Morgunblaðið - 27.09.2011, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.09.2011, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 2011 FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, gagnrýndi harkalega ríkisstjórnina á fundi um atvinnumálin sem SA stóð fyrir í Hörpu í gær undir yfirskriftinni Ryðjum hindrunum úr vegi – at- vinnulíf í uppnámi. Vilmundur sagði að samskiptin við stéttarfélögin hefðu gengið vel, treysta mætti því sem menn segðu þar á bæ. SA hefðu reynt að fá núverandi stjórnvöld til samstarfs um aðgerðir til að draga úr atvinnuleysi. „Því miður hefur ríkisstjórn hvorki sýnt vilja né getu til að fylgja eftir og efna eigin yfirlýsingar,“ sagði Vilmundur. „Samtök atvinnu- lífsins geta ekki treyst orðum henn- ar né skriflegum yfirlýsingum enda virðist þar allt á sömu bókina lært. Orð án athafna. Það er því sjálfgefið að Samtök atvinnulífsins munu ekki hafa frumkvæði að neinum frekari samskiptum við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.“ Frummælendur voru Grímur Sæ- mundsson, varaformaður SA, Mar- grét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, SVÞ, Adolf Guðmundsson, formaður Landsambands íslenskra útvegs- manna, LÍÚ, Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, og Kolbeinn Kolbeinsson, fram- kvæmdastjóri Ístaks. Kolbeinn sagði að menn hefðu talið árið 2010 að botninum væri náð, nú færi að rofa til enda hefði þá verið landað bæði samningi um stækkun Ísal og Búð- arhálsvirkjun. En það sem af væri þessu ári hefði Ístak aðeins gert einn samning hér á landi. Atvinnuleysi að festast í sessi Fyrirtækinu hefði hins vegar tek- ist að halda í horfinu með því að taka að sér verk erlendis, veltan væri svipuð og verið hefði. En fyrirtækið yrði að vera með heimamarkað, ekki væri hægt að ætlast til þess að helm- ingurinn af mannskapnum þyrfti að dvelja að staðaldri utan lands. „Atvinnuleysið er að festast í sessi og það er afleiðing þessarar stefnu sem er í gangi, að það sé öruggast að gera ekki neitt,“ sagði Kolbeinn. Adolf sagði m.a. í umræðum á fundinum að rekstur sjávarútvegs- fyrirtækjanna gengi almennt vel, því ættu þau að vera að fjárfesta af krafti með tilheyrandi margfeldis- áhrifum á hagkerfið. „Allur ísfiskskipaflotinn er kom- inn yfir 30 ár, hann er orðinn úreltur. Það þarf að endurnýja þorra fiski- skipaflotans. Þegar mest var vorum við með um 65 skip, erum með um 25 hefðbundin ísfiskskip og þau þarf öll að endurnýja. Við erum þá að tala um 1,8-2,2 milljarða í hefðbundnu ís- fiskskipi. Og skip í uppsjávarflotan- um kostar fjóra til fimm milljarða eftir því hvernig það er útbúið.“ Einnig þyrfti að endurnýja tækja- búnað í frystihúsum, auka þar fram- leiðni. Sjávarútvegurinn skapaði fjölmörg afleidd störf, það hefði komið glöggt í ljós á sjávarútvegs- sýningunni í Reykjavík. „Þannig að það er mjög vægt til orða tekið að hundruð starfa myndu skapast ef sjávarútvegurinn fengi að vera í friði og fá að gera það sem hann gerir best, reka fyrirtækin, myndi það gerast á mjög fáum mánuðum.“ Stjórnvöld mesta hindrunin?  Talsmenn fyrirtækja segja ríkisstjórn vinstriflokkanna dáðlausa  Framkvæmdastjóri Ístaks álítur stefnu stjórnvalda vera að öruggast sé „að gera ekki neitt“ Morgunblaðið/Eggert Hlustað Fjölmenni var á fundi Samtaka atvinnulífsins í Hörpu. Meðal fundarmanna voru nokkrir alþingismenn en ekki blönduðu þeir sér í umræðurnar eftir ávarp Vilmundar Jósefssonar fundarstjóra og erindi frummælenda. Grímur Sæmundsen, varaformaður SA, sagði í erindi sínu að frá hruninu 2008 hefðu fyrirtæki landsins greitt 70-80 milljarða króna í bætur gegnum Atvinnuleysis- tryggingasjóð. Atvinnuleysi væri nú 6,7%, störfum hefði fækkað um 12 þúsund frá 2008 en árlega kæmu um 1.800 manns út á vinnumarkaðinn. Alls hefðu 3.600 íslenskir ríkisborgarar flutt úr landi 2008-2010. En ríkisstjórnin drægi stöðugt lappirnar í atvinnumálunum. „Við viljum ekki einkafjárfestingu til mikilvægra, arð- samra og nauðsynlegra samgöngubóta – nei, við viljum eitthvað annað. Við höldum sjávarútvegi og orkuvinnslu í uppnámi – við viljum eitthvað annað. Það er ekki unnt að greiða götu þeirra sem mestan áhuga sýna á að fjárfesta hér og byggja upp stór og öflug fyrirtæki. Nei – við viljum eitthvað annað. Niðurstaðan er augljós: Fjárfestarnir fara – eitthvað annað. Tölurnar í upphafi máls míns segja líka: Fólkið er að fara – eitthvað ann- að. Og verst af öllu: það kemur ekkert annað í stað þess sem hafnað er,“ sagði Grímur. „Fólkið er að fara – eitthvað annað“ Grímur Sæmundsen Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ, sagði að þörf væri á þjóðarsátt til að koma saman næstu fjárlögum sem yrði afar erfitt. „Til þess þurfum við ríkisstjórn um þjóðarhag, ríkisstjórn með virkan þingmeirihluta sem býr ekki við hótanir einstakra stjórnarliða í hverju mál- inu á eftir öðru. Ef þessi ríkisstjórn á að eiga einhverja möguleika á því að sitja með sæmd út kjörtímabilið verð- ur Samfylkingin að stíga niður fæti og neita að vera eins og meðvirkur maki í ofbeldishjónabandi.