Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011 EIN BESTA ÆVINTÝRA/SPENNUMYND ÁRSINS SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í EGILSHÖLL OG SELFOSSI FRÁBÆRFJÖLSKYLDU-OGGAMANMYNDMEÐJIMCARREYÍFANTAFORMI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI MIÐASALA Á SAMBIO.IS HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 5:20 - 8 - 10:40 12 TRANSFORMERS 3 3D kl. 6 - 9 12 BEASTLY kl. 6 - 10:20 10 SUPER 8 kl. 8 12 HARRY POTTER 7 - PART 2 3D kl. 5:20 - 8 - 10:40 12 KUNG FU PANDA kl. 5:20 L TRANSFORMERS 3 3D kl. 8 - 11:20 12 HARRY POTTER 7 - PART 23D kl. 8 - 10:40 12 TRANSFORMERS kl. 9 12 / KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK HARRY POTTER 7 - PART 2 kl. 5:10 - 8 - 10:40 12 MR. POPPER'S PENGUINS kl. 5:40 - 8 L SOMETHING BORROWED kl. 10:20 L / SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA 750 kr. á allar sýningar merktar með appelsínuguluSPARBÍÓ FRÁBÆR MYND SEM KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART HHH - MIAMI HERALD - ORLANDO SENTINEL HHH „ÞÚ MUNT EKKI SJÁ FLOTTARI HASAR Í SUMAR, OG ÉG VERÐ MJÖG HISSA EF VIÐ SJÁUM BETRI BRELLUSÝNINGU ÞAÐ SEM EFTIR ER AF ÁRINU“ -T.V. KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG AKUREYRI FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN - Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN HHHH SÝND Í KRINGLUNNI - S.F. CHRONICLE HHH SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK HHH Bonnie ’Prince’ Billy eða Will Old- ham þarf lítið að kynna fyrir ís- lenskum tónlistar- áhugamönnum. Á síðustu tveimur áratugum hefur hann gefið út gríð- arlega mikið af efni og verið einn vinsælasti nýfolk-tónlistarmaður heims á tímabilinu. Á stuttskífunni The Mindeater vinnur hann með Dominic Cipolla eða The Phantom Family Halo. Þeir búa báðir í Louis- ville í Kentucky og sömdu saman þrjú lög fyrir skífuna ásamt því að flytja gamla Everly Brothers lagið I Wonder If I Care As Much þar sem gamli Slint bassaleikarinn Todd Brashear kemur við sögu. Segja má að tónlistin sé nokkurt afturhvarf hjá Oldham og minnir svolítið á tónlistina sem hann var að gera rétt fyrir aldamót. Stemmingin er rólyndisleg þar sem kassagítar og söngur Oldhams fer vel saman í hráum hljóðheimi. Kirkjuorgelið í lok laganna kemur vel út og veitir þeim flottan þunga. En skífan var víst tekin upp á útfararheimili. Everly Brothers. Lagið er svo gam- aldags rokk sem leysist upp í yfir- vegaðan takt að þýskum hætti. Án þess að vera eitthvert meistaraverk er þetta samt tónlist sem bara virk- ar. Rödd Oldhams virkar einmitt svo vel þegar dramatíkin er ekki yfir- keyrð og textarnir verða beittari fyrir vikið. Þetta er samstarf sem gæti vel orðið mjög farsælt. Bonnie ’Prince’ Billy & The Phantom Family Halo - The Mindeater bbbm Í gömlum ham Hallur Már Það má merkilegt teljast að tónlistar- maðurinn Joseph Arthur hafi ekki náð lengra en raun ber vitni, svo hæfi- leikamikill sem hann er sem laga- og textasmiður. Fjórtán ár frá því fyrsta plata hans kom út á vegum plötufyrirtækis Peters Gabriels sem fékk fína dóma, en seldist lítið eins og reyndar flest það sem Gabriel gaf út áður en hann heyktist á að reka Real World-útgáfuna. Aðrar plötur Arthurs hafa verið fínar, nefni sérstaklega Our Shad- ows Will Remain frá 2004 og Nucle- ar Daydream frá 2006, en svo er það upp talið, plöturnar eru orðnar fleiri, en alltaf er eins og það vanti eitthvað uppá. Arthur stofnaði svo tríóið Fistful of Mercy í fyrra með Ben Harper og Dhani Harrison, en hefur þó ekki lagt sólóferilinn á hill- una eins og sannast á The Gradua- tion Ceremony sem kom út í byrjun mánaðarins. Á plötunni er Arthur heldur inn- hverfari en áður, meira um strengi og mjúklega strokið slagverk en rafgítara og frumskógatrommur. Hann er þó við sama heygarðshorn í textum, beinskeyttur og torskilinn, sem skýrir kannski hvers vegna vinsældirnar láta á sér standa. Að því sögðu þá er þetta hin fínasta plata, ekkert tímamótaverk en gott að heyra að hann kann enn að semja smellin lög og hefur enn sitt- hvað að segja. Heldur inn- hverfari Joseph Arthur - The Graduation Ceremony bbbnn Árni Matthíasson Ég gleymi því seint þegar ég sá kynn- ingarmynd af The Horrors í fyrsta skipti. Önnur eins tízkufórnarlömb hafði maður ekki lengi séð, ný-gotneska „lúkkið“ stíl- iserað upp í topp og meðlimir minntu fremur á teiknisöguhetjur en manneskjur. Fyrsta platan, Strange House (2007) endurspeglaði svo plastkennda ímyndina, draugalegt bílskúrsrokk sem hefði í mesta lagi sæmt einni af verri myndum Tim Burton. Og voru ekki Cramps búnir með þennan pakka? Eðlilega lá beint við að afskrifa bandið sem „bragð mánaðarins“ eins og það er kallað og manni var eiginlega orðið þungt um, hugsandi um næstu plötu sem yrði án efa útvötnuð útgáfa af frumburð- inum. Þegar hún svo kom út tveimur ár- um síðar (nefnd Primary Colours) voru poppfræðingarnir sem allt þykjast vita hins vegar gripnir í ból- inu. Hið óvænta getur gerst, eftir allt saman, poppheimar eru ekki eins fyrirsjáanlegir og maður var farinn að halda. Og það eru plötur eins og Primary Colours sem gera að verkum að maður heldur áfram að slægjast eftir gimsteinum í rusla- kistu. Á Primary Colours kom í ljós að sveitinni, og þá aðallega leiðtoga hennar, Faris Badwan, kom ekki til hugar að hjakka í sjöunda áratugar bílskúrsrokki. Þess í stað voru kom- in löng, sveimbundin lög sem kölluðu fram skóglápssveitir og súrkálsrokk. Í ljós kom ennfremur að Badwan var vel skólaður poppnörd, með ítalska kvikmyndamúsík og stúlknasveita- popp í vasanum m.a. (hið fyrrnefnda hefur hann svo rannsakað tónlist- arlega með dúettnum Cat’s Eyes). Skying ber nafn með rentu, Hor- rors halda áfram upp á við og leita í brunn dramatísks rokks frá níunda áratugnum (Chameleons, einhver?) m.a. en krydda svo duglega með heimalöguðu, „hræðilegu“ kryddi. The Horrors er mikil mektargrúppa sem virðist bara ætla að verða betri og betri með hverri plötu. Reglubókin út um gluggann The Horrors - Skying bbbbn Arnar Eggert Thoroddsen Metnaður The Horrors flögra kinnroðalaust um ókönnuð svæði poppsins. Erlendar plötur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.