Morgunblaðið - 14.07.2011, Qupperneq 44
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 195. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Byrjaði í Crossfit og missti 30 kíló
2. Með alvarlega höfuðáverka
3. Með brennandi kerru í eftirdragi
4. Skar getnaðarliminn af
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í kvöld hefja göngu sína á RÚV
matreiðsluþættirnir Grillað. Kokk-
arnir Völundur Snær, Sigurður og
Stefán Ingi halda um stjórnvölinn.
Einnig verður gefin út bók með upp-
skriftum úr þáttunum.
Grillað í dag á RÚV
Hinir svoköll-
uðu GRM, Gylfi,
Rúnar og Megas,
munu halda tón-
leika í Höllinni
helgina fyrir
Þjóðhátíðina í Eyj-
um eða hinn 22.
júlí. Með þeim í
þessari Vest-
mannaeyjaför verða trommarinn
gamli úr Stuðmönnum Ásgeir Ósk-
arsson og bassaleikarinn Sigurður
Árnason.
GRM í Höllinni í
Vestmannaeyjum
Björk Guðmundsdóttir hefur vakið
mikla athygli í erlendum fjölmiðlum
fyrir nýjasta verkefni sitt, Biophiliu.
M.a. er ýtarlegt viðtal
við hana í vísinda- og
tækniritinu Wired,
hún ritstýrir
tísku- og menn-
ingarritinu Daz-
ed & Confused
og er auk þess um-
fjöllunarefni fjölda
blaða, stórra sem
smárra. »39
Björk umtöluð í er-
lendum fjölmiðlum
Á föstudag og laugardag Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-10
m/s, hvassast NV-lands. Dálítil rigning með köflum NA- og aust-
anlands, en annars skýjað með köflum. Hiti 8 til 19 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan- og NA-átt, 5-10 m/s NV-til síðdegis
en annars hægari. Skýjað með köflum og dálítil væta um sunnan-
vert landið fram eftir, en austanlands síðdegis. Hiti 10 til 18 stig.
VEÐUR
„Ýmislegt var jákvætt hjá okk-
ur í fyrri hálfleik en þegar úr-
slitin eru svona stór þá er erf-
itt að tala um eitthvað
jákvætt út á við. Þetta fer í
reynslubankann,“ sagði Ólaf-
ur Kristjánsson þjálfari Ís-
landsmeistara Breiðabliks
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann að loknum tapleiknum
gegn Rosenborg í Meist-
aradeildinni í gærkvöldi.
Norðmennirnir eru í góðri
stöðu eftir 5:0 sigur. » 2
„Þetta fer í
reynslubankann“
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, Einar
Daði Lárusson og Blake Jakobsson
eru komin til Ostrava í Tékklandi þar
sem heimsmeistaramót 23 ára og
yngri í frjálsíþróttum hefst í dag.
Helga er talin ein af tíu bestu kepp-
endum mótsins en hún segir að það
hafi komið sér mjög á óvart og hún sé
sjálf ekkert sérstaklega vel stemmd
fyrir keppnina. »3
Kom Helgu á óvart að
vera talin ein 10 bestu
KR og FH eiga fyrir höndum
hörkuleiki í Evrópudeild UEFA í
fótbolta í kvöld. FH-ingar taka á
móti Nacional frá Portúgal í
Kaplakrika og KR fær Zilina frá
Slóvakíu í heimsókn í Vestur-
bæinn. Þjálfararnir Heimir Guð-
jónsson og Rúnar Kristinsson
vonast eftir hagstæðum úrslitum
á heimavelli. »4
Evrópuleikir í Kapla-
krika og á KR-velli
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
María Elísabet Pallé
mep@mbl.is
„Það er búið að ganga mjög vel og
undirbúningurinn rennur eins og
smurð vél,“ segir Jón Berg Torfa-
son mótsstjóri og formaður ung-
lingaráðs Breiðabliks. Að þessu
sinni er metþátttaka á Símamótinu í
Kópavogi, knattspyrnumóti fyrir 5.
