Morgunblaðið - 30.08.2011, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Danshátíðin Reykjavík Dance Festival var
haldin í fyrsta sinn árið 2002 og hafa
áherslur hennar verið
ólíkar milli ára en þó
meginmarkmiðið að
skapa vettvang fyrir
sjálfstætt starfandi
danslistamenn á Ís-
landi, ýta undir nýsköp-
un og þróun dans á Ís-
landi og auka sýnileika
nútímadans í samfélag-
inu. Hátíðin í ár hefst 5.
september nk. og boðið
til mikillar dansveislu. Verkefnastjóri hátíð-
arinnar er Ásgerður G. Gunnarsdóttir og
gegnir hún því starfi í fyrsta sinn en hún hef-
ur áður unnið að sviðslistahátíðinni artFart.
Fleiri verk á dagskrá
„Dagskráin er mun stærri í ár en undan-
farin ár, það eru fleiri verk. Svo erum við
einnig í fyrsta skipti með sérstakan dag-
skrárlið tileinkaðan dansmyndum og dans-
innsetningum því það er grein sem fer stöð-
ugt vaxandi hér á landi. Íslendingar sem eru
að gera dansmyndir hafa verið að gera það
mjög gott erlendis, myndir hafa ferðast á
hátíðir og út um allt. Þannig að okkur
fannst tilvalið að hafa sérstakan dagskrárlið
tileinkaðan dansmyndum, íslenskum og er-
lendum, til að gefa fólki tilfinningu fyrir
möguleikum þessa forms.
Svo erum við einnig með tvö námskeið
sem eru einnig nýmæli í ár; eitt dans-
námskeið með Iñaki Azpillaga, sem er einn
fremsti samtímadanskennari heimsins í dag
og ótrúlega eftirsóttur og mjög gaman að
hann skyldi vilja koma og kenna. Hann er
búinn að vera að vinna með flokki Wims
Vandekeybus í Brussel í mörg ár sem dans-
ari og frábært að fá hann. Svo er líka nám-
skeið með menningarstjórnandanum Mech-
tild Tellmann um hvernig sviðslistamenn
geta komið sér á framfæri erlendis, það er
ekki auðvelt að gera það,“ segir Ásgerður
um dagskrána í ár. Þá verði einnig gefið út
hátíðarblað sem ritstýrt sé af dönsurum og
danshöfundum. „Við ákváðum að fjalla um
dans eins og við myndum vilja fjalla um
dans og blaðið kemur út 5. september. Í því
verða greinar og viðtöl og dagskrá hátíðar-
innar.“
Einnig verður málþing haldið á sunnu-
deginum, 11. september, þar sem kunnir
aðilar úr menningarlífinu munu tjá sig um
upplifanir sínar af ólíkum viðburðum
hátíðarinnar.
Ásgerður segir Reykjavík Dance Festi-
val hátíð sjálfstæða dansgeirans og því séu
þeir sem þátt taka í hátíðinni sjálfstætt
starfandi. „Mjög margir þeirra hafa gert
það mjög gott erlendis, Margrét Sara Guð-
jónsdóttir, Helena Jónsdóttir, Halla Ólafs-
dóttir, Steinunn Ketilsdóttir og fleiri. Þær
eru á meðal fremstu danslistamanna
þjóðarinnar í sjálfstæða geiranum.“
– Sýna dansararnir ný verk?
„Þetta eru allt frumsýningar, öll íslensku
verkin verða frumsýnd þannig að þetta eru
allt ný verk,“ svarar Ásgerður. Hátíðin
verður haldin í Tjarnarbíói, Bíó Paradís,
Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur
og Kex hosteli. Viðburðirnir verða því allir í
miðborg Reykjavíkur.
Spurð hvernig aðsóknin hafi verið að há-
tíðinni í gegnum árin segir Ásgerður að hún
hafi verið mjög góð, í það minnsta hin síð-
ustu ár. „Það hefur alltaf verið uppselt á alla
viðburði og það er mjög gleðilegt. Hátíðin
fer stöðugt vaxandi.“ Hátíðin verður sett í
Bíó Paradís mánudaginn 5. september en
það er borgarstjóri Reykjavíkur, Jón
Gnarr, sem setur hana.
