Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011
Víða er heitt um þessar mundir og þegar hitinn
er kominn upp fyrir 40 gráður reynist mörgum
erfitt að vera utan dyra. Þegar fólk þarf á kæl-
ingu að halda koma loftkæld ökutæki sér einkar
vel að ekki sé talað um gosbrunna og sundlaug-
ar. Sums staðar eru þessi þægindi ekki til staðar
þegar á þarf að halda og þá er ekki annað í stöð-
unni en stinga sér í vatnið eins og þessir strákar
gera við Ohrid-vatn í Makedóníu.
Reuters
Vatnið alltaf best í hitanum
Nær 900 börn
týndu lífi og yfir
3.200 særðust í
óeirðum í Írak á
árunum 2008 til
2010. Barnahjálp
Sameinuðu þjóð-
anna, UNICEF,
greindi frá þessu
í gær í tilefni
Dags írakska barnsins.
Í skýrslu UNICEF kemur fram
að samkvæmt opinberum tölum
hafi 376 börn látið lífið og 1.594
særst í óreirðum í Írak 2008. Sam-
bærilegar tölur hafi verið 362 og
1.044 2009. Fyrstu níu mánuði árs-
ins 2010 hafi 134 börn verið drepin
og 590 særst í óeirðum í landinu.
UNICEF hefur miklar áhyggjur
af viðvarandi ofbeldi sem brjóti
harðlega á réttindum barna í Írak.
Bent er á að börn, sem hafi fallið í
átökunum á nefndu tímabili, séu
8,1% allra sem hafi týnt lífi á sama
tíma. Jafnframt kemur fram að
árásum á menntastofnanir og
starfsfólk þeirra eins og kennara
og stjórnendur hefur fjölgað og
þar með haft áhrif á rétt barna til
náms.
Í gær var Dagur írakska barns-
ins til minningar um 32 börn sem
létust í bílasprengju 13. júní 2005,
þegar þau hlupu í áttina að banda-
rískum hermönnum til að þiggja af
þeim sælgæti og leikföng.
Nær 900 börn í Írak
drepin og um 3.200
særð á þremur árum
Meira en 100 ára Rafetus-skjald-
baka í Víetnam hefur fengið frelsið
á ný eftir þriggja mánaða umsjón
sérfræðinga vegna meiðsla. Gert
var að sárum hennar og henni síðan
sleppt í Hoan Kiem-vatn í Hanoi.
Vitað er um fjórar Rafetus-
skjaldbökur, tvær í Kína og eina
annars staðar í Víetnam. Þessi
skjaldbaka er í hávegum höfð hjá
Víetnömum.
Sagan segir að Le Loi hafi varist
innrás Kínverja með töfrasverði
fyrir nær sex öldum. Eftir að hann
varð keisari sigldi hann dag einn á
Hoan Kiem-vatni (Sverðavatni). Þá
birtist skjaldbaka, Rafetus-
skjaldbaka að margra mati, tók
töfrasverðið hans og synti með það
til botns þar sem hún gætir þess þar
til Víetnam þarf næst að berjast
fyrir sjálfstæði.
Risaskjaldbakan vegur um 170
kg. Hún var tekin úr vatninu í apríl
eftir að myndir sýndu sár á fótum
og hálsi, væntanlega eftir háfa og
aðrar minni skjaldbökur.
Fræg skjaldbaka
frelsinu fegin á ný
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Aukin hræðsla vegna geislavirkni fékk byr
undir báða vængi í Japan í gær eftir að greint
var frá því að geislamengað kjöt frá býli rétt
fyrir utan Fukushima hefði farið á markað í
Japan. Um svipað leyti lýsti Naoto Kan, for-
sætisráðherra Japans, því yfir að ráðamenn
ættu að stefna að því að Japan yrði kjarnorku-
laust land í framtíðinni.
Eftir hamfarirnar í Japan 11. mars síðastlið-
inn voru íbúar, nautgripir og annar búfénaður
fluttir á brott af 20 kílómetra landsvæði um-
hverfis Fukushima kjarnorkuverið. Rannsókn
um helgina leiddi í ljós að kjöt úr 11 naut-
gripum frá bæ í Minamisoma rétt utan við
bannsvæðið stóðst ekki öryggiskröfur en magn
geislavirka frumefnisins sesíum í því mældist
allt að sex sinnum meira en leyfilegt er. Bónd-
inn viðurkenndi þá að nautgripirnir hefðu
fengið fóður sem hefði verið ræktað á hættu-
svæði. Rannsókn á því sýndi að það innihélt 56
sinnum meira sesíum en leyfilegt er.
