Morgunblaðið - 30.08.2011, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011
eða nýjustu tilskipun Evrópusam-
bandsins, þannig að hún kemur okkur
mjög í opna skjöldu. Við höfum auð-
vitað átt mikið samstarf um rekstur
bankans og tengd verkefni og FME
vill greinilega meina að það þýði að
við séum tengdir aðilar. Við erum
hins vegar ekki háðir hver öðrum
þegar kemur að ákvarðanatöku.“
Margeir segir að áhættuskuldbind-
ingarnar, sem FME nefnir í ákvörðun
sinni, sé ekki nema að hluta til lán-
veitingar til félaga þeirra. „Að stærst-
um hluta er um að ræða eignarhlut
bankans í eignarhaldsfélögum um er-
lendan rekstur. Þá finnst mér mik-
ilvægt að halda því til haga að þar sem
um lánveitingar er að ræða þá hafa
þau lán öll verið greidd eða eru í skil-
um.“
EA fjárfestingafélag skaut ákvörð-
un FME til dómstóla og hefur það
dómsmál verið þingfest. Fékk það
flýtimeðferð fyrir héraðsdómi og seg-
ir Margeir að FME hafi nú þrjár vik-
ur til að skila greinargerð vegna
málsins og að niðurstöðu sé að vænta
innan tveggja til þriggja mánaða.
„Eftirlitið telur sig væntanlega
hafa gert mistök í aðdraganda hruns-
ins þegar það tengdi ekki saman aðila
sem hefði átt að tengja. Núna er það
hins vegar að ganga allt of langt í hina
áttina þegar kemur að því að telja
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Margeir Pétursson, aðaleigandi EA
fjárfestingafélags hf., sem áður hét
MP banki, segist vera mjög ósáttur
við þá ákvörðun Fjármálaeftirlitsins
að sekta félagið fyrir brot gegn
reglum um stórar áhættur.
„FME er þarna að tengja saman
aðila sem eru ótengdir í skilningi laga
um fjármálafyrirtæki. Mennirnir sem
um ræðir eru annars vegar ég, og
hins vegar bræðurnir Sigurður Gísli
og Jón Pálmasynir og Sigfús Ingi-
mundarson, sem starfar fyrir bræð-
urna. Ég hef átt gott samstarf við
bræðurna, en við erum alls ekki
tengdir í skilningi laga um fjármála-
fyrirtæki. Þarna er um nýja túlkun
eftirlitsins að ræða sem ekki hafði
verið upplýst um.“ Þessi fjárfesting
bræðranna er svo auðvitað ekki nema
lítið brot af þeirra umsvifum, að sögn
Margeirs.
Kom honum í opna skjöldu
Hann segir að hann eigi ekkert í fé-
lögum bræðranna og að þeir eigi ekk-
ert í félögum hans. Þá skuldi hann
þeim ekkert fé og þeir ekki honum
heldur. „Lögmenn okkar og lögmenn
EA sjá ekki að þessi túlkun FME
finni sér nokkra stoð í lögum, reglum
menn tengda í skilningi laga. Þrátt
fyrir að eftirlitsaðilar hafi brennt sig í
kringum bankahrunið þá verða þeir
þó að fara að lögum gagnvart þeim
sem stóðu hrunið af sér.“
Margeir segir að þrátt fyrir að þeir
hafi verið mjög ósáttir við niðurstöðu
FME hafi þeir engu að síður farið í að
lagfæra það sem FME gerði athuga-
semdir við. „Við viljum ekki vera í
neinu stríði við Fjármálaeftirlitið. Við
greiddum upp lán og lokuðum afleiðu-
samningum og urðum því við tilmæl-
um eftirlitsins.“
Margeir segist vona að málið valdi
ekki fyrirtækinu tjóni, en það sé m.a. í
bankarekstri erlendis í samstarfi við
alþjóðastofnanir. „Ég vona að við
verðum ekki fyrir tjóni, en málið er
auðvitað neikvætt, þótt auðvitað sé
hægt að útskýra það.“
Þá vill hann leggja áherslu á að MP
banki og síðar EA hafi ekki orðið fyrir
neinu tjóni vegna skuldbindinga við
fjórmenningana. Eignir bankans sem
um ræðir hafi verið í félögum sem
áttu erlendar eignir, en þær hækkuðu
mikið í verði við gengisfall krónunnar
eftir hrun. Öll hlutföll miðað við eigið
fé gjörbreyttust því.
