Morgunblaðið - 14.07.2011, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR
- T.M - THE HOLLYWOOD
REPORTER
- L.S - ENTERTAINMENT
WEEKLY
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á
T.V. - KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ & HEYRT
STÆRSTA MYND ÁRSINS ! SJÁÐU LOKAKAFLAN Í 3DBARÁTTAN UM HOGWARTS ER HAFIN.
ZOOKEEPER KL. 6 - 8 L
BRIDESMAIDS KL. 5.50 - 8 - 10.10 12
ATTACK THE BLOCK KL. 10 16
HARRY POTTER 3D KL. 5.20 - 7 - 8 - 10 - 10.40 12
ZOOKEEPER KL. 5.45 - 8 - 10.15 L
BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14
ATTACK THE BLOCK KL. 8 - 10 16
ZOOKEEPER KL. 3.30 - 5.45 - 8 L
TRANSFORMERS 3 3D KL. 5 - 10.15 12
TRANSFORMERS 3 3D Í LÚXUS KL. 5 - 8 12
BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14
MR. POPPER´S PENGUINS KL. 3.40 - 5.50 L
BRIDESMAIDS KL. 8 - 10.40 12
KUNG FU PANDA 2 ÍSL TAL 3D KL. 3.40 L
5%
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SUPERBAD,
KNOCKED UP, OG THE 40-YEAR-OLD VIRGIN
HARRY POTTER - PART 2-3D Sýnd kl. 5 - 7:30 og 10 (Power)
ZOOKEEPER Sýnd kl. 4, 6 og 8
BRIDESMAIDS Sýnd kl. 4, 6:30 og 9
TRANSFORMERS 3D Sýnd kl. 10:10
Stórskemmtileg
grínmynd
fyrir alla
fjölskylduna
frá leikstjóra
The Wedding
Singer.
Cher, Nick Nolte,
Adam Sandler,
Sylvester Stallone og
fleiri stórstjörnur ljá
dýrunum rödd sína
og fara á kostum.
BARÁTTAN UM HOGWARTS ER HAFIN
STÆRSTA MYND ÁRSINS!
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
HHHHH
- T.M - THE HOLLYWOOD REPORTER
HHHHH
- L.S - ENTERTAINMENT WEEKLY
HHHHH
- R.C - TIME
HHHH
- H.O - EMPIRE
HHHH
- J.T - VARIETY
Gagnrýnendur eru allir á einu máli.
Stórkostlegur endir á stærstu
kvikmyndaseríu allra tíma
HHHH
„MÖGNUÐ ENDALOK“
- K.A. - FBLSJÁÐU LOKAKAFLANN
Í 3D
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Paul McCartney segir, að skipu-
leggjendur Ólympíuleikanna í
Lundúnum á næsta ári séu að und-
irbúa „einhvers konar Bítlatónlist“
á opnunarhátíðinni. Gaf McCartney
í skyn að til greina kæmi að hann
og Ringo Starr kæmu fram saman
á hátíðinni.
Fram kemur á vef breska blaðs-
ins Guardian, að þegar McCartney
hafi verið spurður hvort hann muni
koma fram á opnunarhátíðinni
næsta sumar hafi hann kinkað
kolli.
„Ég hitti mann, sem þekkir
mann, sem ætlar að spyrja ein-
hvern um þetta bráðum,“ sagði
hann við vefinn Access Hollywood.
Haft er eftir McCartney, að orð-
rómur sé um að hann muni taka
þátt í opnunarhátíðinni. „Ég hef
ekki heyrt neitt ákveðið um það
enn ... en þeir eru nú að skipu-
leggja tónlistina.“
Guardian segir, að þótt þessi
svör séu óskýr séu þau samt skýr-
ari en svör sem McCartney gaf við
sömu spurningu í júní. Þá sagðist
McCartney í samtali við Absolute
Radio gjarnan vilja spila á hátíð-
inni en hann hefði ekki verið beð-
inn um það. „Þeir biðja mig ekki
um allt,“ sagði hann.
Breska blaðið The Sun segir, að
leikstjórinn Danny Boyle og aðrir
sem eru að skipuleggja opnunarhá-
tíðina, vilji ólmir að McCartney
komi þar fram. Þeir vilji einnig að
Ringo spili á hátíðinni og jafnvel
börn þeirra George Harrisons og
Johns Lennons, sem eru látnir.