Menguð matvæli
Bóndinn slátraði sex kúm í maí og júní og
var kjötið, um 1,5 tonn, selt í búðir og til veit-
ingastaða víða í Japan, meðal annars í Tókíó og
Osaka. Þegar þessar upplýsingar voru gerðar
opinberar reyndi ríkisstjórnin að róa almenn-
ing í landinu og draga úr hættunni með því að
benda á að fólk væri ekki í mikilli hættu þó það
borðaði lítinn skammt af geislamenguðu kjöti.
Samt sem áður vakti málið grunsemdir um
matvælaöryggi rúmum fjórum mánuðum eftir
jarðskjálftann og flóðbylgjuna og vísað var til
þess að of mikið magn geislavirkra efna hefði
fundist í grænmeti, sjávarfangi og grænu tei.
Án kjarnorku
Naoto Kan hefur ítrekað sagt að Japan eigi
að snúa sér að endurnýtanlegri orku í auknum
mæli. Hann sagði í gær að leggja ætti áherslu á
að draga jafnt og þétt úr notkun kjarnorku í
landinu. „Við stefnum að því að vera samfélag
sem þarf ekki á kjarnorku að halda,“ sagði
hann.
Forsætisráðherrann sagði að með hættuna á
kjarnorkuslysum í huga væri ekki réttlætan-
legt að halda áfram og treysta á aukið öryggi í
kjarnorkuverum.
Geislamengað kjöt á markað
Fóður nautgripa skammt frá Fukushima innihélt 56 sinnum meira sesíum en leyfilegt er Magnið í
kjötinu sexfalt yfir hámarki Forsætisráðherra Japans vill að landið verði kjarnorkulaust í framtíðinni
„Við stefnum að því að
vera samfélag sem þarf
ekki á kjarnorku að
halda“
Naoto Kan
BAKSVIÐ
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hersveitir Muammars Gaddafis
gerðu gagnárásir á sveitir uppreisn-
armanna suðvestur af Trípolí í Líbíu
í gær. Uppreisnarmenn segja
ómögulegt að ná samkomulagi við
Gaddafi, sem stendur frammi fyrir
peningaleysi og olíuskorti að öllu
óbreyttu.
Uppreisnarmenn, sem hafa náð
bæjum frá Nalut að Kikla í fjöll-
unum í vesturhluta landsins á sitt
vald, geta komið í veg fyrir að
helsta olíuhreinsunarstöðin í al Za-
wiyah fái hráefni og gerir leyniþjón-
usta Bandaríkjanna ráð fyrir að af
því geti orðið innan mánaðar.
Fyrir rúmri viku viðurkenndi
tyrkneska ríkisstjórnin bráða-
birgðastjórn uppreisnarmanna í
Líbíu, frysti eignir stjórnar Gaddaf-
is í Tyrklandi og ákvað að auka fjár-
hagsaðstoð við bráðabirgðastjórn-
ina.
Klippt á tengingu
Talið er að með ákvörðun sinni
hafi Tyrkir fryst hundruð milljóna
dollara og þar með skorið á teng-
ingu Gaddafis við nauðsynlegt
reiðufé, meðal annars til þess að
borga mönnum sínum laun. Sagt
er að skörð séu komin í fylk-
ingar Gaddafis og haft hef-
ur verið eftir bandarísk-
um embættismönnum að
mikil óeining ríki á með-
al stuðningsmanna hans.
Það á reyndar ekki aðeins við um
stjórnarherinn því uppreisnarmenn
hafa verið illa skipulagðir, átt í
vandræðum með að afla sér nægra
skotfæra og annarra birgða auk
þess sem þeim hefur gengið illa að
halda yfirráðum á svæðum sem þeir
hafa náð á sitt vald.
Loftárásirnar á Líbíu hafa staðið
yfir síðan í mars. Hugmyndir um
vopnahlé og friðsamlega lausn hafa
ekki náð fram að ganga. Forsætis-
ráðherra Tyrklands segist til dæmis
hafa boðið að tryggja öryggi Gad-
dafis yfirgefi hann Líbíu en ekki
fengið svör. Reyndar hefur Gaddafi
ítrekað neitað að yfirgefa landið eða
gefast upp. Ríkin sem standa að
loftárásunum hafa sagt að lykilatriði
sé að Gaddafi fari frá. Og þar við
situr.
Gaddafi bítur frá sér en
skortir bæði fé og olíu
Hersveitir hans gerðu gagnárásir á sveitir uppreisnarmanna suðvestur af Trípolí
Belgía, Lúxemborg og Holland
tilkynntu í gær að þau viður-
kenndu bráðabirgðastjórn upp-
reisnarmanna í Líbíu og áttu
síðan fund með Mahmoud
Jebril, leiðtoga hennar, og
sendinefnd hans. Líbíu-
mennirnir hittu líka
Anders Fogh Rasmus-
sen, framkvæmda-
stjóra NATO.
Aukinn
stuðningur
BRÁÐABIRGÐASTJÓRNIN
Mahmoud
Jebril