Hátíð sem fer stöðugt vaxandi
Danshátíðin Reykjavík Dance Festival stendur yfir 5.-11. september Fjöldi danssýninga
og annarra danstengdra viðburða Danshöfundurinnn Iñaki Azpillaga heldur námskeið
Ljósmynd/Davide Bozzalla
Ballerína Úr verkinu Lost Ballerina eftir Kötlu Þórarinsdóttur, Lauru Murphy og Davide Bozzalla. Katla sést á myndinni en hún dansar í verk-
inu sem sýnt verður í Listasafni Íslands. Dagskrá Reykjavík Dance Festival með sýningartímum og -stöðum má finna á vef hátíðarinnar.
Ljósmynd/Margrét Seema Takyar
Saman Belinda og Gyða nefnist nýtt, íslenskt sviðs-
listaverk eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Steinunni
Ketilsdóttur og er verkið jafnframt þeirra fyrsta sam-
starfsverkefni.
Fimi Úr verki Menningarfélagsins, Retrograde, einu
þeirra sem sýnt verður á hátíðinni sem hefst 5. sept-
ember næstkomandi.
Ásgerður G.
Gunnarsdóttir
Dagskrá hátíðarinnar má finna á vef
hennar, reykjavikdancefestival.is. Miða-
sala á viðburði hátíðarinnar fer fram á
miðasöluvefnum midi.is.
Unesco hefur gefið út yfirlýs-
ingu þarsem varað er við því
að á markað gætu komið stol-
in listaverk og þjóðarger-
semar frá Líbíu. Órói í Mið-
Austurlöndum í ár hefur leitt
til rána á þjóðargersemum
sem síðan er reynt að selja á
svörtum markaði. Í bylting-
unni í Egyptalandi í febrúar
var í miðjum mótmælum ráð-
ist inní egypska þjóðarsafnið
og um 18 hlutum stolið af
safninu, þar á meðal heims-
frægri styttu af Tutankh-
amen sem borin er á höndum
gyðju nokkurrar.
Yfirmaður hjá Unesco,
Irina Bokova, segir í yfirlýs-
ingu hjá stofnuninni að af
reynslunni megi ætla að á
umrótartímum sem þessum
séu menningarverðmæti í
hættu. Hún hvatti Líbíumenn
til að verja ómetanleg þjóð-
argersemar sínar, hvar í
flokki sem þeir stæðu. Hún
sagði að þeir sem keyptu
stolin listaverk væru að ýta
undir þjófnað. Líbía er með
fimm staði á heimsminjaskrá
og sagði Bokova að passa
yrði uppá þá. Frægast er lík-
lega bærinn Leptis Magna
enda ein af fallegri borgum
hins fallna Rómaveldis.
Unesco varar við listaverkaránum í Líbíu
Eigene Rechte / Own work
Fornminjar Leikhús í Leptis Magna í Líbíu frá tímum Rómaveldis.
Hinn 71 árs gamli söngvari
Sir Tom Jones frestaði tón-
leikum sem hann átti að
halda á laugardagskvöldið í
Mónakó að ráði læknis. Tals-
maður Jones sagði að söngv-
arinn hefði verið með of lítið
vatnsmagn í líkamanum en
neitaði því að hann hafi
fengið hjartaáfall. Hann
eyddi laugardagskvöldinu á
spítalanum, Prinsessa
Grace, í Monte Carlo. Tón-
leikarnir í Mónakó áttu að
vera þeir síðustu í þriggja
mánaða túr sem hann er bú-
inn að vera á í sumar. Í yfir-
lýsingu frá talsmanni Jones
segir að megnið af tónleik-
unum hafi verið haldið í
miklum sumarhita og skipun
læknisins verið skýr.
Tom Jones hafði nýlega
sagt frá því í viðtali að hann
hefði misst tæp 13 kíló eftir
að hafa tekið sig á í matar-
ræðinu. Þessvegna fóru af
stað sögur um að hann hefði
fengið hjartaáfall þegar tón-
leikarnir féllu niður, en tals-
maðurinn sagði svo ekki
vera.
Jones fæddist árið 1940 í
Wales og varð heimsfrægur
strax á sjöunda áratug síð-
ustu aldar.
Tom Jones endaði á spítala í Mónakó
PA
Heimsfrægð Söngvarinn Sir Tom Jones eldist einsog aðrir og það féllu
niður hjá honum tónleikar á laugardaginn og þótti honum það mjög leitt.