Guardian segir, að einnig sé orð-
rómur um að hljómsveitirnar
Coldplay og Spice Girls komi fram
á opnunarhátíðinni. Bítlar Paul McCartney og Ringo Starr eru einu eftirlifandi Bítlarnir.
Bítlar á Ólympíuleikana?
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Biopholiu Bjarkar – það er fyrstu
tónleikaröðinni sem hefur nú verið
keyrð í Manchester undanfarnar
vikur – lýkur nú um helgina. Óhætt
er að segja að erlendir fjölmiðlar
hafi fylgst grannt með gangi mála
og segja má að öllu sé til tjaldað.
Með öðrum orðum, það er ekki
beint eins og Jói úti í bæ sé að gefa
út plötu heldur finnur maður fyrir
því að um stórviðburð er að ræða,
rætt er um nýtt verkefni hjá einum
mesta dægurtónlistarmanni sög-
unnar og eru dálksentimetrar og
annar viðurgerningur eftir því.
Bítlarnir og Stockhausen
Hið virta Guardian hefur farið
þar fremst í flokki með fjölda ítar-
legra greina um poppsnilld Bjarkar.
Simon Reynolds, einn helsti popp-
fræðingur Breta, veltir því fyrir sér
hvort Björk sé síðasta poppséníið
(Is Björk the last great pop innova-
tor?) og setur Bowie og Bush í
blönduna. Kemst hins vegar að því
að Björk eigi sér engan líka. Aðrir
miðlar ganga reyndar lengra og
fleygja inn nöfnum eins og Varese,
Stockhausen, Bítlunum og Brian
Wilson – eins og ekkert sé sjálf-
sagðara.
Bændur á hinu breska Dazed &
Confused, sem er alhliða tísku- og
menningarrit, sáu sér hins vegar
þann kost vænstan að fá Björk til að
ritstýra nýjasta hefti sínu. Wired,
sem er vísinda- og tæknitímarit og
fjalla um tengsl þeirra hluta við
menningu í sem víðustum skilningi
taka Björk þá fyrir og smella henni
auk þess á forsíðuna.
„Multimedieshow“
Hér hafa verið ótaldir allir þeir
óenskumælandi miðlar sem keppast
við að ausa Björk lofi, en Frakkar
og Spánverjar, svo og Þjóðverjar
fara þar mikinn að ekki sé talað um
Norðurlöndin (eða „Björk laver
multimedieshow“ eins og Danirnir í
Gaffa orða það). Bloggsvæði og jað-
artónlistarmiðlar fagna þá Björk
sem frelsara væri en ógerningur er
að lista allan þann fjölda hér.
Nei, gífuryrðin láta ekki á sér
standa hvað þetta nýjasta verkefni
Bjarkar varðar, hvert sem litið er.
Enda engin ástæða til.
„Síðasta poppséníið“
Biophilia Bjarkar vekur athygli heimspressunnar
Björk prýðir forsíðu margra tímarita og gestaritstýrir einu
Gífuryrðin láta ekki á sér standa
Brautryðjandi Björk ásamt Graduale Nobili í Manchester.
Almenn miðasala á sérstaka tón-
leika Bjarkar hefst á hádegi í dag
á midi. Tónleikarnir eru sam-
starfsverkefni Iceland Airwaves,
Smekkleysu og Manchester Inter-
national Festival. Icelandair er
helsti stuðningsaðili Iceland
Airwaves og Biophiliu á Íslandi.
Tónleikarnir, haldnir í Silfurbergi
í Hörpu, verða sex talsins og auk
þeirra verður sett upp sérstök
sýning og fræðsluverkefni fyrir
börn í tengslum við verkefnið.
Náttúra, vísindi og tónlist eru
tengd saman með algjörlega ein-
stökum hætti.
Fyrir gesti Iceland Airwaves
eru 200 miðar í boði endur-
gjaldslaust á hvora tónleika (12.
og 16. október) en aðeins um
700 miðar eru í boði á hverja
tónleika. Þeim verður útdeilt eftir
„fyrstur kemur, fyrstur fær“ regl-
unni á tónleikadegi.
Miðasala á Biophiliu hefst í dag