi og á árum áður landsþekkt fyrir einsöng sinn með Samkór Norðfjarðar. Útför Aðalheiðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. Sæl, Alla mín. Við dóttir þín vorum að lenda erlendis þegar við fengum þær fréttir að þú hefðir látist fyrr um daginn. Á meðan við vorum í háloftum háðir þú þína síðustu orrustu og í þetta skipti tapaðir þú. Þetta voru ótrúlegar fréttir. Við sem höfðum verið í heim- sókn hjá þér tveim dögum áður og spjallað um heima og geima. Veikindi þín voru farin að taka sinn toll. Það duldist eng- um, og allra síst þér sjálfri, að senn drægi að þessum degi. Öll vonuðum við að dagarnir yrðu mun fleiri en raunin varð. Hug- ur þinn var sterkur allt fram á síðustu stund. Skap þitt og sterk nærvera sem alla tíð hafa skilið þig frá öðrum, gerðu þig að þeirri Öllu Lár sem allir dáð- ust að, var enn til staðar og allir sáu að hér var stór kona á ferð. Mér fannst það kómískt, þeg- ar við um daginn komum með litla kommóðu að austan sem þú baðst um. Dóttir þín, sem í ýmsu svipar til þín, fann því allt til foráttu að koma kommóðunni fyrir í herberginu á Eir. En kommóðan skyldi inn og hún átti að fara á nákvæmlega þann stað sem þú ætlaðir henni. Og það gerðum við og fór hún vel þar. Ég kom fyrst inn á heimili ykkar hjóna haustið 1983 eða fyrir 28 árum. Þá ungur, renglulegur strákur, sem var að gera hosur sínar grænar fyrir einkadóttur ykkar. Eftir að hafa verið veginn og mældur í bak og fyrir var mér tekið opnum örm- um af ykkur og síðan þá höfum við átt margar stundir saman á heimili ykkar. Ekki síður minnisstæðar stundir eru af heimsóknum ykk- ar eftir að við Dagga fluttum austur aftur. Þið Ottó höfðuð gaman af að koma austur og fara í heimsóknir heim á Norð- fjörð að hitta ættingja og vini. Þá varð allt í einu annar taktur á heimilinu okkar. Þvílíkur fít- onskraftur var, að halda þurfti fast í bolla og skálar svo þær væru ekki rifnar úr höndunum og þvegnar upp. Þvottakarfan, sem alltaf var full, tæmdist og ekki var látið duga að þvo, hengja upp og brjóta saman. Nei, allt var straujað, hand- klæði, sængurföt, buxur og hvaðeina sem úr þvottinum kom, meira að segja tuskur og nærbuxur. Það var ekki laust við að maður yrði stundum vandræðalegur að fara í ný- þvegnar og straujaðar nærbux- urnar frá tengdamóður sinni. Allt sem þú gerðir, gerðir þú vel. Heimili þitt og börn ykkar voru þér allt. Hver man ekki eftir sunnudagssteikinni með brúnuðum kartöflum og sósu. Eða kaffiboðum með svignað borð af kökum og smurbrauði. Allir í fjölskyldunni hafa notið ofurkrafta þinna við prjónaskap og státað af lopapeysum, sokk- um, vettlingum og litlu börnin heilu dressunum sem þú snar- aðir fram eins og ekkert væri. Ég held svei mér að svona fólk sé ekki búið til í dag, en er þó svo lánsamur eins og þú veist að hafa náð í eina löggilta afritið. Við Dagga, barnabörnin þín og barnabarnabarn syrgjum sárt á þessari stundu. Í samráði við syni þína ákváðum við klára sumarfrí okkar sem eftir erf- iðan vetur var okkur svo þráð og dýrmætt. Við stöndum í þakkarskuld við þá fyrir að hafa útbúið útför og minningarstund- ir sem hæfa þér og vitum að þar er allt hið glæsilegasta. Þinn tengdasonur, Ingólfur. Elskuleg mágkona og vin- kona mín, Aðalheiður Lárus- dóttir frá Sjávarborg í Nes- kaupstað, er farin frá okkur til betri heimkynna, laus við sjúk- dóma og vanlíðan. Alltaf barstu þig vel, Alla mín, og alltaf var gaman að koma til þín í heimsókn, hvort sem það var heima á Norðfirði eða hér