til 7. flokk kvenna. Alls munu 180 lið
spila 750 leiki á 18 völlum. Í fyrra
var þátttakan einnig góð en þá var
leikið á 16 völlum. „Það er metþátt-
taka og mótið hefur aldrei verið
stærra. Það var stórt í fyrra en það
bættist við þann fjölda. Kvennamót
í knattspyrnu eru haldin einnig á
Siglufirði og Vestmannaeyjum en
Símamótið er stærsta mótið á Ís-
landi,“ segir Jón Berg sem telur
áhugann á kvennaknattspyrnu vera
í uppgangi.
Búist er við að 2-4 aðstandendur
komi með hverjum keppanda og er
liðum utan af landi boðið að gista í
Smáraskóla og Salaskóla í Kópa-
vogi. Tjaldstæði verður á Kópavogs-
túni vestan við Hafnarfjarðarveg.
Búist við miklum fjölda
„Við búum okkur undir
gríðarlegan fjölda fólks en um
14-15 þúsund manns gætu ver-
ið að koma í gegnum svæðið yf-
ir helgina,“ segir Jón Berg.
„Þetta leggst vel í okkur
en við biðjum veðurguðina
að vera í liði með okkur,“
segir hann og telur að þátt-
takan frá landsbyggðinni sé
ágæt en félögin á höfuð-
borgarsvæðinu komi að
þessu sinni sterkari til leiks.
Jón segir að fljótlega eftir
áramót séu stelpurnar farnar
að hugsa um mót sumarsins en
stemmningin sé mest rétt fyrir
mótið.
„Það er mikill spenningur og
stelpurnar skemmta sér konung-
lega,“ segir hann.
Skrúðganga leggur af stað frá
Digraneskirkju að Kópavogsvelli
klukkan 19:30 í kvöld en setning
mótsins er áætluð þar klukkan 20.
Trúðurinn Vally og Gunni og Fel-
ix munu taka þátt í skrúðgöngunni
en norska fótboltakonan Charlotte
Lade mun halda sýningu á setning-
arathöfninni. Hún hefur að atvinnu
að leika listir sínar. Spilað verður í
riðlum kl. 9-18 á föstudeginum, 9-17
á laugardeginum og 9-15 á sunnu-
deginum en þá lýkur mótinu með
verðlaunaafhendingu. Fjölbreytt
skemmtidagskrá fyrir keppendur,
þjálfara og foreldra verður haldin á
laugardagskvöldinu.
Kópavogsbúar hvattir
til að hjálpa til
„Mótið hefur aldrei verið stærra
og mikið að gera. Ég hvet því alla
Kópavogsbúa sem vilja taka þátt í
sjálfboðastarfi að gefa sig fram við
mótsstjórn. Um 200 sjálfboðaliðar
taka þátt í starfinu, en þetta gæti
ekki gengið svona vel nema með
hjálp góðra manna,“ segir Jón.
Búist við 15 þúsund í Kópavoginn
Um 1.550 þátttakendur á Síma-
mótinu Eitt stærsta íþróttamótið
Morgunblaðið/ Ómar
Stórmót Þorgeir, Sindri, Hákon og Jón Ágúst voru í óðaönn að snyrta trjágróður á Kópavogsvelli svo allt líti vel út þegar stúlkurnar byrja að keppa.
Sigrún Gunnarsdóttir hefur
tekið þátt í undirbúningi fót-
boltamóta kvenna frá árinu
1996. „Þetta voru bara rétt
um 100 lið þegar ég
byrjaði að
vinna við
þetta og á
þeim tíma voru 2. til 5.
flokkur að keppa í A-
og B-liðum. Nú eru
þetta orðnar miklu
yngri stelpur sem
keppa í A-, B-, C- og D-
liðum.
Þátttakan hefur verið
að aukast hægt og rólega
en mig hefði ekki grunað
að aukningin yrði svona
mikil,“ segir Sigrún.
Áhuginn
hefur aukist
FÓTBOLTI KVENNA