„EA hefur staðið skil á sínum
skuldbindingum sem er einsdæmi á
meðal íslenskra fyrirtækja í banka-
rekstri. Við höfum gert upp við alla
erlenda lánadrottna og okkar við-
skiptavinir hafa ekki orðið fyrir neinu
tjóni.“
Vísar tali um svik til föðurhúsa
Annað mál, er varðar EA, snýr að
skortsölu á bréfum í Landsbankanum
dagana fyrir hrun, en sagt var frá því
máli í fréttum í síðustu viku.
„Þetta var hluti af áhættustýringu
bankans. Bankinn skortseldi hluta-
bréfi og gerði skortsöluna upp með
sínum hluta af veði í bréfum Lands-
bankans, sem við höfðum fullan rétt á
að nýta. Byr kaus að verja sig ekki, en
telur sig engu að síður eiga hlutdeild í
okkar hagnaði vegna þess að um
sambankalán var að ræða. Sú deila er
fyrir dómstólum, sem er eðlileg leið til
að leysa úr slíkum ágreiningi. Ein-
hverjir vilja hins vegar láta líta út fyr-
ir að um einhver svik og pretti hafi
verið að ræða af okkar hálfu en það er
algerlega fráleitt að snúa málinu á
þann veg. Fyrir liggur yfirlýsing frá
endurskoðendum okkar, KPMG, að
færslur í bókhaldi bankans varðandi
þessa skortsölu hafi verið með full-
komlega eðlilegum hætti. Ekkert hef-
ur verið kært til lögreglu eða annarra
yfirvalda og því vísa ég öllu tali um
svik heim til föðurhúsanna.“
Ákvörðunin eigi sér ekki lagastoð
Margeir Pétursson segist afar ósáttur við sektarákvörðun FME á EA fjárfestingafélag Eftirlitið
tengi þar saman menn sem ekki séu tengdir í skilningi laga Bankinn hafi ekki tapað neinu
Morgunblaðið/Kristinn
Margeir Pétursson EA fjárfestingafélag hét áður MP banki, en skipti um
nafn þegar starfsemi bankans á Íslandi var seld fyrr á þessu ári.
STUTTAR FRÉTTIR
● Tap RARIK nam
91 milljón króna á
fyrstu sex mán-
uðum ársins, að
því er fram kemur í
tilkynningu til
kauphallarinnar.
Rekstrarhagnaður
fyrir fjármagnsliði
(EBIT) var 905
milljónir króna.
Rekstrarafkoman var betri en á fyrri
hluta ársins 2010 og hækkuðu rekstr-
artekjur um rúmlega 6,6% frá fyrra ári,
en rekstrargjöld með afskriftum um
tæplega 4,9% og var regluleg starfsemi
fyrirtækisins í samræmi við áætlanir, að
því er fram kemur í tilkynningunni.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir um
981 milljón króna á tímabilinu en voru
á sama tímabili árið áður jákvæðir um
248 milljónir króna. Þessi breyting staf-
ar fyrst og fremst af veikingu krón-
unnar og verðbólgu sem var meiri en
gert var ráð fyrir í áætlunum.
Áhrif hlutdeildarfélags á rekstur
voru neikvæð um 30 milljónir króna.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjár-
magnsliði og skatta (EBITDA) var 1.532
milljónir króna eða um 31% af veltu
tímabilsins.
