Morgunblaðið - 14.07.2011, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 2011
Alltaf ódýrast
á netinu
Þú færð alltaf
hagstæðara verð
á flugfelag.is
STUTT
Messað verður í Klyppstaðarkirkju
í Loðmundarfirði nk. sunnudag kl.
14. Prestar Múlaprófastsdæmis
hafa nokkur undanfarin sumur
messað á Klyppstað um miðjan júlí
og verður svo einnig að þessu sinni.
Messan á Klyppstað hefur að jafn-
aði verið vel sótt af ferðafólki og úr
nágrannabyggðum. Eftir messu
verður boðið upp á kirkjukaffi í
skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs.
Allir eru velkomnir. Klyppstaðar-
kirkja var reist árið 1895, en prest-
ur sat þar til ársins 1888. Eftir það
var staðnum þjónað frá Dverga-
steini og síðar Seyðisfirði. Kirkjan
er friðað hús og hefur ekki verið af-
helguð. Fyrri hluta 20. aldar var
blómleg byggð í Loðmundarfirði.
Um aldamótin 1900 voru þar 87 íbú-
ar. Til Loðmundarfjarðar er jeppa-
vegur frá Borgarfirði.
Sumarmessa í Klyppstaðarkirkju
Loðmundarfjörður Klyppstaðarkirkja er í
fögru umhverfi. Messað verður 17. júlí nk.
Á morgun, föstudag kl. 21:15, stendur FIT, Félag tón-
skálda og textahöfunda, fyrir garðveislu í Hljómskála-
garðinum. Garðveislan er ókeypis og öllum opin.
Það verður lagahöfundur ársins 2010, Jónas Sigurðs-
son, ásamt Ritvélum framtíðarinnar sem stígur á stokk,
en hljómsveit hans inniheldur fjölda hljóðfæraleikara og
söngvara. Þá kemur fram dúettinn Song for Wendy en
hann samanstendur af Bryndísi Jakobsdóttur, Dísu, og
danska tónlistarmanninum Mads Mouritz. Þau hafa búið
og starfað í Danmörku undanfarin misseri og komið
fram á Norðurlöndunum, Þýskalandi og víðar.
Garðveisla FIT hefur orðið að árvissum viðburði síðan árið 2008 þegar
félagið fagnaði 25 ára afmæli sínu og jafnframt 25 ára afmæli fyrsta „út-
rásarlagsins“, Garden Party, sem sló í gegn á alþjóðavísu í flutningi Mezzo-
forte. Það voru Mezzoforte sem riðu á vaðið og léku í fyrstu garðveislu
FIT. Síðan þá hafa listamenn á borð við Megas, Senuþjófana, Möggu Stínu,
Hörð Torfa og Hjálma sett svip sinn á garðveisluna.
Garðveisla í Hljómskálagarðinum
Jónas Sigurðsson
Golfsamtök fatlaðra á Íslandi
standa fyrir púttmóti í minningu
Harðar Barðdal þriðjudaginn 19.
júlí nk. Mótið fer fram á púttvell-
inum við Hraunkot í Hafnarfirði
(GK) og hefst kl. 18. Mótið fer nú
fram öðru sinni en skráningu má
senda á if@isisport.is.
Hörður lést árið 2009 en hann
var ötull forvígismaður golfíþrótt-
ar fatlaðra á Íslandi og gegndi for-
mennsku í samtökunum til dauða-
dags. Stofnaður hefur verið sjóður
til minningar um Hörð, í samvinnu
við Íþróttasamband fatlaðra og
Golfsamband Íslands, sem ætlað er
að styrkja fatlaða kylfinga.
Frumkvöðull Hörður Barðdal átti frum-
kvæði að stofnun Golfsamtaka fatlaðra.
Púttmót og sjóður í
minningu Harðar
Heyannir eru ár-
viss viðburður á
hverju býli. Nú á
sunnudaginn, 17.
júlí, er komið að
þeim degi þegar
amboðin verða
tekin fram á Ár-
bæjarsafni og
ljár borinn í
gras, að því er
fram kemur í
fréttatilkynningu.
Gestum og gangandi verður boð-
ið að taka virkan þátt í heyönnum
eins og þær tíðkuðust fyrir daga
heyvinnuvéla.