fyrir sunnan. Móttök- urnar á Sjávarborg eru auðvitað kafli út af fyrir sig. Við Svavar höfðum það fyrir sið að koma alltaf til þín á laug- ardögum og daginn fyrir andlát þitt sast þú uppáklædd að venju og varst að horfa á fótbolta í sjónvarpinu, en að horfa á boltaleiki í sjónvarpi var þín besta skemmtun, svo og að hlýða á tónleika, aðallega söng; þá varstu heilluð og vorum við búnar að ákveða að fara nú í Hörpu þegar þú færir að hress- ast. Þú varst líka að byrja að prjóna fallega telpupeysu, en þú fékkst fjórar langömmutelpur á síðustu níu mánuðum og þá síð- ustu 10. júní og varst ákaflega stolt af þeim öllum. Þú fékkst að fara snöggt, varst bráð- kvödd, eins og sagt er, og þurfir ekki að liggja á spítala og láta hafa fyrir þér, eins og þú orð- aðir það svo oft. Aldrei komum við svo til þín á Eir að þú hefðir ekki orð á því hve vel væri hugsað um þig og hvað starfs- fólkið væri þér sérlega gott og þetta fundum við líka sem heim- sóttum þig. Elsku Alla mín, hjartans þakkir fyrir allar samveru- stundirnar í nær 60 ár, en það rifjaðist upp í 80 ára afmæl- isveislunni þinni að okkur varð aldrei sundurorða öll þessi ár. Elsku Siggi, Hermann, Dagga, Friðrik og fjölskyldur ykkar, og bræðurnir Ágeir og Svavar minn, við söknum öll Öllu okkar mikið og tómarúm myndast við fráfall hennar, en fallegar eru minningarnar. Þökk fyrir allt, elsku Alla mágkona mín. Þín Elsa. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Elsku Alla amma mín er far- in. Söknuðurinn er mikill og tómarúm í hjartanu. Minning- arnar brjótast fram og það er ekki annað hægt en að brosa. Amma var best. Nú er hún komin til elsku Ottós afa og ég veit að þau munu fylgjast með okkur öllum. Hvíldu í friði, elsku Alla amma mín. Þín Heiða. Þar sem hvorki undirrituð né móðir mín, Kristín Friðbjörns- dóttir, getum verið við útför frænku og mágkonu er henni hér þakkað fyrir einstaka vin- áttu. Alla frænka, en svo kallaði ég hana alltaf hét Aðalheiður Lár- usdóttir. Hún var uppáhalds- frænka mín. Í fyrsta skipti sem ég sagði henni það benti hún mér á að ég ætti margar góðar frænkur sem var hárrétt at- hugasemd en að hún væri glöð að vera ein af uppáhaldsfrænk- um mínum. Síðustu ár var hún hætt að andmæla mér þegar ég sagði þetta, henni þótti bara vænt um það. Alla frænka er órjúfanlegur hluti bernsku minnar í Nes- kaupstað. Hún var litla systir föður míns, Ársæls, ein af tólf systkinum og átti þá heima á ættaróðalinu Sjávarborg. Hún stjórnaði þar og rak átta manna heimili en hún hélt heimili með ömmu og afa, Dagbjörtu Sig- urðardóttur og Lárusi Ás- mundssyni þar til þau féllu frá. Síðan áttu hún og Ottó Sigurðs- son bakarameistari maður hennar, fjögur börn. Það geisl- aði alltaf af frænku minni hún var broshýr og falleg, dökk á brún og brá. Hún hafði yndi af tónlist og söng. Hörkudugleg var hún líka. Að vera húsmóðir á Sjávarborg líktist því helst að reka hótel og félagsmiðstöð. Þangað lágu leiðir allra Lárus- arsystkina og fjölskyldna þeirra. Í minningunni var þar alltaf verið að bjóða upp á veit- ingar, segja sögur kýta aðeins, og taka lagið margraddað á góðum stundum. Hún vann líka úti og lengst af með manni sín- um Ottó í bakaríi sem fjölskylda hans átti. Frá fyrstu tíð agaði Alla frænka mig. Hún benti mér góðlátlega á hvað mætti og hvað mætti ekki. Hún áminnti mig um að vera sannsögul og vera trú þeim verkum sem mér voru falin. Eftir því sem ég eltist breytti hún um uppeldisaðferð- ir, hún fór að nota hvatningu