Fjármagnsliðir draga af-
komu RARIK niður
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Evrópskir stjórnmála- og embættis-
menn hafa nær allir lagst á eitt um
að andmæla ummælum Christine
Lagarde, forstjóra Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins. Hún sagði á laugardaginn
að evrópskir bankar gætu nauðsyn-
lega þurft á nýrri eiginfjárinnspýt-
ingu að halda til að koma í veg fyrir
að skulda- og fjármálavandi evru-
svæðisins breiðist út.
Financial Times hefur eftir hátt-
settum manni í ónefndum seðla-
banka að evrópskir bankar eigi við
lausafjárvanda að etja en ekki eigin-
fjárvanda. Þá hefur ESB gefið út að
evrópskir bankar þurfi ekki meira fé
frá opinberum aðilum.
Vill styrkja bankana
Í ræðu sinni í Jackson Hole í Wyom-
ing í Bandaríkjunum sagði Lagarde
að evrópskir bankar þyrftu að vera
nægilega sterkir til að geta staðið af
sér skuldavanda einstakra evruríkja
og minnkandi hagvöxt. Ef þeir væru
hins vegar ekki nógu sterkir gæti
vandinn smitast inn í kjarnaríki evr-
unnar og jafnvel valdið skaðlegri
lausafjárkreppu.
Lagarde harðlega gagnrýnd
Sagði þörf á að spýta ennþá meira
eigin fé inn í evrópska banka
Reuters
Bankar Stjórnmála- og embættismenn í Evrópu brugðust illa við ummælum
Lagarde um veika stöðu evrópskra banka og sögðu hana betri en í fyrra.
Eyrir Invest, sem á kjölfestuhlut í
Marel, tapaði 13,5 milljónum evra á
fyrri hluta ársins, eða 2,2 milljörðum
króna. Á sama tíma 2010 hagnaðist
félagið um fjórar milljónir evra.
Félagið seldi á tímabilinu hlut sinn
í stoðtækjaframleiðandanum Össuri,
fyrir 73 milljónir evra. Bókfært virði
hlutarins hafði verið 83 milljónir
evra, þannig að salan skýrir stóran
hluta tapsins á tímabilinu. Andvirðið
var notað í að greiða niður vaxtaber-
andi skuldir fyrir 52 milljónir evra
og nema þær núna 186 milljónum
evra. Eignir eru 359 milljónir evra
og er eiginfjárhlutfallið 48%.
Auk 36% hlutar í Marel á Eyrir
17% hlut í Stork BV, sem á og rekur
iðnfyrirtækin Stork Technical Servi-
ces og Fokker Technologies. Árni
Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris,
segist í tilkynningu vera ánægður
með árangur fyrri hluta ársins.
„Kjölfestufjárfestingar okkar eru
vel staðsettar innan atvinnugreina
sem búa við góðan vöxt og horfur
eru góðar.“
Eyrir greiðir
niður skuldir
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.+
+/0-12
++0-34
11-..,
1+-.45
+5-442
+,/-34
+-252+
+/1-15
+3,-40
++,-1/
+/0-34
++3-.,
11-.35
1+-+04
+/-.25
+,4-./
+-25/2
+/1-/+
+32-2+
1+4-++00
++,-00
+/3-+2
++3-,5
11-+,+
1+-11+
+/-+
+,4-25
+-2/15
+/,-,0
+32-/5
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Xie Xuren, fjármálaráðherra Kína, sagði á dögunum
að stöðugt verðlag væri mikilvægt í augum kínverskra
stjórnvalda, en ekki mætti grípa til aðgerða sem heftu
hagvöxt. Verðbólga í Kína mældist 6,5% í júlímánuði,
en fjármálasérfræðingar spá því að hún verði rétt yfir
6% í ágúst. Á myndinni sést verkamaður safna eggjum í
eggjabúi í Shanxi-héraðinu í gær.
ivarpall@mbl.is
Hagvöxtur í forgangi
Reuters