„Um aldir höfðu Íslendingar eng-
in önnur verkfæri en ljá, orf og
hrífu til að afla vetrarforðans. Víða
var heyjað upp á gamla mátann
fram yfir 1960, en nú eru gömlu
handbrögðin sjaldséð í sveitum
landsins. Því er kjörið tækifæri fyr-
ir þá sem vilja rifja upp fyrri kynni
við orf og hrífur að taka þátt í
heyannadegi Árbæjarsafns,“ segir í
tilkynningunni.
Fjölbreytt dagskrá hefur verið í
Árbæjarsafni í sumar, eins og forn-
bíladagur og Jónsmessuhátíð.
Heyannir í Árbæjar-
safni á sunnudag
Úr fyrri heyskap í
Árbæjarsafni.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Höfuðstaður Norðurlands er ein-
stakur á heimsvísu, eins og inn-
fæddum er kunnugt. Mér var bent á
nýverið, að eftir að Grímsey varð
hluti bæjarins sé Akureyri eini stað-
urinn í heiminum (a.m.k. á Íslandi)
þar sem boðið er upp á áætlunarflug
innanbæjar! Ætli það sé rétt?
Vegalengdir eru afstæðar. Ný-
gift hjón, bandarísk stúlka og ís-
lenskur piltur, ætluðu austur að
Höfn frá Reykjavík í síðustu viku
ásamt foreldrum hennar og bróður.
Það breytti litlu þótt brúin á Múla-
kvísl hyrfi af vettvangi, parið beygði
einfaldlega í aðra átt út úr borginni
og ók norðurleiðina. Ellefu klukku-
stunda akstur til Hafnar þótti ekki
tiltökumál.
Von var á fólkinu til Akureyrar í
gærkvöldi, en þar býr faðir hins ný-
gifta. Sá segir að þegar parið
„skreppi“ úr háskólanum heim til
foreldra hennar aki þau 14 tíma
hvora leið. Og gat þess að morgni
dags sem þau óku norður og austur,
skutluðu þau bandarískri vinkonu út
á Keflavíkurflugvöll frá Reykjavík!
Sextíu ár voru síðastliðinn föstu-
dag frá því tveir ungir íþróttamenn í
Þór létu lífið í hörmulegu slysi:
Kristján Guðmundur Kristjánsson
frjálsíþróttamaður, sem var á 21.
aldursári, og Þórarinn Jónsson
knattspyrnumaður, sem hefði orðið
tvítugur nokkrum dögum síðar.
Af þessu tilefni komu þrír Þórs-
arar sem voru í þessari örlagaríku
ferð í kaffisamsæti í félagsheimilinu
Hamri og sama dag lagði formaður
félagsins blómaskreytingar á leiði
Kristjáns og Þórarins.
Hópur frá félaginu var í langferða-
bifreið um Óshlíð, þegar stór steinn
féll ofan á bílinn með þessum afleið-
ingum. Kristján og Þórarinn sátu
ásamt fjórum öðrum í öftustu sæta-
röðinni.
Tveir slösuðust mjög mikið, Þor-
steinn Svanlaugsson, sem er látinn, og
Halldór Árnason, þekktur á Akureyri
sem Dóri skó. Hann var einn þriggja
sem komu í Hamar á föstudaginn var.
Hinir voru Tryggvi Gestsson og Arn-
grímur Kristjánsson, tvíburabróðir
Kristjáns Guðmundar sem lést í slys-
inu.
Friðarhlaupið er nú hálfnað á ferð
umhverfis Ísland og verður hópurinn
á Akureyri í dag. Þeim sem vilja sjá
bæjarstjórann, Eirík Björn Björg-
vinsson, hlaupa upp Gilið er bent á að
mæta við hótel KEA kl. 10.15.
Fyrsti viðkomustaður er KA-
heimilið, þar sem krakkar á leikja-
námskeiði taka á móti hópnum, og þar
verður formanni félagsins, Hrefnu
Gunnhildi Torfadóttur, afhent sam-
félagsverðlaunin Kyndilberi friðar,
fyrir þrotlaust starf í þágu betra
samfélags á sviði kennslu og fé-
lagsmála, eins og segir í tilkynn-
ingu.
Gaman er að segja frá því að
Torfi Leósson, skipuleggjandi
Friðarhlaupsins, mun freista þess
að sýna að hann hafi engu gleymt
síðan hann vann gullverðlaun á
ESSO mótinu 1990 sem varamark-
vörður í C-liði KA og býður öllum
krökkunum að skjóta á mark sam-
tímis. Verður hann einn til varnar!