og hrós. Ég held að það sé ekki til það verkefni sem hún taldi mig ekki ráða við. „Hvað, auðvitað geturðu það, þú gerir það með glans,“ sagði hún af sannfær- ingarkrafti. Hrós hennar eru dýrmætar gjafir því ég virti hana mikils og þótti afar vænt um hana. Eftir að Ottó lést ákvað Alla að flytja aftur austur í Neskaupstað en þau Ottó höfðu búið lengi í Reykjavík. Mikil var gleði okkar mæðgna þegar Alla flutti í næstu íbúð við móður mína Kristínu í Breiðabliki. Þar kynntist ég listakonunni Öllu. Handavinnan hennar var ein- stök, hvert stykki var listaverk unnið af metnaði og alúð. Alla frænka var mömmu óendanlega góð og hjálpsöm og reyndu þær báðar að styðja hvor aðra og styrkja. Er hennar nú sárt saknað. Við Ingvi, Ársæll Þór og Kristín færum börnum Öllu: Sigurði, Hermanni, Dagbjörtu Láru og Friðriki Jóni og þeirra fjölskyldum samúðar- og kær- leikskveðjur. Megi ljós friðar og kærleika fylgja ástkærri frænku og mág- konu. Dagrún Ársælsdóttir. Aðalheiður Lárusdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku Alla, uppáhalds- frænka mín. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Við kveðjum þig með söknuði. Lína Dagbjört og fjölskylda.                          ✝ Elskuleg móðir mín og amma okkar, SIGURVEIG EINARSDÓTTIR, Gullsmára 10, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 10. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 18. júlí kl. 13.00. Kolbrún Matthíasdóttir, Matthías Þorbjörn Ólafsson, Marie Elizabeth Melly, Sigurveig Íris Ólafsdóttir, Helge Remme, Hrafnhildur Eva Ólafsdóttir, Øyvind Leirgulen. ✝ Ástkær móðir, amma og langamma, KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR, Grænlandsleið 44, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi laugar- daginn 9. júlí. Útför fer fram frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 19. júlí. Magnús Ingvarsson, Anna Dóra Steingrímsdóttir, María Kristín Ingvarsdóttir, Páll Sveinsson, Bjarni Þór Ingvarsson, Ruth Irene Thorkildsen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, BJARNI MAGNÚSSON, Brúnavegi 9, áður til heimilis á Bugðulæk 16, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi miðvikudaginn 6. júlí, verður jarðsunginn frá Laugarnes- kirkju föstudaginn 15. júlí kl. 15.00. Birna Birgisdóttir, Gunnar Ólafur Bjarnason, Sigrún Sigfúsdóttir, Dóra Bjarnadóttir, Gylfi Gunnarsson, Gunnar Ásbjörn Bjarnason, Guðný Káradóttir, Hannes Bjarnason, Birna Vilbertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐBJÖRN GUÐNI AÐALSTEINSSON, sem lést fimmtudaginn 7. júlí, verður jarð- sunginn frá Ólafsfjarðarkirkju mánudaginn 18. júlí kl. 14.00. Ásta Einarsdóttir, Magnús Guðnason, Klara Sveinbjörg Guðnadóttir, Birgir Guðnason, Borghildur Sverrisdóttir, Eygló Guðnadóttir, Kristinn Gunnarsson, Ingi A. Guðnason, Sonja Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri bróðir og mágur, JÓHANN GUNNAR GUÐMUNDSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 26. júní. Útförin hefur nú þegar farið fram. Þökkum ættingjum og vinum hlýjan hug og samúð. Sér í lagi þökkum við starfsfólki á Grund sérstakan kærleik og umönnun um áraraðir. Blessuð veri hans minning. Matthea K. Guðmundsdóttir, Ingimar Einarsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, HÓLMSTEINN PJETURSSON, Barmahlíð 9, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 11. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hallfríður Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.