“ Ríkisstjórnin yrði að svara því sjálf með verkum sín- um hvort stærsta hindrunin á vegi fjárfestinga væri hún sjálf. En SVÞ styddi eindregið umsókn um aðild að Evr- ópusambandinu og hvað sem um stjórnina mætti segja þá væri núverandi stjórnarmynstur sennilega það eina sem tryggði að umsóknarferlið yrði klárað. Krónan myndi aldrei duga fyrirtækjunum og nú þegar hefðu 37 af stærstu fyrirtækjum landsins kvatt hana, nokkuð sem þorri fyrirtækja og einstaklingar gætu ekki. Gera yrði þjóðinni fært að ákveða í þjóðaratkvæði hvort hún vildi aðild, annað væri „óþolandi forræðishyggja“. Samfylkingin eins og „meðvirkur maki“ Margrét Kristmannsdóttir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, sagði að skatthlutfall í ríkjum Efnahags- og framfara- stofnunarinnar, OECD, hefði farið jafnt og þétt hækk- andi síðustu hundrað árin. Þegar bornar væru saman opinberar skatttekjur ríkja sem hlutfall af landsframleiðslu yrði að gæta að því að í langflestum Evrópulöndum væru lífeyriskerfi svonefnd gegnumstreymiskerfi, fjármögnuð með sérstökum sköttum en svo væri ekki hér. Hér væri notað að mestu uppsöfnunarkerfi sem kæmi ekki fram í opinberu út- gjöldunum. „Það vakti óverðskuldað litla athygli þegar skatta- sérfræðingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins bentu á það í skýrslu í fyrravor að hlutfall skatta á Íslandi af landsframleiðslu, að viðbættum lögbundnum ið- gjöldum í lífeyrissjóði, hefði verið það næsthæsta í heiminum árið 2004,“ sagði Hannes. „Aðeins í Danmörku hefði skattbyrðin verið hærri.“ Þrátt fyrir mikið fall skatttekna vegna samdráttarins væri byrðin hérlendis enn með því mesta sem gerðist í OECD. Skattbyrði hér með því mesta sem gerist Hannes G. Sigurðsson Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Ég bjóst við því að ferð mín um Ís- land yrði stórkostleg, sem og hún varð, en tók kannski síður inn í myndina en hefði jafnvel mátt gera Íslendingana sjálfa. Alls staðar þar sem ég kom var mér tekið opnum örmum og fólk var tilbúið að skjóta yfir mig skjólshúsi,“ segir Daniel Hutton sem hjólaði hringinn í kring- um Ísland til styrktar Ljósinu, end- urhæfingarmiðstöð fyrir fólk með krabbamein. „Ég hef tengst fólki um allt land órjúfanlegum vinaböndum. Gestrisnin er sannarlega Íslending- um í blóð borin.“ Daniel sem er breskur kom fyrst til Íslands í fyrra þegar hann heim- sótti landið með kórnum sínum frá Leeds á Englandi. Ferðin var heim- sókn til Kvennakórs Kópavogs og að sögn Daniels voru stelpurnar í kórn- um ómissandi við undirbúning ferð- arinnar í ár. „Þær komu mér í sam- band við vini og ættingja sína um landið og síðan aðstoðaði það fólk mig við að brúa þau bil þar sem ég hafði ekki gistingu og þannig gekk þetta koll af kolli.“ Söng fyrir mat og gistingu „Það vissu fæstir að ég myndi taka til söngs en mér finnst það góð leið til að þakka því góða fólki sem hleypti mér inn á heimili sín.“ Daniel er að læra söng og tók því nokkur klassísk lög og var oft launað á móti með íslenskri vísu. „Ég söng fyrir fólk ítölsk lög og ensk eins og gamalt enskt lag sem heitir Trade winds og síðan leitaði ég í einstaka söngleiki og tók m.a. Old man river. Íslend- ingar voru líka duglegir að kenna mér íslenskar vísur og lög og ég söng Krummavísur og það hefur hjálpað mér að æfa mig á íslenskunni.“ Orðlaus yfir náttúrunni „Þegar ég ákvað að hjóla um Ís- land vissi ég að náttúran hér væri ef- laust einhver sú stórbrotnasta sem ég hefði nokkurn tíman upplifað en ekkert hefði getað undirbúið mig undir þá fegurð sem landið hefur upp á að bjóða,“ segir Daniel og bæt- ir því við að það hafi verið þess virði að fara inn í hvern fjörð og út af þjóð- veginum. „Mér er sagt að margir sleppi Vestfjörðunum þegar þeir fara hringinn en það eru mistök því það er eitt fallegasta svæði landsins. Vestfirðirnir og Austurlandið eru al- gjörar náttúruperlur.“ Hjólaði 3.000 kílómetra hringinn í kringum landið, söng fyrir gistingu og mat, allt til styrktar Ljósinu Einstakt fólk býr á Íslandi Morgunblaðið/Sigurgeir S. Leiðarlok Daniel Hutton og Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins. 3.600 fleiri íslenskir ríkisborgarar fluttu úr landi en til þess árin 2008-2010 1 verksamning hefur Ístak gert á Ís- landi á þessu ári ‹ UGGVÆNLEGAR TÖLUR › »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.