Frá KA-heimilinu verður hlaup-
ið að sambýli eldri borgara við
Bakkahlíð og þaðan á Þórssvæðið
þar sem krakkar á leikjanámskeiði
taka á móti hlaupurunum.
Annað kvöld verður ábreiðu-
bandið Alice In Chains Tribute á
Græna hattinum. Innanborðs eru
söngvararnir Jens Ólafsson og
Kristófer Jensson, gítarleikararnir
Franz Gunnarsson og Bjarni Þór
Jensson, trommurnar lemur Þór-
hallur Stefánsson og Jón Svanur
Sveinsson leikur á bassa.
Er stutt til Hornafjarðar?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
60 ár frá slysinu Þórsararnir Halldór Árnason, Tryggvi Gestsson, Sigfús
Helgason formaður og Arngrímur Kristjánsson voru í kaffisamsæti í Hamri.
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Hágöngulón fylltist í fyrrinótt þegar
yfirborð þess hækkaði um 70 senti-
metra við hlaup úr Vatnajökli.
Vatnsborðið fór að hækka hratt um
tvöleytið um nóttina og verulega dró
úr aðstreyminu um klukkan átta í
gærmorgun. Að sögn Hjörleifs
Sveinbjörnssonar, jarðfræðings hjá
Veðurstofu Íslands, náði hlaupið há-
marki sínu um klukkan þrjú um
nóttina.
Um 26 gígalítrar bættust við lónið
í hlaupinu. Það er um 37 ferkíló-
metrar að stærð. Einn gígalítri er
þúsund milljón lítrar.
Hlaup fáheyrð á þessum slóð-
um
Í tilkynningu frá Veðurstofu Ís-
lands í gær sagði að um klukkan sjö
um morguninn þann 12. júlí hefði
mælst órói á jarðskjálftamælum við
vestanverðan Vatnajökul. Óróinn
hefði staðið yfir í um 45 mínútur og
annar svipaður hefði mælst á tíma-
bilinu frá kl. 13:15 til 14:15 í fyrra-
dag. „Óróinn líktist því sem mælist
vegna vatnsflóða undan jökli,“ sagði
í tilkynningunni. Um klukkan 18
kom aftur órói fram á mælum sem
stigmagnaðist fram yfir miðnætti.
Hjörleifur segir hlaup á þessum
slóðum vera fáheyrð. Aukin skjálfta-
virkni hefur verið undir Hamrinum
undanfarna mánuði en engin um-
merki hafa sést á yfirborðinu. Að
sögn Rögnu Söru Jónsdóttur, upp-
lýsingafulltrúa Landsvirkjunar, fóru
vatnamælingamenn Landsvirkjunar
að Hágöngulóni í gær og gengu á
Hágöngur til að kanna aðstæður og
uppruna hlaupsins.
Umframvatn í Þórisvatn
Hágöngulón er staðsett vestur af
Köldukvíslarjökli og er hluti Há-
göngumiðlunar Landsvirkjunar,
sem miðlar vatni á vatnasviði Köldu-
kvíslar. Vatnið nýtist svo virkjunum
á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu.
Á sumrin er vatni safnað í lónið og
var það næstum fullt þegar hlaupið
hófst. Umframvatnið í Hálsgöngu-
lóni rann niður Köldukvísl í gær og í
Þórisvatn. Mælar Landsvirkjunar
sýndu í gær að yfirborð Þórisvatns
var byrjað að hækka.
Hágöngulón fylltist við
jökulhlaup úr Vatnajökli
Umframvatnið
í lóninu rennur
yfir í Þórisvatn
Morgunblaðið/RAX
Lónið Hálslón var næstum fullt þegar hlaupið byrjaði í fyrradag og um-
framvatnið streymdi niður Kölduhvísl í gær og yfir í Þórisvatn.
Hlaupið
» Órói við vestanverðan
Vatnajökul mældist fyrst á
jarðskjálftamælum Veðurstofu
Íslands um klukkan sjö í fyrra-
morgun.
» Að sögn Hjörleifs Svein-
björnssonar, jarðfræðings hjá
Veðurstofu Íslands, eru hlaup á
þessum slóðum afar fáheyrð.
» Hlaupið náði hámarki um
klukkan þrjú í fyrrinótt.